Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1960, Blaðsíða 7

Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1960, Blaðsíða 7
Yfirlit Summary A. Inngangsorð. Introductory remarks. Fyrsta manntal á íslandi var tekið árið 1703. Var það gert að tilhlutun Árna Magnússonar prófessors og Páls Vídalíns varalögmanns, sem skipaðir höfðu verið 1702 í nefnd til þess að rannsaka greinilega hagi landsins og gera tillögur til um- bóta. Meðal þeirra starfa, sem þeim var falið að framkvæma, var að taka almennt manntal, og var því lokið fyrir alþing 1703. Manntal þetta tilgreindi alla lands- menn með nafni og aldri og stöðu þeirra á heimilinu, og átti því fáa sína líka, fyrr en kemur fram á 19. öld, er það fer að tíðkast að taka manntöl með nöfnum allra íbúanna. Þó er það ekki hið fyrsta manntal slíkrar tegundar, því að svipað mann- tal var tekið í nýlendunni Nýja Frakklandi í Kanada árið 1666 og endurtekið oft- sinnis eftir það, en nýlenda þessi var þá ekki mannfleiri en væn sýsla á íslandi. Aftur á móti er ekki kunnugt um, að til sé í Evrópu neitt svipað almennt lands- manntal, er sé eldra en íslenzka manntalið 1703. Árið 1695 var þó tekið manntal um allt England og Wales, sem virðist hafa átt að ná til allra landsmanna, en megnið af þeim skýrslum mun nú glatað. 1 Noregi voru líka tekin manntöl bæði 1664—66 og 1701, en þau náðu aðeins til sveitanna utan kaupstaða, og slepptu öllu kvenfólki, nema ekkjum, sem stóðu fyrir búi, og mikið af manntalslistunum er nú glatað. íslenzka manntalið 1703 nær aftur á móti til allra landsmanna og hefirr geymzt svo vel, að ekki vantar einn einasta hrepp. Manntalið 1703 var ekki tekið á einum degi um land allt, eins og nú tíðkast um manntöl, heldur var það tekið á ýmsum tímum, allt frá því í desember 1702 og fram í júní 1703, en á flestum stöðum fór það fram í marz eða apríl. Það sýnist eiga við ástandið á þeim tíma, er það var tekið á hverjum stað, en ekki verið miðað við ákveðinn dag. Þó er skýrslan um utansveitarhúsgangsmenn, sem fylgdi með aukalega, alls staðar miðuð við páskanóttina 1703, og sums staðar er það tekið fram, að ómagaregistrið eigi við langaföstuna, eins og fyrir var mælt í bréfi nefndar- manna til sýslumanna1). 1 hreppunum önnuðust hreppstjórarnir um framkvæmd manntalsins. Yoru þá venjulega 5 hreppstjórar í hverjum hreppi, en hrepparnir rúmlega 160. Ekki er vitað, hvaða aðferð hefur verið notuð við töku manntalsins, og líklega hefur hún ekki verið liin sama alls staðar. Sums staðar virðist svo sem hreppstjórarnir hafi farið um hreppinn og skrifað fólkið á hverjum bæ, en annars staðar mimu þeir hafa stefnt bændum til sín til þess að afla þeirra upplýsinga, sem óskað var eftir. Manntalinu af öllu landinu hefur verið skilað til nefndarmanna á alþingi sum- arið 1703, og hefur það síðan verið sent til stjórnarinnar í Kaupmannahöfn. En þar virðist það hafa legið óhreyft í 75 ár eða þar til veturinn 1777—78, er Skúli 1) Er bréf þetta prentað hér á eftir sera viðauki á bls. 26.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hagskýrslur um manntöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um manntöl
https://timarit.is/publication/1171

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.