Bændablaðið - 09.07.2015, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júlí 2015
Mynd komin
á landsliðið
Landslið Íslands í hestaíþróttum
er að taka á sig mynd fyrir
heimsmeistaramótið sem haldið
verður í Herning í Danmörku
dagana 3.–9. ágúst næstkomandi.
Fimm knapar tryggðu sér sæti
í liðinu í gegnum úrtökumót í
júní; Reynir Örn Pálmason á
Greifa frá Holtsmúla, urðu efstir
í fimmgangi (F1), Guðmundur
Björgvinsson á Hrímni frá Ósi
sem sigraði í fjórgangi (V1),
Sigurður Sigurðarson og Arna
frá Skipaskaga urðu efst í tölti
(T1), Gústaf Ásgeir Hinriksson
og Geisli frá Svanavatni unnu
fimmgang (F1) ungmenna og
Guðmunda Ellen Sigurðardóttir
og Týr frá Skálatjörn, sem urðu
efst í fjórgangi (V1) ungmenna.
Einnig hefur Páll Bragi
Hólmarsson liðsstjóri valið Eyjólf
Þorsteinsson á Oliver frá Kvistum
í hópinn, en þeir félagar hafa
verið að gera það gott á mótum
í Svíþjóð núna í vor. Ríkjandi
heimsmeistarar, þeir Jóhann R.
Skúlason, Bergþór Eggertsson og
hinn ungi Konráð Valur Sveinsson,
eru einnig með keppnisrétt á mótinu
til að verja sína titla. Enn eiga eftir
að veljast sex íþróttaknapar í liðið,
þrír fullorðnir og þrjú ungmenni,
ásamt sex kynbótahestum sem
munu koma fram fyrir Íslands
hönd.
Þá hafa þjálfarar landsliðsins
verið kynntir, en þau Þórarinn
Eymundsson, Elvar Einarsson
og Hugrún Jóhannsdóttir verða
liðsstjóranum, Páli Braga, til halds
og trausts. /GHP
Hluti af sveitastörfunumBílaþjónusta N1
Sími 440-1120
N1 er umboðsaðili Cultor landbúnaðardekkja á Íslandi. Cultor er undirmerki frá
Mitas sem er einn stærsti framleiðandi landbúnaðar- og iðnaðardekkja í heiminum.
Hagkvæmari kostur í dekkjum fyrir landbúnaðinn.
www.n1.is facebook.com/enneinn
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
E
N
N
7
37
20
0
3/
15
Undir traktorinn,
vagninn og allt
þar á milli
HROSS&HESTAMENNSKA
Frábært fjórðungsmót
− vel heppnuð hátíð hestamanna á Austurlandi
Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir leggur Sif frá Syðstu-Fossum á glæsilegan
Mynd / Jón Björnsson
Fjórðungsmót Austurlands var
haldið á Stekkhólma dagana
2.–5. júlí síðastliðinn. Kringum
200 hross komu þar fram í keppni
og kynbótasýningum. Mótsgestir
komu hvaðanæva að af landinu.
Um 600–700 manns voru viðstödd
Fjórðungsmót íslenska hestsins á
Austurlandi. Framkvæmd mótsins
var í höndum hestamannafélagsins
Freyfaxa en um 70 sjálfboðaliðar
lögðu sitt af mörkum á hátíðinni.
Bergur og Katla hlutskörpust í
töltkeppni
Háð var töltkeppni 18 keppnispara
og urðu Bergur Jónsson og Katla
frá Ketilsstöðum hlutskörpust
með einkunnina 8,11. Bergi var
jafnframt veitt viðurkenning fyrir
framúrskarandi reiðmennsku við
mótslok. Vilborg Smáradóttir á Þoku
frá Þjóðólfshaga I fór með sigur af
hólmi í töltkeppni áhugamanna,
Fanndís Viðarsdóttir á Væntingu frá
Hrafnagili í ungmennaflokki, Kristín
Ellý Sigmarsdóttir á Sigurbjörgu
frá Björgum í unglingaflokki og
Kristján Árni Birgisson á Sjéns frá
Bringu í barnaflokki.
Sif frá Syðstu-Fossum
sigraði í gæðingakeppni
Keppt var í gæðingakeppni og
sigraði Sif frá Syðstu-Fossum
A-flokk gæðinga. Knapi Sifjar
er Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir.
Klerkur frá Bjarnanesi og Kári
Steinsson sigruðu B-flokk gæðinga.
Gæðingakeppnin var æsispennandi
og munaði aðeins brotabroti á efstu
keppendum.
Yngri knapar öttu kappi í
gæðingakeppni. Fyrrnefnd Fanndís
Viðarsdóttir á Væntingu frá
Hrafnagili sigraði í ungmennaflokki,
Agnar Ingi Rúnarsson á Siglu frá
Gunnarsstöðum í unglingaflokki
og Kristján Árni Birgisson á Sjéns
frá Bringu fóru mikinn og tryggðu
sér annan bikar í barnaflokki.
Kristján Árni hlaut FT-fjöðrina,
viðurkenningu fyrir fallega
reiðmennsku, frábært samspil,
lipurð og léttleika við mótslok.
Þá var Guðmundur Þorleifsson
heiðraður fyrir ævistarf sitt í þágu
hestamannafélagins Freyfaxa
en hann hefur verið viðloðandi
hestamannafélagið síðan um miðja
síðustu öld.
Höskuldur Jónsson sigraði á
Gleði í 100 metra flugskeiði
Höskuldur Jónsson á Gleði frá
Sámsstöðum sigraði í keppni í
100 metra flugskeiðið en þau þutu
út brautina á Stekkhólma á 8,22
sekúndum. Keppnin þótti almennt
spennandi en allar niðurstöður
og úrslit má nálgast á heimasíðu
hestamannafélagsins Freyfaxa.
Þá hlutu rúm 30 hross
kynbótadóm á mótinu. Edda
frá Egilsstaðabæ hlaut hæstu
aðaleinkunn þeirra, 8,55. Hún
hlaut 8,14 fyrir sköpulag og 8,83
fyrir kosti. Edda er 7 vetra undan
Gaum frá Auðsholtshjáleigu og
Yrju frá Skálmholti. Hún hlaut m.a.
einkunnina 9,5 fyrir vilja og geðslag
og 9 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið.
Sýnandi hennar var Guðmundur
Björgvinsson.
Næsthæstu einkunn hlaut
Bylgja frá Sauðárkróki, 8,47.
Hún hlaut 7,93 fyrir sköpulag og
8,83 fyrir kosti. Bylgja er 6 vetra
undan Blæ frá Hesti og Glóblesu
frá Skelfisstöðum. Hún hlaut m.a.
einkunnina 9 fyrir tölt, skeið, vilja
og geðslag og fegurð í reið. Sýnandi
Bylgju var Tryggvi Björnsson.
Endurskoða þarf heildarstefnu
hestamannamóta
„Endurskoðunar er þörf í heildar-
stefnu hestamannamóta á Íslandi.
Það þarf að gæta þess að mót hafi
ekki neikvæð áhrif á hvað annað,
því við megum ekki við því. Það
þarf að endurskoða dagsetningar á
Íslands- og Fjórðungsmótum þau ár
sem heimsmeistaramót eru haldin.
Þannig fundum við fyrir því að
knapar sáu sér ekki fært að fara á
Fjórðungsmót vegna Íslandsmótsins
sem byrjar nokkrum dögum síðar,“
segir Bjarki Sigurbjartsson, formaður
hestamannafélagsins Freyfaxa. /GHP
Fallegt og vel við haldið 161,8 fm einbýli
með bílskúr á fallegum útsýnisstað við
Fjarðarveg, Þórshöfn Langanesi
Forstofa og hol sem er opið inn í eldhús og bjarta stofu. Til hægri
er stórt eldhús með upprunalegri innréttingu og búri. Úr holi er
svo komið inn á gang þar sem er bað og þrjú herbergi. Parket er á
gólfum hússins nema forstofu, baði og þvottahúsi. Þvottahús með
útgengi út í bakgarð og góð geymsla. Búið er að skipta um stóran
hluta af gleri í húsinu.
Einangrað geymsluloft er yfir öllu húsinu.
Húsið og bílskúr var klætt að utan árið 2007 með álklæðningu.
Bílskúr er frístandandi með innkeyrslu og inngöngudyrum.
Máluð gólf, rafmagn og kalt vatn.
Frekari upplýsingar veitir Kristín Sigurey löggiltur fasteignasali
sími 820-8101 eða kristin@101.is
Verð -19 millj