Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Blaðsíða 25
Menning Sjónvarp 25Vikublað 16.–18. desember 2014 Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport Þriðjudagur 11. febrúar 16.30 Ástareldur 17.20 Millý spyr (6:65) 17.27 Vísindahorn Ævars 17.30 Jesús og Jósefína (16:24) 17.50 Turnverðirnir (2:10) 18.05 Jólasveinarnir 18.13 Vísindahorn Ævars 18.20 Táknmálsfréttir 18.35 Melissa og Joey (14:21) (Melissa & Joey) Bandarísk gamanþáttaröð. Stjórn- málakonan Mel situr uppi með frændsyskini sín, Lennox og Ryder, eftir hneyksli í fjölskyldunni og ræður mann að nafni Joe til þess að sjá um þau. Aðal- hlutverk leika Melissa Joan Hart, Joseph Lawrence og Nick Robinson. 19.00 Fréttir 19.20 Íþróttir 19.30 Veðurfréttir 19.35 Kastljós 20.00 Djöflaeyjan 20.30 Castle (9:24) (Castle) Bandarísk þáttaröð. Höfundur sakamálasagna er fenginn til að hjálpa lögreglunni þegar morðingi hermir eftir atburðum í bókum hans. Meðal leikenda eru Nathan Fillion, Stana Katic, Molly C. Quinn og Seamus Dever. 21.15 Laus við sorp (Uden Skrald) Danskur heimildarþáttur sem varpar ljósi á það magn af sorpi sem mannfólkið skilur eftir sig á degi hverj- um. Í þættinum er skorað á hóp sambýlinga að finna leiðir til að lifa lífinu án þess að skilja eftir sig rusl og sjá hvort það er yfirleitt gerlegt í nútímasamfélagi. 21.45 Jólin hjá Claus Dalby (Jul hos Claus Dalby) Claus Dalby er handlaginn og hugmyndaríkur þúsund- þjalasmiður. Í aðdraganda jólahátíðarinnar finnur hann sér ýmislegt til dund- urs og kennir áhorfendum að föndra skreytingar í anda jólanna. Í þessum þætti útbýr hann óhefð- bundið jólatré, piparköku- hús upplýst með kertum og jólalega blómaskreytingu. 22.00 Tíufréttir 22.15 Veðurfréttir 22.20 Hamingjudalur 8,7 (6:6) (Happy Valley) Vönduð bresk spennuþáttröð um líf og störf lögreglukonunnar Catherine Cawood. Þegar morðingi meintur dóttur hennar lendir aftur í kasti við lögin kemur það í hlut Cawood að hafa hendur í hári hans. Aðalhlutverk: Sarah Lancashire. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna. 23.15 Víkingarnir (Vikings II) Ævintýraleg og marg- verðlaunuð þáttaröð um víkinginn Ragnar Loðbrók, félaga hans og fjölskyldu. Aðalhlutverk: Travis Fimmel, Clive Standen og Jessalyn Gilsig. Leikstjóri: Michael Hirst. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna. 00.00 Kastljós 00.25 Fréttir 00.40 Dagskrárlok Stöð 2 Sport 2 Bíóstöðin Gullstöðin Stöð 3 07:00 Dominos deildin 2015 13:00 NBA 2014/2015 - Regular Se 14:50 UEFA Champions League 2014 16:30 Meistaradeild Evrópu 17:00 Spænski boltinn 14/15 18:40 Spænsku mörkin 14/15 19:10 Þýsku mörkin 19:40 League Cup 2014/2015 21:45 Dominos deildin 2015 23:15 Þýsku mörkin 23:45 League Cup 2014/2015 07:00 Premier League 2014/2015 08:40 Messan 11:35 Premier League World 12:05 Premier League 2014/2015 15:25 Messan 16:40 Premier League 2014/2015 20:00 Ensku mörkin - úrvals- deild 20:55 Messan 22:10 Premier League 2014/2015 23:50 Enska 1. deildin 2014/2015 01:30 Football League Show 17:25 Strákarnir 17:55 Friends (3:23) 18:20 2 Broke Girls (17:24) 18:45 Modern Family (18:24) 19:10 Two and a Half Men (2:24) 19:35 Veggfóður 20:20 Tossarnir 21:00 The Americans (8:13) 21:50 Grimm (6:22) 22:35 The Blacklist (3:22) 23:15 Chuck (2:19) 00:00 Cold Case (10:23) 00:40 Veggfóður 01:25 Tossarnir 02:10 The Americans (8:13) 02:55 Grimm (6:22) 03:35 The Blacklist (3:22) 04:20 Tónlistarmyndbönd frá Bravó 11:15 So Undercover 12:50 One Fine Day 14:40 Life 16:30 So Undercover 18:10 One Fine Day 20:05 Life 22:00 The Lucky One 23:40 Room in Rome 01:25 Undefeated 03:20 The Lucky One 18:35 Baby Daddy (14:21) 19:00 Wipeout 19:45 Welcome To the Family 20:10 One Born Every Minutes UK 21:00 Pretty little liars (5:25) 21:45 Treme (8:11) Önnur þáttaröðin af þessum dramatísku þáttum frá HBO þar sem fylgst er með sögu fjölda fólks sem á það eitt sameiginlegt að búa í Treme-hverfinu í New Or- leans eftir að fellibylurinn Katrína reið þar yfir. 22:45 Southland (6:10) Fjórða þáttaröðin af þessum stór- góðu lögguþáttum. Þetta eru hráir og flottir þættir um líf og störf lögreglusér- sveitarinnar í Los Angeles. 23:30 The Gates (2:13) 00:15 Flash (8:23) 00:55 Arrow (7:23) 01:40 Wipeout 02:25 Welcome To the Family 02:50 One Born Every Minutes UK 03:35 Pretty little liars (5:25) 04:20 Treme (8:11) 05:15 Southland (6:10) 06:00 Tónlistarmyndbönd frá Bravó 06:00 Pepsi MAX tónlist 08:00 Everybody Loves Raymond (19:23) 08:20 Dr. Phil 09:00 The Talk 09:45 Pepsi MAX tónlist 15:25 Survivor (10:15) 16:10 Christmas Feast with Heston Blumenthal 17:00 Gordon’s Home Cooking Seasonal Selection (2:3) 17:50 Dr. Phil 18:30 The Tonight Show 19:10 The Talk 19:50 Trophy Wife (15:22) Gamanþættir sem fjalla um partýstelpuna Kate sem verður ástfanginn og er lent milli steins og sleggju fyrrverandi eiginkvenna og dómharðra barna. 20:10 Jane the Virgin 7,4 (4:13) Ung, heiðarleg og sam- viskusöm stelpa fer á spít- ala til að fá eina sprautu og fer þá óvart í velheppnaða frjósemisaðgerð. Andrea Navedo hefur skapað sér stóran sess sem sterkur nýliði í gríni og uppistandi og fær nú stóra tækifærið í sjónvarpi í þessum nýju og fersku gamanþáttum. 21:00 The Good Wife (5:22) Þesssir margverðlaunuðu þættir njóta mikilla vinsælda meðal áhorfenda SkjásEins. Það er þokkadís- in Julianna Marguilies sem fer með aðalhlutverk í þátt- unum sem hin geðþekka eiginkona Alicia sem nú hefur ákveðið að yfirgefa sína gömlu lögfræðistofu og stofna nýja ásamt fyrr- um samstarfsmanni sínum. Þetta er sjötta serían af þessum vönduðu þáttum þar sem valdatafl, rétt- lætisbarátta og forboðinni ást eru í aðalhlutverkum. 21:45 Elementary (4:24) 22:30 The Tonight Show 23:15 Madam Secretary (6:22) Téa Leoni leikur Elizabeth McCord, fyrrum starfsmann leynilögreglunnar og há- skólaprófessor, sem verður óvænt og fyrirvaralaust skipuð sem næsti utanrík- isráðherra Bandaríkjanna. Hún er ákveðin, einbeitt og vill hafa áhrif á heims- málin en oft eru alþjóðleg stjórnmál snúin og spillt. Nú reynir á eiginleika hennar til að hugsa út fyrir kassann og leita lausna sem oft eru óhefðbundnar og óvanalegar. 00:00 Unforgettable 6,7 (12:13) Bandarískir sakamálaþætt- ir um lögreglukonuna Carrie Wells sem glímir við afar sjaldgæft heilkenni sem gerir henni kleift að muna allt sem hún hefur séð eða heyrt á ævinni. Hvort sem það eru samræður, andlit eða atburðir, er líf hennar; ógleymanlegt. Sjónvarpsstjarna er myrt í búningsherbergi sínu og rannsóknin dregur Carrie og Al inn í óhugnanlega veröld. 00:45 The Good Wife (5:22) 01:30 Elementary (4:24) 02:15 The Tonight Show 03:05 Pepsi MAX tónlist 07:00 Barnatími Stöðvar 2 08:05 Wonder Years (15:23) 08:30 Gossip Girl (16:24) 09:15 Bold and the Beautiful 09:35 The Doctors (29:50) 10:15 The Middle (7:24) 10:40 Go On (22:22) 11:00 Flipping Out (2:10) 11:50 Covert Affairs (2:16) 12:35 Nágrannar 13:00 American Idol (6:39) 13:45 American Idol (7:39) 15:15 The Mentalist (19:22) 16:00 Sjáðu (369:400) 16:30 New Girl (16:23) 16:55 Bold and the Beautiful 17:20 Nágrannar 17:45 Simpson-fjölskyldan 18:10 Jóladagatal Skoppu og Skrítlu (16:24) 18:23 Veður 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:47 Íþróttir 18:54 Ísland í dag. 19:16 Veður 19:25 Um land allt (9:12) 20:00 2 Broke Girls (3:22) 20:25 Á fullu gazi (6:6) Þriðja þáttaröðin af þessum frábæru þáttum þar sem fjallað er um glæsilega bíla og önnur flott farartæki. Hér er hraðinn og spennan í fyrirrúmi og áhersla lögð á ný og glæsileg tryllitæki. Umsjónarmenn eru Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir og Finnur Thorlacius. 20:50 Modern Family 8,7 (10:24) Sjötta þáttaröðin um líf þriggja tengdra en ólíkra nútímafjölskyldna, hefðbundinnar 5 manna fjölskyldu, samkynhneigðra manna sem eiga ættleidda dóttur og svo pars af ólíkum uppruna þar sem eldri maður hefur yngt upp í suðurameríska fegurðar- dís. Í hverjum þætti lenda fjölskyldurnar í ótrúlega fyndnum aðstæðum sem við öll könnumst við að einhverju leyti. 21:15 The Big Bang Theory (11:24) Áttunda þáttaröðin um fé- lagana Leonard og Sheldon sem eru afburðasnjallir eðlisfræðingar sem vita nákvæmlega hvernig al- heimurinn virkar. Hæfileikar þeirra nýtast þeim þó ekki í samskiptum við annað fólk og allra síst við hitt kynið. 21:40 Stalker 7,6 (11:20) Magnað- ur spennuþáttur um Jack Larsen og Beth Davies en þau vinna í sérstakri deild innan lögreglunnar í Los Angeles og rannsaka mál sem tengjast eltihrellum en þau mál eru jafn ólík og þau eru mörg. Með aðalhlutverk fara Dylan McDermott úr Hostages og American Horror Story og Maggie Q sem áhorfendur þekkja úr sjónvarpsþáttunum Nikita. 22:30 The Strain (10:13) 23:15 Daily Show: Global Edition 23:45 Forever (10:22) 00:30 Bones (6:24) 01:20 Getting on (6:6) 01:50 The Call 03:25 Romantics Anonymous 04:40 Modern Family (10:24) 05:00 The Big Bang Theory 05:25 Fréttir og Ísland í dag L eikstjórinn David Lynch segir listrænar kvikmyndir eiga und- ir högg að sækja nú um stundir þar sem búið er að loka mörgum af þeim kvikmyndahúsunum sem hafa sýnt þær. Eins segir hann að bestu hugmynd- irnar endi nú í sjónvarps- þáttum. „Áskriftarstöðvarnar eru hin nýju listrænu kvik- myndahús,“ sagði hann í viðtali við BBC. En hann kom sjálfur við í sjónvarps- bransanum þegar hann framleiddi Twin Peaks á 10. áratug síðustu aldar, en þættirnir munu snúa aftur á skjáinn 2016. „Kvikmyndaiðnaðurinn hefur breyst. Eini staður- inn fyrir fólk að sýna aðrar kvikmyndir en risamynd- ir, er á kvikmyndahátíðum. Þetta er sorglegur tími fyrir listrænar kvikmyndir.“ Hann sagði að enn væri þó von, ef það kæmi ný frönsk eða ítölsk kvik- myndabylgja eins og gerð- ist á 7. áratugnum. Það gæti það breytt miklu. Eins sagði hann að hann færi ekki lengur í bíó heldur væri hrifinn af sjónvarpsþáttum líkt og Mad Men, Breaking Bad og True Detective. Síðustu kvikmynd sína gerði hann árið 2006 og sagði: „Ég hef ekki fengið góða hugmynd síðan.“ n Eiga undir högg að sækja Sjónvarpsstöðvar hafa tekið við bíóhúsum á sýningu listrænna mynda David Lynch Er þekktur fyrir mjög listrænar og illskiljanlegar kvikmyndir. skipulagi Kaupmannahafnar frá ár- inu 1947. Því var ætlað að bregðast við fyrirsjáanlegri úthverfa- og einkabílavæðingu. Það gat af sér hið svokallaða „fingraplan“, sem Bjarni segir vera eina áhrifamestu skipulagshugmynd 20. aldarinnar. Þessi hugmynd gekk út á að borg- arsvæðið ætti að þróast meðfram fimm samgönguásum sem lægju út frá lófanum, það er að segja miðborginni. Einn aðalhöfund- ur skipulagsins var Peter Breds- torff, prófessor við arkitektadeild listaháskólans í Kaupmannahöfn. Hann átti eftir að hafa mikil áhrif í Reykjavík því hann stjórnaði vinnu við fyrsta aðalskipulag Reykjavíkur 1962–1983. Það skipulag þótti nú- tímalegt og framúrskarandi á sín- um tíma. En það átti engu að síð- ur stóran þátt í að gera Reykjavík að þeirri dreifðu bílaborg sem hún varð síðar. Bók Bjarna Reynarssonar er mjög fróðleg og þarft innlegg í hinni mikilvægu umræðu um sögu og samfélag borganna, umhverfi og lífsgæði. Texti og myndir spila vel saman. Þetta er ekki bók þar sem maður sleppir alveg að lesa textann og skoðar bara myndirnar. Und- ir lok bókarinnar verður þó textinn endurtekningasamur og upptaln- ingakenndur. Hann virðist skrifað- ur í tímaþröng. Ég set líka spurn- ingarmerki við þá ákvörðun að birta lítt unnið efni úr skýrslum í bláenda bókarinnar. Það er ekki alveg nógu áhugaverður endir á mjög áhuga- verðri sögu. Ný höfuðborg Borgir eru í tísku. Borgir eru mið- stöðvar viðskipta í heiminum, þær eru drifkraftur efnahagslífsins bæði heima fyrir og á hnattræna vísu, höfuðstöðvar menningar og vísinda, vagga skapandi hugsun- ar. Og þær eru fyrirheit um gott líf. Vinsældir borganna, þar á meðal Reykjavíkur, sjást meðal annars á því hversu ferðamenn sækja mik- ið í þær og hve mikið er skrifað um þær. Ýmis tímarit og ráðgjafafyrir- tæki keppast við að gefa út lista um „lífvænlegustu borgirnar“ og bækur um borgir, borgarskipulag og borg- armenningu eru gefnar út í stórum stíl. Ein þessara bóka er bók Bjarna Reynarssonar önnur er Reykjavík sem ekki varð eftir sagnfræðinginn Önnu Dröfn Ágústsdóttur og Guðna Valberg arkitekt. Hún fjall- ar, í máli og myndum, um veglegar opinberar byggingar sem átti að reisa í Reykjavík á öðrum stað eða í annarri mynd en við flest þekkjum. Margir kannast reyndar við teikningar Guðjóns Samúelssonar af Háborginni á Skólavörðuholti. Á vatnslitateikningu frá 1924 má sjá háskólabyggingar, stúdentagarða, safnahús og „listvinafjelagshús“ ramma inn stórt torg og á miðju torgi stendur kirkja þar sem Hall- grímskirkja, sköpunarverk Guð- jóns, stendur nú. Háborgin minnir helst á Akrópólis. Anna Dröfn og Guðni setja þess- ar veglegu byggingar sem aldrei urðu í áhugavert samhengi. Ís- lendingar fengu heimastjórn árið 1904. Stjórnarráð Íslands var stofn- að og ráðherra Íslands fékk aðsetur í Reykjavík sem varð miðstöð stjórn- sýslunnar í landinu. Íslendingar höfðu þar með eignast nýja höfuð- borg en í hana vantaði bókstaflega allt sem höfuðborg þarf að hafa: Háskóla, stjórnarráðsbyggingar, seðlabanka, þjóðleikhús, ráðhús, tónlistarhús, þjóðarbókhlöðu, nátt- úruminjasafn. Það er stórt mál fyr- ir litla þjóð að stofna sjálfstætt ríki og búa til nýja höfuðborg. Og það er ekki allt búið enn. Tónlistarhús- ið er að vísu loksins komið í höfuð- borgina en ekkert bólar náttúru- minjasafninu. Það sem einkum grípur augað þegar þessari bók er flett eru sam- settar myndir þar sem húsunum er skeytt inn á þá staði í borginni þar sem til stóð að þau yrðu reist. Það verður að segjast eins og er að háskóli Rögnvalds Ólafssonar teiknaður í burstabæjarstíl virkar ankannalegur á Arnarhóli. Bursta- bæjarsundhöll Guðjóns Samúels- sonar við Barónsstíg fer betur í um- hverfinu. Samt er maður hálffeginn að þarna reis að lokum allt annars konar sundhöll í alþjóðlegri stíl, þótt arkitektinn væri sá sami. Þjóð- leikhúsið fer aftur á móti býsna vel við endann á Austurstræti þar sem „morgunblaðshöllin“ átti eftir að rísa. Það kemur sterkt fram í þessari bók að það stóð mjög lengi til í hinni nýju höfuðborg Íslendinga að rífa nánast alla gömlu byggðina í miðborginni og byggja upp nýja nútímaborg sem hæfði fullvalda, sjálfstæðri nútímaþjóð. Og það má heita merkilegt, finnst okkur í dag, að róttækustu hugmyndirnar koma frá sumum bestu og farsælustu arkitektum borgarinnar. Mikið var gott að hópur reyk- vískra borgara skyldi hafa pólitískt hugrekki og úthald á 7. áratugnum til að berjast fyrir því að Bernharð- storfan yrði ekki rifin og byggt yrði módernískt stjórnarráðshús. Sama má segja um tillögur Sigurðar Guð- mundssonar af ráðhúsi í Grjóta- þorpinu og skipulagstillögu Einars Sveinssonar af kvosarskipulagi þar sem til stóð að rífa öll gömul hús nema Alþingishúsið og dómkirkj- una. Gott að ekkert varð af því. Bankakrísur, efnahagsvandræði og gæftaleysi hafa stundum orðið til blessunar fyrir borgarskipulagið. Ég verð þó að segja að tillaga að módernísku ráðhúsi frá 1964 við norðurenda Tjarnarinnar virkar mjög elegant og flott. Það vill stund- um gleymast að sumt af því besta sem byggt hefur verið í Reykjavík hefur verið byggt í anda módernis- mans. Bókin er í stóru broti með sam- settum myndum, eins og áður sagði, myndum af skipulagslíkön- um, gömlum teikningum og ljós- myndum. Letrið er haft í yfir- stærð sem verður til þess að manni finnst textinn stundum eins og til uppfyllingar á móti myndunum. Það breytir þó ekki því að þetta er skemmtileg og fróðleg og flott bók. n Hjálmar Sveinsson „Borgir eru fyrir fólk, þannig gæti leiðarstef þessarar nýju borgarstefnu hljómað. Ólíkar borgir Mismunandi gerðir borgarskipulags

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.