Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Blaðsíða 19
Neytendur 19Vikublað 16.–18. desember 2014
Sykurbombur í jólabúningi
reglugerð verður innleidd n Svona finnur þú út magn viðbætts sykurs í mjólkurvörum
Til að setja þetta magn af við-
bættum sykri í samhengi við aðra
alþekktar sykurgildrur þá má
benda á að í 250 millilítrum af Coca
Cola, eða sem nemur einu mjólkur-
glasi, er að finna 27 grömm af sykri
eða sem nemur um 13,5 sykurmol-
um.
Meira sykur
Séu þessar niðurstöður bornar
saman við aðrar sambærilegar
mjólkurvörur MS þá gefur að líta að
Skólajógúrt, sem einnig er augljós-
lega markaðssett fyrir börn, inni-
heldur 12,45 grömm af sykri í 150
grömmum eða sem nemur rúm-
lega 6 sykurmolum. Sykurminni út-
gáfa af Skólajógúrt var nýlega sett á
markað.
Óskajógúrt með hnetu- og
karamellubragði inniheldur 14,4
grömm af sykri í 180 grömmum
eða sem nemur ríflega 7 sykurmol-
um samkvæmt útreikningum sem
finna má á vef landlæknis. Ljóst er
að umtalsvert meira er af viðbætt-
um sykri í jólavörunum en hinum.
Ber ekki að upplýsa
um sykurinn
Eins og staðan er í dag er fram-
leiðendum ekki skylt að gefa upp
sykurmagn og almennt ekki einu
sinni skylt að merkja umbúðirnar
með næringargildi í matvælunum,
nema þegar næringar- eða heilsu-
fullyrðingar eru notaðar á um-
búðunum.
„Það er skoðun Neytendasam-
takanna að ef viðbættur sykur er í
vörum á það skilyrðislaust að koma
fram á umbúðum um hve mikið
magn sé að ræða,“ segir Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna. „Þetta á að sjálfsögðu
að gilda um alla matvælaframleið-
endur og það er mikilvægt að þetta
sé sett fram á sama hátt hjá öllum
framleiðendum til að hindra að
verið sé að rugla neytendur í rím-
inu.“
Breytingar í vændum
Brátt verður það svo að Neytenda-
samtökunum og neytendum verð-
ur að ósk sinni. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Matvælastofnun verður
ný reglugerð um upplýsingar um
matvæli til neytenda innleidd hér
á landi nú í desember. Samkvæmt
henni verður skylt að merkja nær-
ingargildi, þar á meðal sykur, á
flest forpökkuð matvæli frá 13.
desember 2016.
Þegar reglugerðin er komin í gildi
hér, en líklega verður gefinn frestur
fram í maí 2015, verður næringar-
gildismerking sem er á matvælum,
hvort sem hún er gefin valfrjálst eða
samkvæmt skylduákvæðum, að vera
samkvæmt þeirri reglugerð og þar
með þarf alltaf að gefa upp sykur-
magn þegar næringargildi er merkt. n
9
sykurmolar
10
sykurmolar
Jóla engjaþykkni
– með hrískúlum
n Þyngd: 150 gr
n Verð: 139 kr
n Samtals viðbættur sykur: 18,75 gr
Jólajógúrt
– með jarðarberjum og meðlæti
n Þyngd: 165 gr
n Verð: 137 kr
n Samtals viðbættur sykur: 20,79 gr
Hlaðið sykri
Sykurinnihaldið í
þessari litlu dollu
af Jólajógúrt er á
við 10 sykurmola.
Mynd Sigtryggur Ari
Merkingin í framtíðinni Þegar næringargildi er gefið, samkvæmt nýju reglugerðinni sem innleidd verður nú í desember, verður að lág-
marki að gefa upp þessi atriði, í þessari röð. Sykurinn, þar á meðal.
Næringargildi í 100 g eða 100 ml
Orka kJ og kkal
Fita g
Þar af mettuð fita g
Kolvetni g
Þar af sykur g
Prótein g
Salt g
Fjölskylduvænir tölvuleikir
Fimm leikir sem mega vera í jólapakkanum hjá krökkum
E
f þig vantar hugmyndir að
skemmtilegum og fjölskyldu-
vænum tölvuleikjum fyrir
yngri kynslóðina þá þarftu
ekki að örvænta í flóði ofbeldis-
fullra leikja sem ekki eru við hæfi
barna. Þó að unglingunum á heim-
ilinu muni væntanlega ekki þykja
mikið til þeirra koma þá ættu þess-
ir að slá í gegn hjá þeim sem yngri
eru og er óhætt að hafa í jólapakk-
anum í ár.
Eins og lesa má hér á opnunni
þá tók vefsíðan Consumer Reports
saman lista yfir tölvuleiki sem ekki
eru ætlaðir börnum yngri en 17–18
ára. En sams konar leiðarvísir var
einnig gerður fyrir leiki sem hugs-
aðir eru sérstaklega fyrir börn. Hér
eru fimm þeirra bestu.
1 Skylanders – Trap Team. Hugsaður fyrir tíu ára og
eldri. Þú kaupir leikfangafígúrur
sem þú síðan tengir við og notar í
tölvuleiknum. Þessi tegund leikja
hefur reyndar verið gagnrýnd
fyrir að vera peningaplokk þar sem
nánast endalaust er hægt að kaupa
karaktera sem sameina gamaldags
leikföng og nútíma leikjatölvur.
Hægt er að nota fígúrur úr eldri
leikjum með þessum leik. Þú fangar
vondukalla, skýtur á skotmörk og
leysir þrautir.
2 Disney Infinity 2.0. Fyrir tíu ára og eldri. Líkt og Skylanders
þá notast leikurinn við raunveru-
legar leikfangafígúrur sem tengdar
eru leiknum. Hér er hægt að leika
sér sem allar gömlu góðu Disney-
persónurnar auk Marvel-ofurhetj-
anna. Líkt og með Skylanders þá
er ákveðinn stofnkostnaður við að
kaupa fígúrur og tengipall sem síðan
er hægt að bæta við, með tilheyr-
andi kostnaði. Þessir leikir njóta þó
mikilla vinsælda.
3 Pokemon Alpha Sapphire og Omega Ruby. Tvær
uppfærðar útgáfur af eldri leikjum
fyrir Nintendo 3DS og fyrir alla
aldurshópa. Gengur, líkt og allt
sem tengist Pokemon, út á að safna
þeim öllum. Foreldrar þurfa að vera
börnum innan handar því leikurinn
krefst ákveðinnar lestrarkunnáttu,
á ensku.
4 Super Smash Bros. Fyrir 10 ára og eldri og Nintendo Wii
U- og 3DS-leikjatölvurnar. Það væri
enginn leikjalisti fullkominn án þess
að Super Mario kæmi við sögu. Þó
að þetta sé tæknilega séð slags-
málaleikur þá er þetta voða saklaust
og krúttlegt. Ótal heimsþekktar
tölvuleikjafígúrur sem hægt er að
velja úr.
5 Little Big Planet 3. Fyrir alla aldurshópa á Playstation 3 og
4. Afar vinsælir leikir þar sem sköp-
unargleðin ræður ríkjum. Hér snýst
allt um að hlaupa, hoppa, skoppa og
leysa þrautir. Saklaus skemmtun og
fyrir alla fjölskylduna. n
Ekkert ofbeldi Little Big Planet 3
er einn þeirra fimm tölvuleikja sem
Consumer Reports mælir með og
segir óhætt að setja í jólapakkann
hjá yngri kynslóðinni.