Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Blaðsíða 28
Jólablað 23. desember 201428 Neytendur Tvær hátíðarmáltíðir n Hamborgarhryggur og meðlæti: 7.603 kr. n Hangikjöt og meðlæti: 9.361 kr. Samtals: 16.964 kr. Endurnýjun sparifata Fullorðnir: n Ný herraskyrta: 7.990 kr. (Dressmann) n Nýr kjóll: 8.995 kr. (Zara) Alls 16.985 kr. Stúlka: n Jólakjóll: 4.595 kr. (Lindex) n Leggings: 1.699 kr. (Hagkaup) n Skór: 2.990 kr. (Hagkaup) Alls 9.284 kr. Drengur: n Skyrta: 2.699 kr. (Hagkaup) n Buxur: 3.999 kr. (Hagkaup) n Skór: 3.990 kr. (Hagkaup) Alls 10.688 kr. Samtals fyrir fjölskyldu: 36.957 kr. Jólatré með skrauti n Stafafura, 1,5m–2,0 m: 9.000 kr. (Heiðmörk) n Ljósasería, 100 ljós: 1.995 kr. (Rúmfatalagerinn) n Skrautkúlur, 10 x 6 stk: 1.900 kr. (IKEA) n Jólatrésstjarna: 590 kr. (IKEA) n Annað jólaskraut: 5.000 kr. Samtals: 18.485 kr. Jólagjafir n Tíu jólagjafir: Um 70.000 kr. Heildarkostnaður: 142.406 kr. Þ að getur kostað fjögurra manna fjölskyldu rúm­ lega 142 þúsund krónur að halda jólin á Íslandi í dag samkvæmt útreikningum DV sem miðast við hjón með tvö börn á leikskólaaldri. Rannsókna­ setur verslunarinnar áætlar að hver og einn Íslendingur eyði 45 þús­ und krónum í kaup á vörum fyrir jólin. Þegar þessi auknu útgjöld sem undirbúningi jólanna fylgja leggjast ofan á hefðbundin útgjöld sem þegar gera mörgum erfitt um vik að halda sér réttum megin við núllið um hver mánaðamót, er ljóst að víða getur róðurinn þyngst veru­ lega. Nauðsynlegt er að neytendur kunni sér hóf, sníði sér stakk eftir vexti og eyði ekki verulega um efni fram. Útreikningar miðast sem fyrr segir við fjögurra manna fjölskyldu. Þau útgjöld sem gert er ráð fyrir fela í sér tvær hátíðarmáltíðir, ákveðna endurnýjun á sparifötum, kaup á jólatré með skrauti og áætlaður kostnaður við kaup á tíu jólagjöf­ um. Val á kostnaðarliðum miðast við sambærilega úttekt og DV gerði árið 2008. Eins og gefur að skilja er dæmi DV fjarri því að vera tæmandi og aðeins til viðmiðunar. Ljóst er að auðveldlega mætti áætla mun hærri kostnað við ýmsa þessa liði en að sama skapi má hæglega gera hlutina á hagkvæmari hátt. Tvær hátíðar- máltíðir Við áætlun á verði á jóla­ mat er miðað við tvær mál­ tíðir þar sem boðið verður upp á hamborgarhrygg á aðfangadag og hangikjöt á jóladag. Verðupplýsingar eru úr úttekt DV í síðasta blaði á verði mismunandi jólamáltíða. Gera má ráð fyrir að fjölskyldan verji að minnsta kosti 16.964 krónum í þessar tvær mál­ tíðir og er þá meira að segja hægt að bjóða einum til tveimur fullorðnum í mat að auki. Stækkandi börn þurfa ný föt Það er góð regla að gera ákveðna endurnýjun á sparifötum fjöl­ skyldunnar fyrir jólin. Það er þar að auki gjarnan nauðsynlegt þegar um börn er að ræða enda vaxa þau fljótt upp úr fatnaði og þá sérstak­ lega sparifötum sem sjaldnar eru notuð. Fullorðna fólkið getur slopp­ ið ágætlega og í dæmi DV er gert ráð fyrir því að hús­ bóndinn eigi jakkaföt í sæmi­ legu ástandi en þurfi að kaupa sér nýja skyrtu. Þá gef­ um við okkur að konan splæsi í nýjan kjól. Samtals gæti þetta kostað fullorðna fólkið tæpar 17 þúsund krónur og þykir vel sloppið í dag. Það þarf að endurnýja meira hjá börnunum. Stúlkan þarf nýjan kjól, leggings og skó. Gert er ráð fyrir því að kaupa skyrtu, buxur og skó fyrir drenginn. Barnaföt eru ekki ódýr í dag, jafnvel þótt fólk sé ekki að kaupa tískumerki. Þegar allt er talið til má áætla að fjölskyldan verji rétt tæplega 37 þúsund krón­ um í endurnýjun á sparifötum. Eins og sjá má voru raunverð fundin á heimasíðum mismunandi verslana og reynt að stilla verði í hóf. Fá sér lifandi tré Í dæmi DV ákveð­ ur fjölskyldan að kaupa sér lifandi jólatré hjá Skóg­ ræktarfélagi Reykja­ víkur í Heiðmörk. Þar kostar stafafura sem er á bilinu 1,5 til 2 metrar á hæð 9 þúsund krónur. Til skreytingar er keypt hundrað ljósa sería, sextíu jólakúlur til að hengja á tréð og jólastjarna á toppinn. Svo er gert ráð fyrir kostnaði við aðr­ ar skreytingar á heimilinu, áætlað­ ar um 5 þúsund krónur. Þetta gera 18.485 krónur. Gjafakaupin snúin Stærsti kostnaðar­ liður hverrar fjölskyldu vegna jól­ anna er að jafnaði gjafirnar. Það getur verið erfitt að áætla þenn­ an lið en miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um kauphegðun Ís­ lendinga, sem vikið er að síðar, var ákveðið að setja þá tölu í 70 þús­ und krónur. Er þá miðað við um tíu gjafir. Hjónin gefa hvort öðru gjöf, börnunum hvort sína gjöfina, for­ eldrum sínum og jafnvel systkinum. Er miðað við tíu gjafir sem jafngild­ ir um 7 þúsund krónum á gjöf. Hafa ber í huga að sumir fá dýrari gjafir en aðrir og allur gangur getur verið á því. Teljum við að 7 þúsund krón­ ur sé nokkuð raunhæft. Hér, eins og í öllum öðrum liðum, þá er að sjálf­ sögðu hægt að eyða miklu meira eða mun minna. 65% hækkun frá 2008 DV gerði, sem fyrr segir, svipaða útreikninga í desember 2008 þar sem útgjaldaliðir voru þeir sömu nema miðað var við fimm manna fjölskyldu. Í þeirri úttekt nam áætl­ aður kostnaður vegna jólahalds 86 þúsund krónum. Þó að erfitt sé að bera tölurnar saman sökum mismunandi fjölskyldustærðar í dæmunum tveimur þá gerir þetta þrátt fyrir það hækkun upp á ríflega 65 prósent. Hefði ver­ ið tekið inn einn auka fjöl­ skyldumeðlimur í dæmi DV nú væri kostnaðurinn aug­ ljóslega umtalsvert meiri. 45 þúsund krónur á mann Á dögunum birti Rannsóknasetur verslunarinnar spá sína um að velta í smásöluverslun í nóvem­ ber og desember í ár verði um 84 milljarðar króna, eða 72 milljarðar króna án virðisaukaskatts og auk­ ist því á breytilegu verðlagi um 4,2 prósent milli ára. Þar af séu 15 milljarðar umfram meðaltal annarra mánaða ársins sem ætla má að séu vegna jólainn­ kaupa. Út frá þeim upplýsing­ um má finna að verslun þessa tvo mánuði jafngildir um 45 þúsund krónum meira á mann umfram meðaltal annarra mánaða ársins, sem gera 180 þúsund krónur fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Hver og einn Íslendingur eyðir því 45 þús­ und krónum í kaup á vörum fyrir jólin. Af þessu má sjá að forsendur útreikninga DV eru hóflega áætl­ aðar. Á við leigu á þriggja herbergja íbúð Til að setja þessi áætl­ uðu útgjöld vegna jólanna í samhengi þá eru 180 þúsund krónurnar sem Rann­ sóknasetur verslunarinnar reiknar með að fjögurra manna fjölskylda eyði í vörukaup fyrir jólin hærri en atvinnuleysisbætur á Íslandi í dag. Atvinnuleysisbætur eru nú 178.823 krónur á mánuði miðað við 100% bótarétt. Sé miðað við upphæðina í dæmi DV þá er hún litlu lægri en sem kostar að leigja 90 fermetra, þriggja herbergja íbúð í Kópavogi. Sam­ kvæmt upplýsingum um leiguverð íbúðarhúsnæðis úr leigugagna­ grunni Þjóðskrár kostar slík íbúð 149.760 krónur á mánuði. n Þetta kosta jólin í ár n Svona eyðir fjögurra manna fjölskylda 140 þúsund krónum n Eyðum 15 milljörðum fyrir jólin Sérskipuð valnefnd Rannsóknaseturs verslunarinnar á Bifröst komst að þeirri niðurstöðu að jólagjöfin í ár sé „nytjalist“. Í röksemdum segir að það sé tímanna tákn að neytendur hafi bæði hagkvæmni og gæði að leiðarljósi við innkaup, þá sé krafa um það að hönnun sameini notagildi og fagurfræði, enda sé það „alkunna að kaffi bragðist betur ef það er borið fram í fallegum bolla.“ Nytjalist er sögð sameina hönnun, hugvit og handverk. Hún getur verið heimatil- búin eða fjöldaframleidd, innlend eða erlend. Er bent á að magvísleg hönnunarhús megi finna um allt land og ýmsir hönnuðir leiti fanga í íslenskri menn- ingu eða náttúru. Slíkt eigi mjög upp á pallborðið hjá neytendum nú um stundir. Nytjalist sé því gjöf fyrir alla enda sé mikil gróska í hönnun slíkra gripa og möguleikarnir nær óþrjótandi. Jólagjafir fyrri ára: n 2014 Nytjalist n 2013 Lífsstíls bók n 2012 Íslensk tónlist n 2011 Spjald tölva n 2010 Íslensk lopa peysa n 2009 Já kvæð upp lif un n 2008 Íslensk hönn un n 2007 GPS staðsetn ingar tæki n 2006 Ávaxta- og græn met ispressa Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Jólin kosta sitt Það getur reynst mörgum erfitt fjár- hagslega að standast kröfur samfélagsins um jólahald. Eins og hófstillt dæmi DV sýnir getur það kost- að fjögurra manna fjölskyldu ríflega 140 þúsund krónur að halda það sem kalla mætti hefðbundin jól. Leggist það ofan á hefðbundin útgjöld þá er ljóst að róðurinn þyngist hjá mörgum. Þetta er jólagjöfin í ár Nytjalist sameinar notagildi og fagurfræði Jólahald Viðmiðunarkostnaður fyrir hjón með tvö börn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.