Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Side 3
Fréttir 3Jólablað 23. desember 2014
Íslenskt tal leiðbeinir
notanda um allar aðgerðir
Nú þegar eru fjöldi Íslendinga í fullu
fjöri sem startað hefur verið í gang
með hjartastuðtækjum frá Donnu.
Samaritan PAD
hjartastuðtæki
kosta aðeins frá
kr. 199.600 m/vsk.
25. mars 2013
Óttast skert
ferðafrelsi
Fréttir 3
Mánudagur 25. mars 2013
2 Fréttir
25. mars 2013 Mánudagur
Mikill heimilisófriður
n Unglingur bað lögreglu um að stilla til friðar
Á
föstudagskvöldi og aðfaranótt
laugardags var hægt að fylgjast
með verkefnum lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu á sam-
skiptavefnum Twitter því lögreglan
tók þátt í alþjóðlegu tólf klukku-
stunda tíst-maraþoni.
Á þeim tólf klukkustundum sem
lögreglan tísti um verkefni sín voru
aðkallandi verkefni af fjölbreyttum
toga. Tíst-maraþonið fór rólega af
stað. Fyrsta tilkynningin var um
ofsaakstur í íbúðahverfi og þá voru
þónokkrar tilkynningar um ölvun.
Þegar líða fór á nóttina fór þeim
tilkynningum að fjölga og í ljós kom
að á heimilum landsmanna þar sem
ölvun keyrir úr hófi fram eru oft sak-
laus fórnarlömb. Um nóttina hringdi
unglingur af heimili sínu og bað lög-
reglu um aðstoð þegar foreldrum
hans og gestum í partíi á heimili
hans lenti illilega saman.
Eins og vant er um helgar voru
þónokkrar líkamsárásir tilkynntar til
lögreglu. Á einu heimili var heimili-
sófriður svo mikill að margar heim-
sóknir þurfti til að skakka leikinn.
„Ítrekaðar tilkynningar um heimilis-
ófrið á einu heimili í kvöld, margoft
reynt að skakka leikinn sem blossaði
jafnharðan upp, #“ tísti lögreglan.
Það er ekki laust við að lands-
menn sem fylgdust með tístinu hafi
fyllst óhug við að sjá tilkynningu
til lögreglu frá vegfaranda. Sá hinn
sami sagði frá því að hann hefði séð
karl og konu í átökum og konuna
dregna inn í bíl. Lögreglan fann ekki
bílinn og telst málið óupplýst.
Starf lögreglunnar þessa nótt virt-
ist ná út fyrir landsteinana en ung
kona stödd erlendis hafði samband.
Sú hafði týnt vegabréfi sínu og lent í
vandræðum þess vegna. Lögreglan
setti utanríkisþjónustuna í málið.
Nokkrir sóttu aðstoð til lög-
reglunnar í höfuðstöðvar þeirra.
Leigubílstjóri renndi upp að stöð-
inni með ódælan farþega og þá
hringdi ökumaður og sagðist vera
eltur. „Ökumaður hringir, segist vera
eltur og þori ekki að stoppa. Ekur á
lögreglustöð þar sem tekið verður
móti honum,#“ tísti lögreglan.
Þrátt fyrir erilinn og ófriðinn
sagði Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins, að vaktin
hafi verið róleg, verkefnin hefð-
bundin og einungis tveir hafi gist
fangageymslur. n
kristjana@dv.is
É
g er búin að vera mjög pirruð
yfir þessu máli lengi,“ seg-
ir Rakel Árnadóttir sem ítrek-
að hefur reynt að ná sambandi
við borgarfulltrúa Samfylk-
ingarinnar og Besta flokksins til að
fá upplýsingar um fyrirhugað útboð
á ferðaþjónustu fatlaðra. Tilraunir
hennar hafa ekki borið árangur og
hún er orðin þreytt á því að fá ekki
svör.
Samþykkt var í borgarráði og
borgarstjórn í fyrra að bjóða út ferða-
þjónustu fatlaðra sem Strætó bs.
hefur annast. Vinnur verkfræðistofan
Verkís nú að undirbúningi útboðs
fyrir hönd Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu (SSH) og er
gert ráð fyrir því að útboðsgögn liggi
fyrir í sumar. Tilgangurinn er meðal
annars að samræma ferðaþjónustu
fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu.
Hvött til að láta í sér heyra
Rakel er á meðal þeirra fjölmörgu
fötluðu einstaklinga sem eru háðir
þjónustunni til að komast á milli
staða. Hún fæddist heilbrigð en fékk
heilahimnubólgu aðeins tíu daga
gömul sem leiddi heilalömunar C.P.
Hún er bundin við hjólastól og þarf
aðstoð við allar daglegar þarfir.
Rakel hefur miklar áhyggjur af
því að yfirvofandi breytingar verði til
hins verra og komi til með að skerða
ferðafrelsi hennar. Hún segir þjón-
ustuna í dag mjög góða og skilur ekki
hvers vegna henni þurfi að breyta.
„Ég veit auðvitað ekki hvernig þetta
mun breytast en ég hef áhyggjur,“
segir hún. Eitt af því sem Rakel hefur
áhyggjur af er að þjónusta á stór-
hátíðardögum falli niður, en hún hef-
ur nýtt sér hana fram til þessa.
Rakel tekur fram að hún þekki
flesta bílstjórana sem keyri fyrir
Ferðaþjónustu fatlaðra í dag og að
henni líði vel í bílunum hjá þeim.
Þeir hafi ávallt reynst henni vel.
Hún lenti á spjalli um yfirvofandi
breytingar við einn bílstjórann á
dögunum. Hann tjáði henni að
margir skjólstæðingar hefðu lýst yfir
áhyggjum vegna málsins og sagðist
sjálfur hafa áhyggjur af framhaldinu.
Bílstjórinn hvatti Rakel til að vekja
athygli á málinu.
Samræmist ekki markmiðum
borgarinnar
Málið var rætt á fundi borgarstjórnar
þann 2. október í fyrra. En þá voru
lagðar fram tillögur vinnuhóps SSH
um útboðið. Sóley Tómasdóttir, borg-
arfulltrúi Vinstri grænna, setti sig ein
upp á móti hugmyndinni og lagði
fram tillögu að umsögn þar sem með-
al annars segir: „Reykjavíkurborg efast
ekki um kosti þess að samræma ferða-
þjónustu fatlaðra á höfuðborgarsvæð-
inu, en getur ekki fallist á útboð. Ferða-
þjónusta fatlaðra á að vera sjálfsagður
hluti almenningssamgangna á höfuð-
borgarsvæðinu og eðlilegast að Strætó
bs. annist hana, fyrirtæki sem hefur
það meginhlutverk að reka almenn-
ingsvagna, Ferðaþjónustu fatlaðra og
ferðaþjónustu eldri borgara. Auk þess
er fyrirtækið í eigu sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu og á forræði al-
mennings.“ Sóley bendir á að það eigi
að vera forgangsmál tryggja aðgengi
allra að þjónustu Strætó bs., sem og
bæta aðgengi fatlaðra að að vögnum
og strætóstöðvum, en ekki fela öðrum
að mæta þessum sjálfsögðu kröfum.
Það sé ekki í samræmi við samning
Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatl-
aðs fólks. „Útboð á ferðaþjónustu fatl-
aðra samræmist því ekki markmiðum
borgarinnar,“ segir Sóley í tillögunni.
Í tillögu borgarráðsfulltrúa Besta
flokks, Samfylkingar og Sjálfstæðis-
flokks sem lögð var fram á sama
fundi segir meðal annars: „Nú er ver-
ið að huga að útboði í ferðaþjónustu
með það að markmiði þróa þjón-
ustuna í takt við þarfir notenda, gera
hana sveigjanlegri og að þjónustu-
stig verði eflt með samdægursþjón-
ustu. Er talið að þetta sé hægt inn-
an núverandi fjárhagsramma þar
sem hagræðingu má ná fram með
útboði.“
Tillaga Sóleyjar var felld á fund-
inum með fjórtán atkvæðum gegn
einu.
Skylda að koma til móts við íbúa
„Þetta snýst um að borgin, eða
hið opinbera, sinni þeirri grunn-
þjónustu sem það tekur að sér að
sinna. Ég sé ekki af hverju við ætt-
um að bjóða út þjónustu við fatl-
að fólk varðandi almenningssam-
göngur frekar en þjónustu við fatlað
fólk í skólakerfinu eða einhverju
öðru,“ segir Sóley í samtali við DV.
„ Auðvitað eigum við bara að sinna
þessu almennilega,“ bætir hún við.
„Ég sé ekki af
hverju einka að
ilar ættu að geta veitt
ódýrari eða sveigjanlegri
þjónustu heldur en hið
opinbera í þessu.
n Rakel áhyggjufull vegna fyrirhugaðra breytinga á ferðaþjónustu fatlaðra n „Uppgjöf“ segir Sóley
Uppgjöf Sóley Tómasdóttir, borgarfull-
trúi Vinstri grænna, segir það uppgjöf af
hálfu borgarinnar að fela einkaaðilum að
sjá um ferðaþjónustu fatlaðra.
Hún bendir á að almenningssam-
göngur eigi að vera fyrir alla og
að þær eigi að tryggja með sóma-
samlegum hætti.
„Ég sé ekki af hverju einka-
aðilar ættu að geta veitt ódýrari
eða sveigjanlegri þjónustu en hið
opin bera í þessu. Strætó er mjög
stórt fyrirtæki og á að sinna verk-
efni sínu almennilega.“
Sóley viðurkennir að vissulega
sé það ekki einfalt mál að veita
persónulega og einstaklings-
bundna þjónustu varðandi al-
menningssamgöngur en það sé
hins vegar vel gerlegt. Það sé bein-
línis skylda sveitarfélagsins að
koma til móts við þarfir íbúa. „Það
að fela einhverjum öðrum að gera
það er ekkert nema uppgjöf.“
„Lýsa vantrausti á sig sjálf“
„Þarna er fullyrt að hægt sé að
veita bæði sveigjanlegri og hag-
kvæmari þjónustu af hálfu einka-
aðila án þess að útboð hafi farið
fram. Það er í raun og veru verið
að segja að þau hafi meiri trú
á sveigjanleika og hagræðingu
í einkabransanum en hjá hinu
opin bera og þar með kannski að
lýsa vantrausti á sig sjálf.“
Sóley bendir á að einkaaðilum
beri ekki að taka mið af almenn-
ingshagsmunum í sama mæli
og hið opinbera. Hún segir það
vel geta farið svo að það takist að
hagræða með einhverjum hætti
en spyr hvort það verði þá ekki á
kostnað þjónustunnar. „Ég hef
mjög miklar áhyggjur af því og
þetta er bara hugmyndafræðilega
rangt,“ segir Sóley að lokum. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Fær ekki svör Rakel segist
ítrekað hafa reynt að hafa sam-
band við borgarfulltrúa Besta
flokksins og Samfylkingar en
ekki haft erindi sem erfiði.
Tólf tíma tíst
Almenningur gat fylgst
með verkefnum lög-
reglunnar yfir eina nótt.
Fimleikafólk fær
brautargengi
Fimleikasamband Íslands (FSÍ)
hefur undirritað samstarfssamn-
ing við Tryggingamiðstöðina
(TM) sem felur í sér að TM verð-
ur einn af aðalstyrktaraðilum FSÍ
og um leið styrktaraðili að ný-
stofnuðum afrekssjóði fimleika-
sambandsins. Tilgangur afreks-
sjóðsins er að styrkja fimleikafólk
vegna kostnaðar við æfinga- og
keppnisferðir erlendis, þar sem
helmingi fjármagns sjóðsins er
úthlutað ár hvert en hinn helm-
ingurinn er nýttur sem fjárhags-
stofn til lengri tíma. Þessi hug-
mynd er ný af nálinni hjá FSÍ og
er jákvætt skref til að auðvelda
afreksfólki, varðandi fjárhagslega
þætti á ferðum erlendis, sem hef-
ur oft þurft að fjármagna keppn-
isferðir sínar sjálft eins og raunin
var með Evrópumeistara síðasta
árs hjá Gerplu.
Þ
au fölsuðu nöfnin okkar,
segir Magnús Örn Óskarsson
sem er einn eigenda Hverfis-
götu 50. Hann segir Línu Jia,
sem DV hefur fjallað um,
hafa opnað þar heimagistingu fyrir
ferðamenn í íbúð sem dóttir hennar
er skráð fyrir og maður hennar er bú-
settur í. Hún er hins vegar ekki með
leyfi fyrir starfseminni og hlaut neitun
þegar hún sótti um að gera íbúðina að
gistiheimili fyrir ferðamenn.
Í húsinu eru þrjár íbúðir auk þess
sem hjólaverkstæði er á fyrstu hæð
hússins en það húsnæði á Magnús.
Dóttir Línu Jia og Wei Zhang, er skráð
fyrir íbúðinni en samkvæmt heimild-
um DV eru það þó þau sem standa
fyrir gistingunni. Þau eiga einnig ann-
að gistiheimili að Hverfisgötu 102b.
Búinn að kæra
Magnús segist hafa komist að því fyr-
ir tilviljun að í umsókninni hafi nafn
hans og annars íbúðareiganda í hús-
inu verið falsað í tilraun til að fá leyfið.
Hann hefur kært fölsunina en rann-
sókn málsins er ekki hafin. „Ég er
búinn að fara oft upp á lögreglustöð
til þess að athuga hvort byrjað sé að
rannsaka málið en fæ bara þau svör
að það sé svo fámannað og lítið fjár-
magn til að það sé ekki tími til þess
að rannsaka þetta. Þannig að við bara
bíðum.“ Hann segir samskiptin við
Línu, Wei og dóttur þeirra hafa geng-
ið illa. Þau Lína og Wei beri alltaf fyr-
ir sig skilningsleysi þegar reynt sé að
ræða við þau og þau fái sínu fram-
gengt hvað sem raular og tautar.
Hann hefur einnig áhyggjur af því að
ef eldur komi upp í húsinu þá kunni
fólk að festast inni í bakgarði þess sem
er vel girtur af og þarf lykla til þess að
komast út úr honum. Eldvarnir séu
því ekki nægilegar að hans mati. „Ég
skil bara ekki að þetta sé ekki stoppað.
Manni finnst fáránlegt að þau komist
upp með þetta. Að falsa nafnið manns
og svo er bara ekkert gert.“ DV er með
ljósrit af skjalinu sem um ræðir undir
höndum. Þar er undirskrift Magnúsar
auk annars íbúðareiganda í húsinu.
Hann segir þetta vissulega vera sína
undirskrift en hann hafi aldrei skrifað
undir þessa pappíra og ekki heldur
hinn íbúðareigandinn. „Þau hafa
fengið þetta úr einhverju öðru skjali
og fært þetta yfir í gegnum tölvu eða
eitthvað slíkt. Við skrifuðum aldrei
undir þetta,“ segir hann og segir það
einungis hafa komist upp vegna þess
að hinn íbúðareigandinn vinni hjá
einni þeirra stofnana sem leita þarf til
þegar sótt er um leyfi.“
Vann myrkranna á milli
Umfjöllun um mál tengd Línu Jia er
ekki ný af nálinni. Lína hefur rekið
nuddstofu í Hamraborg í Kópavogi
í nokkur ár. Á haustmánuðum 2012
komst hún í fréttirnar vegna þess að
fjarskyld frænka hennar, Fulan Sun,
hafði sent íslenskum stjórnvöldum
bréf frá Kína þar sem hún óskaði
eftir hjálp vegna framferðis Línu.
Nokkrum árum fyrr hafði verið fjall-
að um Línu í fjölmiðlum út af öðr-
um ósáttum nuddurum sem höfðu
unnið hjá henni. Fulan Sun vann fyr-
ir Línu og sagði að henni hefði verið
haldið í eins konar þrældómi, hún
unnið myrkranna á milli en fengið lág
laun fyrir. Hún sagði vinnuaðstæður
ömurlegar og hafði miklar áhyggjur
af manni að nafni Nan Li sem hefði
einnig unnið hjá Línu og eiginmanni
hennar. Hún sagði hjónin hafa þrælað
honum út við hin ýmsu störf. DV
barst svo ábending um að hjónin ættu
íbúð í fyrrnefndu húsi að Hverfisgötu
50 og þar væri kínverskur maður sem
ynni myrkranna á milli við að stand-
setja íbúðina með það fyrir augum að
breyta henni í gistiheimili fyrir ferða-
menn. Nágrönnunum var talsverður
ami af endurbótunum vegna þess
að maðurinn byrjaði eldsnemma á
morgnana að vinna og ynni langt
fram á kvöld og því fylgdi oft mikill
hávaði. Einnig var sagt að maðurinn
sæist aldrei nema í fylgd annað hvort
Línu eða Wei. Þegar DV mætti á svæð-
ið í október til þess að freista þess að
ná tali af manninum, þá var lögreglan
á staðnum og yfirheyrði Wei ásamt
óþekktum kínverskum manni. Þeir
vildu ekki tala við blaðamann og ljós-
myndara DV og lögregla vildi engar
frekari upplýsingar gefa um málið.
Var neitað
Samkvæmt heimildum DV er nú búið
að standsetja íbúðina fyrir ferðamenn
í heimagistingu og byrjað að leigja út
gistingu. Aðrir íbúar í húsinu eru á
móti því að slík þjónusta sé þar enda
séu mikil læti sem hljótist af. Í íbúð-
ina hefur undanfarnar vikur verið
stöðugur straumur ferðamanna en
þó hafa þau ekki tilskilin leyfi fyrir
þess konar rekstri. DV fékk það stað-
fest hjá skrifstofu byggingafulltrúans í
Reykjavík að þeim hefði verið neitað
um leyfi fyrir rekstur gistiheimil-
is í húsnæðinu. Fyrir lægi þó beiðni
um leyfi fyrir rekstur heimagistingar
en málið hefði ekki verið tekið fyrir
þar sem fyrir lægi kæra. Í reglum um
heimagistingu segir: „Heimagisting
er gisting á einkaheimili leigusala
og skal ávallt í það minnsta einn af
heimilismönnum búa á heimilinu
og gegna hlutverki næturvarðar.“
Samkvæmt heimildum DV virðist þó
enginn hafa fasta búsetu á í íbúðinni.
„I don t́ understand“
Þegar DV hafði samband við Línu
Jia þá bar hún fyrir sig að hún skildi
ekki spurningar blaðamanns: „I don´t
understand,“ – ég skil ekki, sagði hún
í sífellu þegar hún var spurð út í
Hverfisgötu 50 og heimagistinguna. n
„Þau fölsuðu
nöfnin okkar“
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
n Sakar Línu um að falsa undirskriftir við leyfisumsókn fyrir gistiheimili
Hverfisgata 50 Hér er húsið
sem um ræðir. Þau fengu ekki leyfi
til þess að reka gistiheimili í íbúð-
inni en reka þar nú heimagistingu.
Íbúðareigandi í húsinu segir þau
hafa falsað nafn sitt á umsóknina
en fyrir tilviljun komst það upp.
„I doń t
understand
Vilja eiga sín
stefnumál
Stjórn Samstöðu, flokks lýðræðis
og velferðar, harmar það að aðrir
flokkar virðist hafa gert lausnir
flokksins að sínum eigin fyrir
komandi kosningar. Yfirlýsing
stjórnarinnar hefur vakið nokkra
athygli enda kemur fram í sömu
yfirlýsingu sem send var fjölmiðl-
um að flokkurinn muni hvorki
bjóða fram í komandi kosningum
né lýsa yfir stuðningi við önnur
framboð. Eru frambjóðendur
annarra flokka sakaðir um að
beita blekkingum til að ná til sín
stuðningsfólki, stefnu og lausnum
flokka eins og Samstöðu.
Vilja koma að
fríverslunar-
samningi
Hætta er á að fyrirtæki í EFTA-
ríkjunum tapi samkeppnisstöðu
gagnvart samkeppnisfyrirtækj-
um innan Evrópusambandsins
ef Bandaríkin og ESB ljúka gerð
fríverslunarsamnings sín á milli
eins og nú er fyrirhugað án þátt-
töku EFTA-ríkjanna. Þetta var
rætt á fundum Össurar Skarphéð-
inssonar, utanríkisráðherra með
Espen Barth Eide, utanríkisráð-
herra Norðmanna og sömuleiðis
á fundi Össurar og Trond Giske,
utanríkisviðskiptaráðherra Nor-
egs í opinberri heimsókn utan-
ríkisráðherra í Noregi síðustu
daga og voru norsku ráðherrarn-
ir sammála íslenska utanríkis-
ráðherranum um að nauðsynlegt
væri fyrir EFTA-ríkin að freista
aðkomu að samningnum, ann-
aðhvort með tvíhliða samning-
um eða gegnum EFTA, og hafa
aðkomu að samningagerðinni frá
upphafi.
„Þessi þjónusta er ólíðandi“
n Mætti of seint á tónleika vegna klúðurs í ferðaþjónustu fatlaðs fólks
É
g varð svo reið á föstudagin
að ég bara grét,“ segir Rakel
Árnadóttir í samtali við DV.
Rakel er með heilalömun og
verður sökum fötlunar sinn-
ar að nota hjólastól. Hún átti miða
á jólatónleika Stefáns Hilmarsso -
ar síðastliðinn föstudag og var búi
að panta sér bíl hjá ferðaþjónust
fatlaðs fólks. Ferðaþjónustan sendi
hins vegar lítinn leigubíl að sækja
hana í stað þess að senda hjóla-
stólabíl. „Þá var allt í einu kom-
ið inn í kerfið að ég væri með st f.
Bölvað klúður. Ég missti af fyrst
lögunum á tónleikunum og náði
síðan ekki að knúsa Stebba eftir
tónleikana af því bíllinn kom of
snemma að sækja mig,“ segir Rakel
en hún er að eigin sögn einn mesti
aðdáandi Stefáns Hilmarssonar.
Háð þjónustunni
Rakel er meðal þeirra fjölmörgu
fötluðu einstaklinga sem eru háð-
ir ferðaþjónustu fatlaðs fólks til
þess að komast á milli staða. Hún
fæddist alheilbrigð tíu vikum
fyrir tímann en fékk hins vegar
heilahimnubólgu tíu daga gömul
sem varð til þess að hún fékk heila-
lömun C.P. „Heilalömun er fötlun
sem veldur því að ákveðnar stöðv-
ar í heilanum mínum virka ekki
eins og þær eiga að gera,“ útskýrir
Rakel. „Í fyrstu var haldið að ég
myndi ekki þurfa mikla aðstoð en
ég þarf aðstoð við allar mínar dag-
legu þarfir. Það sem mér finnst erf-
iðast við mína fötlun er að geta
ekki farið sjálf á klósettið og farið
sjálf upp í rúm að sofa. Fötlun mín
getur ekki batnað heldur versnað.“
Óttaðist breytingarnar
Rakel var í viðtali í DV í mars á
síðasta ári þegar fyrirhugaðar
breytingar í ferðaþjónustunni lágu
fyrir. Þá sagðist hún vera áhyggju-
full vegna breytinganna og óttað-
ist að þær myndu skerða ferðafrelsi
sitt. Áhyggjurnar virðast ekki hafa
verið óþarfar. Þá sagðist hún ekki
skilja hvers vegna það þurfti að
breyta þjónustunni sem hún sagði
vera mjög góða.
Rakel er búsett í íbúðakjarna
fyrir fatlaða og þekkir mörg til-
vik þar sem ferðaþjónusta fatl-
aðs fólks hefur klikkað. „Ég er ekki
eini íbúinn sem hefur lent í þessu,“
segir hún. Fjölmargir hafa einnig
haft samband við DV undanfarn-
ar vikur, bílstjórar, notendur þjón-
ustunnar og aðstandendur, og lýst
yfir óánægju með breytingarnar í
ferðaþjónustunni frá því nýtt tölvu-
kerfi var tekið í gagnið í Reykjavík í
byrjun nóvember. Nýtt fyrirkomu-
lag hefur meðal annars verið gagn-
rýnt fyrir að vera ópersónulegt og
ekki taka mið af sérþörfum fatlaðs
fólks.
Ekki eina skiptið
„Þessi þjónusta er ólíðandi. Ég er
svo reið að ég er búin að vera há-
grátandi alla helgina,“ segir Rakel
en þetta er heldur ekki í fyrsta skipti
sem hún er óánægð með ferða-
þjónustuna frá því nýtt tölvukerfi
var tekið í notkun. Hún fór einnig á
jólatónleika Stefáns Hilmarssonar
fyrir hálfum mánuði. Þá lenti hún
í því að bíllinn sem hún hafði pant-
að eftir tónleikana kom ekki að
sækja hana. Hún varð því að panta
sér leigubíl. „Ég er það mikið fötl-
uð að ég treysti mér ekki út til þess
að fylgjast með bílnum. Mér verð-
ur svo kalt og ég verð stíf ef ég þarf
að bíða úti. Það er því skráð í kerf-
inu, eða var það allavega áður en
þetta klúður byrjaði, að það þurfi
að hringja bjöllunni hjá mér. En
það kom enginn inn í salinn að
leita að mér,“ segir Rakel. Hún seg-
ir ferðaþjónustuna hins vegar neita
að borga sér til baka, því bílstjórinn
sem hafi átt að koma að sækja hana
segist ekki hafa fundið hana. „En
ég sver, ég beið og beið. Ég eyddi
því sjö þúsund krónum í leigubíl til
þess að komast heim til mín.“ n
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
Óánægð með ferðaþjónustuna Rakel Árnadóttir mætti of seint á tónleika Stefáns Hilmarssonar vegna klúðurs í ferðaþjónustu fatlaðs
fólks. Mynd Sigtryggur Ari
„Ég er svo reið
að ég er búin að
vera hágrátandi alla
helgina
„Við erum ennþá í
millibilsástandi“
n Vinna eftir nýjum reglum um áramótin n Of lítill fyrirvari fyrir útboð
Smári Ólafsson, sviðsstjóri í ferðaþjónustu
fatlaðs fólks hjá Strætó, segir það koma
sér á óvart að heyra að enn séu margir
sem kvarti undan þjónustunni. Hann segir
bækling vera á leið til notenda þar sem
nýir möguleikar í ferðaþjónustunni eru
kynntir sem og þær breytingar sem verða
um áramótin. Í janúar komi meðal annars
inn nýir og öruggari bílar, opnunartími í
þjónustuverinu verður lengdur og fólk geti
pantað bíl með styttri fyrirvara. „Eftir
áramót byrjum við að vinna eftir þessum
nýju reglum sem sveitarfélögin eru búin
að koma sér saman um. Við erum ennþá í
millibilsástandi.“
Engir hönnunarmöguleikar
fyrir hendi
Líkt og fram hefur komið fór ekki fram
neitt útboð þegar nýtt tölvukerfi var tekið
í notkun í ferðaþjónustu fatlaðs fólks.
Bjarni Einar Einarsson, sá sem sá um
hugbúnaðinn fyrir ferðaþjónustuna, er óá-
nægður með að hafa ekki gefist tækifæri
til þess að bjóða í verkefnið. „Mitt mat er
að hann hefði ekki getað boðið upp á það
sem við erum að kaupa,“ segir Smári. „Við
fengum verkefnið með svo stuttum fyrir-
vara að það voru engir hönnunarmöguleik-
ar fyrir hendi. Það þurfti að kaupa búnað
sem var tilbúinn. Þeir möguleikar sem við
þurfum að hafa til þess að geta afgreitt
með tveggja tíma pöntunarfyrirvara eru
til dæmis GPS-staðsetningarbúnaður í
bílunum og beintenging milli þjónustuvers
og bíla. Ég ætla ekki að fullyrða að hann
hefði ekki getað gert þetta, en það kæmi
mér mjög á óvart ef hann hefði getað
gert það með nokkurra mánaða fyrirvara
líkt og við fengum fyrir verkefnið. Þannig
það var í raun enginn möguleiki á að fara í
útboð,“ segir Smári.
„Ég er ekki eini
íbúinn sem hefur
lent í þessu.