Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2014, Qupperneq 35
Helgarblað 28. nóvember –1. desember 2014 Lífsstíll 35
Til hamingju GÓLI
Við hjá Stúdíó Norn ehf.
óskum Guðmundi Óla
Scheving til hamingju
með nýja geisladiskinn
Stúdíó Norn
Sporin í
sálinni
SKÍFAN • HAGKAUP • EYMUNDSSON • PENNINN • ÚTV. SAGA • RÁÐTAK • HEIMKAUP
SÖLUAÐILAR:
Heimagerðir skrúbbar
n Hráefnin er hægt að finna á flestum heimilum n Þú velur samsetninguna
V
etrarveðrið getur farið illa
með húðina og því gott að
geta dekrað aðeins við sig.
Það er ekki á allra færi að
fara í spatíma en í staðinn
er hægt að skrúbba sjálfan sig og
nudda heima hjá sér. Ekki er held-
ur verra ef skrúbburinn er heima-
gerður.
Andlitsskrúbbur með
baldursbrá
Baldursbrá (Camomile) er þekkt
fyrir bólgueyðandi og róandi eigin-
leika sína hvort sem það er innvortis
eða á skinni. Þar sem skrúbbar eru
hrjúfir og geta valdið óþægindum þá
hjálpar baldursbráin við að róa húð-
ina og ólífuolían gefur raka.
Hráefni:
n ½ bolli hvítur sykur
n ¼ bolli ólífuolía
n 1 baldursbrár-tepoki
Leiðbeiningar: Tæmdu tepokann
í skál ásamt ólífuolíunni og sykrin-
um. Blandaðu vel og settu svo í loft-
þéttar umbúðir. Hreinsaðu andlitið
með volgu vatni. Settu um það bil
eina matskeið af skrúbbnum á fing-
ur þína og nuddaðu honum mjúk-
lega um allt andlitið, fyrir utan augu
og rétt í kringum þau. Hreinsaðu svo
andlitið með köldu vatni og þerraðu.
Handskrúbbur með rósmaríni
Mjög fljótlegt er að gera þennan
skrúbb fyrir þurrar og þreyttar
hendur.
Hráefni:
n ¼ bolli púðursykur
n ½ bolli hvítur sykur
n Safi úr hálfri sítrónu
n Örlítið ferskt rósmarín
n 1 msk. kókosolía
n 1 msk. hunang
Leiðbeiningar: Blandaðu saman í
skál og hrærðu. Helltu þessu í hreina
krukku og geymdu á köldum stað.
Best er að bleyta hendurnar aðeins
fyrir notkun, náðu í smá skrúbb og
nuddaðu höndunum saman. Ein-
beittu þér að svæðum sem eru þurr.
Í kjölfarið er gott að nota handáburð.
Vanillufótaskrúbbur
Hjá mörgum verða fæturnir fyrir
mestu hnjaski og því gott að dekra
við þá endrum og sinnum.
Innihald:
n ½ bolli púðursykur
n ½ hvítur sykur
n 1 tsk. kanill
n 1 tsk. vanilludropar
n 1/3–½ bolli olía (annaðhvort ólífuolía eða
kókosolía)
Leiðbeiningar: Blandaðu þurrefn-
unum saman í skál, bættu vanillu-
dropunum og olíunni saman við.
Best er að byrja á 1/3 bolla af olíu
og bæta svo við þangað til þér finnst
áferðin vera rétt. Þetta er svo geymt
í loftþéttum umbúðum. Þegar
skrúbburinn er notaður þá skal
nudda honum yfir allan fótinn og
nudda vel með höndunum.
Húðskrúbbur úr gúrku og myntu
Það getur verið auðvelt að gleyma
líkamanum sjálfum þegar maður er
að dekra við sig, en hann þarf ekki
síður á því að halda.
Innihald:
n 1 stór agúrka
n 2 msk. fersk mynta
n 2 ½ bolli sykur
n 4 msk. Extra Virgin-ólífuolía
Leiðbeiningar: Settu gúrkuna og
myntuna í blandara og maukaðu.
Blandaðu svo maukinu, sykrinum
og ólífuolíunni vel saman. Ef þú vilt
hafa skrúbbinn þykkari þá getur þú
bætt við sykri. Settu hann svo í ílát
og geymdu í ísskápnum.
Varaskrúbbur
með hunangi
Norðanáttin og
þurrt loft getur
valdið miklum vara-
þurrki. Þegar búið er
að skrúbba allan lík-
amann er fínt að ljúka
deginum með þessu.
Innihald
n 1 msk. sykur
n 1 msk. hunang
n 1 msk. ólífuolía
n Valfrjálst: 1 tsk. vaselín og bleikur
matarlitur
Leiðbeiningar: Blandaðu
saman hunangi og sykri í litla
skál, bættu svo olíunni við
og blandaðu vel. Ef varirnar
eru mjög þurrar er hægt að
bæta smá vaselíni við. Eins
er hægt að bæta við örlitlu af
bleikum matarlit til að gera þetta
skemmtilegra. Að því loknu þarf að
setja skrúbbinn í ílát. Til að nota
hann er gott að setja smá á varirnar
fyrir svefninn og nudda mjúklega,
þvo þær svo með vatni og bera vel
af varasalva á varirnar. Gott er að
nota skrúbbinn tvisvar í viku. n
Húðskrúbbur Agúrkur og mynta eru
ávallt frískandi.
Handskrúbbur Það tekur aðeins fimm
mínútur að búa til þennan skrúbb.
Handskrúbbur Það tekur aðeins fimm
mínútur að búa til þennan skrúbb.
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is