Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1960, Blaðsíða 8

Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1960, Blaðsíða 8
6 Manntalið 1703 Magnússon landfógeti dvaldi í Kaupmannaliöfn og skrifaði í 6. bindi af jarðabók sinni upp úr manntalinu 1703 mannfjöldann á hverjum bæ, ásamt tölu fjölskyldna og sveitarómaga í hverjum breppi, og gerði yfirlit fyrir allt landið um tölu fjöl- skyldna og mannfjöldann alls og hve margir þar af voru yfir sjötugt, og loks skipti liann mannfjöldanum á landbúnað og fiskveiðar. Jarðabók lians er aðeins til í handriti, en yfirlitsskýrsla lians um mannfjöldann 1703 eftir sýslum var birt í „Oeconomisk Reise igiennem Island“ eftir Olaus Olavius, er kom út 1780, og hefur hún síðar verið prentuð víðar, svo sem í Skýrslum um landshagi á íslandi II. b., 1859, hls. 60 ásamt kvikfjártali nefndarmanna, og á bls. 64—65, þar sem er líka skiptingin á landbúnað og fiskveiðar með samanburði við tölu málnytukúgilda, og í Landshagsskýrslum 1903, bls. 70—80, þar sem líka er tilgreindur mannfjöldi, hcimilatala og tala sveitarómaga í liverjum lireppi. Sjálfar manntalsskýrslurnar frá 1703 fluttust aftur heim til íslands árið 1921 og hafa þær verið birtar í lieilu lagi sem sérstakt rit, er nefnist Manntal á íslandi árið 1703. Var það prentað á árunum 1924—47, og annaðist Hagstofa íslands um útgáfu þess. í formála fyrir því riti er skýrt rækilega frá tildrögum og undirbúningi manntalsins svo og frá afdrifum þess síðar, og vísast til þess um það efni. Þegar manntalið var prentað, var gerð sérstök skrá um alla þá, sem fundizt liöfðu á fleirum en einum stað í manntalinu, og var hún prentuð aftan við mann- talið. Eru þar taldir alls tæplega 500 manns. Þar af voru taldir: á 2 stöðum............ 438 „3 „ 52 „4 .............. 6 „8 „ ............. 1 Samtals 497 Nærri þriðjungur þessa fólks eru sveitarómagar í tveimur hreppum á landinu, sem taldir voru bæði á bæjunum þar sem þeir dvöldust, og auk þess á sérstakri skrá aftan við lireppinn. Hitt var flest sveitarómagar, sem höfðu framfæri í fleiri en einum hreppi, svo sem þá tíðkaðist mjög. Þá átti að telja aðeins á einum stað þar, sem þeir voru á langaföstunni, en þeir voru oft líka taldir þar, sem þeir áttu að vera aðra tíma ársins, því að hreppstjórarnir hafa ógjarna viljað láta sveitar- þyngslin sýnast minni en þau voru raunverulega. Einnig voru nokkrir skólapiltar (24) taldir bæði í Skálliolti og heima lijá foreldrum sínum. Við úrvinnslu mann- talsins liefur þess verið gætt, að þetta fólk sé aðeins talið á einum stað. Hafa þannig 567 verið felldir niður vegna endurtekninga, sem vart hefur orðið við. Skráin um utansveitarliúsgangsmenn, sem taldir voru þar sem þeir gistu páskanóttina, var sérstakur viðauki við manntalið, því að þessir menn hefðu líka átt að vera taldir í sjálfu manntalinu þar, sem þeir áttu framfærslusveit á langaföstunni, en það mun oftast ekki liafa verið gert, því að samband þessa fólks við framfærslusveitina liefur verið orðið svo laust, að húu hefur verið hætt að telja þá með ómögum sínum. Þessir flakkarar voru rúmlega 460 alls, en aðeins 70 af þeim fundust einnig taldir í sjálfu manntalinu. Við úrvinnslu manntalsins hefur því þeim flökkurum, sem ekki fundust í sjálfu manntahnu, verið bætt við, og þeir taldir þar, sem þeir voru um páskanóttina. Þar sem manntalið fór ekki fram samtímis alls staðar á landinu, þá hefði mátt búast við tvítalningu vegna flutninga, ef manntali var lokið á þeim stað, er flutzt var frá, en ólokið á þeim stað, er flutzt var til. Þessa verður þó ekki vart í fyrr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hagskýrslur um manntöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um manntöl
https://timarit.is/publication/1171

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.