Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1960, Blaðsíða 24

Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1960, Blaðsíða 24
22 Manntalið 1703 8. yfirlit. Skipting fjölskylduheimila eftir stærð. Family households by size classes. 1703 1950 Sveitir Allt landið Tala rural areas Iceland Heimilisstœrd size classes number % % % 2 menn pcrsons 618 8,1 9,9 15,3 3 „ 1 093 14,3 16,1 21,8 4 1 324 17,4 18 6 21,8 5 „ 1 276 16,8 16,8 16,8 6 „ 1 077 14,1 14,7 11,1 7 795 10,4 9,6 6,4 8 540 7,1 6,5 3,4 9 358 4,7 3,9 1,8 10—14 469 6,2 3,8 1,6 15 19 „ 49 0,6 0,1 0,0 20 o. fl. and over 23 0,3 - Samtals 7 622 100,0 100,0 100,0 en 1703 voru 30 heimili (fyrir utan Skálholt og Hóla) fjölmennari, þótt sveitar- ómagar væru ekki meðtaldir. 6 lieimili voru þá með 25—29 manns og eitt, hið stærsta, með 39 manns. Var það lieimili Lauritz Gottrups lögmanns á Þingeyrum. í töflu VII (bls. 52) hefur mannfjöldanum verið skipt eftir stærð heimila. Þar með eru ekki taldir sveitarómagar og nokkur hluti lausafólksins, sem eins og áður segir hefur ekki verið skipt niður á heimilin í manntalinu. Mannfjöldinn, sem talinn er í töflunni, er greindur eftir heimilisstöðu hvers manns, og börn og ætt- ingjar og annað vandafólk auk þess eftir aldri. Taflan sýnir, hvernig þessi mann- fjöldi skiptist eftir stærð heimila, hvort heldur með forstöðu karla eða kvenna, og enn fremur eftir tegund heimila (bændabýli, hjáleigur, tómthús og húsmennska). F. Þurfamenn. Paupers. Um sveitarómaga má fá ýmsar upplýsingar í manntalinu 1703. Þegar búið er að strika út tvítalninga, verður talan á niðursetningum og þurfalingum, sem flytj- ast um hreppinn, 6 789 á öllu landinu eða 13,5% af öllum mannfjöldanum. Þar með eru þó ekki upptaldir alhr þeir, sem þiggja af sveit. í manntalinu er þess víða getið, að fjölskyldum, sem eru við búskap, sé lagt af sveitinni. Tala þessa fólks er 617, og er það lágmark, því að ekki er víst, að slíks sé getið alls staðar, þó að það sé líklegra. En sjálfsagt má þar við bæta flökkurunum, 394, því að þeir munu hafa átt tilkall til sveitarframfæris einhvers staðar, enda þótt þeir kysu heldur að hafa ofan af fyrir sér með flakki heldur en vera niðursettir á sinni sveit. Að þeim viðbættum verður tala þurfalinga alls 7 800 manns, og er það 15,5% af öllum landsbúum. Það vantar því ekki mikið á, að það sé sjötti hluti af öllu fólk- inu á landinu. Það samsvarar því, að rúml. 22 þúsund manns hefði verið á sveit hér á landi 1950. Árið 1920—21 fór fram talning á öllum sveitarstyrksþegum á landinu, og reyndist þá tala þeirra ásamt skylduliði um 4 500 manns eða 4,8% af mannfjöldanum á landinu þá. Síðan mun tala sveitarstyrksþega hafa lækkað mikið, enda lýðtryggingar komið £ staðinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hagskýrslur um manntöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um manntöl
https://timarit.is/publication/1171

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.