Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Síða 30
Vikublað 21.–23. október 201430 Sport
DEKKJAHUSID.IS
frábært úrval af
vetrardekkjum og
fullt af tilboÐum!
Mikið úrval af
31“-33“-35“
6.490,- 8.490,-5.490,-
TILBOÐ Á UMFELGUN
Fólksbílar Jepplingar Jeppar
175/65/14 42.900 Kr
185/65/14 45.900 Kr
185/65/15 49.900 Kr
195/65/15 52.900 Kr
205/55/16 56.900 Kr
215/65/16 64.900 Kr
235/70/16 74.900 Kr
225/45/17 64.900 Kr
225/60/17 77.900 Kr
235/65/17 79.900 Kr
265/70/17 99.900 Kr
LÉTTGREIÐSLUR
Dalbrekku 17 Kópavogi Sími: 55 33 100
www.dekkjahusid.is
ný vefsíða
ný
vefsíða
...fyrir fjögur ný vetrardekk
SJÁÐU
VERÐIÐ!
Jeppadekk
Sjálfstortíming Tottenham gegn toppliðunum
n Tapað 16 af síðustu 24 leikjum gegn toppliðunum fjórum n Fengið á sig 65 mörk í
T
ottenham Hotspur mátti
þola enn einn stóran 4–1
ósigur gegn Manchester City
um nýliðna helgi, en stuðn
ingsmenn liðsins ættu aldrei
að búast við miklu þegar þeirra menn
mæta einu af toppliðunum fjórum.
Árangur Spurs gegn þeim er nefni
lega skelfilegur í alla staði. Tottenham
hefur frá ársbyrjun 2012 leikið 24 leiki
gegn toppliðunum fjórum frá síðustu
leiktíð, og tapað sextán þeirra, gert
fimm jafntefli og aðeins unnið þrjá.
Ekki tilbúnir í stórleikina
Blaðamaður breska dagblaðsins Tele
graph, Jonathan Liew, skrifar áhuga
verða grein um slakt gengi Totten
ham gegn stórliðunum þar sem sýnt
er fram á að þetta sé allt annað en til
viljun. Tottenham er bara ekki tilbúið
í stórleikina.
Með stórliðunum fjórum á Liew
við liðin sem voru í efstu fjórum sæt
um ensku úrvalsdeildarinnar á síð
ustu leiktíð; Manchester City, Liver
pool, Chelsea og Arsenal. Hann tekur
Manchester United ekki með í reikn
inginn og bendir á að frammistaða
Spurs gegn því hafi verið ásættanleg
undanfarin ár, þó að liðið hafi ekki
haldið hreinu gegn United í nærri
fjögur ár.
Lloris hafði fengið nóg
Í byrjun leiktíðar var Hugo Lloris,
markvörður Tottenham, bjartsýnn
fyrir leik gegn Liverpool. Eftir að hafa
gagnrýnt lið sitt harðlega fyrir karakt
erleysi undir lok stjórnartíðar Tims
Sherwood á síðustu leiktíð þá leist
Lloris vel á Mauricio Pochettino.
„Við höfum breytt miklu. Við erum
með nýjan stjóra, nýtt starfslið og við
trúum á hugmyndafræði hans og
skipulag. Við viljum sýna öllum að
við höfum fulla burði til að vera gott
lið í þessari deild,“ sagði Lloris áður
en lið hans fékk 3–0 rassskellingu frá
Liverpool þann 31. ágúst. Frá Liver
poolliði sem hefur farið skelfilega
af stað í deildinni eftir frábæran ár
angur á síðustu leiktíð. Hefði Totten
ham unnið leikinn hefði það verið
undantekning frá reglunni miðað við
forsendurnar sem Liew gefur sér í út
tekt sinni.
Tapa stórt gegn stórliðum
Og Tottenham tapar ekki bara fyrir
stóru liðunum, Tottenham tapar stórt
fyrir stóru liðunum. Varnarslagæðin
opnast og þeim blæðir mörkum gegn
þessum liðum. Í þessum áðurnefndu
24 leikjum hefur liðið fengið á sig 65
mörk! Það gerir mark á rúmlega hálf
tíma fresti. Spurs hefur ekki haldið
hreinu gegn þessum fjórum liðum
síðan í markalausu jafntefli gegn
Chelsea í mars 2012.
Ef það var ekki nógu slæmt fyrir
áhangendur Spurs að horfa á liðið
tapa 4–1 gegn City um helgina, þar
sem liðið fékk á sig þrjú víti og Sergio
Agüero skoraði fernu fyrir City, þá
töpuðu þeir 6–0 fyrir þeim á úti
velli á síðustu leiktíð og svo 5–1 í
heimaleiknum. Chelsea vann 4–0 sig
ur á Stamford Bridge í fyrra og síðustu
þrír leikir Spurs gegn Liverpool hafa
endað 0–5, 0–4 og 0–3. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Dagsetning Úrslit
26. feb. 2012 Arsenal 5–2 Tottenham
15. apr. 2012 Chelsea 5–1 Tottenham (Undanúrslit FA-bikarsins á Wembley)
17. nóv. 2012 Arsenal 5–2 Tottenham
24. nóv. 2013 Man City 6–0 Tottenham
15. des. 2013 Tottenham 0–5 Liverpool
29. jan. 2014 Tottenham 1–5 Man City
Þessi úrslit væru skiljanleg ef Tottenham væri lítið lið sem gæti ekki gert kröfu um meira en miðjumoð í lok leiktíðar. En staðreyndin
er að Tottenham er vel mannað lið sem getur vel spilað leiftrandi skemmtilegan fótbolta. Ef liðið héldi hins vegar vatni þá hefðu þeir
væntanlega náð Meistaradeildarsæti á hverju tímabili, síðastliðin þrjú ár. Hvað er það eiginlega sem fer úrskeiðis? spyr Liew. Hér má lesa
greiningu hans á leik liðsins og helstu mistökum.
Brotna saman gegn stóru liðunum
Tottenham státar af ömurlegum árangri
frá 2012 gegn liðunum sem voru í efstu
fjórum sætunum í deildinni á síðustu leik-
tíð. 24 leikir, 16 töp, 5 jafntefli og aðeins
3 sigrar. Liðið hefur fengið á sig 65 mörk í
þessum leikjum.
Leikir þar sem Tottenham hefur fengið a.m.k. 5 mörk á sig frá 2012:
Tottenham gegn toppliðunum fjórum frá 2012–
Sigur
Jafntefli
Tap
Stjóri Tottenham Hotspur Mauricio
Pochettino erfði vandamál forvera sinna.