Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Síða 20
Vikublað 16.–18. desember 201420 Sport
gegn því að vera sóttur
Fæst geFins
H
ávær orðrómur er um það á
Englandi að forráðamenn
Chelsea láti nú þau skila-
boð berast til kollega sinna
hjá öðrum úrvalsdeildar-
liðum og víðar að dýrasti leikmað-
ur í sögu félagsins, Fernando Torres,
fáist frítt strax í janúar gegn því að
félögin greiði launin hans. Fyrir að-
eins fjórum árum, í janúar 2011,
keypti Chelsea spænska framherj-
ann á 50 milljónir punda sem þá
var breskt félagsskiptamet. Torres
er nú á láni hjá AC Milan á Ítalíu
en þar hefur hann haldið áfram að
valda vonbrigðum. Þó að lánssamn-
ingurinn við Milan sé til tveggja ára
og bundnar hafi verið vonir við að
Torres myndi finna aftur sitt besta
form, hefur raunin orðið önnur og
Milan vill losna við framherjann
sem eitt sinn var sá hættulegasti í
Evrópu.
Margir hafa velt því fyrir sér hvað
í ósköpunum hafi komið fyrir Torres
síðan hann skipti yfir í Chelsea. Ein
kenning, sem þótt hefur sennileg,
hefur nú aftur skotið upp kollin-
um. Hún gengur út á að hnéaðgerð-
ir sem Torres gekkst undir í janúar
2010, ári áður en hann gekk til liðs
við Chelsea, og svo aftur í apríl sama
ár, hafi verið upphafið að endalok-
um ferils hans.
Eins og stormsveipur
Torres kom eins og stormsveipur
inn í ensku úrvalsdeildina eftir að
Liverpool greiddi uppeldisfélagi
hans Atletico Madrid 26,5 milljónir
punda fyrir undirskrift hans sumar-
ið 2007. Hinn 24 ára framherji, sem
þrátt fyrir ungan aldur hafði verið
fyrirliði Madrídarliðsins í fimm
ár, skoraði 24 mörk í 33 leikjum í
ensku úrvalsdeildinni á sínu fyrsta
tímabili. Hann skoraði 33 mörk í 46
leikjum í öllum keppnum. Um sum-
arið skoraði hann sigurmark Spán-
ar í úrslitaleik EM 2008. Torres var á
toppi tilverunnar.
Hann átti þó aldrei eftir að ná
að leika jafnmarga leiki í deild með
Liverpool og á þessu fyrsta tímabili
og aðeins einu sinni eftir það með
Chelsea. Meiðsli áttu nefnilega eftir
að setja strik í reikninginn eins og
svo oft vill verða hjá leikmönnum
sem búa yfir leiftr-
andi hraða og
sprengikrafti eins
og Torres. Á fyrsta
tímabilinu meiddist
hann í tvígang, aft-
an í læri í október og
í nára í febrúar. Það
var þó aðeins for-
smekkurinn af því
sem koma skyldi.
Meiðslavand-
ræðin byrja
Meiðslavandræði
léku Torres grátt
tímabilið 2008–2009
þar sem hann togn-
aði ítrekað aftan í
læri, eða hnésbót-
arsin eins og það
heitir nú víst. Í ágúst,
október og nóvember.
Torres talaði um það í
ævisögu sinni að þessi
meiðsli hefði lagst
þungt á hann and-
lega. Í leik sínum hafði
Torres alltaf treyst á
hraða sinn og sprengi-
kraft þar sem hann
setti boltann framhjá
varnarmönnum, skildi
þá eftir, stakk sér inn
fyrir og skoraði. Ítrekuð
meiðsli sem þessi gátu
gert honum erfitt um
vik. Á sex árum sínum
hjá Atletico hafði hann
þó aðeins einu sinni
orðið fyrir vöðvameiðsl-
um sem þessum.
Þrátt fyrir meiðslin
var tímabilið 2008–2009 það besta
hjá Liverpool frá stofnun úrvals-
deildarinnar. Liðið endaði í öðru
sæti, aðeins fjórum stigum á eftir
Manchester United. Torres og Steven
Gerrard voru ógnarsterkir saman en
tölfræðilega séð var þetta lakasta
heila tímabil Spánverjans hjá Liver-
pool þrátt fyrir 14 mörk í 24 leikj-
um þegar litið er til þess að skota-
nýting hans hríðféll og hann þurfti
fleiri skot en nokkru sinni áður til að
skora. Sú nýting fór undir 20%.
Vandræði með hægra hnéð
Tímabilið 2009–2010 byrjaði vel þó
að Torres missti úr leiki í nóvem-
ber og desember vegna tognunar í
magavöðva. Engar tognanir aftan
í læri. En það kann að hafa kostað
sitt. Brjósk í hægra hné framherjans
fór að valda honum vandræðum
og urðu þau til þess að hann þurfti
að gangast undir tvær áðurnefnd-
ar hnéaðgerðir. Í janúar og apríl
2010. Sparkspekingar velta því fyr-
ir sér hvort þessar skemmdir á hné
megi rekja til þess að hann væri að
beita sér öðruvísi til að passa upp á
að togna ekki aftan í læri. Aðgerðin í
apríl batt enda á tímabil hans.
Þegar litið er til baka þá lítur
þetta tímabil hjá honum ekki illa út
á pappír. Hann skoraði 18 deildar-
mörk í aðeins 22 leikjum en það
segir þó ekki alla söguna. Meirihluti
þessara marka kom nefnilega áður
en hann gekkst undir hnéað-
gerðina í janúar. Eftir þá að-
gerð skoraði hann bara sex
mörk það sem eftir lifði
tímabils. Honum var tjasl-
að saman fyrir HM 2010 en
menn höfðu áhyggjur af
því að verið væri að fara of
geyst. Hann skoraði ekki
mark í 7 leikjum og meiddist
á nára í úrslitaleiknum gegn
Hollandi.
Þó að Spánn hafi hamp-
að heimsmeistaratitlinum þá hafði
Liverpool gengið illa á tímabil-
inu, endað í sjöunda sæti, dottið
snemma út úr Meistaradeildinni og
svo fór að Rafa Benitez var rekinn.
Úthrópaður svikari
Torres byrjaði tímabilið 2010–2011
heill heilsu og náði að spila 23 leiki
fyrir Liverpool, þar af byrja 22 leiki.
Hann skoraði hins vegar aðeins níu
mörk og virtist skugginn af sjálfum
sér. Eftir áramót, í janúar 2011, gerði
hann svo allt vitlaust þegar hann
óskaði óvænt eftir sölu frá Liver-
pool þvert á yfirlýsingar um ást hans
á félaginu. Chelsea kom til sögunn-
ar og greiddi 50 milljónir punda fyr-
ir Torres. Stuðningsmenn Liverpool
úthrópuðu hann sem svikara og
þung orð voru látin falla. Ekki þyk-
ir ósennilegt að lætin í kringum fé-
lagsskiptin hafi lagst þungt á Torres
sem er víst ekki með þykkan skráp,
segja þeir sem til þekkja.
Ekki skal vanmeta að þetta um-
rót, í bland við pressuna sem hin-
um gríðarháa verðmiða fylgdi, kann
að hafa haft áhrif á Torres og rýrt
sjálfstraust hans. Hann skoraði að-
eins eitt mark fyrir Chelsea restina
af tímabilinu 2010–2011. Þrátt fyr-
ir að hafa náð að leika alls 37 leiki
með Liverpool og Chelsea skoraði
hann aðeins 10 mörk í deild sam-
tals. Söguna síðan þekkja flestir.
Aldrei samur
Á þremur og hálfu tímabili hjá
Chelsea kom Torres við sögu í 110
deildarleikjum og skoraði aðeins
20 mörk. Til samanburðar skoraði
hann 65 mörk í 102 deildarleikjum
með Liverpool á jafnmörgum árum.
Hans besti árangur með Chelsea var
að skora 8 mörk í 36 leikjum tímabil-
ið 2012–2013. Það tímabili skor-
aði hann reyndar 22 mörk í öllum
keppnum en munaði þar mest um 9
mörk í Evrópukeppni.
Alveg síðan Torres skipti yfir í
Chelsea hefur hann virst heillum
horfinn. Svo mjög að mörgum hef-
ur þótt óhætt að tala um að bölvun
í þeim efnum. En hvað með hnéað-
gerðinar? Er eitthvað til í því? Sjáum
til; Hnén eru eins og annað hjarta
knattspyrnumanna og ef þau fara þá
er þetta búið spil. Fyrir fyrri hnéað-
gerðina hafði Torres verið ótrúlegur
og skorað 50 deildarmörk í 72 leikj-
um. Síðan þá skoraði hann aðeins
32 í 125 leikjum.
Hjá AC Milan leit út fyrir að hann
ætlaði að sýna öllum efasemda-
mönnum í tvo heimana. Hann skor-
aði í sínum fyrsta deildarleik og virt-
ist sprækur. En í tíu leikjum hingað
til hafa mörkin ekki orðið fleiri.
Torres í tómarúmi
Nú er talið að Milan vilji losna við
hann strax í janúar þrátt fyrir að
hafa gert tveggja ára lánssamning
við Chelsea. Þeir telja sig ekki vera
að fá nokkuð fyrir sinn snúð enda
eru þeir að greiða hluta svimandi
hárra launa hans. Chelsea hefur síð-
an enga þörf fyrir hann eftir að hafa
fengið framherjana Diego Costa,
Loic Remy og Didier Drogba til fé-
lagsins í sumar. Sagan segir að upp-
eldisfélagið Atletico Madrid, þar
sem Torres var í guðatölu, hafi meira
að segja hafnað því að fá hann aftur
og er þá fokið í flest skjól. Á meðan
leitar Chelsea víst að félögum til að
bíta á agnið og losa liðið við dýrasta
leikmann þess og einn þann launa-
hæsta.
Torres stendur nú á þrítugu og
þó enn eigi eftir að koma í ljós hvað
um hann verður þá virðist hann nú
ráfa um í tómarúmi líkt og land-
laus maður í leit að neistanum sem
mögulega gæti kveikt aftur glæður í
úrkula ferli. n
n sögulegt stjörnuhrap Fernandos torres
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Fyrir og eftir aðgerð
2007–2008 2008–2009 2009–2010 2009–2010 2010–2011 2011–2012 2012–2013 2013–2014
33
le
ik
ir
7
le
ik
ir
32
le
ik
ir
23
le
ik
ir
14
le
ik
ir
36
le
ik
ir
28
le
ik
ir
24
le
ik
ir
15
le
ik
ir
24
mörk
14
mörk 12
mörk
6
mörk
9
mörk
1
mark
6
mörk
8
mörk
5
mörk
A
ð
g
er
ð
Óstöðvandi Þegar Torres var
upp á sitt besta hjá Liverpool var
hann einn besti framherji veraldar.
Fimmtíu milljóna punda flopp Fernando Torres virðist aldrei
hafa náð sér almennilega á strik síðan hann gekkst undir aðgerðir á
hné í janúar og apríl 2010. Chelsea keypti köttinn í sekknum.