Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Side 2
Vikublað 25.–27. nóvember 20142 Fréttir Þ órey Vilhjálmsdóttir, að­ stoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fráfar­ andi innanríkisráðherra, sagði í skýrslutöku hjá lög­ reglu í apríl að hún hefði ekki vitað af samskiptum Gísla Freys Valdórs­ sonar, fyrrverandi aðstoðarmanns ráðherra, við Morgunblaðið og Fréttablaðið dagana 19. og 20. nóv­ ember í fyrra. Hanna Birna svaraði á sömu leið í skýrslutöku. Báðar sögðu þær þó að það væri ekkert óeðli­ legt við samskiptin enda ættu að­ stoðarmenn í miklum samskiptum við fjölmiðla. Af símagögnum máls­ ins má þó sjá að aðstoðarmennirnir tveir voru í samskiptum daginn sem gögnin birtust fyrst í fjölmiðlum, en þau voru lengi vel, bæði með réttarstöðu grunaðs manns í málinu. Þórey og Gísli ræddust tvisvar við að morgni dags þann 20. nóvember. Þá ræddi Þórey við blaðamann 365 miðla á meðan Gísli sá um sam­ skipti við fréttamann RÚV og rit­ stjóra Morgunblaðsins þennan sama morgun. Símasamskipti Þór­ eyjar og Gísla áttu sér stað um sama leyti og þau ræddu við fjölmiðla. Þannig þurfti Gísli til að mynda að slíta símtali við Þóreyju til að svara fréttamanni RÚV en Þórey svar­ aði blaðamanni 365 miðla tveimur sekúndum síðar. Allir þessir miðlar fengu minnisblað innanríkisráðu­ neytisins í hendur dagana 19. og/ eða 20. nóvember. Stanslaus samskipti DV sendi fyrirspurn á Þóreyju varð­ andi málefni hælisleitendanna klukkan 11.46 þann 19. nóvember en fékk ekkert svar. Síðar sama dag afhenti Gísli Fréttablaðinu minn­ isblað sem innihélt viðbót þar sem vísað var í rannsóknar­ gögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Hann hefur ekki vilj­ að greina frá því hvaðan sú viðbót kom, en daginn eftir afhenti Sigríður Björk Guðjóns­ dóttir, þáverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, honum greinargerð um málefni Tonys Omos. Þá fékk hann einnig senda yfirheyrslu­ skýrslu yfir Tony Omos frá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Þórey hringdi fyrst í Gísla klukk­ an 08.56.45, eða tæpum fjórum mínútum eftir að Sigríður Björk hafði hringt úr leyninúmeri í talhólf hans. Sjálfur hringdi Gísli í Har­ ald Johannessen, ritstjóra Morgun­ blaðsins, klukkan 09.42 og fékk upp talhólf. Haraldur hringdi í hann fjór­ um mínútur síðar, klukkan 09.46, og ræddust þeir við í rúmar tvær mín­ útur. Þegar því samtali var lokið hr­ ingdi Gísli svo beint í Þóreyju, eða klukkan 09.51, og ræddust þau við í eina mínútu. Um leið og því sam­ tali sleppti svaraði Þórey símtali sem henni barst frá blaða­ manni 365 miðla. Samtalið stóð í eina og hálfa mínútu. Án viðbótar Klukkan 10.55 birti mbl.is svo frétt undir fyrirsögninni „Margt óljóst í máli hælisleitanda“. Þar var ekki vísað í rannsóknargögn frá Suður­ nesjum líkt og í frétt Fréttablaðsins. Þess í stað voru upplýsingarnar sagðar komnar úr „óformlegu minn­ isblaði innanríkisráðuneytisins“. Þá var ekkert að finna um þann meinta þrýsting sem Tony Omos átti að hafa beitt Evelyn í umræddri frétt. DV hefur heimildir fyrir því að Morgunblaðið hafi fengið aðra út­ gáfu af minnisblaðinu en Frétta­ blaðið. Þannig hafi umrædda auka­ setningu vantað í þá útgáfu sem Morgunblaðið hafði undir höndum. Þetta skýrir muninn á fréttunum tveimur og staðfestir enn einu sinni að ummæli Hönnu Birnu á Alþingi um „engin sambærileg gögn“ áttu aldrei við rök að styðjast. Sama gagn og var til inni á málaskrá innanríkis­ ráðuneytisins endaði hjá Morgun­ blaðinu. Læstar upplýsingar Gísli Freyr játaði glæp sinn eftir að lögmanni hans höfðu verið kynnt ný gögn sem komu í leitirnar þegar starfsmaður sérstaks saksóknara skoðaði spegilafrit af hörðum diski í tölvu sakborningsins. Spegilafritið sýndi að Gísli hafði sjálfur bætt við klausu þar sem vísað var í rann­ sóknargögn frá Suðurnesjum og gef­ ið í skyn að Tony væri ekki raunveru­ lega barnsfaðir Evelyn. Ekki liggur fyrir hvort aðrir en Gísli vissu af lekanum. Mikils­ verðar upplýsingar varðandi þann möguleika kunna þó að liggja læstar inni í trúnaðarsambandi stærstu fjölmiðla landsins við heimildar­ manninn. n Ók allt of hratt Erlendur ferðamaður var stöðvað­ ur á Kringlumýrarbraut á sunnu­ dag eftir að bifreið hans mældist á 117 kílómetra hraða. Í tilkynn­ ingu frá lögreglu kemur fram að hámarkshraði þarna hafi verið 80 kílómetrar á klukkustund. Samkvæmt sektarreikni á vef Umferðarstofu má vænta að mað­ urinn hafi fengið 60 þúsunda króna sekt. Maðurinn var færður á lögreglustöð þar sem hann gekk frá sektargreiðslu. Fékk hann að halda för sinni áfram að því loknu. Tveggja milljóna raf- stöð stolið Lögreglumenn á Selfossi höfðu afskipti af nokkrum fjölda öku­ manna í umdæmi sínu í liðinni viku. Níu voru staðnir að of hröð­ um akstri, fjórir töluðu í farsíma án handfrjáls búnaðar, þrír voru ekki í öryggisbelti og einn er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Sá var að auki ekki með ökuréttindi. Í dagbók lögreglunnar á Sel­ fossi kemur fram að í síðustu viku hafi horfið rafstöð af vinnu­ svæði Ístaks við Suðurlandsveg í Hveradölum. Á rafstöðinni var tíu metra ljósamastur. Rafstöðin var á hjólum með beisli til að hengja aftan í ökutæki. Verðmæti þessa er um tvær milljónir króna. Þeir sem geta veitt upplýsingar um hvarf rafstöðvarinnar eða vita hvar hún er niðurkomin eru beðnir að hafa samband við lög­ reglu í síma 480­1010. Sex minni háttar fíkniefnamál komu upp á Selfossi um helgina í tengslum við frumkvæðisvinnu lögreglu. Fíkniefnahundurinn Buster kom við sögu í fimm til­ vikanna. Þeir sem áttu hlut að máli voru með neysluskammt af kannabis. Einn viðurkenndi að hafa selt öðrum gramm af grasi. Tímalína yfir samskiptin öll Kl. 18.40 Gísli Freyr á rúmlega tveggja mínútna samtal við starfsmann Vísis. Kl. 08.52.53 Sigríður Björk hringir í Gísla Frey úr leyninúm­ eri og fær samband við talhólf. Kl. 09.41.55 Gísli hringir í Sigríði og ræðir við hana í tæpar sex mínútur. Kl. 09.42.26 Gísli hringir í Har­ ald Johannes­ sen, ritstjóra Morgunblaðsins og fær samband við talhólf. Kl. 09.46.49 Haraldur hringir í Gísla og þeir ræða saman í rúmlega tvær mínútur. Kl. 08.53.27 Gísli fær sms­skilaboð. Sendandi óþekktur. Kl. 08.56.45 Þórey hringir í Gísla og þau tala saman í eina mínútu. Kl. 08.58.54 Gísli hringir í talhólf sitt og hlustar. Kl. 09.32.41 Starfsmaður 365 miðla hringir í Þóreyju og fær sam­ band við talhólf. Kl. 18.46 Gísli opnar minnisblað varðandi Tony Omos sem vistað var á tölvu hans. Kl. 22.20 Gísli opnar minnis­ blaðið á nýjan leik. Kl. 22.43 Gísli á sitt síðasta samtal við starfsmann Vísis en þau voru alls fjögur þetta kvöld. Kl. 22.50 Fréttablaðið er sent í prentun. Forsíðu­ fréttin fjallar um málefni hælisleitendanna Tonys Omos og Evelyn Glory Jos­ eph en þar er sérstaklega vísað í rannsóknargögn frá Suðurnesjum. 19. nóvember 20. nóvember Svona voru SamSkiptin n Gísli og Þórey voru bæði í símasamskiptum við fjölmiðla þann 20. nóvember n Ræddu við hvort annað þess á milli Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is Vissi ekki um Gísla Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarkona fráfarandi innanríkisráðherra, var í samskiptum við blaða­ mann 365­miðla á meðan Gísli Freyr var í samskipt­ um við fréttastofu RÚV og Morgunblaðið. Í skýrslutöku sagðist hún ekki hafa vitað af samskiptum Gísla við fjöl­ miðlamenn hjá Fréttablaðinu og Morgun­ blaðinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.