Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Síða 20
Jólablað 23. desember 201420 Fólk Viðtal
„Hefði aldrei átt að
yfirgefa Óðmenn“
É
g ætla að reyna að tala við þig
á íslensku mér finnst það svo
gaman. Ég fæ allt of sjaldan
tækifæri til þess,“ segir söng-
konan og blómabarnið Shady
Owens við blaðamann. Hún hefur
hlýtt viðmót (svona í gegnum sím-
tólið) og dillandi hlátur og gleði
einkenna samtal okkar. Hún segist
sakna Íslands en tengingin hefur
máðst burt síðustu ár þá einkum
vegna fráfalls góðra vina. Hún kveðst
þrá það heitast að koma og spila, þó
ekki væri nema eina tónleika til við-
bótar hér.
„Ég hef lengi ætlað að koma til
þess að halda tónleika. Það hefur því
miður ekki gengið eftir. Ég ætlaði að
koma í fyrra en því miður þá blessað-
ist það ekki. Ég er með „bucket“-lista
yfir hluti sem ég þarf að klára, svona
áður en það verður um seinan. Þú
skilur,“ segir söngkonan og lýsir jafn-
framt eftir áhugasömum tónleika-
höldurum. „Þú kemur þessu á fram-
færi fyrir mig,“ segir hún og hlær.
„Það er ennþá einhver kraftur í mér.
Ég finn það alveg, svona þegar ég fæ
tækifæri til þess að þenja mig,“ bæt-
ir hún við.
Frökk, ung söngkona
Shady Owens eða Patrica Gail
Owens eins og hún var skírð, fæddist
í St. Louis í Chicago árið 1949. Fað-
ir hennar var bandarískur og móð-
irin íslensk. Saman áttu þau fjögur
börn og ólust þau upp að mestu í
Bandaríkjunum. Shady kom fyrst til
Íslands árið 1956 þá aðeins sjö ára
gömul ásamt móður sinni en þær
mæðgur stoppuðu þó ekki lengi, að-
eins í nokkrar vikur hjá skyldmenn-
um. Foreldrar hennar skildu og kom
hún því hingað öðru sinni árið 1962
ásamt móður sinni og þremur syst-
kinum. „Þarna var ég þrettán ára og
mamma ein með okkur. Ég fór í ís-
lenskunám í Gaggó Vest og komst
einhvern veginn í gegnum það, ég
skil eiginlega ekki enn þá hvernig ég
gerði það. Ég þekkti engan, og átti
erfitt með að fóta mig. Ég átti enga
félaga þar. Við fórum svo til Ameríku
þegar mamma giftist aftur tveimur
árum síðar.“
Þegar Shady var 17 ára fluttust
þau í annað sinn til Íslands, þá á her-
stöðina í Keflavík. Þarna hafði hún
fengið sviðsbakteríuna en áður hafði
hún komið fram ásamt ungum pilti
ytra og endurfluttu þau þekkt Sonny
og Cher lög. Dúettinn kölluðu þau
„Sonny and Shady“ og ákvað hún
þar með að taka nafnið Shady upp
sem listamannsnafn. „Og það ein-
hvern veginn festist. Þarna var ég
orðin alveg viss um hvað mig lang-
aði að gera í framtíðinni,“ útskýrir
hún.
Fjölskyldan bjó sem áður sagði
í Keflavík og reyndi hin unga söng-
kona enn á ný að fóta sig á nýjum
stað. Hún starfaði á Keflavíkurflug-
velli en segir þó að tónlistin hafi átt
hug hennar allan. Hún leitaði á náð-
ir nokkurra tónlistarmanna á svæð-
inu, þótti frökk og sagðist vilja vinna
með þeim. „Ég leitaði mér bara að
bandi,“ útskýrir hún.
Ferillinn hófst í Ungó
Það var svo kvöld eitt að hún hlýddi
á Óðmenn í Stapanum að hún leitaði
baksviðs til þeirra Vals Emilssonar,
Jóhanns G. og Magnúsar Kjartans-
sonar. „Ég fór eftir tónleikana og
bauð þeim aðstoð mína. Þeir lofuðu
að vera í sambandi við mig. Sem þeir
gerðu svo ekki neitt. Ég var mjög sár
við þá, virkilega vonsvikin.“
Söngkonan unga dó þó ekki ráða-
laus. Þeir skyldu veita henni tækifæri
enda var hún þess fullviss að ef þeir
myndu aðeins heyra hana syngja,
fengi hún ef til vill að vera með.
„Mamma mín þekkti þó mömmu
Vals og hafði samband við hana.
Hún eiginlega skammaði hann,“
segir hún kímin. „Það endaði svo á
því að ég mætti á æfingu með þeim
og fékk að sýna hvað í mér bjó. Þeir
voru bara mjög hrifnir held ég. Svo
það fór svo að ég spilaði mína fyrstu
tónleika í sal Ungó og söng fjögur
lög með þeim. Ég man svo vel eftir
þessu,“ útskýrir Shady dreymin.
„Þetta var um áramót og húsið
var troðfullt, ég var svolítið stressuð
en allt gekk vel þetta var alveg yndis-
legt.“
Eftir tónleikana buðu Óðmenn
Shady formlega að gerast meðlimur
í sveitinni. Þau spiluðu saman í
Austurbæ alla sunnudaga og segir
Shady að það hafi reynst henni erfitt
að samræma líferni skemmtikrafts-
ins og vinnuna á flugvellinum. „Ég
keyrði á milli á næturnar til þess að
mæta dauðþreytt til vinnu á mánu-
dagsmorgni. Þetta gekk alveg um
sinn, en þó ekki til lengdar.“ Shady
sagði því upp vinnunni skömmu
síðar.
Sér eftir Óðmönnum
Um þetta leyti var hljómsveitin
Hljómar ein allra vinsælasta sveit
landsins auk Flowers. Shady vakti
fljótlega áhuga þeirra félaga í Hljóm-
um. Hún tók að syngja með þeim lag
og lag en að endingu gekk hún alveg
til liðs við þá sem varð til þess að Óð-
menn lögðust tímabundið af.
„Ég hefði átt að vera með Óð-
mönnum, ég sé það nú þegar ég
horfi til baka. Þetta voru svo góðir
strákar og ég fór ekki nógu vel með
þá. Ég sé eftir því að hafa ekki ver-
ið þeim trú. En ég var ung og þarna
voru Hljómar bestir og stærstir. Mig
langaði bara enn lengra. Svo var ég
líka mjög hrifin af Gunna [Þórðar-
syni], svo ég stökk á tækifærið. Það
má segja að allt hafi farið upp á við
þaðan.“
Sem kunnugt er söng Shady eitt
þekktasta lag sitt Ég elska alla, með
Hljómum. Lagið kom út á annarri
LP-plötu þeirra árið 1968 en platan
var tekin upp í Lundúnum undir
stjórn Tonys Russell. Þess má geta
að á meðal blásara í laginu er hinn
heimsfrægi Ronnie Scott á tenórsax-
ófón.
„Við spiluðum aðeins í Bretlandi
þarna. Þetta var ótrúlegur tími sá
allra besti í tónlistinni að mínu mati.
Það hljómar ekkert eins og það gerði
þarna, ekki nokkurn tímann aftur. Ég
er svo þakklát fyrir að hafa fengið að
vera hluti af þessu. Í dag virðist mér
allt vera nokkurs konar uppspuni,
tónlist og jafnvel heilu hljómsveit-
irnar eru verksmiðjuunnar núna.“
Shady Owens þarf vart að kynna en hún var ein
ástsælasta söngkona Íslendinga um árabil. Hún kom
með krafti inn í íslenskt menningarlíf, var eitt andlita
hippatímans hér á landi og söng sig eftirminnilega
inn í hug og hjörtu landsmanna um árabil. Shady
hvarf þó að er virðist jafnharðan úr sviðsljósinu fyrir
fáeinum áratugum. Blaðamaður DV hafði upp á
henni símleiðis á dögunum en hún er búsett í norður-
sveitum Englands ásamt eiginmanni sínum.
María Lilja Þrastardóttir
maria@dv.is
„Í dag virðist
mér öll vinsæl
tónlist vera uppspuni
og heilu hljómsveit-
irnar verskmiðju-
framleiddar
„Þú saknar ekki einhvers
sem þú hefur ekki átt“
Shady og eiginmanni hennar hef-
ur ekki orðið barna auðið. En hún
reynir að láta það ekki á sig fá, þó
að vissulega sé tilhugsunin um
fjölskyldulíf heillandi í seinni tíð.