Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Blaðsíða 12
Jólablað 23. desember 201412 Fréttir
Bærinn
H
ann er kallaður jólaþorp
ið í Kína og hefur verið líkt
við verkstæði jólasveinsins
en í Yiwu eru engir prúð
búnir álfar eða jólalegur
snjór. Bara sex hundruð verksmiðj
ur þar sem verkamenn á sultar
launum framleiða 60 prósent af öllu
jólaskrauti veraldar.
Það er afskaplega fátt sem minn
ir á jólin þegar inn í eina af þess
um verksmiðjum er komið. Ann
að en rauður litur sem þekur loftið,
gluggasyllur og veggi og gæti minnt
einhverja á jólin. En svona verða
jólin til í hjarta þrælabúða jóla
sveinsins, ef svo má að orði komast.
Þúsundum kílómetra frá norður
pólnum í kínverska bænum Yiwu
sem staðsettur er um 300 kílómetra
suður af Shanghaí.
Vita lítið um jólin
Og það eru miklar líkur á að megn
ið af því jólaglingri, englahárum og
jólaseríum sem þú skreytir heim
ili þitt með fyrir hver jól séu komin
þaðan segir í umfjöllun um jólabæ
inn Yiwu á vef breska blaðsins Guar
dian á dögunum.
Þessar sex hundruð verksmiðjur
eru flestar fullar af kínverskum far
andverkamönnum sem vinna 12 tíma
vinnudaga fyrir laun sem samsvara að
hámarki 60 þúsund krónum á mánuði.
Og margir þeirra eru ekki einu sinni al
veg vissir um hvað jólin eru.
„Kannski eru þau eins og kín
verska nýárið fyrir útlendinga,“ segir
hinn 19 ára gamli Wei um jólin,
en hann flutti til Yiwu fyrr á þessu
ári ásamt föður sínum til að vinna.
Saman vinna þeir feðgar við það
allan daginn að lita jólasnjókorns
skreytingar í hinu rauða rými. Þeir
dýfa þeim í lím og setja þær í vél sem
þekur skrautið með rauðu púðri uns
þær glansa. Og þeir þurfa að skila
af sér minnst fimm þúsund slíkum
skrautmunum á hverjum degi.
Með jólasveinahúfur
af illri nauðsyn
Þessu ferli fylgir mikill sóðaskapur
og verða þeir þaktir fagurrauðu
litapúðri frá toppi til táar. Faðir Wei
vinnur með jólasveinahúfu á höfð
inu en það er af illri nauðsyn frem
ur en jólaanda. Húfan ver hárið á
honum fyrir því að verða rautt. Á
einni vakt fara þeir í gegnum tíu
andlitsgrímur til að reyna að verj
ast því að anda að sér hinu fínmal
aða litapúðri. Það tekur sinn toll að
vinna við aðstæður sem þessar og
þeir feðgar búast ekki við því að vera
þarna áfram á næsta ári. Þegar þeir
hafa safnað nægu fé til að sonurinn
geti kvænst hyggjast þeir snúa aftur
til sinna heimahaga í Guizhouhér
aði og verða fullkomlega sáttir við að
sjá aldrei ögn af þessu rauða púðri
framar.
Stærsta markaðstorg heims
En utan verksmiðjuveggja Yiwu er
stórt alþjóðlegt markaðstorg þar sem
afraksturinn er til sýnis og bíður þess
að vera pantaður til útflutnings. Sam
einuðu þjóðirnar hafa kallað þetta
sölutorg stærsta smávöruheildsölu
markað veraldar. Svæðið er það stórt
að því er skipt upp í hverfi, og eitt
þessara hverfa er sérstaklega tileink
að jólavarningi. Ódýrt jólaglingur
þekur þar hvern rekka svo langt sem
augað eygir. Haf ljósaseríusýninga,
jólasokkar, gervijólatré, jólakúlur,
jólastjörnur og allt tilheyrandi af öll
um stærðum og gerðum.
En þetta mikla jólaland á undir
högg að sækja um þessar mund
ir nú þegar netverslun hefur tekið
yfir stóran hluta markaðarins. Vef
síður á borð við Alibaba sem margir
Íslendingar þekkja bjóða upp á 1,4
milljónir mismunandi tegunda
jólaskrauts sem viðskiptavinir geta
n Í Yiwu eru 60% af jólaskrauti heimsins framleidd n Verkamenn vita lítið um jólin
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is „Kannski eru
þau eins og
kínverska nýárið
fyrir útlendinga.
Jólatréð í stofunni Hér má sjá verkamenn keppast við að ganga frá og skreyta
gervijólatré en þau eru framleidd í öllum stærðum og gerðum í Yiwu. Mynd ReuteRS
Heilu jólahverfin Utan verksmiðjuveggja Yiwu er stórt alþjóðlegt markaðstorg þar sem
afraksturinn er seldur og er til sýnis. Sameinuðu þjóðirnar hafa kallað þetta sölutorg stærsta
smávöruheildsölumarkað veraldar. Mynd ReuteRS
í Kína
sem Býr
til jólin
Landsins
mesta úrval
Hugo Boss
úra hjá okkur