Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1960, Blaðsíða 28

Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1960, Blaðsíða 28
26 Manntalið 1703 sízt hafa verið sleppt, þar sem yfirleitt hefur verið hirt um að skýra frá heilsufari, en það er þó ekkert öryggi fyrir, að þeim kunni ekki að hafa verið sleppt annars staðar. 3. Aðrar lýsingar. Other characteristics. Það telst svo til, að í manntalinu séu tilgreindir 24 útlendingar, 14 karlar og 10 konur. Mun þó aðallega hafa verið farið eftir nöfnunum, án þess að manntalið hafi tilgreint þjóðernið. Hins vegar eru víða settar aftan við nöfn manna lýsingar á ástandi þeirra, svo sem einkum „fátækur“ eða „ölmusumaður“, en oft líka „lítt vistfær“ eða miður fagrar lýsingar á innræti þeirra, svo sem „illa kynntur“, „latur“, ,,þjófur“ o. fl. En mjög er mismikið um slíka einkunnagjöf í sýslunum og í sumum vantar hana alveg. Viðauki Appendix. Bréf Arna Magnússonar og Páls Vídalíns til sýslumanna um töku manntals. Circular from Árni Magnússon and Páll Vídalín to tlie sheriffs concerning the taking of tlie census. (Arne Magnusson: Embedsskrivelser, bls. 50—52) Kongl. Majestatis Sýslumann í ............sýslu. Monsieur! Á meðal annarra erenda, sem Konungleg Majestat okkur allra náðugast befalað hefur hér í landi að útrétta, er að láta samantaka eitt fullkomið registur yfir allt fólkið í landinu, ungt og gamalt, manns- og kvennpersónur. Því tilsegist yður hér með uppá liæðstnefndrar konunglegrar Majestatis vegna nefnt fólkregistur í yðar Sýslu skírlega og fullkomlega saman að taka, svo engum þarinni gleymt verði, Eiga í því registri að uppteiknast, bæ frá bæ, bóndi og húsfreyja, börn og annað heimibsfólk, með sérhvers nafni, föðurnafni og aldri, item hjáleigu-, húss- og búðar- menn, þar þeir eru, með þeirra konum, börnum og heimilisfólki, sérhver með nafni, föðurnafni og aldri, og hjá hverri einni manns- og kvennpersónu skilmerkilega að specificerast, hvað sá eða sú fyrir sig leggur, lxvort heldur er búskapur, húsmennska, lausamennska, vinnumennska eða annar ærlegur lífernisháttur. Þeir sem úr fram- andi Sýslum til útróðra eða annarrar þvílíkrar stundarveru í yðar Sýslu vera kunna, þurfa ei upp að teiknast; en þeir, sem annaðhvort til nefndra útróðra eður ann- arrar þvílíkrar burtveru úr sínum átthaga reistir eru, skulu þó þar uppskrifast, er þeir heima eiga. Svo skulu og í nefnt registur með nöfnum og aldri innfærast allir þeir ómagar, sem á sveitunum í yðar Sýslu eru á næstkomandi langaföstu, hvert heldur þeir niðursettir eru eða um sveitirnar flytjast. í þessa fólkregisturs saman- tekju kunna hreppstjórar í sérhverri sveit yður til handa að ganga, hverjum hér með alvarlega og undir straff befalast sig í öllu því greiða og kostgæfna að auðsýna, sem þér til fyrrnefnds registurs fullkomnunar þeim tilsegjandi verðið. En yður til- segist fyrir öllu þessu svo að sjá, að oftnefnt registur skírlega og riktuglega saman
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hagskýrslur um manntöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um manntöl
https://timarit.is/publication/1171

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.