Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2014, Blaðsíða 30
30 Fólk Vikublað 16.–18. desember 2014
Grímur Grallari, Hafnargötu 90, 205 Keflavík, Sími: 422 7722
Verið velkominn!
Vorum að opna
nýtt kaffi og
veitingahús
Grallarinn
Opið
11:00-21:00 Mánudaga til Fimmtudaga
11:00-01:00 Föstudag
16:00-01:00 Laugardag
16:00-21:00 Sunnudag
Pizza hlaðborð í hádeginu alla virka daga frá 11:30-13:30
Steinunn lenti í
mótmælagöngu
n Heldur ekki í hefðirnar n Steinunn Ólína og Stefán Karl halda hóteljól
S
teinunn Ólína, ritstjóri
Kvennablaðsins, fór fyrir
stuttu með börnin fjögur til
Bandaríkjanna, til að fylgja
Stefáni, eiginmanni sínum
eftir í leikferðalagi hans þar. Þar er
hann að leika Trölla sem stal jólun
um en Stefán hefur verið við æfingar
og sýningar síðan í byrjun október.
Síðustu árin hafa þau haldið upp á
jólin víðsvegar um Bandaríkin vegna
vinnu hans þar. Nýverið voru þau í
Seattle og eitt kvöldið var Steinunn
á leiðinni í bíó með börnin sín
þegar þau lentu inni í miðri mót
mælagöngu, sem var áhrifamikil lífs
reynsla.
Eiga undir högg að sækja
Um gjörvöll Bandaríkin hefur fólk
verið að mótmæla harðræði lög
reglunnar gagnvart svörtum karl
mönnum og voru Steinunn og
börnin allt í einu komin í miðja mót
mælagöngu. „Það var mjög áhrifa
mikið að verða vitni að henni,“ segir
Steinunn. „Skemmst er að minnast
dómsniðurstöðu þar sem lögreglan
var sýknuð af því að kyrkja sígarettu
sala til bana og þess að unglingspiltur
var skotinn mörgum skotum eins og
rakki af lögreglu vegna þess að hann
var með leikfangabyssu í höndunum.
Fangelsi í Bandaríkjunum eru yfirfull
af svörtum ungum mönnum og það
er engum blöðum um það að fletta
að ungir svartir menn eiga mjög svo
undir högg að sækja í bandarísku
samfélagi í víðum samfélagslegum
skilningi.“
Lögreglan með vélbyssur
Að sögn Steinunnar var andrúms
loftið þrungið áþreifanlegri spennu
og lögreglan í fullum skrúða, vopn
uð vélbyssum og löngum trékylfum.
„Sjö ára dóttir mín var grunlaus um
kringumstæðurnar, skynjaði and
rúmsloftið og brast í grát. Fólk í kring
um okkur öskraði hástöfum: „I can‘t
breathe, I can‘t breathe“. Það slagorð
hljómar víða um Bandaríkin vegna
sýknudómsins sem ég nefndi áðan
og mæltist til þess að lögreglan væri
ekki vígbúin enda mótmælin hugs
uð gegn harðræði lögreglunnar. Það
var mótsagnakennt að sjá stóran
hóp mótmælenda, kannski nokk
ur hundruð manns árétta óskir sínar
um friðsamlegra samfélag og mildari
vinnubrögð lögreglunnar og sjá svo
lögregluna vígbúna eins og hún væri
að mæta hópi hryðjuverkamanna.
Algjörlega fáránlegt.“
Mótmæli eru mikilvæg
Nokkur hundruð manns voru að
mótmæla og var fólki mikið niðri
fyrir, fólk var reitt og örvænting fyllti
andrúmsloftið. „Mótmæli skila ár
angri. Þau eru tæki almennings til að
láta í sér heyra og setja fram skoðanir
sínar. Mótmæli eru öflugt tæki og það
þýðir ekkert að láta aðra um að gera
það ef fólk er ósátt við framkomu
stjórnvalda og yfirvaldsins. Það er
undir hverjum og einum komið að
leggja sitt af mörkum. Það þýðir ekk
ert að vera latur í þeim efnum. Hvert
og eitt okkar hefur eitthvað til mál
anna að leggja.“
Kaupa jólatré á 99 sent
Steinunn og fjölskyldan hafa haldið
jól á hótelum víða um Bandaríkin
síðustu sjö árin sem hún segir alltaf
vera gaman og algerlega laust við há
tíðleika. „Við erum núna í Kaliforníu
í sólinni og verðum þar í viku. Eftir
það er ferðinni heitir til Denver í
Colorado en þar má búast við vetrar
veðri og vonandi jólasnjó. En það
góða við að vera á hótelum er að við
sleppum við smákökubakstur, jóla
þrifin og það er ekkert tilstand. Ég
kaupi stundum lítið jólatré í 99 senta
búðum, helst svona tré sem koma al
skreytt með seríu eða ég fæ að drösla
einu jólatré af hótelinu þar sem við
gistum inn til mín í einn dag til að
sviðsetja jól til málamynda.“
Eru umkringd
skemmtilegu fólki
Steinunn segist ekki vera mikið fyrir
jólahefðir og hafa jól fjölskyldunnar
oft verið haldin á hótelum. „Ég ræki
engar skyldur í jólahefðum. Allt sem
hefur fnyk af endurtekningu og vana
hræðir mig óstjórnlega. Mér fundust
jól ekki skemmtileg þegar ég var barn
og Stefán er ekki mikill jólamaður. En
við gerum okkar besta til að skemmta
börnunum okkar og tekst það bæri
lega. Fyrir þeim eru jólin hóteljól og
þau eru umkringd skemmtilegu fólki,
það eru mörg börn í sýningunni og
það eru oft lítil partí á herbergjunum,
föndur, smákökuskreytingar og bíó
myndagláp.“
Þakkargjörðin mikilvægari hátíð
„Jólahald hér snýst fyrst og fremst um
að gleðja aðra og hafa það gott með
góðum vinum,“ segir Steinunn þegar
hún er spurð hvort jólahald sé mik
ið öðruvísi í Bandaríkjunum en á Ís
landi. „Það er engin krafa um risa
gjafir, parketlagnir eða nýtt eldhús
fyrir jólin. Mér finnst samt þakkar
gjörðarhátíðin vera mikilvægari há
tíð en jólin ef eitthvað er því þá er
fólk tilbúið til að ferðast fylkja á milli
til að vera með fjölskyldunni sinni. Á
„Christmas Eve“, sem er 24. desem
ber, borðar fólk gjarnan saman en við
borðum með öllum leikhópnum það
kvöld þegar sýningum hjá Stefáni er
lokið. Þá er yfirleitt kalkúnn og skinka
með öllu meðlæti borið fram.“
Borða jólamatinn
á veitingahúsi
Þar sem fjölskyldan hefur haldið jól
síðustu árin í Bandaríkjunum finnst
þeim eðlilegra að opna jólapakkana
að morgni 25. desember, svo hægt sé
að leika sér með nýja dótið óþreyttur.
„Við gefum börnunum okkar nokkrar
litlar gjafir enda ekki hægt að ferðast
með leikföng sem taka mikið pláss.
Við borðum auðvitað góðan jóla
mat á jóladag, finnum okkur góð
an veitingastað, njótum þess að vera
saman og þurfa ekki að vaska upp. Við
sleppum auðveldlega frá jólunum án
þess að missa vitið og verða algerlega
auralaus,“ segir Steinunn að lokum. n
Helga Dís Björgúlfsdóttir
helgadis@dv.is
„Sjö ára dóttir mín
var grunlaus um
kringumstæðurnar, skynj-
aði andrúmsloftið og
brast í grát.
Steinunn Ólína Mikilvægt að
fólk noti sinn lýðræðislega rétt
til að mótmæla. MynD Sigtryggur Ari
trölli Stefán Karl hefur leikið Trölla síðustu
árin um gjörvöll Bandaríkin í kringum jólin.
Það er því lítið um jólahefðir hjá fjöl-
skyldunni.
„i can't breathe“ Fólk
gekk um með spjöld með
slagorði sem það kallaði
hástöfum: „I can't breathe“.
Vel heppnaðir
tónleikar
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir
kom til landsins fyrir helgina
til syngja á jólatónleikum föður
síns, Björvins Halldórssonar, sem
haldnir voru í Höllinni á laugar
daginn. En Svala mun að sjálf
sögðu dvelja áfram á Íslandi yfir
hátíðarnar. Það var mikil tilhlökk
un hjá henni fyrir tónleikana og
sagði hún Facebookvinum sín
um af eftirvæntingunni.
Tónleikar Björgvins eru með
stærri jólatónleikum sem haldn
ir eru fyrir jólin og eru orðnir
að föstum lið hjá mörgum í að
draganda jólanna. Þeir heppn
uðust vel þetta árið og Facebook
vinur Svölu kepptust við að hrósa
henni fyrir frammistöðuna. Sjálf
var hún dugleg að láta mynda sig
með vinum og vandamönnum,
bæði fyrir og eftir tónleikana, og
birta á Facebook.
Anita sker
laufabrauð
Kvikmyndastjarnan og móðirin
Anita Briem hefur greinilega ekki
gleymt norðlensku arfleifðinni en
eins og margir vita á Anita ættir
að rekja í Mývatnssveitina.
Á Facebooksíðu leikkon
unnar hefur vinur hennar birt
uppskrift að laufabrauði ásamt
nákvæmum upplýsingum um
framkvæmd. Leikkonan þakkar
kærlega fyrir sendinguna með
þeim orðum að nú verði sko tekið
til hendinni.
Anita og eiginmaður hennar,
leikstjórinn Dean Paraskevopou
lous, búa í Los Angeles ásamt
dótturinni Miu Anitu sem heldur
upp á eins árs afmæli sitt í byrjun
næsta árs.