Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2014, Side 14
Helgarblað 28. nóvember –1. desember 201414 Fréttir
V
ið höfum ítrekað bent á að
pottur sé brotinn í starf
semi Strætó bs.,“ segir
Björn Jón Bragason, fram
kvæmdastjóri Félags hóp
ferðaleyfishafa, í samtali við DV, en
félagið leggur í dag, föstudag, fram
kæru til sérstaks saksóknara á hendur
Strætó bs. Félagið hefur rökstuddan
grun um að fyrirtækið hafi með skipu
legum hætti og ítrekað nýtt sér fyrir
komulag við útboð til þess að færa
fjármuni á milli handa með ólögmæt
um hætti. Um er að ræða umfram
greiðslur upp á tæpan milljarð króna
til tveggja fyrirtækja í eigu sömu aðila,
Hagvagna og Hópbíla, á árunum 2010
til 2013. Þá hafi Hópbílum einnig ver
ið afhentur sérleyfisakstur án útboðs.
Félagið sendi einnig kvörtun
til Samkeppniseftirlitsins í síðasta
mánuði en að sögn Páls Gunnars
Pálssonar, forstjóra Samkeppnis
eftirlitsins, er verið að meta hvort
rannsókn verði hafin á grundvelli er
indisins.
Tvöfaldar greiðslur
Vegagerðin hefur falið samtökum
sveitarfélaga um mestallt land
einkaleyfi til fólksflutninga á sínu
starfssvæði. Samtök sveitarfélaga hafa
í flestöllum tilvikum fengið Strætó bs.
til að annast framkvæmdina, meðal
annars útboð, sem hefur einkum gert
samninga við tvö fyrirtæki, Hagvagna
hf. og Hópbíla hf. Hagvagnar eru í
eigu hjónanna Hafdísar Alexanders
dóttur og Gísla J. Friðjónssonar. Hóp
bílar eru síðan í eigu Hagvagna og
Gísla J. Friðjónssonar. Þessi tvö fyrir
tæki eru því í eigu sömu aðila.
Kvörtun Félags hópferðaleyfis
hafa var send til Samkeppniseftirlits
ins 13. október síðastliðinn en hún
telur fimm málsatvik og varða þrjú
þeirra viðskipti Strætó við Hagvagna
og Hópbíla. Í fyrsta lagi útboð aksturs
strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu
árið 2010 en Strætó gekk að tilboði
Hagvagna sem nam tæplega 845
milljónum króna. Á síðasta ári óskaði
Félag hópferðaleyfishafa eftir upplýs
ingum um greiðslur til Hagvagna á ár
unum 2010 til 2013.
Í ljós kom að raunverulegar greiðsl
ur til Hagvagna á þessu tímabili eru
rúmum 706 milljónum króna hærri
en tilboðsfjárhæðin og ef tekið er til
lit til breytinga á vísitölu neysluverðs
þá reynast greiðslur vera rúmlega
766 milljónum króna hærri. „Ljóst
er að strax frá upphafi samningstím
ans hafa greiðslur Strætó bs. til Hag
vagna hf. farið verulega fram úr þeirri
fjárhæð sem Hagvagnar hf. settu fram
sem tilboð í framangreindu útboði.
Framangreindar fjárhæðir eru veru
legar og þær greiðslur sem raunveru
lega hafa átt sér stað nema nær tvö
faldri upphaflegri samningsfjárhæð,“
segir enn fremur í kvörtuninni.
Ólögmætur samningur
Í öðru lagi fólu Samtök sunnlenskra
sveitarfélaga (SASS) Strætó í júlí 2011
yfirumsjón með almenningssam
göngum milli Suðurlands og höfuð
borgarsvæðisins og í kjölfarið bauð
Strætó út akstur strætisvagna á Suður
landi. Þjónustunni var skipt í tvo verk
hluta. Tilboð Bíla og fólks ehf. í verk
hluta 1 og 2 sameiginlega var lægst.
Hins vegar höfðu átt sér stað mistök
við tilboðsgerðina og voru mistökin
augljós enda um að ræða lægra tilboð
í verkhlutana sameiginlega heldur en
í stakan verkhluta. SASS vildu hins
vegar halda tilboðinu til streitu en því
var hafnað af Bílum og fólki. Þá gengu
SASS til samninga við Hópbíla, þrátt
fyrir að Hópferðamiðstöðin ehf. hafi
átt næstlægsta tilboð í verkið. Mál
ið fór fyrir kærunefnd útboðsmála
sem úrskurðaði að samningurinn
við Hópbíla hefði verið ólögmætur.
Samningurinn stóð engu að síður.
Bílar og fólk ehf. fór með málið
alla leið fyrir Hæstarétt en DV hefur
endurrit skýrslutöku úr dómnum
undir höndum. Þar sést hvar lögmað
ur Bíla og fólks spyr ráðgjafa Strætó
hvers vegna ekki hafi verið samið við
Hópferðamiðstöðina. Svar ráðgjafans
er á þá leið að Hópferðamiðstöðin
hafi ekki verið í viðskiptum við Strætó
áður. „Þarna staðfestir ráðgjafinn að
það er verið að handstýra þessu til
þessara fyrirtækja,“ segir Bjarki Þór
Sveinsson, lögmaður Félags hóp
ferðaleyfishafa, í samtali við DV.
Tæpur milljarður í
umframgreiðslur
Tilboðsfjárhæð Hópbíla var rúmlega
188 milljónir króna. SASS hafa aft
ur á móti greitt Hópbílum tæp
lega 453 milljónir króna, sem
er tæplega 265 milljónum
króna hærra en tilboðs
fjárhæðin. Líkt og á við um
greiðslur Strætó til Hag
vagna fyrir akstur á höfuð
borgarsvæðinu eru raun
verulegar greiðslur því
meira en tvöfalt hærri en
upphafleg samningsfjár
hæð. Samtals nema um
framgreiðslur til Hagvagna
og Hópbíla því um 970 millj
ónum króna á tímabilinu
2010 til 2013. „Þetta eru svaka
legar fjárhæðir,“ segir Bjarki
Þór. „Við höfum spurt Strætó
hvers vegna þessir
samningar
hækkuðu svona mikið en höfum ekki
fengið nein skýr svör. Það er því óút
skýrt hvers vegna er verið að eyða
svona miklu aukalega af opinberu
fjármagni í þessa samninga.“
Björn Jón tekur í sama streng.
„Við teljum það í meira lagi óeðlilega
stjórnsýsluhætti að farið sé svo langt
fram úr greiðslum til einstakra aðila.
Þetta getur tæpast flokkast sem eðli
leg frávik, hvað þá viðundandi með
ferð á almannafé, sér í lagi á tímum
aðhalds og niðurskurðar í opinberum
rekstri. Þess vegna finnst okkur eðli
legt að embætti sérstaks saksóknara
taki málið til skoðunar,“ segir hann.
Sérleyfisakstur
afhentur án útboðs
Á sama hátt og greint hefur verið frá
um akstur á Suðurlandi hefur Vega
gerðin falið Samtökum sveitarfélaga
á Vesturlandi (SSV) að skipuleggja
almenningssamgöngur milli Vestur
lands og höfuðborgarsvæðisins. Bílar
og fólk ehf. hafði sinnt
áætlunarakstri um
Snæfellsnes en
samningurinn
rann út í lok
ágúst 2012.
Bílar og fólk
ehf. hafði
hins vegar
ekki feng
ið skýrar
upplýs
ingar um
með hvaða
hætti akstri
á Snæfells
nesi yrði
fram
haldið og sendi SSV fyrirspurn um
málið. Í svari frá SSV segir að varð
andi akstur milli Reykjavíkur og
Stykkishólms verði farin sú leið að
svigrúm sem til staðar var í samningi
um akstur til Akraness verði notað í
þann akstur. Þess má geta að Hópbíl
ar hf. var þá með samning við Strætó
og SSV um akstur milli Reykjavíkur
og Akraness. Telur Félag hópferða
leyfishafa að með þessu hafi Hópbíl
um verið afhentur sérleyfisakstur á
Vestur landi án útboðs.
Áætlanir geta
tekið breytingum
Áður hefur verið fjallað um umfram
greiðslur Strætó til Hagvagna og
Hópbíla í fjölmiðlum, meðal annars í
Fréttablaðinu og Morgunblaðinu. DV
sendi fyrirspurn á Strætó. bs þar sem
spurt er hvort Strætó bs. væri kunn
ugt um kvörtun Félags hópferða
leyfishafa til Samkeppniseftirlitsins
og hvort efnisatriði hennar hafi ver
ið skoðuð af stjórninni. Einnig kall
aði DV eftir skýringum á hækkun
greiðslna til Hagvagna og Hópbíla á
undanförnum fjórum árum. Í svari
frá Guðrúnu Ágústu Guðmunds
dóttur, verkefnastjóra stefnumót
unar, segir að ekkert formlegt erindi
frá Samkeppniseftirlitinu hafi borist
Strætó vegna kvörtunarinnar. „Ef
Samkeppniseftirlitið telur ástæðu til
að kalla eftir skýringum frá Strætó bs.
þá verður slíkri beiðni að sjálfsögðu
svarað. Strætó bs. greiðir verktökum
í samræmi við samþykkta samninga
að undangengnum útboðum. Áætl
anir í almenningssamgöngum geta
tekið breytingum enda ekki hægt
að festa akstur almenningsvagna
mörg ár fram í tímann. Þannig er til
að mynda kveðið á um það hvernig
greiða skuli fyrir fjölgun og/eða fækk
un aksturstíma á samningstímanum í
öllum útboðsgögnum Strætó bs.,“ út
skýrir Guðrún Ágústa.
„Við fögnum því að ný stjórn
Strætó bs. ætlar að taka á málum af
festu og vonandi mun því ófremdar
ástandi brátt linna sem ríkt hefur í
þessum málaflokki,“ segir Björn Jón.
„Allsherjarstrætóvæðing almenn
ingssamgangna um landið hefur
reynst miklu kostnaðarsamari en það
fyrirkomulag sem áður var við lýði og
þá gengur engan veginn að opinber
stofnun sé með þessum hætti
komin í beina samkeppni
við einkaaðila.“ n
Kæra Strætó bs. til
sérstaks saksóknara
n Strætó greiddi Hagvögnum og Hópbílum tæpan milljarð umfram samninga á fjórum árum
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
Framkvæmdastjóri Félags hóp-
ferðaleyfishafa „Við teljum það í meira
lagi óeðlilega stjórnsýsluhætti að farið sé
svo langt fram úr greiðslum til einstakra
aðila,“ segir Björn Jón Bragason.
Mynd KriSTinn MagnúSSon
Ekkert formlegt erindi borist Guðrún
Ágústa Guðmundsdóttir, verkefnastjóri
stefnumótunar hjá Strætó, segir eðlilegt
að áætlanir í almenningssamgöngum taki
breytingum.
„Þarna staðfest
ir ráðgjafinn að
það er verið að handstýra
þessu til þessara fyrir
tækja
– Bjarki Þór Sveinsson lögmaður
„Ef Samkeppnis
eftirlitið telur
ástæðu til að kalla eftir
skýringum frá Strætó bs.
þá verður slíkri beiðni að
sjálfsögðu svarað.
– guðrún Ágústa guðmundsdóttir
Einokun í fólksflutningum
Félag hópferðaleyfishafa kærir
Strætó bs. til sérstaks saksóknara
í dag, föstudag. Þá hefur félagið
einnig sent kvörtun til Samkeppn-
iseftirlitsins. Reynir Jónsson er
fráfarandi framkvæmdastjóri
Strætó bs. Mynd SaMSETT
Verslanir á Laugavegi 182 og í Smáralind · sími 512 1300 · epli.is
Solo2
Studio 2.0