Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2014, Blaðsíða 18
18 Skrýtið Vikublað 25.–27. nóvember 2014 1 Seldu fyrst pylsur Það fyrsta sem finna mátti á matseðli McDonald‘s voru ekki hamborgarar, heldur pylsur. Á fjórða áratugn- um, þegar bræðurnir Dick og Mac McDonald streðuðu við að reka kvikmyndahús tóku þeir eftir því að miklu meira var að gera hjá pylsusala neðar í götunni. Þeir tóku lán og hófu að selja pylsur árið 1937. Þremur árum síðar fluttu þeir standinn frá Arcadia til San Bernar- dino og breyttu nafninu í McDona- ld‘s Barbeque. 2 Áttundi hver hefur unnið hjá þeim Áttundi hver Bandaríkjamaður hefur unnið á Mc Donald‘s, samkvæmt upplýsing- um sem fram koma í bókinni Fast Food Nation: The Dark Side of the All-American Meal. Í Bandaríkjun- um búa um 320 milljónir manna. Það þýðir að um 40 milljónir Bandaríkjamanna hafa á einhverj- um tímapunkti í lífi sínu unnið hjá McDonald‘s-skyndibitakeðjunni. 3 Meiri fita í Caesar-salati Í Caesar-salatinu, vinsælum rétti á matseðli McDonalds‘s er meiri fita en í venjulegum hamborgara. Daily Mail hefur sagt frá því að með dressingu séu 21,4 grömm af fitu í réttinum – eða 425 hitaeiningar. Í venjulegum hamborgara eru eru 254 hitaeiningar, 7,7 grömm af fitu. Þegar frönskum er bætt við hamborgarann verða hitaeiningarn- ar 459 en fitan 16,7 grömm. Það er því minna af fitu í hamborgara og frönskum á McDonald‘s en Caesar- salatinu vinsæla. 4 Nýr staður á 15 tíma fresti Mcdonald‘s opnar nýjan veitingastað á 14,5 klukkustunda fresti og hjá keðjunni starfa 440 þúsund starfsmenn, um heim allan. Staðirnir, víðs vegar um heiminn, eru ríflega 35 þúsund talsins. McDonald‘s er starfandi í 119 löndum og hefur selt hamborgarar frá árinu 1948. Fyrirtækið skilar gríðarlegum hagnaði á ári hverju. 5 Fæða 68 milljónir daglega Það er óhætt að segja að McDonald‘s skyndibita- keðjan hafi náð ótrúlegri útbreiðslu. Keðjan fæð- ir 68 millj- ónir manna á hverjum degi. Sá fjöldi er meiri en sem nemur öllum íbúum Bretlandseyja. Á ársgrund- velli gerir það næstum 25 milljarða máltíða. Það er eitthvað. 6 Gullslegna M-ið Í bók-inni Fast Food Nation: The Dark Side of the All-American Meal er því haldið fram að fleiri þekki vörumerki McDonald‘s en sjálfan krossinn, tákn kristn- innar. Þetta leiðir rannsókn á vegum Sponsorship Research International Fund í ljós. 88 prósent aðspurðra gátu skilgreint einkennismerki Mc Donald‘s en aðeins 54 prósent gátu sagt fyrir hvað krossinn stæði. 7 Með bakkalár-próf í hamborgarafræðum 80 þúsund manns hafa útskrif- ast úr skóla á vegum skyndibita- keðjunnar með próf í ham- borgarafræð- um. Á sjöunda áratugnum fengu starfs- menn ekki að snúa hamborgurum án þess að hafa hlotið þjálfun. Skyndibitakeðjan rekur enn þann dag í dag skóla, Hamburger University, þar sem starfsmenn eru teknir í ítarlega þjálfun. Hvort þessi BA-gráða, sem starfsmenn útskrifast með samkvæmt frétt sem birtist á vef Huffington Post ekki alls fyrir löngu, gagnist starfsmönnum í öðrum störfum skal ósagt látið. 8 Afgreiða ekki fólk á hestum Þeir viðskiptavinir sem koma í bílalúgu skyndibita- keðjunnar á hestbaki fá ekki afgreiðslu. Þetta kom í ljós í júlí 2013 þegar kona var sektuð þegar hún hugðist kaupa sér skyndibita á stað McDonald's á Manchester- svæðinu á Englandi. Konan kom ríðandi en var vísað frá. Forsvars- menn McDonald's sögðu ástæðuna vera þá að heilsu og öryggi annarra viðskiptavina hefði verið stefnt í hættu með uppátækinu. 9 Seldu einu sinni pítsur McDonald's seldu ekki bara pylsur og hamborgara heldur seldu þeir einnig pítsur. Þessi tilraun var framkvæmd á áttunda áratug liðinnar aldar í völdum útibúum skyndibitarisans. Enn þann dag í dag er boðið upp á pítsur á völdum stöðum, meðal annars í Ohio í Bandaríkjunum. Pítsan náði þó aldrei almennri útbreiðslu og er það meðal annars vegna þess hversu langan tíma tekur að elda hana, eða 11 mínútur. 10 Hlægilega lág laun Það tek-ur meðalstarfsmann McDon- ald's um sjö mánuði að vinna sér inn jafn mikinn pening og forstjóri McDonald's fær fyrir klukkutíma vinnu. Hjá kaffihúsakeðjunni Starbucks tekur það starfsmann sex mánuði og fimm mánuði. 11 Ron-ald MacDon- ald rændi Wendy's Ófáir fjölmiðlar gerðu sér mat úr ógæfu 22 ára manns árið 2005. Hann framdi rán á veitinga- stað Wendy's og hefði vart komist í kastljós fjölmiðla ef hann hefði ekki heitið sama nafni og lukkudýr McDonald's, trúðurinn Ronald MacDonald. Eins og einhverjir eflaust vita er Wendy's samkeppn- isaðili McDonald's. Upphæðin sem MacDonald stal var þó óveruleg en hann átti nokkurn sakaferil að baki. 12 Græða milljarða á hverjum degi McDonald's hagnast um 70 milljónir Bandaríkjadala, rúma níu milljarða króna, á degi hverjum. Skyndibitastaðir McDonald's eru 35.000 í 119 löndum. Árið 2012 nam velta keðjunnar 27,5 milljörðum Bandaríkjadala, eða 3.400 milljörð- um króna – ótrúleg upphæð. Sem kunnugt er var McDonald's með úti- bú á Íslandi en því var lokað fljótlega eftir hrun. Ástæðan? Það þótti ekki borga sig! 13 Ekki stærsta skyndibita-keðjan McDonald's er sem fyrr segir ótrúlega stór skyndibita- keðja. Ein keðja toppar þó McDon- ald's en það er Subway. Subway trompar McDonald's varðandi fjölda skyndibitastaða. McDonald's er með 35 þúsund útibú á sínum snærum en Subway er með tæplega 43 þús- und. Subway er þó bara, ef svo má segja, með starfsemi í 107 löndum en McDonald's í 119 löndum. 14 Heimsins stærsti dreifi-aðili leikfanga McDonald's selur ógrynni barnamál- tíða. Mál- tíðunum fylgja leik- föng. Sam- kvæmt frétt sem birtist í QSR-tímaritinu er McDonald's heimsins stærsti dreifiaðili leikfanga. Þessi hefð, að láta leikföng fylgja með barnamáltíðum, á rætur sínar að rekja til ársins 1979. Um tuttugu prósent allra máltíða sem McDon- ald's selur eru barnamáltíðir og því þarf ekki að koma mikið á óvart að McDonald's dreifi ótrúlegu magni af leikföngum. 15 Með eigin vísitölu McDon-ald‘s er svo útbreidd skyndibita- keðja, að í hagfræði er talað um svokallaða McDona- ld‘s-vísitölu. The Economist á heiðurinn af því, fyrst árið 1986. Verð á Big Mac- máltíð er notað sem viðmið á milli landa í efnahagslegu tilliti en máltíðin er ein sú vinsælasta hjá McDonald‘s keðjunni. Verðið á mál- tíðinni er notað til að bera saman kaupmátt og leggja mat á styrk gjaldmiðla. n Fimmtán ótrúlegar staðreyndir um mcdonald's n Fleiri þekkja gullna M-ið en krossinn n Áttundi hver Bandaríkjamaður hefur unnið á McDonald's Baldur Guðmundsson baldur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.