Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Blaðsíða 17
Umræða Stjórnmál 17Vikublað 16.–18. desember 2014 hennar fæst hjá okkur Jólagjöfin L augavegi 82 / Sími: 551-4473 Flokkur I n Félagasamtök og stofnanir utan ríkisins – Upplýsingar til almennings – Fjölmiðlar - 89 stig n Frjáls félaga- og hagsmunasamtök gegn spillingu - 88 stig n Möguleiki fjölmiðla til að fjalla um spillingu - 93 stig n Upplýsingar til almennings um málefni ríkisins - 85 stig Flokkur II n Kosningar - 76 stig n Kosningar og myndun stjórnmálaflokka - 75 stig n Kosningaheilindi - 93 stig n Gegnsæi í fjármögnun stjórnmálaflokka - 59 stig Flokkur III n Varnir og aðgerðir vegna hagsmuna- árekstra innan ríkisins - 66 stig n Hagsmunaárekstrar – varnir – aðgerðir og viðbrögð: Framkvæmdasýslan - 72 stig n Hagsmunaárekstrar – varnir – aðgerðir og viðbrögð: Löggjafarvaldið - 74 stig n Hagsmunaárekstrar – varnir – aðgerðir og viðbrögð: Dómsvaldið - 39 stig n Fjárlagagerð – yfirsýn og gegnsæi - 81 stig Flokkur IV n Stjórnsýslan og fagmennska - 36 stig n Opinber þjónusta: Hagsmunaárekstrar, varnir og pólitískt sjálfstæði - 43 stig n Varnir fyrir uppljóstrara (Whistle Blowers) - 0 stig n Ríkiskaup: Gegnsæi, sanngirni og varnir við hagsmunaárekstrum - 73 stig n Einkav. ríkiseigna og þjónustu: Gegnsæi, sanngirni og varnir við hagsm.árekstr. - 29 stig Flokkur V n Ríkisstofnanir – yfirsýn og eftirlit - 84 stig n Umboðsmaður - 90 stig n Ríkisendurskoðun - 95 stig n Skatta- og tollayfirvöld: sanngirni og rekstrarlegir burðir - 90 stig n Yfirumsjón með fyrirtækjum og stofnunum í eigu ríkisins - 77 stig n Leyfisveitingar til fyrirtækja og reglugerðir - 71 stig Flokkur VI n Varnir gegn spillingu, lagarammi, hlutleysi dómskerfis og fagmennska lögregluyfirv. - 76 stig n Lög til varnar spillingu - 100 stig n Stofnanir gegn spillingu eða sambærileg kerfi - 74 stig n Dómskerfið – sjálfstæði – aðgangur almennings að kerfinu - 71 stig n Lögregluyfirvöld: Varnir gegn hagsmunaárekstrum og fagmennska - 54 stig Spilling og varnir Heilindaeinkunn Íslands árið 2012 n Samtals stig - 71 n Lagarammastig - 80 n Framkvæmdar- og innleiðingarstig - 59 heImIld: global IntegrIty - Jenný steFanía JensdóttIr Fölnuð goðsögn um óspillt Ísland F yrir fáeinum árum var Íslandi yfirleitt í einu af efstu sætun- um í samanburðarmælingum Transparency International á spillingu meðal þjóða heims- ins. Stofnun kannar árlega hvernig al- menningur metur spillingu í heima- landi sínu og á þessu ári bregður svo við að Ísland hefur sigið niður í tólfta sæti. Fleiri alþjóðlegar stofnanir, eins og GRECO, nefnd á vegum Evrópu- ráðsins í Strassborg, fylgist einnig með spillingu í aðildarlöndum og gefur út tilmæli til stjórnvalda telji sérfræðingar hennar að efni séu til. Ísland hefur átt aðild að GRECO frá árinu 1999 og fengið margvísleg til- mæli frá stofnuninni allar götur frá árinu 2001. Að miklu leyti má rekja breytingar á lögum um fjármál og styrki til stjórnmálaflokka hér á landi til athugasemda og tilmæla frá GRECO. Lögin tóku gildi í ársbyrjun 2007. Mörgum er enn í minni miklar styrkveitingar, einkum til Sjálfstæð- isflokksins, sem afhjúpaðar voru árið 2009. Þau framlög voru einkum innt af hendi áður en nýju lögin tóku gildi. Unnið að stofnun íslandsdeildar transparency Árið 2012 vann Jenný Stefanía Jens- dóttir lokaverkefni við háskólann í Toronto þar sem hún gerði tilraun til þess að leggja mat á spillinarvarn- ir á Íslandi. Hún beitti flokkunum og mælikvarða sem kalla mætti „Heil- indastuðullinn“ (Global Integrity). Jenný Stefanía hefur talsvert fjallað um þetta á vefsíðu sinni undanfar- in misseri og meðal annars útskýrt einkunnargjöfina þar sem hver þáttur fær stig á bilinu 0 til 100 eins og fram kemur í meðfylgjandi töflu hennar. Þess má geta að Jenný Stefanía vinnur nú með undirbúningshópi að stofn- un samtaka sem ætlar að sækja um Íslandsdeildaraðild að Transparency International. Að hópnum stend- ur fólk sem vill berjast gegn spillingu á Íslandi og stuðla að heilbrigðari stjórnsýslu. Viðurkennt er að spilling veik- ir samfélagslega ábyrgð og heilindi almennings og stofnana sem með- al annars er ætlað að verja réttindi borgaranna. Nauðsynlegt er að skil- greina spillta hegðun, greina upp- runa hennar og kjörlendi, en þannig ætti að verða hægara um vik að berj- ast gegn henni. Hér á landi má segja að spilltar stöðuveitingar, frændhygli og ýmiss konar aðstöðubrask séu kunnar birtingarmyndir spillingar. Síður ber á spillingu eins og mútum og mútuþægni þótt það kunni að vera vegna þess að stjórnvöld og viðskipta- lífið hafi kosið að snúa blinda auganu að slíkum hegningarlagabrotum. að meta varnir gegn spillingu Aðferð Jennýjar Stefaníu (Global In- tegrity) byggist á því að nálgast spill- ingu óbeint með því að beina athygli að og leggja mat á atriði sem eru til þess fallin að draga úr spillingu. Í meðfylgjandi töflu hefur Jenný Stef- anía flokkað og lagt mat á margvíslega þætti samkvæmt viðurkenndum að- ferðum. Lagt er mat á gegnsæi stjórn- unarákvarðana og framkvæmd þeirra. Metið er frelsi fjölmiðla og skráning hagsmunatengsla embættismanna og þingmanna. Hætta á hagsmunaá- rekstrum er metin og fjármál og fjár- öflun stjórnmálaflokka er skoðuð. Niðurstöður Jennýjar Stefaníu sýna að þrátt fyrir tiltölulega góðan lagaramma er innleiðingu og fram- kvæmd ábótavant. Eftir afhjúpun á spilltum framlögum til stjórnmála- flokkanna fram til ársins 2007 hef- ur traust almennings til stjórnmála rýrnað. Hvorki flokkar né frambjóð- endur virða tímamörk sem sett eru í lögunum um skil á upplýsingum til ríkisendurskoðanda. Jenný Stefan- ía kemst að því að reglur um hags- munaárekstra eru takmarkaðar og gera oftar en ekki ráð fyrir að emb- ættismenn og aðrir meti sjálfir eigið hæfi og sjálfstæði. Athugunin bendir einnig til þess að dómskerfið sé sér- staklega veikt þar sem varnir skort- ir til að koma í veg fyrir hagsmuna- árekstra. Orðið einkavinavæðing er séríslenskt og sprottið upp úr jarð- vegi einkavæðingar á fyrirtækjum í eigu ríkisins. Enn hefur ekki komið til framkvæmda rannsókn á einkavæð- ingu bankanna sem Alþingi sam- þykkti að ráðast í haustið 2012. lögin í lagi en framkvæmdin ekki Þrátt fyrir að gáttir spillingar virð- ist opnar og greiðfærar hér á landi standa ýmsar stoðir sterkum fót- um að mati Jennýjar Stefaníu. Emb- ætti umboðsmanns, skattyfirvalda og ríkis endurskoðunar eru metin sjálf- stæð og fagleg. Margar eftirlitsstofn- anir skortir þó ábyrgð og áreiðanleika til að tryggja öryggi almennings (sbr. t.d. brjóstapúðamál og sorpbrennslu- mengun). Þótt lagaramminn um varnir gegn spillingu sé að mörgu leyti traust- ur skortir að mati Jennýjar Stefaníu óháða stofnun eða aðila sem tryggir framkvæmd og innleiðingu slíkra varna. n Ísland sokkið niður í 12. sæti Transparency International gerir árlega samanburð á þjóðum heims þar sem spilling er metin (Corruption Percept- ions Index). Fyrir aðeins fáum árum var Ísland í einu af efstu sætunum meðal þjóða þar sem spilling er lítil að mati almennings. - Taflan sýnir 20 efstu þjóðirnar á þessu ári. sæti land stig 1. Danmörk 92 2. Nýja Sjáland 91 3. Finnland 89 4. Svíþjóð 87 5. Noregur 86 5. Sviss 86 7. Singapúr 84 8. Holland 83 9. Lúxemborg 82 10. Kanada 81 11. Ástralía 80 12. Þýskaland 79 12. Ísland 79 14. Bretland 78 15. Belgía 76 15. Japan 76 17. Barbados 74 17. Hong Kong 74 17. Írland 74 17. Bandaríkin 74 n Varnir gegn spillingu greindar á Íslandi n unnið að stofnun Íslandsdeildar transparency Jóhann hauksson johannh@dv.is Varnir gegn spillingu Jenný Stefanía Jensdóttir hefur unnið lokaverkefni við háskólann í Toronto þar sem lagt er mat á varnir gegn spillingu hér á landi. spilling Mútur og mútuþægni er ekki algengt form spillingar hér á landi og fá slík mál hafa ratað inn í dómsalina. Aðstöðubrask, ógagnsæi og spilltar embætt- isveitingar eru hins vegar mun sýnilegri. mynd hörðUr sVeInsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.