Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Side 21
Umræða 21Vikublað 21.–23. október 2014 Ég sé engan tilgang í því Ég er hugmyndafælinn maður Ótrúlega ómaklegt Heiða Rún Sigurðardóttir ber sig ekki saman við aðrar leikkonur. – DV Sigurður Guðmundsson segir hugmyndina ofmetið fyrirbæri. – DVHanna Birna Kristjánsdóttir um þá kröfu að hún segi af sér. – Sprengisandur Mest lesið á DV.is 1 „Ég held að ég hafi átt ótrúlega góða ævi“ Berglind Guðmundsdóttir greindist með brjóstakrabbamein fyrir tæpum sjö árum og háði hetjulega baráttu við sjúkdóminn allt fram á síðasta dag. „Það sem hefur verið erfiðast að temja sér er að hætta að lifa fyrir framtíðina,“ sagði Berglind í viðtali við DV. Hún lést síðastliðinn föstudag, sama dag og viðtalið birtist. Lesið: 48.799 2 Lífstíðardómur fyrir dauðaklám Í lok september voru filippseysku hjónin Vicente og Dorma Ridon dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir barnamisnotkun, dýraníð, mansal, ásamt ýmsum minni glæpum. Öll brotin voru framin við vinnslu á svokölluðum „Crush“-myndböndum sem hjónin voru sökuð um að hafa selt á internetinu. Lesið: 30.470 3 „Við eigum öll að eiga séns“ Jónheiður Pálmey Hall- dórsdóttir missti föður sinn stuttu eftir að hún var nýorðin móðir aðeins sextán ára gömul. Faðir hennar var alkóhólisti og eyddi síðustu árum sínum á götunni í miðborg Reykjavíkur. Hún vill gera meira fyrir útigangsmenn og konur. Lesið: 28.158 4 Íslendingar sjúkir í sófa-borð Söstrene Grene „Við réðum bara ekki við þetta, æsingurinn var svo mikill,“ segir Brynja Scheving, eigandi Söstrene Grene í Kringlunni og Smáralind, um áganginn og eftirspurn- ina eftir ódýrum sófaborðum. Örtröð myndaðist á sölustöðum í byrjun sept- ember þegar borðin komu í hús. Lesið: 23.978 5 Egill Helgason í baði með Bylgju Tökur eru hafnar á fyrsta þætti Í baði með Bylgju, þar sem Bylgja Babýlons grínisti fær gesti í bað til sín og ræðir við þá um málefni líðandi stundar. Í fyrsta þættinum fær Bylgja til sín Egil Helgason sjónvarpsmann. Lesið: 11.918 Myndin Tvenns lags landslag Ýmissa grasa kennir í manngerðu borgarlandslaginu, eins og hér þar sem haustlaufin og sölnandi grasið mæta dýpstu kimum borgar-menningar. Mynd SiGTRyGGuR aRi Krónan og Stokkhólmsheilkennið S nemma í febrúar á þessu ári birtu Stöð 2 og Fréttablaðið könnun þar sem svarendur voru spurðir að því hvort þeir vildu krónuna áfram sem framtíðargjaldmiðil. Niðurstaðan sýndi að þjóðin er klofin; helmingur vildi halda krón- unni, hinn helmingurinn ekki. Fyrir rúmum tveimur árum birti Seðlabankinn 600 blaðsíðna skýrslu um framtíðargjaldmið- il þjóðarinnar. Í skýrslunni var far- ið ítarlega yfir kosti og galla ým- issa valkosta. Niðurstaðan var ekki einhlít en valið virtist standa milli þess að halda krónunni eða taka upp evru. Fyrirvarar voru ýmsir um framvindu efnahags- og peninga- mála. Í máli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra kom fram, er hann kynnti efni skýrslunnar, að „plan A“ fælist í því að freista þess að losa gjaldeyrishöftin. Það væri enda forsenda þess að unnt væri að skipta yfir í aðra mynt ef svo bæri undir. Bara einn kostur Þetta má öllum vera ljóst enda eru gjaldeyrishöft í eðli sínu brot á fjór- frelsi Evrópusambandsins og EES- samningsins sem kveður meðal annars á um frjálst flæði fjármagns milli aðildarlanda. Már vitnaði í kynningu sinni í Martin Wolf hjá Financial Times sem hafði látið þau orð falla í erindi hér á landi að „allir kostir í gjaldeyrismálum eru slæmir“. Og Már sagði: „Ein af ástæðum þess að erfitt er að komast að ein- hlítri niðurstöðu á þessu stigi varð- andi það hvaða kost Íslendingar ættu að velja í gjaldmiðils- og geng- ismálum er að óvissa er um hvern- ig þeim tveim kostum sem helst virðast koma til greina muni reiða af á næstu misserum. Þar er annars vegar um að ræða endurbætta um- gjörð um krónuna og losun hafta á fjármagnshreyfingar, og hins vegar aðild að ESB og evrusvæðinu.“ Í bók Össurar Skarphéðinssonar, Ári drekans, kemur fram að Evrópski seðlabankinn og ráða- menn innan ESB hafi verið tilbún- ir til þess að greiða götu Íslands ef hugur þeirra stæði til þess að aflétta gjaldeyrishöftum og taka nýjan kúrs. En síðan þetta var hafa viðræður um aðild að ESB og möguleg upp- taka evrunnar verið blásin af með þunga núverandi stjórnarherra. Þá er krónan víst eini kostur- inn og því ekki annað að gera en að endurbæta umgjörð um hana og reyna að losa höft á fjármagns- hreyfingar. Höftin áfram Krónan virkar ef til vill ágæt- lega innan haftanna. En hún er haftakróna! Seðlabankinn hefur í nýrri fjár- málastöðugleikaskýrslu bent á að aðstæður séu bærilega góð- ar til að losa um höft, bregðast við þrýstingnum sem höftin sporna gegn. Hann vill með öðrum orð- um veita undanþágu fyrir bú gamla Landsbankans (LBI) til þess að hleypa út hundruð milljörðum króna af gjaldeyriseign erlendra kröfuhafa. Þennan gjaldeyri á búið handbæran. Bú gamla Landsbank- ans vill á móti lengja í 230 milljarða króna gjaldeyrisláni nýja Lands- bankans við þann gamla. Í dag eru þrír dagar þar til sá frestur rennur út sem LBI gaf Seðlabankanum og stjórnvöldum til að svara þessu er- indi. Ef þessir samningar renna út í sandinn gæti brostið á 8 prósenta gengisfelling að mati Seðlabank- ans og þar með yrði herkostnaðin- um að talsverðu leyti varpað yfir á herðar almennings. Hvar væri fjár- málastöðugleikinn þá? Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, óttast að verði ekki tækifæri notað nú til þess að létta á gjald- eyrishöftunum verði þau hér um ókomna tíð. „Ryðja þarf úr vegi þeim hindrunum sem standa í vegi fyrir uppgjöri þrotabúa og lengingu Landsbankabréfs og ráðast að því loknu í niðurrif þeirra múra sem við höfum reist utan um íslenskt efnahagslíf með höftum,“ sagði Þorsteinn í síðustu viku. Gíslar krónunnar Núverandi stjórnvöld hafa útilokað þjóðina frá öðrum af þeim tveimur kostum sem hún átti þegar gjald- miðilsskýrsla Seðlabankans kom út fyrir meira en tveimur árum. Nú höfum við aðeins krónuna sem að- eins helmingur þjóðarinnar vill hafa til frambúðar. En þá neyðist Seðlabankinn líka til þess að halda í höftin – og jafnvel treysta þau – til þess að verja fjármálastöðugleik- ann, því annars bíður gengisfell- ingin handan við næsta götuhorn. Og þannig verður þetta um ókomna framtíð þar til við verðum öll þjökuð af Stokkhólmsheil- kenninu. Ef einhver man ekki í hverju það felst þá felst það í því að fórnar lamb mannræningja fer að skynja kvalara sinn sem sérstakan verndara sinn og taka upp málstað hans. Við erum í gíslingu krónunnar og þess vegna elskum við hana. n „Núverandi stjórn- völd hafa útilok- að þjóðina frá öðrum af þeim tveimur kostum sem hún átti þegar gjald- miðilsskýrsla Seðlabank- ans kom út fyrir meira en tveimur árum. Jóhann Hauksson Kjallari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.