Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Side 36
Vikublað 21.–23. október 201436 Fólk
Lögin sem tónlistar-
fólkið þolir ekki
n Sumir tengja lögin slæmum tíma n Frægustu lögin ekki endilega í uppáhaldi
T
ónlistarmenn geta hatað
lögin sín líkt og almenn-
ingur gerir. Það hins vegar
virðist hálfundarlegt þegar
þeir þola ekki lög sem hafa
aflað þeim frægðar og frama um-
fram önnur. Sumir sættast við lög-
in seinna meir á meðan aðrir tengja
þau slæmum tímum. n
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
The Beatles – Let it Be
Sagan segir að Bítlarnir hafi haft svo mikla
óbeit á Let it Be-upptökunum og sá tími
valdið upplausn sveitarinnar. Paul
McCartney kenndi upptökustjóranum Phil
Spector um, vegna „hljóðveggjarins“ sem
hann setti á öll lögin. John Lennon hins
vegar hrósaði honum eilítið og sagði: „Hann
tók ömurlegustu lög sem tekin hafa verið
upp og gerði eitthvað úr þeim.“
Madonna – Like a
Virgin Madonna segist efast um að
geta sungið Like a Virgin eða Holiday
nokkurn tímann aftur. „Ég bara get það
ekki,“ sagði hún í viðtali við bandaríska
útvarpsstöð. „Ekki nema einhver borgi mér
30 milljónir dollara fyrir eða eitthvað. Ef
einhver rússneskur milljóner vill fá mig til
að synga í brúðkaupi dóttur sinnar.“ Hún
hefur ekki sagt af hverju hún þolir þessi lög
ekki lengur en það getur verið vegna þess
að henni finnist hálfhallærislegt að vera
nærri sextug að syngja um meydóm.
Beastie Boys – Fight
for Your Right (To Party)
Á plötunni The Sounds of Science skrifuðu
meðlimir hljómsveitarinnar að lagið fræga
„sökkaði“. Mike D sagði líka eitt sinn að
„allir þessir aular sem eru að syngja með
laginu átta sig ekki á að lagið er að gera
grín að þeim.“
Led Zeppelin
– Stairway to Heaven
Robert Plant er ekki mjög hrifinn af einu
frægasta lagi hljómsveitarinnar. „Ég myndi
fá útbrot ef ég þyrfti að syngja þetta lag á
hverjum tónleikum,“ sagði hann. „Ég samdi
textann fyrir 17 árum og fannst lagið svo
vera merkilegt. En í dag, þá finnst mér lagið
eiginlega bara leiðinlegt.“
Nirvana – Smells Like
Teen Spirit Kurt Cobain sagði eitt
sinn í viðtali við Rolling Stone-tímaritið að
það væri eiginlega vandræðlegt að spila
lagið. „Fólk hefur einblínt of mikið á þetta
lag.“ Honum fannst lagið hálfgert popplag
og hugnaðist það ekki.
Lady Gaga – Telephone
Söngkonan sagðist í viðtali hata lagið Telephone.
„Er hræðilegt af mér að segja það? Mér finnst
afskaplega erfitt að hlusta á það lag. Mér finnst
tónlistarmyndbandið líka hræðilegt, ég get ekki
horft á það. Beyoncé og ég erum frábærar en ég
blandaði of mörgum hugmyndum saman í mynd-
bandinu. Ég vildi að ég hefði ritskoðað mig aðeins.“
Oasis – Wonderwall
Liam Gallagher, fyrrverandi söngvari
hljómsveitarinnar Oasis, sagði eitt sinn
að hann þyldi ekki þetta „helvítis lag. Í
hvert skipti sem ég þarf að syngja lagið
langar mig að æla. Vandamálið er að
þetta lag varð svo vinsælt, varð eitt
vinsælasta lagið okkar. Ef við fórum
til Bandaríkjanna var ég alltaf spurður
hvort ég væri Herra Wonderwall. Mig
langaði að kýla alla sem spurðu mig.“
Guns N'Roses
– Sweet Child o' Mine
Upphafsstef lagsins er eitt það þekktasta
í heiminum en Slash þoldi það ekki. „Stefið
varð til alveg óvart,“ sagði hann. „Ég var
eitthvað að fíflast á gítarinn á meðan ég
spilaði þetta stef. Izzy [Stradlin, annar
gítarleikar hljómsveitarinnar] byrjaði að
spila með og Axl fannst stefið æðislegt. Ég
hataði lagið því það byrjaði svo heimsku-
lega. Ég hataði þennan gítarpart. Ég elska
það þó meira í dag en ég gerði.“
Idol-stjarna látin
Joanne Borgella lést á laugar-
daginn, aðeins 32 ára að aldri, eft-
ir baráttu við krabbamein. „Það
tekur okkur sárt að tilkynna það
að okkar elskaða Joanne er látin,“
skrifaði fjölskylda hennar á að-
dáendasíðu hennar á Facebook.
Borgella komst í 24 manna úrslit í
sjöundu þáttaröðinni af American
Idol árið 2008. Þá starfaði hún
einnig sem fyrirsæta. Frá því að
hún greindist með krabbamein í
október í fyrra sendi hún reglu-
lega frá sér myndbönd þar sem
hún lýsti baráttu sinni fyrir aðdá-
endum, sem eru harmi slegnir.
Læknastöð Joan
Rivers brotleg
Rannsókn á dauða Joan Rivers er á
lokametrunum. Heilbrigðiseftirlit
New York-borgar hefur nú þegar
gert athugasemdir við fjölmörg at-
riði á lækna-
stöðinni þar
sem dauðsfall
Rivers bar að,
gæti það jafn-
vel leitt til þess
að eigendur
hennar missi
starfsleyfi sitt
til frambúðar.
Stofan er sögð brjóta fjölmargar
reglugerðir á sviði heilbrigðismála.
Í bréfi, sem fjölmiðlar ytra birtu
opinberlega um helgina, koma í
ljós fjögur atriði sem þykja ófull-
nægjandi á stofunni. Þau snúa að
rekstri, starfsfólki, lélegum búnaði
og réttindum sjúklinga.
Í bréfinu er tekið fram að ef að-
standendur bregðist ekki hratt við
athugasemdum, verði stofunni
lokað þann 7. janúar næstkom-
andi og eigendum gert að greiða
háar sektir.
Sem kunnugt er lést Rivers á
skurðarborðinu í byrjun septem-
ber er hún undirgekkst aðgerð á
raddböndum.
Madonna sá
fyrir viðbrögð
við kossi
Koss Britney Spears og Madonnu á
VMA 2003 líður poppfróðum ekki
svo létt úr minni. Larry Rudolph,
sem þá var umboðsmaður Britn-
ey, ræddi kossinn fræga í viðtali á
dögunum og segir hann söngkon-
una hafa vitað nákvæmlega hvað
hún var að gera. Rudolph segir frá
því hvernig Madonna hafi verið
ákveðin í að skrá atriðið í sögu-
bækurnar allt frá fyrstu æfingum.
„Madonna var mjög ákveðin á
æfingum og heimtaði að Britney
mætti stundvíslega alla morgna.
Hún ávarpaði mig aldrei með
nafni en skipaði mér mikið fyrir,“
rifjar hann upp og segist ekki sjá
eftir að hafa farið eftir fyrirmælum
poppdrottningarinnar. Þegar í ljós
kom að heimurinn hafði stöðvast
um stundarkorn við flutninginn
gekk Madonna að Rudolph bak-
sviðs og virtist þá muna nafn hans.
„Hún vafði mig örmum sínum,
kyssti mig á munninn og sagði:
„Sjáðu, Larry þetta var allt þess
virði“,“ segir umboðsmaðurinn.
Losnaði úr klóm sértrúarsöfnuðar
Leikkonan Glen Close sagði frá æsku sinni í ítarlegu viðtali
L
eikkonan Glenn Close kom fram
í ítarlegu viðtali um helgina þar
sem hún sagði meðal annars frá
erfiðum uppvexti sem fangi rót-
tæks sértrúarsöfnuðar.
Hötuðu samkynhneigða
Í viðtalinu kom fram að faðir Close,
dr. William Close, sem var einka-
læknir einræðisherrans Mobutu
Sese Seko í Kongó og er þekktur fyrir
störf sín við að hefta fyrsta ebólufar-
aldurinn í Afríku, hafi gengið í rót-
tækan hægrisinnaðan söfnuð þegar
hún var aðeins sjö ára.
Close greindi frá því að heimilis-
lífið hafi innan skamms farið að lit-
ast verulega af trúboði söfnuðarins
sem gekk áfram á hatri meðal annars
gegn samkynhneigðum. Þetta hafi
verið ríkjandi í hennar lífi í um
fimmtán ár, þangað til henni tókst að
slíta sig lausa.
Ónáttúrulegt innsæi
„Ég gat lengi vel ekki
treyst innsæi mínu
vegna þess að ég hafði
verið mötuð svo lengi
með skekktri heims-
mynd,“ sagði Close.
„Þér leyfðist ekkert.
Þér var kennt að allar
þrár þínar væru ónáttúru-
legar svo ég hafði alltaf nagandi
samviskubit yfir líðan minni. Ef
öll þín samskipti frá 7 ára til 22 ára
aldurs eru við hóp fólks sem stjórn-
ar því hvernig þér á að líða og hvern-
ig þér beri að lifa lífinu, þá hefur það
gríðarleg áhrif á þig.“
Leikkonan neitaði að fara í
saumana á því hvernig hún slapp
undan oki safnaðarins sem hún seg-
ir að hafi haft djúpstæð áhrif á sál-
arlíf hennar síðan. „Ég ætla ekki að
rekja það í viðtali,“ sagði hún. n
maria@dv.is
Sló í gegn sem Cruella Þrátt fyrir skelfilega æsku sló Glenn Close í gegn í Hollywood.