Bændablaðið - 09.07.2015, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júlí 2015
Við strendurnar umhverfis
Miðjarðarhaf, út til Asóreyja og
allt norður í Oslóarfjörð í Noregi
vex stórvaxin og blaðmikil
jurt víða í fjörukömbum.
Þar myndar hún blaðmikla
beðju með þykkri og kröftugri
stólparót. Hún lætur það lítið á
sig fá þótt brimrótið gangi yfir
hana og dafnar ágætlega í söltum
jarðveginum.
Þetta er strandbetan,
strandbeðjan eða strandblaðkan,
Beta vulgaris og venjulega er var.
maritima bætt við hið fræðilega
tegundarheiti. Það tengir hana
við sjávarstrendur. Heitið beta er
komið úr forngrísku. Það birtist
fyrst í ritum Aristótelesar drjúgum
þrem öldum fyrir vort tímatal og
er notað í flestum málum Evrópu
líkt og orðið kirkja, með nokkrum
frávikum þó.
Pýramídar og steinaldarbyggðir
Elstu heimildir benda til þess að
hin ræktaða beta hafi upphaflega
verið tekin til ræktunar í löndunum
fyrir botni Miðjarðarhafs. Fyrst
framan af voru það einkum
matarmikil blöðin sem nýtt voru
til manneldis. Samkvæmt þeirra
tíma læknavísdómi þótti jurtin
einnig heilsusamleg þeim sem
þjáðust af sótthita. Því stór og
safarík blöðin voru að sjálfsögðu
svalandi. Því voru þau sögð bæta
meltingu og allt yfirbragð fólks
sem var langt niðri vegna harðlífis.
Og blöðkurnar þótti líka gott að
leggja við opin sár líkt og gert var
með græðisúru.
Í fornleifauppgreftri víða um
lönd hafa fundist vísbendingar um
að betan hafi skipt máli í fæðuöflun,
læknisdómum eða átrúnaði. Þetta
svæði spannar fornaldargrafir
í Austurlöndum nær, egypska
pýramída og alveg norður í rústir
steinaldarbyggða í norðanverðu
Hollandi. Því getur verið nokkuð
erfitt að finna upphafspunktinn.
Blaðbeta og stilkbeta
Beinn afkomandi þessara fyrstu
ræktunarnota er blaðbetan. Af
henni eru tveir stofnar. Hin
venjulega blaðbeta, blaðbeðja,
silfurbeðja, strandblaðka eða á
sumum málum „mangold“ hefur
verið í ræktun frá örófi alda.
Ræktuð sem einær jurt og í stórum
dráttum matreidd og notuð eins
og spínat. Blaðbeturækt er mikil
um alla Suður-Evrópu og norður
til Þýskalands. Í norðurálfunni er
hún ræktuð í fremur litlum mæli í
heimagörðum núorðið. Önnur gerð,
öllu nýrri, er sá stofn blaðbetu sem
nefnist stilkbeta eða stilkbeðja. Sá
er orðinn öllu vinsælli.
Stofninum mun fyrst hafa verið
lýst á átjándu öld. Á enskri tungu
dregur hann nafn sitt af því og
kallast „Swiss Char“, þótt hann hafi
ekki önnur tengsl við það land en
þau að náttúrufræðingurinn sem það
gerði var Svisslendingur, Gaspard
Bauhin að nafni. Bauhin þessi
lýsti líka gulrófunni sem tegund
og sagði hana vera sænska. Báðum
í sömu bók. Enska heitið er yfirfært
af franska heitinu á ætiþistli. Þótt
útlitið sé ólíkt er bragðið svipað og
því mátti nota stilkbetuna í ætiþistils
stað – líkt og sojakjöt í borgfirskum
nautabökum. Stilkbetan hefur
litfagra og skrautlega blaðleggi sem
taka sig vel út í matjurtagarðinum.
Blöðin eru líka með litsterkum
æðum. Við suðu tapast liturinn
nokkuð en fyrir þá sem líkar vel við
grænmetissalöt í regnbogalitunum
er hún sannkallaður fjársjóður.
Fóðurbeta eða fóðurrófa
Fóðurbetan er eitt af hinum ræktuðu
afbrigðum betunnar. Það er óvíst
hvaðan hún er upprunnin eða hvar.
Líklega hefur hún verið Rómverjum
kunn við upphaf okkar tímatals.
Og til hennar vísað þegar sagt
var í rómverskum ritum að safi úr
beturótum tæki ólyst úr fólki og
bætti samgang kynjanna. Að auki
lagaði hann öndunarerfiðleika og
losaði slím úr lungum.
Fóðurbetan er líka kölluð
fóðurrófa og er fyrst og fremst
ræktuð til skepnufóðurs, sáð að
vori og uppskorin að hausti sem
vetrarforði fyrir búfé, einkum
kýr og svín. Þær verða gífurlega
stórar og ekki góðar til átu vegna
þess hve fljótt þær tréna. En á
meðan þær eru á stærðinni milli
hænueggs og eplis hefur trénunin
ekki náð yfirhöndinni. Þá er kreistur
úr þeim safinn. En sem matjurt er
hún ekkert sérlega spennandi. Þó
er af henni nokkur sætukeimur.
Og þessi sæti keimur átti eftir að
hafa mikil pólitísk, efnahagsleg
og söguleg áhrif sem brenglaði
valdastrúktúrinn í Vestur-Evrópu
varanlega á átjándu öld og í upphafi
þeirrar nítjándu.
Sykurbetan og morgunverður
með Friðriki mikla
Því það var árið 1747 að þýski
efnafræðingurinn Andreas Margraf
fann upp aðferð til að einangra
sykurkristalla úr fóðurrófum með
því að rífa þær niður og leysa þær
upp í alkóhóli. Sá sykur var í engu
eftirbátur þess sykurs sem unninn var
úr sykurreyr í hitabeltisnýlendum
Breta, Spánverja og Portúgala.
Nemandi hans, Frans Karl Achard,
fann upp mun betri og skilvirkari
aðferð til að vinna sykurinn úr
beturófunum. Frans Karl var í
sérlegu uppáhaldi hjá Friðriki
öðrum, sem venjulega er kallaður
Friðrik mikli, Prússakóngi og sat
með honum morgunverð vikulega
um leið og hann las honum skýrslu
um nýjustu framfarir og vísindi í
ríkinu.
Að undirlagi Friðriks mikla
voru svo valdar út 23 fóðurbetur
með sérlega miklu sætubragði. Frá
þessum 23 einstaklingum er svo
sykurbetan eða sykurrófan komin
eftir miklar víxlanir og kynbætur
fram og aftur til að auka sykurmagnið
og bæta lögunina fyrir vélvædda
úrvinnslu. Um aldamótin 1800
voru fyrstu sykurverksmiðjurnar
komnar í fullan gang í Þýskalandi
og Frakklandi. Þar með var einokun
sykurveldanna rofin endanlega.
Og líklega er þar upphafið að hinu
gegndarlausa og óholla sykuráti
nútímafólks.
Rauðbetan – ekki bara
rauðrófurauð!
Rauðrófan eða rauðbetan (rauðbeða
upp á dönsku!) rekur lestina í
þessari upptalningu. Eiginlega
veit enginn hvaðan hún kom eða
hvernig hún varð til. Um það
eru margar ráðgátur. Rómverjinn
Plíníus getur þeirra á fyrstu öld
okkar tímatals. Sumir telja hana
hafa orðið til í Egyptalandi á dögum
faraóanna. Aðrir giska á að hún sé
blendingur við aðra betutegund sem
vex við strendur Atlasfjalla og á
Kanaríeyjum. Fyrstu heimildir sem
lesa má um hana í Vestur-Evrópu
eru frá Þýskalandi 1558. Í þeim
heimildum er hún kölluð rauð rófa
og um 1780 er búið að skrifa um
hana í enskar garðyrkjubækur. Þar
er hún kölluð rauð rómversk rófa.
Til Norðurlanda var hún komin
til að vera um miðja nítjándu öld.
Rauðrófan býður upp á fjölda
litbrigða. Fyrir utan að vera
rauðrófurauð eru til afbrigði með
hvítum, gulum, órans og röndóttum
rótum.
Líklega þekkjum við rauðbetuna
best sem innlagðar rauðrófur í
edikslegi. Eða í hinni rómuðu,
rússnesku bort-súpu. En litarefnið
í rauðrófum (betanín, E-númerið er
162) kemur víða við og er nánast
í öllum rauðlituðum matvælum
og varalit. Rauðrófusafi er
sagður lækka blóðþrýsting og
oft ráðlagður fólki sem hefur við
háan blóðþrýsting að stríða. Eitt
til tvö glös af safanum á að bæta
ástandið undrafljótt. Og svipað
magn eflir líka styrk til átaka við
erfið verkefni.
Fróðleiksbásinn
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur
Beta, rófa, beðja eða blaðka
Ítalskur blaðbetuakur. Strandbeta í kjörlendi sínu – Bretlandseyjar.
Rauðbetur – rauðar og hollar.
Fóðurbetur bíða vetrarins.
Stilkbeta á beði.