Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2014, Side 25
Umræða 25
Ég er algjör skvísa Góður tímapunktur
að hverfa
Tinna Rut Traustadóttir lögreglukona æfir kraftlyftingar. – DV Reynir Jónsson hættir hjá Strætó bs. – DVGeir Ólafsson datt á svelli og rotaðist. – DV
Helgarblað 28. nóvember –1. desember 2014
Óskalög þjóðarinnar
K
annski á þjóð mín þá ósk
heitasta að embættismenn
fari að þeim lögum sem þeir
sjálfir setja. Og kannski er
sú ósk ekki annað en eðlileg krafa
þegar öllu er á botninn hvolft. Eða
viljum við kannski setja okkur á
sama hest og þeir sem hafa vald
til að myrða smábörn sem halda
á lofti leikfangabyssum?
Kannski eigum við öll þá von,
að samfélag manna verði betra
en það er. En ef sú er vonin, verð
um við að sýna yfirvaldinu að
hald. Við megum ekki láta það
óátalið þegar stjórnmálamaður,
sem hefur verið fundinn sekur um
glæpsamleg athæfi, lætur hafa
það eftir sér að hann hafi sætt of
sóknum vegna glappaskota sinna.
Þær ofsóknir og það illa umtal
sem téður stjórnmálamaður mátti
þola, var ekkert annað en eðlileg
afleiðing þeirra orsaka sem hann
sjálfur ýtti af stað. Við megum ekki
heldur láta það ósnert, þegar við
heyrum af því, að tiltekinn emb
ættismaður hafi ekki veitt við
tal vegna málsins, hafi ekki látið
ná í sig eða telji tiltekin ummæli
ekki svara verð. Í öllum tilvik
um er um það að ræða, að tiltek
inn embættismaður er að reyna
að afvegaleiða umræðu og reyn
ir að kaupa sér tíma. Reyndar er
það svo, að sá sem er í okkar þjón
ustu og getur ekki sinnt verkum
með því að svara fyrir afglöp sín,
hann er ekki starfi sínu vaxinn og
er þannig í raun og veru að stela
frá okkur hinum bæði tíma og
launum. Enn er óútkljáð hver eða
hverjir stóðu fyrir vopnakaupum
nú fyrir skemmstu. Og þau svör
sem hafa nú þegar fengist eru svo
misvísandi, að það sér það hver
heilvita maður að einhver eða
einhverjir hljóti að vera að ljúga.
Og uppúr dúrnum hefur komið
að menn í okkar þjónustu hafa –
einsog það heitir á fagmálinu –
ekki látið ná í sig vegna málsins.
Kannski eru hin eiginlegu
óskalög þjóðarinnar, lög sem
tryggja það að lög um aðgengi al
mennings að upplýsingum séu
virt, að menn verði dregnir til
ábyrgðar en geti ekki dögum, vik
um, mánuðum og jafnvel árum
saman, helgað sig þeirri iðju
að vera ekki til viðtals um eigin
heimskupör.
Fréttamenn eiga ekki og mega
ekki leyfa þeim sem valdir eru eða
ráðnir til verka, samkvæmt sátt
málum samfélagsins, að komast
undan þegar bolurinn krefur þá
um svör. Slík undanskot eru í raun
og veru glæpsamleg og fyrst og
síðast fjandsamleg því samfélagi
sem við teljum okkur geta reist á
stoðum réttlætis.
Kenni menn stopulu minni um
ófarir sínar og seinagang til svara,
þá þarf að hressa rækilega upp
á minnið með uppbyggilegum
ábendingum. n
Gremja fólksins falla kann
á falska drulludella
ef ekki næst í ólánsmann
sem allt sitt þarf að fela.
Kristján Hreinsson
Skáldið
skrifar
Erum þetta við?
Hryðjuverkaógnin
Umsjón: Henry Þór Baldursson
Þ
áttur Lóu Pind Aldísardóttur
og fleiri á Stöð 2 í gærkvöldi,
þriðjudaginn 24. nóvember
2014, er skelfileg mynd af
íslensku samfélagi fátækt
ar og neyðar. Skelfileg mynd af
samfélagi mannvonsku, sjúklegrar
græðgi, virðingarleysi gagnvart
manngildi og göfgi, hreinræktaðri
illmennsku, mannfyrirlitningu og
algerum skorti á mannlegum til
finningum og manngöfgi.
Sagt var í þættinum, að
ábyrgðarmaður margs þessa heiti
Stefán Kærnested. Hann veitti ekki
viðtöl. Hann heimilaði ekki viðtöl
við leigjendur sína. Hann heimil
aði ekki heimsóknir í hýbýlin, sem
hann býður viðskiptavinum sínum.
Hann heimilar engar heimsóknir
til þeirra. Hann bannar þeim að
bjóða til sín gestum. Hann bannar
að sýna fólki það, sem hann sýn
ir fólkinu sem borgar honum pen
inga fyrir búsetu í ósamþykktu hús
næði þar sem lífshætta er verði
eldur laus.
Nú þekki ég marga Kærnesteda.
Einn, Elías, sem var góður vin
ur minn og stundaði skósmíða
iðn vestur á Ísafirði. Annan, Sverri,
sem var setjari í prentsmiðju Al
þýðublaðsins þegar ég var þar ung
ur blaðamaður, öndvegis maður.
Þann þriðja, sem var hetja og skip
herra hjá Landhelgisgæslunni í
landhelgisstríðinu. Er þessi Kærne
sted ættingi þeirra – kannske af
komandi? Skyldi þessum Kærne
stedum líða vel gætu þeir fylgst
með úr gröfinni?
Á ég fyrir þessar sakir von á heim
sókn frá valdbeitingarmönnum. Jafn
vel von á kárínum. Skyldu Kærne
stedarnir mínir vera sáttir við það. Er
nú svo komið – með okkur og þeim?
Er þetta samfélag, sem við erum sátt
við? Er þetta fólk, sem við erum sátt
við? Erum þetta við – Íslendingar?
Erum þetta við – Kærnestedar? Stoltir
– og sáttir við okkur og okkar? n
Sighvatur Björgvinsson
Kjallari
„Hvað veist þú
um það hvað
hann ætlaði sér?!
Hann vildi ekki fá þá inn
til sín og reyndi að meina
þeim aðgang með hníf í
hendinni sem hann var að
nota til að skaða sjálfan sig
… Er það ekki ljóst? Ég hef
aldrei tjáð mig um svona
mál áður, hvað þá komist í
kast við lögin, en stundum
verður maður bara reiður
fyrir hönd fólks sem maður
þekkir. Þessi maður hefur
helling af fólki á Ísafirði
sem þykir vænt um hann,
og það úr flestum stéttum
samfélagsins,“
segir Þórunn Halldórsdóttir
og svarar athugasemdum
á DV.is um mann sem telur
sig hafa verið beittan ofbeldi af hálfu
lögreglunnar á Ísafirði.
„Verð nú bara að
segja að ég er sátt
við fréttaflutning
Rúv þessa dagana, tel menn
þar á bæ vera að vinna með
fólkinu í að taka á þöggun
og spillingu í þjóðfélaginu.
Hér eru grímulausar
hótanir settar fram,
ótrúleg óforskömmugheit
þykir mér. Svo veit ég ekki
betur en að Björn Ingi og
Framsóknarflokkurinn séu
að sölsa undir sig flesta
vefmiðla á landinu, það
ætti að vera nokkur sárabót
fyrir þessa aumingjans
menn sem vilja moka
skítinn framan í okkur án
viðbragða,“
segir Ásthildur Cesil
Þórðardóttir og svarar Óla
Birni Kárasyni, varaþingmanni
Sjálfstæðisflokksins, sem telur alvar-
lega slagsíðu til vinstri vera á íslenskum
fjölmiðlum.
„Það er
einkennileg stjórn
sem þarf að fá
ábendingar frá fjölmiðlum
um að yfirmaður í fyrirtækinu
sé að misnota aðstöðu
sína með svona ótrúlega
grófum hætti til að þess að
eitthvað sé farið að kanna
málið. Í ofanálag hefur heyrst
að óbreyttir starfsmenn
fyrirtækisins hafi kvartað yfir
framkomu yfirmannsins en
líklega hefur það ekki þótt
svaravert eða þess virði að
kanna það neitt,“
segir Ásdís Jónsdóttir.
Stjórn Strætó bs. frétti fyrst
af greiðslum fyrirtækisins
til Gagnalausna ehf., fyrirtækis í eigu
bróður Reynis Jónssonar, fyrrverandi
framkvæmdastjóra, eftir að DV sendi
inn fyrirspurn um málið.
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
20
12
5
Mér er svolítið
brugðið