Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Side 32
32 Menning Vikublað 21.–23. október 2014
Flanagan
hlýtur Booker-
verðlaunin
Ástralski rithöfundurinn Richard
Flanagan hlaut í síðustu viku Man
Booker-verðlaunin fyrir skáld-
söguna The Narrow Road to the
Deep North. Flanagan, sem er
fæddur í Tasmaníu, er þriðji Ástr-
alinn sem hlýtur verðlaunin.
Þangað til í fyrra gátu aðeins rit-
höfundar frá Breska samveldinu
hlotið verðlaunin en nú geta allir
sem skrifa bækur sínar á ensku
og gefa þær út í Bretlandi hlotið
verðlaunin.
The Narrow Road to the Deep
North er sjötta skáldsaga þessa
46 ára Ástrala, hún er gríðarstór,
söguleg skáldsaga sem fjallar um
ástralskan lækni í síðari heims-
styrjöldinni. Bókin er sögð takast
á við afleiðingar stríðs og margar
tegundir ástar.
GaGnsleysi, sekt
oG GuðleG refsinG
n steinunn Gunnlaugsdóttir og snorri Páll Jónsson Úlfhildarson ræða sekt, refsingu og vinnu
e
f þú ert úrskurðuð sek um
glæp verður þér refsað, hvort
sem það er af yfirnáttúruleg-
um guði, almáttugu ríki eða
þínu eigin samviskubiti. Sekt-
in er ein af grundvallarhugsmíðum
vestrænnar menningarsögu. Hún
markar upphaf mannlegrar tilveru
í hugmyndaheimi kristninnar og
er jafnvel kjarninn í réttarríki hins
evrópska nútíma.
Þessar hugmyndir eru við-
fangsefni Steinunnar Gunnlaugs-
dóttur og Snorra Páls Jónssonar Úlf-
hildarsonar í listasýningu eða öllu
heldur samtengdu neti athafna sem
framkvæmdar hafa verið í Reykjavík
á undanförnum vikum undir sam-
heitinu Ef til vill sek. Frekar en að
tengjast í rými eða formi, eins og sýn-
ingar gera yfirleitt, eru verkin skyld í
tíma og efnistökum. Þetta eru mynd-
bandsverk, gjörningar, uppákoma,
skúlptúr og ljóðabók sem spinna
saman vef hugmynda: glæpur og refs-
ing, vinna og gagnsemi, líkami og trú.
Sjálf eru Steinunn og Snorri Páll
ef til vill sek um ýmislegt: að hafa
gert árás Alþingi, að hafa brugðist
væntingum þjóðfélagsins og að vera
gagnslaust vinnuafl – mögulega og ef
til vill.
Ef til vill sek.
Til að byrja með, þá virðist nafn sýn-
ingarinnar gefa til kynna að í verkun-
um sé verið að takast á við einhvern
efa um að mörk sektar og sakleysis,
jafnvel efasemdir um að mörkin séu
jafn skýr og oftast er gefið í skyn.
SP: Já, þetta „ef til vill“ hefur í
það minnsta tvær merkingar fyrir
mér. Annars vegar út frá sjónarhorni
valdins, samfélagsins eða kerfisins,
þar sem fyrirfinnst þessi skýra stefna:
að líta á alla sem mögulega glæpa-
menn. Þetta birtist í paranoju-sam-
félaginu, til að mynda eftirlitsmynda-
vélunum …
S: … og andfélagslegu hlutverki
lögreglunnar gagnvart öðrum í sam-
félaginu. Allir eru mögulega að gera
eitthvað af sér.
SP: Í stað þess að allir séu sak-
lausir uns sekt er sönnuð – frasi sem
reyndar getur gefið til kynna viðvar-
andi ósannaða sekt – eru allir þarna
á milli: ef til vill sekir. Hins vegar má
sjá nafnið sem spurningarmerki eða
beinlínis andstöðu við það hvernig
kerfið og hin félagslegu norm skil-
greina sektina. Er glæpamaðurinn í
raun sekur? Um hvað? Og hvers er
skilgreiningarvaldið?
S: Seinasta árið höfum við verið að
vinna að tengdum hugmyndum en
þó í sitthvoru lagi. Þegar við ákváð-
um að sýna verkin okkar saman sáum
við að þó þau tengist ekki öll undir
einni þematískri regnhlíf fléttast þau
saman á fínlegan hátt. Við höfðum
bæði verið að pæla mikið í glæpum
og refsingu – og einnig vinnu. Þessi
þrjú stef voru sérstaklega áberandi og
nafnið nær að halda utan um verk-
in sem heild þó að það feli ekki í sér
beina tilvísun í hvert og eitt þeirra.
Líkamleg fangelsi
Getum við sagt að það sé einhver
niðurstaða úr þessari vinnu? Eruð
þið að reyna að bera á borð einhvern
sannleika eða koma boðskap á fram-
færi?
SP: Markmiðið mitt er ekkert endi-
lega að segja: svona á þetta að vera,
ekki hinsegin. Heldur miklu frekar
að skoða eða upplifa veruleikann
sem mætir mér og tjá með einhverj-
um hætti þá upplifun eða skoðun – og
niðurstöðu þessarar skoðunar.
S: Ég upplifi öll þessi sjö verk sem
við erum búin að vera að sýna núna
sem persónulega úrvinnslu okkar á
samtímanum sem við lifum í. Þau
snerta á aðstæðum eða ástandi sem
margir þekkja eða geta tengt við.
Þessi persónulega úrvinnsla sem þið
nefnið kemur til dæmis skýrt í ljós í
myndbandsverkunum Maður bíður
og Í skuld við réttlætið – fallnar kon-
ur. Í fyrra verkinu einangrar Snorri
áhorfandann frá heiminum svo mað-
ur upplifir sig nánast eins og fanga í
vitfirrandi einangrun, en í því síðara
fæst Steinunn við réttlætið með ani-
meituðum myndböndum af gjörn-
ingum þar sem andlitslausir kvenlík-
amar hafa undirgengist ýmsar gerðir
refsinga, allt frá afhöfðunum til fang-
elsunar í nútímanum.
S: Seinustu tvö ár hef ég verið að
skoða fyrirbærið refsingu og sögu
stofnanarefsinga. Hún er ekki algjör-
lega ólík svipuhöggum, aflimunum,
hengingum eða öðrum líkamlegum
refsingum sem oft eru kallaðar bar-
barískar. Og hún er alls ekki ólíkam-
leg. Manneskjur eru teknar úr sínu
samhengi, þeim er þröngvað inn í
rými sem þær vilja annars ekki vera
í, gert að haga allri sinni tilveru eftir
stífum reglum. Þær eru undir ströngu
eftirliti þeirra sem hafa vald til að
herða refsinguna enn frekar – gera
þeim lífið enn óbærilegra. Og þar
sem líkami og hugur eru algjört sam-
kurl – jafnvel eitt og hið sama – hefur
fangelsunin líka það markmið að skil-
yrða og refsa huga fólks og í mörgum
tilfellum brjóta uppreisnarandann
niður.
SP: Þessi líkamlega nálgun – að
gangast við líkamleika félagslegra
fyrir bæra á borð við refsingu – hún
sameinar líka verkin. Það er vel hægt
að kafa á vitsmunalegan, rökrænan
hátt ofan í fyrirbæri sem almennt eru
álitin ólíkamleg: kerfi, hugtök og hug-
myndir. En í grunninn eru samfélög
bara líkamar sem öll mannleg tilvera
grundvallast á. Þess vegna er áhuga-
vert að nálgast heiminn oftar út frá
þessu kroppslega sjónarhorni, spyrja
og svara krefjandi spurningum út frá
líkamlegu sjónarhorni frekar en vits-
munalegu. Og ekki bara í tengslum
við neikvæða þætti á borð við refs-
ingu, heldur einnig hina jákvæðu.
Hvað er þá frelsi fyrir líkama? Eða
réttlæti?
Árás á Alþingi
Þið voruð í hópi níu einstaklinga
sem voru ákærðir í kjölfar bús-
áhaldabyltingarinnar svokölluðu
fyrir árás á Alþingi. Allir níumenn-
ingarnir voru reyndar sýknaðir af
árásarákærunni, en það er nánast
óhjákvæmilegt að setja þessi verk í
samhengi við þetta mál og spyrja:
teljið þið það hafa haft mótandi áhrif
á sköpun þessara verka?
SP: Ekkert verkanna fjallar með
beinum hætti um dómsmálið. En
það er eitt að takast á við eitthvað
sem maður hefur einungis séð eða
heyrt eða lesið um, annað að eiga
við það sem maður hefur upplifað á
eigin skinni. Sem í þessu tilfelli er sá
strúktúr sem ríkið og samfélagið hafa
tileinkað sér í tengslum við glæpi og
refsingar. Fyrir mér var dómsmálið
ákveðin innsýn og innblástur – nýr
útgangspunktur.
SG: Þó að við níu höfum öll ver-
ið sýknuð af árásinni og öðrum
stærstu ákæruliðunum þá var ég,
ásamt þremur öðrum, fundin sek
um það sem kallað er brot gegn vald-
stjórninni. Þetta var annað dóms-
málið sem ríkisvaldið dró mig inn í
og í bæði skiptin var ég fundin sek
um eitthvað, þó að ég hafi í hvor-
ugt skiptið verið dæmd til fangelsis-
vistar. Hjá mér vakti sú reynsla áhuga
á dómskerfinu og refsingum. Og ekki
síður þeirri staðreynd að sumir upp-
lifa dómsmálin ein og sér sem refs-
ingu, meðal annars vegna þess að
meðan á þeim stendur verður valdið
sem kerfið hefur tekið sér yfir okkur
svo gríðarlega ljóst. Það getur verið
ansi yfirþyrmandi uppgötvun.
SP: Vald dómskerfisins felst
nefnilega ekki bara í því að geta úr-
skurðað um sekt fólks. Sýkna er
vissulega hentugri svona praktískt
séð: að þurfa ekki að taka út frekari
refsingu, hvort sem hún er í formi
sekta, fangelsunar eða einfaldlega
sakaskrár. En valdið felst ekki síður
í því að geta úrskurðað um sakleysi
fólks. Að beygja sig tilneyddur undir
stofnun sem fer með slíkt alvald yfir
lífi manns – tekur þessa veigamiklu
ákvörðun um framtíð manns – það
er refsing út af fyrir sig.
Vinna sem guðleg refsing
Þið sögðuð áðan að vinnan væri
eitt af helstu viðfangsefnum ykk-
ar hér. Vangaveltur um vinnuna
koma greinilega fyrir í að minnsta
kosti tveimur verkanna. Í Kaffistof-
unni við Hverfsigötu þrífur maður
skó í tilgangslausri átta tíma vinnu-
törn. Ótal útvarpstæki síbylja sitt ei-
lífa suð á meðan skrifborðslampi
lýsir upp altariskross úr hækjum.
Kaffi, brauð og vín er svolgrað með
reglulegu millibili en úrgangur-
inn: kaffikorgur, pappír, hland og
skítur, fyllir rýmið smám saman
yfir daginn. Á Nýlendugötu skagar
svo MannauðsMountain upp fyrir
trjátoppana: ljósaskilti sem minnir
ýmist á fjall eða ör sem bendir upp í
loft, en þar er líka lítið rúm og græn-
ar nærbuxur. Ljósaskiltið endurtek-
ur hálftilvitnun í poppdrottninguna
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„ Í þessu ástandi
verður vinnan svo
oft að dyggð eða mark-
miði í sjálfu sér, frekar en
að hún sé mögulegt tæki
til notkunar á leiðinni að
öðru og stærra markmiði.
Fjölbreyttir miðlar Steinunn gerði
kápumyndina fyrir ljóðabók Snorra Páls,
Lengist í taumnum.
Risarassgæla
hneykslar
Parísarbúa
Ekki verður aftur blásið lofti í
„tréð,“ 24 metra háan uppblásinn
skúlptúr bandaríska myndlistar-
mannsins Pauls McCarthy eftir
að hneykslaðir skemmdarvargar
skáru á rafmagnssnúrur í kring-
um verkið. Þessi skærgræni
skúlptúr sem var staðsettur á Place
Vendôme-torginu í París var blás-
inn upp síðastliðinn fimmtudag og
vakti strax mikla hneyklan með-
al borgarbúa. Þykir hann minna
skuggalega mikið á rassgælu, kyn-
lífstæki sem notað er til að erta
endaþarm. Daginn sem skúlptúr-
inn var blásinn upp sló vegfarandi
til McCarthy og hrópaði ókvæðis-
orð að honum og tveimur dögum
síðar var loftið tekið úr verkinu.
„Tréð“ verður ekki blásið upp að
nýju, en McCarthy segist óttast að
slíkt geti leitt til átaka og ofbeldis.
Íslenskt letur
á sundance
Leturgerðin L10 sem hönnuð er af
íslensku leturútgáfunni Or Type
verður notað á öllu kynningarefni
einnar stærstu
og virtustu
kvikmyndahá-
tíðar Banda-
ríkjanna, Sund-
ance- hátíðinni
í Utah, í byrjun
næsta árs.
„Þetta er
letur sem var
upphaflega
teiknað fyrir LungA árið 2010 og
hefur verið í hægri vinnslu síð-
an,“ segir Guðmundur Ingi Úlf-
arsson, höfundur L10. Afbrigðið
sem Sundance notast við er breytt
útgáfa: „Hún er með hringlaga
punktum í staðinn fyrir ferhyrnda
eins og í upphaflegu útgáfunni.“
Þessa stundina er aðeins ein
útgáfa af letrinu til sölu á vefsíðu
Or Type, en sjö nýjar gerðir af letr-
inu eru væntanlegar.