Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Side 4
4 Fréttir Jólablað 23. desember 2014 S amheitalyfjafyrirtækið Alvogen, sem fjárfestirinn Róbert Wessman stýrir, vill byggja aðra verksmiðju sem framleiðir samheitalyf á há- skólasvæðinu í Vatnsmýrinni. Þetta staðfestir Eiríkur Hilmarsson, fram- kvæmdastjóri eignarhaldsfélagsins Vísindagarða Háskóla Íslands, en það félag þarf að hafa milligöngu um afhendingu lóðarinnar frá Reykja- víkurborg til Alvogen. „Alvogen hefur sem sagt áhuga á því að stækka. […] Það eru viðræður í gangi um þetta,“ segir Eiríkur. Alvogen, eða dótturfélag þess Alvotech, fékk afhenta lóð frá Reykja- víkurborg í gegnum Vísindagarða Háskóla Íslands við Sæmundargötu 15 til 19 í nóvember í fyrra. Fram- kvæmdir standa nú yfir við ellefu þúsund fermetra lyfjaverksmiðju sem opna á 2016. Í gildi er ramma- samkomulag á milli Vísindagarða Háskóla Íslands og Reykjavíkur- borgar sem felur það í sér að þetta dótturfélag Háskóla Íslands getur óskað eftir því að fá afhentar lóðir á háskólasvæðinu undir starfsemi sem tengist starfi skólans. Á grundvelli þessa samkomulags fékk Alvogen lóðina sem fyrirtækið byggir nú á af- henta í fyrra. Lóðin sem viðræðurnar núna snúast um er sunnan við lóðina sem Alvogen fékk í fyrra. Fá ekki inni Í tengslum við afhendingu síð- ustu lóðar kom fram að Háskóli Ís- lands ætlaði að leigja hluta af húsi Alvogen. Talað var um 2.000 til 3.000 þúsund fermetra af þeim 11.000 sem húsið átti að vera. Þetta hefur hins vegar breyst, segir Eiríkur aðspurður, þar sem Alvogen óskaði eftir því að fá að fullnýta húsið sjálft. „Við gerð- um kröfu um það að allur byggingar- reiturinn yrði nýttur til fulls þar sem Alvogen gerði ekki ráð fyrir að nota allt húsið sjálft. Síðan breyttu- st áformin hjá Alvogen. Þannig að Alvogen óskaði eftir því að fá að full- nýta bygginguna. Það þurfti því ekki á því að halda að annar aðili kæmi inn til að fullnýta byggingarreitinn.“ Háskóli Íslands verður því ekki með neina aðstöðu í nýja húsinu, líkt og talað hafði verið um. Vilja fá afnot af nýja húsinu Aðspurður hvort Háskóli Íslands muni fá aðstöðu í hinu húsinu sem Alvogen vill reisa, fari svo að samkomulag náist um lóðina og að önnur verksmiðja rísi, segir Eiríkur að háskólinn hafi sannarlega þörf fyrir aukið húsnæði og horft yrði til þess að leigja hluta af því húsi. „Það eru mjög miklar líkur á því. Sá reitur yrði ekki allur fyrir Alvotech heldur að- eins hluti af honum og þá yrði annars konar starf- semi í húsnæðinu á móti.“ Forsenda fyrir því að Há- skóli Íslands fái þetta hús- næði er hins vegar auðvit- að að Alvogen fái lóðina undir húsið og reisi það. Eiríkur segir að Háskóli Íslands horfi meðal annars til þess að koma á laggirn- ar svokölluðu sameindavís- indasetri og að meðal annars sé litið til þess að slík starf- semi gæti verið í seinna húsi Alvogen. Hann segir hins vegar að ekkert liggi fyrir um sameindavísindasetrið og viðræðunum um lóðina undir hús- ið sé alls ekki lokið. „En eins og þú veist þá þarf margt að koma til áður en draumar rætast.“ Ekkert neitunarvald DV hefur greint frá því að eigandi verksmiðj- unnar sem nú rís í Vatns- mýrinni sé fasteigna- félag í eigu forstjóra Alvogen, Róberts Wessman. Bygging hússins var fjármögnuð með láni frá Arion banka og reynir Ró- bert nú að selja húsið til fjárfesta. Fagfjárfestar, eins og til dæmis líf- eyrissjóðir, verða að teljast líklegustu kaupendurnir en þeir hafa stofnað fjárfestingafélag sem sérhæfir sig í kaupum á atvinnuhúsnæði þar sem fyrir liggja langir leigusamningar við trausta aðila. Fasteignafélag Róberts og Alvotech hafa gert leigusamning um húsnæðið til 25 ára. Því er um að ræða afar verðmæta og góða eign sem Róbert getur selt og hagnast vel á ef kaupandi finnst. Aðspurður hvort Vísindagarðar Háskóla Íslands hafi einhverja skoðun á því hver það er sem eigi húsið segir Eiríkur að svo sé ekki. Hann segir að félagið hafi forkaups- rétt á því en annars geti félagið ekki skipt sér af eignarhaldinu. „Þess utan þá höfum við ekki möguleika á að stýra því hvernig eignarhaldinu er háttað á húsinu.“ Af þessu leiðir að ekki er hægt að fullyrða neitt um eignarhaldið á nýja húsi Alvogen, fari svo að það verði byggt. Eiríkur segir að ekki liggi fyrir hvenær niður- staða fæst í viðræðurnar um bygginguna. n Vill byggja aðra verksmiðju við HÍ n Alvogen og Vísindagarðar HÍ í viðræðum n Skólinn fær ekki inni Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Fullnýta húsið Alvotech fullnýtir húsið í Vatnsmýrinni sem nú er í byggingu og vill fá að byggja meira. Mynd SIgtryggur ArI Fá ekki inni Vísindagarðar Háskóla Íslands fá ekki inni í húsinu sem fasteigna- félag Róberts Wessman reisir nú í Vatns- mýrinni en skólinn bindur hins vegar vonir við að fá leigða aðstöðu í næsta húsi. „En eins og þú veist þá þarf margt að koma til áður en draumar rætast. – Eiríkur Hilmarsson Opna Leifsstöð á jóladag fyrir eina flugferð Einu sinni á ári liggja allar flug- samgöngur til og frá Íslandi niðri og það er þann 25. desember ár hvert. Flugstöð Leifs Eiríkssonar verður hins vegar opin á jóladag í ár. Þetta kemur fram á vefsíðunni Túristi.is. Þó er aðeins um eina flugvél að ræða en sú er á vegum easyJet. Vélin kemur frá Genf í Sviss og lendir í Keflavík um kaffi- leytið og fer á loft á ný tíu mínútur í fimm. Fáir farþegar munu fara um flugstöðina á jóladag en engu að síður þarf að ræsa út starfsfólk flugvallarins og samkvæmt upp- lýsingum frá Isavia þá er einnig ætlast til að verslanir séu opnar við allar brottfarir. Leigir Orkuveitunni Leigusamningur um aðstöðu í verksmiðju Alvogen F asteignafélagið Sæmundur ehf., sem á húsið sem hýsa mun lyfjaverksmiðju Alvogen í Vatnsmýrinni, hefur gert leigu samning við Orkuveitu Reykja- víkur vegna leigu á rými fyr- ir dreifistöð og spennubreyta sem verður staðsett í húsinu. Eins og kunnugt er fékk Alvogen lóðina undir húsið frá Reykjavíkurborg, í gegnum Vísindagarða Háskóla Ís- lands, til að reisa þar lyfjaverk- smiðju þar sem framleidd verða samheitalyf. Leigusamningurinn, sem er á milli Sæmundar og dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur sem heitir Veitur ohf., er ekki upp á háar fjár- hæðir: Rúmlega 12 milljónir króna án virðisaukaskatts. Þetta kemur fram í samningi á milli Fasteigna- félagsins Sæmundar og Veitna sem undirritaður var í síðasta mánuði. Fasteignafélagið leggur Veitum til húsnæðið undir dreifistöðina en Orkuveitan á að sjá um viðhald inni í því. Kostnaður Sæmundar vegna eignarinnar er því einhver og er leiguverðið ekki hátt. Orkuveitan er hins vegar í eigu Reykjavíkurborgar og það var Reykjavíkurborg sem lét Alvogen í té umrædda lóð undir umrætt hús. Fasteignafélagið Sæmundur er því að leigja félagi í eigu borgarinn- ar húsnæði á lóð sem Reykjavíkur- borg afhenti Alvogen til að reisa lyf- javerksmiðjuna á. n ingi@dv.is Leigir af eiganda verksmiðjunnar Dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur leigir rými undir spennistöð í verksmiðju Alvogen í Vatnsmýrinni. Brunagaddur á aðfangadag Landsmenn mega búast við hvít- um jólum þetta árið, eins og gefur að skilja í ljósi tíðarinnar. Á að- fangadag er gert ráð fyrir köldu veðri en frost verður á bilinu 2–16 stig, kaldast inn til landsins. Gert er ráð fyrir björtu veðri sunn- an- og vestanlands en dálítil él verða á víð og dreif fyrir norðan og austan. Á jóladag snýst í sunn- anátt og hlutskipti landshlutanna snýst við. Þá mun snjóa sunnan- og vestanlands en bjartara verð- ur fyrir norðan og austan. Áfram verður kalt á öðrum degi jóla. Nánar má lesa um jólaveðrið á baksíðu blaðsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.