Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Blaðsíða 6
6 Fréttir Jólablað 23. desember 2014 Hugo Boss söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Úra- o skartgripaversl n Heide Glæsibæ - s: 581 36 5 T æp fjörutíu prósent lands­ manna ætla að borða skötu á Þorláksmessu þessi jólin. Þetta kemur fram í könnun sem MMR framkvæmdi á dögun­ um. Heldur færri sögðust ætla að borða skötu á Þorláksmessu í ár en í fyrra. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 38 prósent ætla að borða skötu á Þorláksmessu, borið saman við 42,1 prósent í fyrra. Niðurstöðurnar benda til þess að yfir 93.000 Íslendingar 18 ára og eldri (sem eru alls ríflega 245 þús­ und) ætli að borða skötu á Þor­ láksmessu. Karlar voru líklegri til að segjast ætla að borða skötu á Þorláksmessu en konur. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 44,3 prósent karla ætla að borða skötu á Þorláksmessu, borið saman við 31,5 prósent kvenna. Yngra fólk var ólíklegra til að segjast ætla að borða skötu en eldra fólk. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18–29 ára) sögðust 21,3 prósent ætla að borða skötu á Þorláksmes­ su, borið saman við 55,6 prósent í aldurshópnum 68 ára og eldri. Fólk á landsbyggðinni var líklegra til að segjast ætla að borða skötu en fólk á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim sem tóku afstöðu og voru búsett á landsbyggðinni sögðust 43,9 prósent ætla að borða skötu á Þorláksmessu, borið saman við 34,2 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem studdu Vinstri græn voru ólíklegri en stuðningsfólk annarra stjórnmálaflokka til að borða skötu á Þorláksmessu. Af þeim sem tóku afstöðu og kváð­ ust styðja Vinstri græn sögðust 21,3 prósent ætla að borða skötu á Þor­ láksmessu, borið saman við 49,4 prósent þeirra sem kváðust styðja Framsóknarflokkinn. n Framsóknarmenn borða skötu Karlar líklegri en konur til að svolgra í sig skötuna og yngra fólk vill hana síður Skata Karlar kunna betur að meta skötuna en konur og fólk á landsbyggðinni er líklegra til að fá sér af henni. Fangelsis- dómur fyrir 30 milljóna svik Sigurður Ingi Þórðarson var á mánudag dæmdur til tvggja ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness. Hann sveik út um þrjátíu milljónir króna. Morgunblaðið greinir frá því að saksóknari í málinu hafa far­ ið fram á tveggja ára fangelsisvist yfir Sigurði og sagt að réttarvit­ und almennings yrði gróflega misboðið hlyti hann vægari dóm fyrir brot sín. Sigurður játaði á sig sök í öllum átján ákæruliðum í nóvember síðastliðnum. Hann viðurkenndi jafnframt bótaskyldu sína en gerði athugasemdir við bótafjárhæðirnar. Sigurður var ákærður fyrir ýmis auðgunarbrot, svo sem fjár­ svik, fjárdrátt, þjófnað, eignaspjöll og skjalafölsun. Hann er sagður hafa svikið út vörur, blekkt fólk til að millifæra pening á bankareikn­ ing sinn á fölskum forsendum og að hafa nýtt sér prókúruumboð fyrirtækja sem hann átti ekki hlut í til að kaupa vörur og þjónustu fyrir tugmilljónir króna, meðal annars fartölvur, snjallsíma, úlp­ ur, bíómiða, skyndibitamat og afnot af bílaleigubílum. Brot Sig­ urðar eru talin nema yfir þrjátíu milljónum króna. Þá sat hann einnig í gæsluvarð­ haldi grunaður um kynferðisbrot gegn ellefu einstaklingum. Vann 13 milljónir Íslensk getspá leitar nú logandi ljósi að heppnum Íslendingi sem tók þátt í Eurojackpot. Síðast­ liðinn föstudag vann hann nefni­ lega 13 skattfrjálsar milljónir. Vinningstölurnar voru 10, 11, 25, 32 og 49. Miðinn var keypt­ ur í Hagkaupum Smáralind þann 18. desember síðastliðinn. Hann keypti þrjár raðir með jóker. Lík­ lega mun vinningurinn – ef hann ratar heim – létta undir hvað jólainnkaup varðar. Á standið á leigumarkaðnum hefur farið versnandi síð­ ustu ár, sé horft til leiguverðs og framboðs íbúða. Biðlist­ ar eftir félagslegum íbúðum hafa lengst, leiguverð hefur hækkað upp úr öllu valdi og eru sífellt fleiri um hituna. DV hefur áður fjallað um neyðarástandið á leigumarkaðnum, þar sem því var ýmist lýst sem frum­ skógi eða villta vestrinu. Borgaryfir­ völd hyggjast fjölga leiguíbúðum, en þau áform eru enn á frumstigi. Þessi þróun á leigumarkaðanum kemur ekki síst illa niður á námsmönnum, en þar sem ástandið er svona slæmt virðast stúdentar ekki vilja hætta sér út á hinn almenna leigumarkað og eru mörg dæmi um að stúdentar flytji ekki úr íbúðum þegar að námi lýkur, heldur haldi áfram að greiða skrásetningargjald í HÍ til að þurfa ekki að flytja. DV ræddi við einstak­ linga sem notfæra sér það að búa áfram í íbúðinni þrátt fyrir að vera ekki í námi. Þeir bentu á stöðuna á leigumarkaði og að kjör þeirra væru þannig að erfitt væri að vera á al­ mennum leigumarkaði. Langir biðlistar eftir námsmannaíbúðum Skrásetningargjaldið nemur 75.000 krónum á ári, sem er í sjálfu sér lítil hækkun á mánaðarleigunni sé mið­ að við að leiguverð á almenna leigu­ markaðnum er tugum þúsunda króna hærra á mánuði í flestum til­ vikum. Enda eru námsmannaíbúðir ætlaðar efnaminna fólki sem vinn­ ur kannski lítið með skóla eða er á námslánum. Á höfuðborgarsvæðinu annast tvær sjálfseignarstofnanir íbúðir fyr­ ir námsmenn, það eru annars vegar Félagsstofnun stúdenta og hins vegar Byggingarfélag námsmanna. Félagsstofnun stúdenta hefur í dag 1.100 leigueiningar til umráða, sem allar eru í notkun. Rebekka Sigurðar­ dóttir, upplýsingafulltrúi Félags­ stofnunar stúdenta, segir að í dag búi um 1.800 manns í íbúðum frá stofn­ uninni og að um 800 manns séu á biðlista. Vandamálið fer vaxandi, en árið 2005 voru 427 á biðlista eftir námsmannaíbúð hjá Félagsstofnun stúdenta, en sú tala var komin upp í 1.100 árið 2013 og var 800 í ár. Að sögn Rebekku má rekja lækkunina milli ára til 300 nýrra leigueininga sem stofnunin tók í notkun í ár. Hún segir þó ástandið á leigumarkaði stúdenta slæmt og að fæstir þeirra sem eru á biðlista komist nokkurn tíma að. Rebekka segir þó að vel sé fylgst með því að þeir sem búi hjá stofnuninni séu sannanlega í skóla og þurfi að sýna fram á námsfram­ vindu til að mega halda íbúðinni. Þurfa ekki að sýna fram á námsframvindu Hjá Byggingafélagi námsmanna fengust þau svör að um 300 manns séu á biðlista, en BN hefur yfir að ráða rétt rúmlega 500 leigueining­ um. Þeir sem sýni fram á skólavist við háskóla geti verið áfram í íbúð­ inni, en ekki er sérstaklega beðið um að leigjendur sýni fram á að þeir hafi í raun stundað nám við skól­ ann, til dæmis með því að sýna fram á námsframvindu. Böðvar Jónsson, framkvæmdastjóri Byggingafélags námsmanna, segir að þetta sé hið almenna vinnulag sem farið er eftir, en í einstaka tilfellum sé kallað eftir frekari gögnum frá fólki og það beðið um að færa sönnur á að það sé að stunda nám. Þrátt fyrir þetta vinnu­ lag kveða úthlutunarreglur BN á um að sýna þurfi fram á námsframvindu til að hafa leigurétt. Aðspurður hvort það skjóti ekki skökku við að fylgja þessu ekki bet­ ur eftir, þar sem svo margir séu á biðlista og að um sé að ræða stofn­ un sem eigi að þjónusta náms­ menn í húsnæðisþörf ítrekar Böðvar að alltaf sé kallað eftir vottorði um skólavist og það nægi þeim. Hann segir að oftar er beðið um að sýna fram á námsframvindu þegar um er að ræða íbúðir sem eru á eftirsóttari svæðum, til að mynda í miðborginni. Binda vonir við áætlanir borgaryfirvalda Rebekka og Böðvar binda bæði miklar vonir við áform borgaryfir­ valda um að fjölga íbúðum fyrir námsmenn, en lengi hefur staðið til að bæta stöðu námsmanna á leigu­ markaðinum, en lítið hefur gerst í þeim efnum. Í nóvember síðast­ liðnum kynnti Dagur B. Eggertsson áætlun borgaryfirvalda um að fjölga leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu, en eitt loforð nýkjörinnar borgar­ stjórnar var að fjölga íbúðum á höf­ uðborgarsvæðinu um 2.500–3.000. Í erindi Dags kom fram að fyrirhugað er að byggja 1.100 nýjar stúdentaí­ búðir í borginni á næstu árum. Fé­ lagsstofnun stúdenta fær þar af 750 íbúðir, Háskólinn í Reykjavík 250 og Byggingafélag námsmanna 100 íbúðir. Það eru því einhverjar blikur á lofti um að hægt verði að grynnka á húsnæðisvanda námsmanna og annarra hópa í framtíðinni, en á meðan lengjast biðlistarnir. n Búa í námsmannaíbúð- um en stunda ekki nám n Leigjendur skrá sig í nám til að halda ódýrum námsmannaíbúðum Jón Steinar Sandholt jonsteinar@dv.is Oddagarðar við Sæmundargötu Oddagarðar voru teknir í notkun af Félagsstofnun stúdenta árið 2013. Myndin tengist fréttinni ekki beint. „Oftar er beðið um að sýna fram á námsframvindu þegar um er að ræða íbúðir sem eru á eftirsóttari svæð- um, til að mynda í mið- borginni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.