Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Blaðsíða 8
Jólablað 23. desember 20148 Fréttir
Grímur Grallari, Hafnargötu 90, 205 Keflavík, Sími: 422 7722
Verið velkominn!
Vorum að opna
nýtt kaffi og
veitingahús
Grallarinn
Opið
11:00-21:00 Mánudaga til Fimmtudaga
11:00-01:00 Föstudag
16:00-01:00 Laugardag
16:00-21:00 Sunnudag
Pizza hlaðborð í hádeginu alla virka daga frá 11:30-13:30
Eins og náttúran hafði í hyggju
• Magnesíumsprey sem virkar strax!
• Slakandi, bætir svefn og slær á
fótaóeirð og sinadrátt
• Frábær upptaka
Sefurðu illa?
MagnesiumOil
Spray
Fæst í flestum apótekum, Lifandi Markaði, Heilsuhúsinu,
Fjarðarkaup og Systrasamlaginu
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
og á Facebook síðunni Better You Ísland
PREN
TU
N
.IS
Goodnight
É
g leigi hana áfram meðan ég
er á þingi. Ég samdi um það
við skólann,“ segir Valgerður
Gunnarsdóttir, þingkona Sjálf
stæðisflokksins og skólameist
ari í Framhaldsskólanum á Laugum,
aðspurð um íbúð í þorpinu í Laug
um í Þingeyjarsveit sem hún hefur
til afnota á meðan hún gegnir þing
mennsku. Valgerður segist einfald
lega hafa leigt íbúðina á meðan hún
var starfandi skólameistari við Fram
haldsskólann á Laugum og að hún
geri það áfram á meðan hún gegni
þingstörfum; því hafi ekki verið um
að ræða fríðindi sem fylgdu starfi
hennar við skólann.
Valgerður var önnur á lista Sjálf
stæðisflokksins í Norðausturkjör
dæmi í þingkosningunum í fyrra.
Hún hefur verið skólameistari Fram
haldsskólans á Laugum frá árinu
1999 en þar áður starfaði hún við
Framhaldsskólann á Húsavík. Frá
árinu 2009 hefur hún verið formaður
Skólameistarafélags Íslands. Skólinn
á Laugum er heimavistarskóli með á
milli 100 og 120 nemendur.
Getur verið í fimm ára leyfi
Valgerður segir að embættismenn
geti verið í leyfi frá störfum í allt að
fimm ár ef þeir setjast á þing og að
þann rétt hafi hún ákveðið að nýta
sér. Á meðan Valgerður er í leyfi frá
störfum er Hallur Birkir Reynisson
settur skólameistari í Framhalds
skólanum á Laugum. Valgerður
heldur því starfinu við skólann með
an á þingmennskunni stendur og
getur svo horfið aftur til þess í lok
þessa kjörtímabils. Þá leigir hún
áfram umrædda íbúð af skólanum.
Aðspurður um íbúðina sem Val
gerður hefur á leigu segir Hallur
Birkir að Valgerður hafi ennþá afnot
af henni sem fyrr. „Hún bara borgar
leigu af íbúðinni eins og áður. Það
er nú frekar lág leiga en bara sam
kvæmt taxta. Það eru Fasteignir rík
isins sem eiga þessar íbúðir,“ segir
skólameistarinn setti en hann segir
íslenska ríkið eiga fjórar íbúðir á
Laugum sem leigðar eru út til starfs
manna skólans – samtals eru um 40
starfsmenn við skólann.
Leigan á íbúðinni er bundin við
starfsmenn Laugaskóla en auðvitað
er Valgerður ennþá starfsmaður
hans þó hún sé í leyfi.
Guðbjartur hætti strax
Allur gangur er á því hvort, og þá
hvernig, nýkjörnir þingmenn láti af
öðrum opinberum störfum sem þeir
gegna þegar þeir eru kjörnir á þing.
Líkt og Valgerður bendir á hafa emb
ættismenn, í hennar tilviki skóla
meistarar, sannarlega rétt á því að
taka sér leyfi frá störfum í fimm ár
og snúa svo aftur til starfa að lok
inni þingmennsku. Hún valdi þenn
an kost.
Nýlegt dæmi um hið gagnstæða
er þegar Guðbjartur Hannesson, þá
verandi skólastjóri Grundaskóla á
Akranesi, settist á þing fyrir Samfylk
inguna árið 2007. Hann ákvað að láta
af störfum þegar hann settist á þing
en þá hafði hann stýrt Grundaskóla
frá árinu 1981: „Ég sagði upp strax og
ég fór á þing. Ég var kosinn þarna í
apríl eða maí. Ég nýtti mér ekki fimm
ára regluna. Ég var búinn að vera svo
lengi skólastjóri þannig að ég hugs
aði að mér væri enginn vorkunn að
verða atvinnulaus eftir hálft ár eða
eitt ef svo bæri undir frekar en að
láta einhvern gegna starfinu í afleys
ingum. Það var að minnsta kosti mín
skoðun,“ segir Guðbjartur.
Líkt og áður segir er það réttur
hvers og eins að embættismanns að
velja hvaða hátt hann hefur á þegar
hann sest á þing. Í tilfelli Valgerðar
Gunnarsdóttur hefði hún hins vegar
ekki rétt á því að leigja áfram íbúðina
á Laugum af íslenska ríkinu nema
sem starfsmaður Framhaldsskólans
á Laugum. n
Heldur stöðunni og
leigir íbúð af ríkinu
Valgerður Gunnarsdóttir þingmaður nýtir sér fimm ára regluna
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is „Ég leigi hana
áfram meðan ég
er á þingi.
Ólíkar leiðir Embættismenn geta ákveðið
að nýta sér fimm ára regluna eða ekki þegar
þeir setjast á þing. Guðbjartur Hannesson
gerði það til dæmis ekki.
Hefur rétt á leyfinu Valgerður Gunnarsdóttir heldur skólameistarastarf-inu á Laugum á meðan hún situr á Alþingi og leigir íbúð af Fasteignum ríkisins sem eyrnamerkt er skólanum. Mynd BraGI ÞÓr JÓseFsson
Ganga til friðar
Íslenskir friðarsinnar hafa efnt
til friðargöngu niður Lauga
veginn á Þorláksmessu undan
farin þrjátíu og fimm ár og í ár
verður engin breyting á því.
Það er Samstarfshópur friðar
hreyfinga sem stendur fyrir
göngunni í Reykjavík þann 23.
desember. Safnast verður saman
á Hlemmi frá klukkan 17.45 og
hefst gangan klukkan 18.00. Fólk
er hvatt til að mæta tímanlega.
Undanfarin ár hafa slíkar göng
ur einnig verið á Þorláksmessu
á Akureyri og á Ísafirði og verður
svo einnig nú.
Í lok göngu verður fundur
við Austurvöll þar sem Eyrún
Ósk Jónsdóttir flytur ávarp.
Söngfólk úr Hamrahlíðarkórn
um og Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð syngur í göngunni
og við lok fundar undir stjórn
kórstjórans Þorgerðar Ingólfs
dóttur. Fundarstjóri er Kolbeinn
Óttarsson Proppé.
Friðargangan á Ísafirði legg
ur af stað frá Ísafjarðarkirkju
klukkan 18:00 og er gengið niður
á Silfurtorg. Á Akureyri stend
ur Friðarframtak fyrir blysför í
þágu friðar Akureyri. Hún hefst
klukkan 20 frá Samkomuhúsinu
Hafnarstræti og er gengið út á
Ráðhústorg.
Þ
að sást ekki í mig fyrir braki og
snjó,“ segir hin 23 ára Helga
Björk Viggósdóttir í samtali við
DV en hún varð fyrir því óhappi
aðfaranótt sunnudags að fá yfir sig
þakkant og bárujárnsbúta þar sem
hún var á gangi í Hafnarstræti í mið
borg Reykjavíkur.
Helga Björk var á heimleið
um klukkan fimm að nóttu ásamt
nokkrum vinum og kærasta sínum
og stefndu þau á leigubílaröðina. „Þá
heyrðist hátt brak og við litum upp,“
rifjar Helga Björk upp. Hún segir þakk
antinn hafa fallið líkt og spilaborg. Þau
hafi séð hann byrja að losna í nokkurri
fjarlægð en hann hafi nálgast hratt.
Kærasti hennar hafi áttað sig á því sem
var að gerast og náði að draga hana í
burtu. Allir aðrir í hópnum sluppu
ómeiddir. „Ég lenti ein undir farginu,“
segir Helga Björk. „Ég fékk bara áfall
þegar ég var toguð upp og gerði mér
ekki grein fyrir að eitthvað hefði fallið
á mig. Fólk hópaðist að frá nærliggj
andi stöðum og reyndi að láta mig
liggja kyrra og hvatti mig til að standa
ekki upp. Lögregla og sjúkrabíll komu
skömmu síðar og tóku skýrslu. Ég var
í það miklu sjokki að ég vildi ekki fara
með sjúkrabílnum því kærastinn mátti
ekki koma með. Ég gerði mér enga
grein fyrir hvað hafði gerst í raun,“
segir Helga Björk. Hún tók því leigu
bíl upp á bráðadeild þar sem hún fór
í myndatökur og fékk aðhlynningu.
„Ég hef verið með svima, mikil eymsli
í baki, hausverk og skrámur. Ég þakka
bara fyrir að ekki fór verr og fyrir að
kærasti minn hafi náð að kippa mér að
mestu leyti undan brakinu.“ n
aslaug@dv.is
„Ég fékk bara áfall“
Fékk þakkant og bárujárn yfir sig um helgina
Féll líkt og spilaborg Helga Björk
Viggósdóttir þakkar fyrir að ekki fór verr
þegar hún fékk þakkant og bárujárnsbúta
yfir sig um helgina.