Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2014, Page 38
Vikublað 21.–23. október 201438 Fólk
Skóm söng-
konu stolið í
Sundhöllinni
Söngkonan Sóley Stefánsdóttir
varð fyrir barðinu á óprúttnum
skóþjófi þegar hún heimsótti
Sundhöll Reykjavíkur um helgina.
Sóley greinir frá þessu á Face-
book-síðu sinni og vandar þjófin-
um ekki kveðjurnar, og þó?
Söngkonan knáa, sem þurfti
að ganga heim eftir sundferðina
í stórum karlainniskóm, segist í
færslu á Facebook trúa á karma og
að fyrir ómakið eigi hún inni ríku-
leg laun í formi nýs skópars.
„Þú þarna […] skalt sko vita
það að ég trúi á karma og bráð-
um munu fair-trade, vegan skór
falla af himnum og beint í fangið
á mér,“ segir Sóley kímin miðað
við aðstæður og þakkar viðkom-
andi svo fyrir. „Takk fáviti/dópisti/
grínisti. ég meina það.“
Sjóðheitt
fjölmiðlapar
Sjónvarpskonan Þórhildur Þor-
kelsdóttir á Stöð 2 og Hjalti
Harðarson, framkvæmdastjóri
Kjarnans, eru nýtt par. Þau hafa
sést mikið saman undanfarið og
ku ástin svífa yfir vötnum.
Þórhildur, sem er 24 ára, hefur
verið áberandi andlit í kvöldfrétt-
um Stöðvar 2 í rúmt ár en hún
söðlaði nýverið um á stöðinni og
þreytti frumraun sína sem einn
þáttastjórnenda fréttaþáttarins
Bresta sem frumsýndur var í gær-
kvöldi. Hjalti, sem er 38 ára, er
sjálfur ekki ókunnur fjölmiðlunum
en hann er sem fyrr segir fram-
kvæmdastjóri Kjarnans. Kjarninn,
sem nýlega breytti áherslum sín-
um og er kominn í framvarðar-
sveit netmiðla, hefur vakið mikla
athygli fyrir afhjúpanir og vandað-
an fréttaflutning. Hjá parinu sann-
ast sannarlega hið forkveðna; ástin
spyr ekki um aldur.
Trúlofaðist í Indlands-
hafi í hellidembu
Söngkonan Una Stef heldur sína fyrstu útgáfutónleika
S
öngkonan Una Stef mun
halda sínu fyrstu útgáfutón-
leika á föstudaginn á Kex
Hostel, en hún gaf út plötuna
Songbook í vor. Hún er af-
skaplega hress kona sem tekur lífinu
með ró en í sumar ferðaðist hún um
landið til að halda tónleika en einnig
fór hún í ævintýraferð til Afríku, með
kærasta sínum og fjölskyldu hans,
sem breytti lífi hennar til hins betra.
Kvennakraftur
„Flestir á Íslandi gefa út plötur á
haustin til þess að ná jólaplötuflóð-
inu. Ég hins vegar ákvað að gefa
plötu út um vor og fara svo bara
af landinu,“ segir Una og hlær. „Ég
ákvað að halda útgáfutónleikana
svona seint því það er erfitt að ná
minni níu manna hljómsveit saman
á sumrin. Allir eru einhvern veginn
úti um allt þá, bæði að spila og ferð-
ast, líkt og ég gerði.“
Ragnheiður Gröndal mun verða
sérlegur gestur Unu þetta kvöld. „Ég
vil ekki segja að hún sé að hita upp
fyrir mig, mér finnst það hálfasna-
legt, hún er sérstakur gestur. Ástæð-
an fyrir því að ég fékk hana var að
stelpa sem ég þekki sagði við kærasta
minn hvað henni fyndist gaman
hvað mér væri að ganga vel og að ég
gæti orðið næsta Ragnheiður Grön-
dal. Ég tók því auðvitað sem hrósi
en það var samt frekar fyndið því við
erum eins og svart og hvítt. Tónlist-
arlega erum við eins og Kanye West
og Mozart. Það er æðislegt að fá hana
til þess að byrja og það verður mik-
ið „girl-power“ þetta kvöld. Mér þyk-
ir líka mjög vænt um að þetta. Ellefu
ára hefði mér aldrei dottið í hug að
Ragnheiður Gröndal myndi spila á
útgáfutónleikunum mínum.“
Æskuuppgjör
„Ég samdi elsta lagið á plötunni
þegar ég var 14 ára og það heitir Be
My Man. Mjög dramatískt, en á þeim
tíma ætlaði ég að vera íslensk, hvít
James Brown,“ segir Una hlæjandi.
„Yngsta lagið er tveggja ára gamalt.
Þannig að platan er hálfgert uppgjör
mitt við æskuna og það að vaxa úr
grasi. Ég útsetti svo lögin á þessu ári.“
Pollróleg eins og er
„Ég hef aldrei haldið útgáfutónleika
áður þannig að ég veit ekki hvort
það er stressandi,“ segir hún bros-
andi. Hún hefur spilað mikið síðustu
mánuði og hefur að sögn komist
yfir sviðsskrekkinn. „Ég er pollróleg
yfir þessu. En af því að ég er búin að
segja það, fæ ég örugglega taugaá-
fall á föstudagsmorguninn. Svo lengi
sem ég brýt ekki á mér puttana eða
slít raddbönd, þá held ég að ég verði
góð.
Tónleikarnir verða samt ekki bara
venjulegir tónleikar, ég ætla að gera
þetta mjög vel með hljómsveitinni
minni. Fyrir utan að spila plötuna
út í gegn þá langar mig svakalega að
taka epískt Tinu Turner-lag og læra
dansinn við Proud Mary. Ókei, ég
kann dansinn en ég er ekkert svaka-
lega góð, ég þarf að æfa mig betur.
Þetta á eftir að verða eftirminnilegt
kvöld.“
Kemur sér í gírinn með hjálp
Rocky
„Það eru lög á plötunni sem ég hef
ekki spilað oft á tónleikum. Ég var
að hafa áhyggjur af því að þau sem
koma alltaf á tónleika hjá mér, eins
og mamma, pabbi og einhverjir vin-
ir mínir, væru komin með leið á lög-
unum og var að velta fyrir mér hvort
ég ætti þá ekki að spila eitthvað
nýtt með. En þegar ég fór í gegnum
plötuna þá sá ég að þar voru lög sem
ég hef spilað mjög sjaldan. Það er
aðallega af því að þau eru mjög erfið
sönglega séð. Ég átti meira að segja
erfitt með þau í upptökuverinu,“
segir Una kímin. „Til að koma mér
í rétt hugarástand til að ná háu tón-
unum í þessum lögum hef ég verið
að fara í göngutúra hlustandi á tón-
listina úr kvikmyndinni Rocky.“
Ást í Afríku
Þegar talið berst að Afríku og ferða-
lagið þar verður tónninn aðeins
mýkri í Unu en hún fór með kærasta
sínum og fjölskyldu hans þangað
síðasta sumar í mikla ævintýraferð.
„Við vorum á ferðalagi um Tansaníu
þar sem við meðal annars unnum
á sveitabæ, fórum í safarí, sváfum
í tjaldi úti á sléttunni, heimsóttum
fólk úr ýmsum áttum og ættbálkum,
dönsuðum afríska dansa og borðuð-
um skrýtinn mat. Þetta var algjört
ævintýri,“ segir hún. „Fyrir heim-
ferðina ákváðum við að koma við á
paradísareyjunni Zanzibar þar sem
Hlynur bað mín, bókstaflega ofan
í Indlandshafi. Hann var ekki með
hring heldur hefðbundið tansanískt
trúlofunararmband sem hann hafði
keypt. Það var ótrúleg upplifun. Á
meðan við vorum ofan í sjónum að
njóta stundarinnar kom hellidemba
og við heyrðum í þrumum. Við vor-
um syndandi lengst úti á hafi og allt
í einu tók við mjög skrýtin sena þar
sem við vorum að reyna að synda í
land í brjáluðum öldugangi og rign-
ingu. Ég var hálfvælandi vegna til-
finningaflóðs, að reyna að halda í
armbandið. Armbandið og trúlofun-
in lifðu þessa raun af og allur þessi
dagur er reyndar orðið að litlu lagi
í dag sem fer jafnvel bara á næstu
plötu.“
Una hefur samið fjölda laga sem
gætu fyllt fjórar plötur en það er ekki
ólíklegt að næsta plata verði undir
afrískum áhrifum. „Það var svo ótrú-
leg orka þarna úti og allt fullt af lífi
í náttúrunni, fólkinu og dýralífinu.
Ég kom heim með helling af aust-
urafrískri tónlist sem ég hef verið að
stúdera og er alveg dolfallin yfir. Ég
mun klárlega syngja um fegurðina
sem er Tansanía. En ætli hún verði
samt ekki poppplata því ég er hálf-
gert fórnarlamb poppsins. Þrátt fyrir
að hafa reynt að afneita því sem ung-
lingur í MH,“ segir Una og skellihlær.
Góð áminning um það sem
skiptir máli
Una er enn í sambandi við eina
stelpu sem hún kynntist úti, en þær
eru jafnöldrur. „Við tölum saman
þegar hún fær að fara á internetið
í vinnunni sinni. Við tölum um
fjölskyldurnar okkar, kærastana,
vinnuna og vinina. Við erum báðar
23 ára stelpur með svipuð áhuga-
mál í sömu veröld. Stundum gleymi
ég því að eftir spjallið fer hún heim
til sín og sér um foreldra sína sem
búa í hálfgerðum kofa án rafmagns
og rennandi vatns. Hún hefur ekki
sömu tækifæri og ég og heldur ekki
nærri því sömu réttindi og ég sem
kona. En við erum bara vinkonur
að spjalla um hluti sem 23 ára stelp-
ur tala um. Heimurinn er svo stór
og skrýtinn en öll erum við bara
fólk. Svona ferðir breyta því svolítið
hvernig maður hugsar um hlutina á
góðan og réttan hátt,“ segir Una að
lokum. n
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
„Ég er hálfgert
fórnarlamb popp-
sins. Þrátt fyrir að hafa
reynt að afneita því sem
unglingur í MH.
Una Stef Söng-
konan lærði söng
í FÍH og tók hún
burtfararpróf í vor
á svipuðum tíma
og platan hennar
Songbook kom út.
MynD SiGtRyGGUR ARi
Í tjaldi Una og Hlynur í tjaldi í Serengeti-þjóðgarðinum að reyna að sofa fyrir stormi, híenu-
hlátri og sebrahestahljóðum.
Gleði Með kátri stelpu úr Masaai-þjóð-
flokknum í Tansaníu.
Kristrún Ösp
opnar vefsíðu
Fyrirsætan Kristrún Ösp Barkar-
dóttir hefur opnað nýja nýja vef-
síðu, kristrunosp.is, þar sem hún
mun fjalla um uppeldi, lífsstíl,
mat og málefni líðandi stundar.
Nú þegar hefur hún birt tvær
færslur á síðunni sem fjalla báð-
ar um mat, en hún virðist vera
að prófa sig áfram bæði elda-
mennsku og bakstri.
Kristrún var einn af stofnend-
um vefmiðilsins hun.is, ásamt
þeim Bryndísi Gyðu Michelsen og
Kiddu Svarfdal, en hún sleit sam-
starfinu á síðasta ári vegna ágrein-
ings, að hennar sögn.
En Kristrún ætti að hafa það
sem til þarf til að halda úti vefsíðu
líkt og hún hefur nú sett í loftið.
Það er því aldrei að vita hvort hún
komi til með að veita fyrrverandi
samstarfskonum sínum á hun.is
einhverja samkeppni.