Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2014, Page 29
Lífsstíll 29Jólablað 23. desember 2014 Lifðu jólin af 4 ráð járnmannsins Guys Leech 1 Freistingarnar eru alls stað-ar yfir hátíðarnar. Passaðu að hreyfa þig svo þú eigir inni fyrir kræsingunum. Farðu út að ganga með börnunum, bjóðstu til að fara út með hund nágrannans eða hvað sem er sem fær blóðið til að renna hraðar. 2 Ef þú leggur í vana þinn að drekka áfengi yfir jólin er gott að muna þá reglu að drekka eitt glas af vatni eftir hvern drykk. 3 Reyndu að koma smá græn-meti og ávöxtum inn í dag- lega neyslu yfir hátíðarnar. Fisk- máltíð á milli jólaboða gæti gert gæfumuninn. 4 Sparaðu þig fyrir uppá-haldið þitt. Slepptu eftir- réttinum nema þegar besta kakan hennar ömmu þinnar er í boði. n Auðveldara en það lítur út fyrir að vera Þ að er fátt skemmtilegra en að gleðja ástvini um jólin með fallegum gjöfum. Þótt innihald pakkanna og hug- urinn á bak við þá skipti vissulega mestu máli er alltaf gam- an að gleðja augað með fallegum gjafapappír. Við höfum mismikinn tíma og hæfileikar til að föndra eru ekki í öllum blóð bornir, en það þarf alls ekki að vera flókið og tímafrekt að útbúa sinn eigin gjafapappír. Þá getur líka verið skemmtilegt að leyfa börnunum að útbúa pappírinn. Það er um að gera að gefa hugmynda- fluginu lausan tauminn og vera frumlegur. Ekki spillir fyrir ef hægt er að nýta eitthvað sem til er á heim- ilinu til pappírsgerðarinnar. n ÚtbÚðu þinn eigin pAppír Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Einföld útfærsla Það er ekki flókið að útbúa sinni eigin gjafapappír. Einangrunarlímband Þessi útfærsla á jólapappír er í raun eins einföld og hún getur orðið. Það eina sem þú þarft er brúnn pappír og einangrunarlímband. Fyrir þá sem vilja lífga upp á pappírinn er hægt að lita og skreyta límabandið með tússlitum. Þá má líka nota fleiri en eina gerð af límbandi. Útkoman er ótrúlega skemmtilegur, persónulegur og stílhreinn jólapappír. Landakort Það er klassísk lausn þegar í ljós kemur á síðustu stundu að það er ekki til gjafapappír, að nota dagblöð. Hérna er búið að taka þá hugmynd og færa hana upp á næsta stig. Gömul landa- og borgarkort úr pappír eru tilvalin sem gjafapappír. Það má svo lífga upp á pakkann og gera hann jólalegri með skemmtilegu pakkaskrauti, eða jafnvel bara snærisspotta í fallegum lit. Snjókorn Við fyrstu sýn virðist liggja tölu- verð vinna á bak við þennan gjafapappír, en raunin er alls ekki sú. Það eina sem þú þarft eru tveir litir af pappír. Þú pakkar gjöfinni inn í aðra örkina og klippir skemmtilegt mynstur í hina áður en þú setur hana utan um. Til að fá svona mynstur er best að brjóta örkina saman í fernt og klippa mynstrið út í hliðarnar. Útkoman verður einstaklega fallegur gjafapappír með snjókornaívafi. Upp og niður Þetta lítur kannski út fyrir að vera mjög metnaðarfullt verkefni, en það er ekki raunin. Þú þarft að vísu allavega þrjár gerðir af pappír og að kunna að munda skæri. Hitt kemur að sjálfu sér. Til að útbúa gjafapappír eins á myndinni er best að klippa pappírinn niður í ræmur, en þó ekki alla leið þannig að örkin fari í sundur. Svo eru ræmurn- ar settar yfir og undir hver aðara, eins og sést á myndinni, og fest undir með límbandi. Einfalt og stílhreint Ótrúlega einföld lausn sem kemur fallega út undir jólatrénu. Það sem til þarf er pappírsörk, málning, pens- ill, gjafaborði og skraut. Eins og með annan pappír þar sem málning kemur við sögu er gott að útbúa hann tímanlega svo hann sé orðinn þurr þegar kemur að innpökkun. Á pappírinn má mála hvað sem er, þessar dopp- ur eru bara ein hugmynd. Gjafaborðinn er svo bundinn utan um og skreytt að vild með gjafaskrauti. Það er þó ekki nauðsynlegt. Kartöflustimplar Þessa gerð af pappír er tilvalið að leyfa börnunum að útbúa. Það eina sem til þarf er pappír, í hvaða lit sem er, hráar kartöflur skornar til helminga og barnvæn málning. Ein- hver fullorðinn þarf þó að vera til taks til að hafa yfirumsjón með verkinu og skera mynstur út í kartöflurnar, eins og sést á myndinni. Öll fjölskyldan getur því haft gaman af þessu. Það þarf samt að passa að vera tímanlega í að gera þennan pappír svo málningin nái að þorna áður en gjöfunum er pakkað inn í hann. Kenro albúm og rammar Innrammarinn.is Rauðarárstíg 33 Fæðubótarefni úr macarót � 100% náttúruleg vara með lífræna vottun Inniheldur hvorki soja (ísó�avóna), mulin hörfræ né hormóna U m boðsaðili: Vistor hf. Hefur góð áhrif á: - Orku og úthald - Beinþéttni - Þyngdarstjórnun - Frjósemi og grundvallar- heilbrigði Revolution Macalibrium Macarót fyrir karlmenn www.facebook.Revolution-Macalibrium www.vistor.is ®Revolution Macalibrium Fæst í apótekum og Heilsuhúsinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.