Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Page 24
Vikublað 21.–23. október 201424 Neytendur
Gæðahakk fyrir
500 krónur á kíló
n Búðu til fitusnautt lambahakk á lúxusverði n Svona áttu að bera þig að
E
f þú hefur aðgang að öflugri
hrærivél eða hakkavél, getur
þú búið þér til nærri fitulaust
lambahakk fyrir ótrúlega lít-
inn pening. Sláturtíðin er nú
í fullum gangi víða um land. Ein af-
urð, sem Íslendingar hafa nýtt svo
lengi sem elstu menn muna, eru
þindar. Með smá handavinnu má
búa sér til gómsætt ferskt lamba-
hakk, úr nýslátruðu, til að draga úr
heimilisútgjöldunum. Blaðamaður
tók þindar, eins og sagt er, og komst
að raun um að ferlið er sáraeinfalt. Á
einni kvöldstund er hægt að búa sér
til frábært hakk úr hreinu lambakjöti
fyrir 250 krónur á kílóið.
Lítil fita
Áður en lengra er haldið er rétt að
rifja upp að DV gerði úttekt á nauta-
hakki á dögunum. Í úttektinni kom
fram að fituinnihald í nautahakki er
yfirleitt á bilinu 8 til 12 prósent. Al-
geng rýrnun við steikingu var um 30
prósent. Samkvæmt upplýsingum úr
gagnagrunni Matís er fituinnihald
í kindahakki um 15 prósent. Í sama
grunni er að finna upplýsingar um
næringarinnihald þinda úr lömbum.
Þar kemur fram að hlutfall fitu er
6,9 prósent. Þegar búið er að skera
þindina sjálfa frá, og taka vöðvann
frá má gera ráð fyrir að hlutfallið
lækki allnokkuð og rýrnunin sé að
miklum mun minni en bæði í kinda-
hakki og nautahakki. Hakkið, að
fráskorinni þindinni sjálfri, verður
því sérstaklega fitusnautt og rýrnar
minna en annað hakk úr rauðu kjöti
sem er í boði á markaðnum.
Í úttekt DV á nautahakki á
dögunum kom enn fremur fram að
kílóverðið var á bilinu 1.300 til 1.900
krónur. Þú getur því fengið þrjú kíló
af lambahakki, ef þú hakkar sjálfur,
fyrir sama pening og það kostar að
kaupa nautahakk úti í búð. Hér verð-
ur farið yfir hvernig að þessu er stað-
ið.
Svona er þetta gert
Kjötvinnslur víða um bæ bjóða upp
á ferskar – ófrystar – þindar úr lömb-
um. Blaðamaður hafði samband
við Fjarðarkaup og pantaði 20 kíló
af þindum. Fyrir það borgaði hann
7.794 krónur. Hann fékk lánaða
hakkavél hjá ættingja, brýndi hnífa
og skæri og hófst handa. Nauðsyn-
legt er að hafa góð skurðarbretti við
höndina, svuntur fyrir þá sem koma
að málum og hrein ílát.
1 Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er þindin sjálf, þunn hvít
himna, umkringd vöðva. Hún skilur
brjóstholið (með hjarta og lungum)
frá kviðarholi (með meltingarfærum)
en þindin er helsti öndunarvöðvi
líkamans, að því er greint er frá á Vís-
indavefnum. Í miðju þindarinnar er
hreinn vöðvi. Með góðum skærum
er auðvelt og fljótlegt að klippa hvítu
himnuna frá, svo eftir standa
vöðvarnir. Heppilegt er að klippa
fyrst við vöðvann sem liggur yst en
síðan klippa himnuna frá stærsta
vöðvanum sem er í miðju þindarinn-
ar. Himnunni er best að henda í rusl
en vöðvana setur maður í hreint ílát.
Það tók þrjá einstaklinga um það
bil tvo tíma að verka 20 kíló af þind-
um með þessum hætti. Tekið skal
fram að vöðvarnir eru eins og aðrir
vöðvar skepnunnar, en ekki eins og
lifur eða annar innmatur.
2 Þegar skurðinum er lokið er komið að því að hakka kjötið.
Engum efnum er bætt við kjötið en
það er vitanlega valkvætt. Blaðamað-
ur bætti engum kryddum eða efnum
við og fékk út 16 kíló af hakki. Af-
skurðurinn var sem sagt 20 prósent
upphaflegu þyngdarinnar.
3 Því næst er kjötið sett í hæfi-lega stóra poka. Blaðamaður
útbjó 32 hálfs kílós poka með hakki.
Kjötið mun næsta árið mynda uppi-
stöðu í 32 kjötmáltíðum fyrir þrjá til
fjóra heimilismenn.
4 Að lokum er pokunum raðað í frysti. Gætið að því að raða
ekki of þétt, eða of miklu í senn, því
þá er hætt við að langan tíma geti
tekið fyrir kjötið að frjósa. Það er
aldrei heppilegt.
Nautahakk kostar
þrefalt meira
Loks má nefna að hver skammtur
kostaði 249 krónur í þessu tilfelli.
Vinnustundir voru fimm til sex. Til
gamans má reikna út að ef neytendi
myndi í staðinn kaupa 32 hálfs kílós
pakka af nautahakki, sem kostar
750 krónur að jafnaði, væri kostn-
aðurinn 24 þúsund krónur. Verð-
munurinn á fitusnauða lamba-
hakkinu og dæmigerðu nautahakki
er því um það bil þrefaldur. Lamba-
hakk er herramannsmatur og má
nota á svipaðan hátt og nautahakk;
í alls kyns grýtur, hakkrétti, kjötboll-
ur, lasanja eða mexíkóska rétti. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Myndarleg húsmóðir í Hafnarfirði Það
er létt verk að verka þindar. Það má gera með
góðum hníf eða skærum. MyNDIR BaLDuR GuðMuNDSSoN
Ósýnilegt verð
á verkstæðum
Af 35 dekkjaverkstæðum sem
Neytendastofa heimsótti á
dögunum til að kanna hvort verð-
skrá yfir alla þjónustu sem þar
var í boði væri sýnileg, kom í ljós
að 12 þeirra voru ekki með verð-
skrá til staðar. Það var hjá Barð-
anum Skútuvogi, Vöku Skútu-
vogi, Max 1 Bíldshöfða, Kvikkfix
Hvaleyrarbraut, Dekkjahúsinu
Auðbrekku, Bílkó Smiðjuvegi,
Bíla áttunni Smiðjuvegi, Sólningu
Smiðjuvegi, Hjólbarðaverkstæði
Bílabúðar Benna Vagnhöfða,
Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs
Gylfaflöt, Kletti Suðurhrauni og
Sólningu Hjallahrauni. Á tveim-
ur verkstæðum var verðskrá til
staðar en ekki sýnileg en það var
hjá Gúmmívinnustofunni Skip-
holti og Nýbarða Lyngási. Neyt-
endur eiga rétt á að geta gert
verðsaman burð á milli verkstæða
og leitað eftir bestu tilboðunum
þannig að það er illa séð ef verð-
merkingar og verðskrár eru ófull-
nægjandi. Neytendastofa mun
fylgja eftir heimsóknunum og
bregðast við með sektum ef fyrir-
tækin hafa ekki bætt úr.
Ford-jeppar
innkallaðir
Toyota er ekki eina fyrirtækið
sem þarf að innkalla bíla hér á
landi því í síðustu viku tilkynnti
Brimborg um innköllun á 392
Ford-bifreiðum. Um er að ræða
381 Ford-Escape jeppa, árgerð
2008–2011 og 11 Ford Explorer-
jeppa sem framleiddir eru frá
11. febrúar 2011 til 23. janúar
2012. Samkvæmt Neytendastofu
er ástæða innköllunarinnar sú
að bilun getur komið fram í raf-
magnsstýri bifreiðarinnar og
valdið því að hjálparafl verður
óvirkt og þungt verður að stýra
á lítilli ferð. Eigendum Ford-bif-
reiða, sem vilja athuga hvort bif-
reið þeirra hafi verið innkölluð,
er bent á að fara á sérstaka vef-
síðu Ford þar sem hægt er að slá
inn svokölluðu grindarnúmeri
bifreiðanna. Hlekkinn má finna á
vef Neytendastofu.
Toyota inn-
kallar Lexus
Toyota á Íslandi þarf að innkalla
41 Lexus-bifreið af gerðinni GS,
IS og LS sem framleidd var á ár-
unum 2005 til 2008. Samkvæmt
upplýsingum frá Neytendastofu er
ástæðan að pakkning í samskeyt-
um á eldsneytislögn og fæðiröri
á vél getur farið að leka og skapar
við það eldhættu í vélarrúmi. Þeir
sem eiga svona bíla munu fá sent
bréf, eða haft verður samband við
þá símleiðis, á næstu dögum.