Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Síða 23
Umræða Stjórnmál 23Vikublað 21.–23. október 2014 Sjúkdómavæðing geðkvillanna n Íslendingar eiga norðurlandamet í notkun svefnlyfja og róandi lyfja S vefnlyf og róandi lyf eru of- notuð hér á landi og saman- burðurinn við önnur Norður- lönd er óhagstæður. Notkun þessara lyfja er langmest hér á landi en minnst í Danmörku. Al- mennt er notkun svefnlyfja og róandi lyfja tvisvar til þrisvar sinnum meiri en meðal annarra Norðurlandaþjóða. Þessi mikla notkun svefn- og róandi lyfja á Íslandi á sér að minnsta kosti 35 ára sögu og er verulegt áhyggjuefni að mati landlæknisembættisins. Í grein á vegum landlæknisemb- ættisins í Læknablaðinu síðastliðið vor segir að ofnotkun lyfja kalli á skýringar. Ein þeirra gæti verið sú að fjöldi sjúklinga sé meiri hér á landi en í nágrannalöndunum og lyfja- skammtar séu stærri. „Meðan við þekkjum ekki orsakir þessarar miklu notkunar svefnlyfja og róandi lyfja hér á landi er erfiðara að vinna gegn henni. Þess vegna er brýnt að gerðar verði nauðsynlegar rannsóknir sem gætu útskýrt sérstöðu Íslands og af- leiðingar óhóflegrar lyfjanotkunar,“ segir einnig í umræddri grein. Hvað er eðlilegt og heilbrigt? Á undanförnum áratugum hefur greindum geðkvillum og geðsjúk- dómum fjölgað verulega. Yfirlit yfir þetta er að finna í alþjóðlegri hand- bók sem hefur að geyma sjúkdóms- greiningar og tölfræði (Diagnostic and Statistical Manual – DSM). Skrá þessi hefur verið til endurskoðunar og uppfærslu og hefur nú að geyma hundruð greindra geðsjúkdóma og geðkvilla, allt frá geðrofi og þunglyndi yfir í athyglisbrest og ofvirkni. Banda- ríski geðlæknirinn Allen Frances vann lengi að því að fullkomna þessa handbók um greiningu geðsjúk- dóma. Hann talar nú um eins konar „verðbólgu“ sjúkdómsgreiningarinn- ar og óttast að sjúkdómavæðing á sviði geðlækninga taki smám saman að þrengja að því sem til þessa hefur verið talið eðlilegt hugarástand og geðslag. Þar að auki tala staðreyndir sínu máli um vaxandi velgengni lyfja- fyrirtækja sem sérhæfa sig í að fram- leiða geðlyf. Fimmti hver Bandaríkja- maður notar lyf við geðkvillum. Árið 2010 notaði meira en einn af hverj- um tíu lyf gegn þunglyndi. Frá árinu 2005 hefur geðlyfjanotkun banda- rískra karla sem gegna herþjónustu áttfaldast. Meira en 110 þúsund her- menn taka inn að minnsta kosti eina tegund geðlyfja og hundruð þeirra deyja árlega eftir að hafa tekið inn of stóra skammta. Lyfjavæðing daglegs lífs Frances, sem nú hefur snúist til varnar hinum „eðlilega manni“, gaf fyrir nokkrum misserum út bókina „ Saving Normal“. Hún er eins konar skýrslugerð innanbúðarmanns í geðlæknisfræðinni þar sem ráðist er gegn taumlausri áráttu til að greina æ fleiri geðkvilla og geðsjúkdóma. Bókin ræðst einnig gegn lyfjaiðnað- inum og því sem Frances kallar lyfja- væðingu hins daglega lífs. Þversögnin sem Allen Frances staldrar við er sú, að þótt æ fleiri noti geðlyf við æ fleiri greindum geðmeinum, virðist engu betur ganga að lækna þá sem raun- verulega þurfa á hjálp að halda vegna geðsjúkdóma eða geðraskana. Frances segir í formála bókarinn- ar að sjálfur gæti hann fallið undir marga af þeim nýju sjúkdómsgrein- ingum sem er að finna í nýjustu upp- færslu DSM-handbókarinnar um greinda geðsjúkdóma. „Í veislunni með starfsbræðrum mínum geng ég að rækjuréttinum á hlaðborðinu og upp kemst um sjúklega átröskun mína. Ég gleymi nöfnum og andlit- um og það flokkast undir „minnihátt- ar hugræna röskun“. Áhyggjur mínar og hryggð flokkast sem „kvíða/þung- lyndisröskun“. Ég er stundum utan við mig og ákafur og það hefur feng- ið greininguna „öldrunarathyglis- brestur“.“ Allen Frances gerir ekki lítið úr geðlæknisfræðinni þótt hann gagnrýni sjúkdómavæðinguna enda geri hún afar mikið gagn þegar vel tekst til. En hann bendir á að verslun- arhyggja lyfjafyrirtækjanna hafi náð ákveðnum tökum á henni, setji hagn- að sinn framar raunverulegum lækn- ingum og ýti undir öfgakennda sjúk- dómsgreiningar, oflækningar og allt of mikla lyfjanotkun. Allen Frances gerir heldur ekki lítið úr viðleitni geðlæknisfræðinn- ar til þess að fyrirbyggja raunveru- lega geðsjúkdóma á borð við geð- klofa eða geðrof (schizophrenia). En hann gagnrýnir þá aðferð að reyna að greina einkenni geðklofa fyrirfram og setja hóp af fólki í áhættuhóp á unga aldri. Þau geti átt erfitt með að burðast með þann stimpil að vera í áhættuflokki og slíkt eitt geti fram- kallað kvíða yfir því að geðveikin sé handan við næsta götuhorn. Þótt gagnrýni Allens Frances sé ekki alveg ný af nálinni þykir það sæta tíðindum þegar geðlæknir kveð- ur sér hljóðs sem árum saman hefur stutt og tekið þátt í að skýra og bæta sjúkdómsgreiningar á geðsjúkdóm- um (DSM). Leitin að orsökum mikillar lyfjanotkunar Eins og fram kom hér að framan er notkun geðlyfja langtum meiri hér á landi en annars staðar á Norðurlönd- um og allt að fimmfalt meiri í sum- um flokkum róandi lyfja og svefnlyfja en í Danmörku. Þá er einnig ljóst að dauðsföll vegna of stórra skammta af slíkum lögmætum lyfjum eru tíðari en af völdum of stórra skammta af ólöglegum fíkniefnum. Eins og áður segir telur land- læknisembættið brýnt að gerðar verði nauðsynlegar rannsóknir sem gætu útskýrt sérstöðu Íslands og af- leiðingar óhóflegrar lyfjanotkunar. Vel er hugsanlegt að menn eins og Allen Frances búi yfir að minnsta kosti einni haldbærri skýringu á óhóf- legri notkun svefnlyfja og róandi lyfja hér á landi. n „Meðan við þekkj- um ekki orsakir þessarar miklu notkunar svefnlyfja og róandi lyfja hér á landi er erfiðara að vinna gegn henni. Jóhann Hauksson johannh@dv.is Óhófleg geð- lyfjanotkun Geir Gunnlaugsson land- læknir. Landlæknis- embættið vill finna ástæður þess að notkun róandi lyfja og svefnlyfja er miklu meiri hér á landi en annars stað- ar á Norðurlöndum. Mynd Sigtryggur Ari Útbólgin sjúkdómsgreining Allen Frances er þekktur bandarískur geðlæknir. Honum blöskrar lyfjaát og öfgar í greiningu geðsjúkdóma og geðkvilla og hefur snúist til varnar hinu venjulega og heilbrigða. Vill draga úr geðlyfjanotkun Umsögn til Alþingis „Í ljósi þess hve mikil geðlyfjanotkun er á Íslandi í samanburði við önnur lönd, leggur landlæknir áherslu á mikil- vægi þess að gera samanburð á þeim meðferðarúrræðum sem í boði eru við geðheilbrigðisvanda m.t.t. kostnaðar- þátttöku hins opinbera. Í kjölfar þess er mögulegt að skoða fýsileika þess að auka kostnað ríkisins við gagnreyndar meðferðir annarra en lyfja. Slík nálgun gæti leitt til minni geðlyfjanotkunar og þar með dregið úr kostnaði við geðlyf.“ (Umsögn landlæknis til Alþingis um geðheilbrigðisstefnu, nóv. 2013) Samið um greiðslur Erfitt að skapa samstöðu um markaðsmálin segir Baldvin Jónsson B aldvin Jónsson segist hafa átt fund með verkefnis- stjórn um markaðssókn ís- lenskra matvæla fyrir helgi og samkomulag hafi tekist um greiðslur vegna starfsins. Á fjár- lögum þessa árs eru ætlaðar 18 milljónir króna til verkefnisins í gegnum viðskiptaskrifstofu ut- anríkisráðuneytins. Sagt var frá því í fréttum í síðastliðinni viku að greiðslur til verkefnisins hefðu verið stöðvaðar þar eð greinargerð um framvindu og ráðstöfun fjár- veitingarinnar skorti af hans hálfu. „Málið hefur verið leyst,“ segir Baldvin, en hann hefur unnið að því að koma íslenskum fram- leiðsluvörum á markað, einkum í Bandaríkjunum, í hartnær tuttugu ár. Berst fyrir samstöðu Baldvin segir að sér þyki mest um vert að skapa samstöðu og sam- vinnu allra þeirra sem framleiða og flytja út, en það hafi ekki alltaf gengið sem skyldi. „Flækjustigið er mikið í þessum markaðsmálum og fé, sem ætlað er til þess, ligg- ur víða. Minn draumur er og hef- ur alltaf verið að samhæfa þetta vel án þess að taka fram fyrir hendurn- ar á neinum. En það þarf ekkert að efast um árangurinn. Þetta hefur skilað því að Whole Foods, ein virtasta mat- vöruverslun Bandaríkjanna, hefur tekið þessar afurðir til sölu og þar með staðfest gæði þeirra. Það leið- ir svo til þess að allir sem telja sig í heimi sælkera vilja kaupa íslenskar afurðir. Salan á síðasta ári nam rúmum tveimur milljörðum króna og hefur vaxið á síðustu árum.“ Meðal þess sem á boðstólum er má nefna ferskt lambakjöt, fjórar bragðtegundir af skyri, smjör, ost, eldislax og súkkulaði. Þá má geta þess sérstaklega að eldisbleikjuver- kefnið hefur skilað umtalsverðum árangri í kjölfar markaðsátaks sem hófst fyrir nokkrum misserum. n johann@dv.is Samið um greiðslur Samið hefur verið um áframhaldandi greiðslur vegna markaðsstarfs Baldvins Jónssonar. Mynd gunnAr gunnArSSon „Salan á síðasta ári nam rúm- um tveimur milljörðum króna og hefur vaxið á síðustu árum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.