Bændablaðið - 09.07.2015, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júlí 2015
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
KROSSGÁTA Bændablaðsins
KRYDD ÍSHROÐI LJÁR MUNDA HEITI YNDIS ÞEFA
STILVÍSUN K Í R S K O T U N
KBOX A S S I
MÁLM-
HÚÐA
HANGA T I N A
UDÝRA-HLJÓÐ R R G L A T A S
R E G Ð A SVELGURMÓTMÆLI I Ð A
TÆMA
SVIPAÐ
BOGI Á L Í K A ÓHEILINDIÍ RÖÐ F A L S SVIF
Í RÖÐKASTA
TSEINLÆTINÝLEGA
TÝNA
DUNDA
P R Ý Ð A GAUL ÁNHYGGST U T A N FRAM-BURÐUR GILDRA ÁFEGRA
R Ý R A HAMINGJUKANTUR G Æ F U
HÆLA
HELDUR
BROTT D Á S TMINNKA
Ó M NEYTAÞÓTTI N J Ó T A OFRAFERÐAST F Ó R N AHLJÓM
F A S MJÖGNÆRÐAR A L L HEGNARJÁLA R E F S A MERGÐFRAM-KOMA
A SKÍTURMÖGL T A Ð MJÖG A F A R GRÖMÓSVIKINN E R G
S K O L A BÓKÁI R I T
LOFT-
TEGUND
HÁTTUR E T A NÞVO
T U L D R A
STEIN-
TEGUND
BARDAGI K A L K FRÁ VÖRU-MERKI ÓMULDRA
U
R
R
R
T
ESPA
A
R
ÍLÁT
E
F
I
A
T
T
A
FÍFLAST
ÚT-
HLUTAÐIR
A
G
T
A
A
F
S
S
T
T
SKERGÁLA
TVEIR
EINS
16
SNÚA HEYI AÐ BAKI BUNDIÐ BLUND MOKUÐU LAND SKAP-RAUNA
HLÍTA
FJÖRGAST
MÁLMUR
HRÓP
EINATT
FLEY
HELBER
BYLGJA ULLAR-FLÓKI
SPIL
KLAKA
GJALDA
RÚN
Í RÖÐHÓPS
BLAÐRA
UPPGERÐAR-
VEIKI
LIÐUGUR
ÁLAG
BEISLI
SVEIA
SLAKUR TEMUR SAMTÖKLEIKUR
ÁKAFLEGA
SKILABOÐ
DRYKKJAR-
ÍLÁT
GUMS
AÐ AUKI
MATAR-
ÍLÁT
SÝKJA
RENTA
GELDING
TVEIR
EINS
SKJÖN
SPENDÝR
HINDRA
HEIMTING
PRÓFAÐFLJÓT-FÆRNI
BLAÐUR
SAMS-
KONAR
ÖRLÖG
GLANSA
DÝRA-
HLJÓÐ
TERTA
ÞRÁÐUR
UPPISTAÐA
ÍÞRÓTTA-
FÉLAG SPRÆKURLÍMBAND
STÆKKA
ÓLÆTI
HÓLMI
ÚR HÓFI
NAFNBÓT
STÚLKA
MISJAFN
EINS
ÖGNKVK NAFN
Í RÖÐ
17
Lesendabás
Landbúnaðarráðherra bað
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands
að skoða árangur af markmiðum
samnings um starfsskilyrði
mjólkurframleiðslunnar.
Ég hélt að megintilgangur hennar
hafi átt að vera að fara yfir þau
markmið er snúa að verðlagningu
á mjólk til bænda, til neytenda og
mjólkuriðnaðarins.
Ég sagði reyndar einhvers staðar
þegar skýrslan kom út að ég vonaði
að hún hafi ekki kostað mikið. Það
getur reyndar ekki verið þegar flett
er gegnum hana og skoðuð efnistök
og ályktanir.
Látum ályktanir liggja á milli
hluta – þar ræður viðhorf þeirra sem
á penna halda. Rétt eins og sú ályktun
sem ég skrifa hér um skýrsluna. Í það
minnsta er þetta tæplega það gagn
sem vonast var eftir til að byggja
framtíðarstefnumótun á.
Mikill árangur
En samt ber að undirstrika að
árangur af markmiðum er í hendi.
Afurðaverð hefur hækkað til bænda,
mjólkuriðnaður hefur hagrætt og
neytendur njóta verulegs ávinnings
í hlutfallslega lægra verði. Reyndar
er þetta stórkostlegur árangur og
furðar mig hve hljótt hefur verið
um þennan hluta.
Bæði Bændasamtök Íslands
og Landssamband kúabænda hafa
reynt að vekja á þessu athygli – en
ekki fengið verðskuldaðan sess. Ég
get ekki annað en furðað mig á að
fulltrúar launþegahreyfingarinnar
í verðlagsnefnd hafi ekki fagnað
þessari meginniðurstöðu. Það er
óþarfa hógværð hjá þeim – enda
fullyrði ég að þau sem þar sátu náðu
góðum árangri fyrir almenning.
Þau ár sem ég átti samstarf
við fulltrúa BSRB og ASÍ í
verðlagsnefnd, get ég vottað að
trúmennska þeirra fyrir hlutverki
sínu var sterk, og skýrslan lýsir
árangri þeirra. Þetta ber ekki að
skilja sem svo að einhver helgislepja
hafi verið yfir vinnu nefndarinnar,
– en þar var tekist á með rökum og
skilningi á aðstæðum.
Aðeins um samanburð og
efnistök
Á þessu kalda vori er nú til dæmis
áhugavert að reyna að skilja hvernig
hægt er með beinum samanburði
að bera saman búskaparaðstæður
í öðrum löndum. Ég sé t.d. að
sumir vinir mínir í bændastétt, í
nágrannalöndum okkar, eru þegar
búnir með fyrsta slátt. Kýr búnar að
vera á beit í allt að 7–8 vikur. Kýr
hér á landi voru að komast út í fyrstu
viku júnímánaðar.
Eitt dæmi um ótrúverðugan
samanburð í skýrslunni
„Mjólkin kostaði samtals 15½ milljarð
króna á ári frá íslenskum bændum, en
innflutt mjólk hefði kostað tæplega
7½ milljarð á bændaverði, með
flutningskostnaði hingað til lands.“
Hér virðist hvorki vera borið saman
sama vara né sama verð.
Íslensk vara er fersk mjólk sem
nota má í hvaða vöru sem er; erlent
verð er meðalverð á undanrennu
og smjöri sem ekki er hægt að nota
til framleiðslu nema lítils hluta
mjólkurafurða.
Verð á Íslandi er með öllum
styrkjum en verð erlendis er án
tillits til styrkja við framleiðslu. Til
viðbótar er bændaverð í dag langt
undir eðlilegri verðlagningu, − sem
gerir þennan samanburð sérstaklega
ósvífinn − að ekki sé meira sagt.
Það er krísuástand í evrópskri
mjólkurframleiðslu og reyndar um
heim allan, í dag. Hundruð búa
verða gjaldþrota í hverri viku. Að
taka bændaverð í dag og gera ekki
neina tilraun til að leiðrétta fyrir
ástandi sem nú ríkir er því einfaldlega
alvarleg blekking − að ekki sé talað
um hvernig að því er síðan staðið og
við hvað er miðað.
Megum ekki missa meiri tíma
Við höfum sóað tíma og fjármunum í
að bíða eftir þessari skýrslu − tíma sem
við hefðum betur varið til að treysta
framtíðarhorfur mjólkurframleiðslu á
Íslandi. Þar er því miður ekki burðugt
ástand mála og vandséð hvernig á að
sækja sambærilegar kjarabætur fyrir
bændur − eins og almennt er verið
að semja um.
Vissulega er landbúnaðarráðherra
að leitast við að opna og auka
möguleika landbúnaðarins – það
verður að virða þá tilraun hans til
að breikka umræðu um landbúnað.
Það á hann að gera – en umfjöllun og
efnistök skýrslunnar eru hins vegar
ekki að takast það.
Skýrslan staðfestir reyndar að
bæði bændur og neytendur hafa náð
markmiðum sínum á undanförnum
árum.
Haraldur Benediktsson,
bóndi og alþingismaður
Markmiðum mjólkursamnings hefur verið náð
− vonandi hefur skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands ekki kostað mikið
Verð á Íslandi er með öllum styrkjum en
verð erlendis er án tillits
til styrkja við framleiðslu.
Til viðbótar er bændaverð
í dag langt undir eðlilegri
verðlagningu − sem gerir
þennan samanburð sér-
stak lega ósvífinn − að ekki
sé meira sagt.
V ið höfum sóað tíma og fjármunum í að bíða eftir þessari skýrslu − tíma sem við hefðum betur varið til að treysta
framtíðarhorfur mjólkurframleiðslu á Íslandi. Þar er því miður
ekki burðugt ástand mála og vandséð hvernig á að sækja
sambærilegar kjarabætur fyrir bændur − eins og almennt er
verið að semja um.
Haraldur Benediktsson.
Ég sagði reyndar einhvers staðar þegar skýrslan kom út að ég vonaði að hún hafi ekki kostað mikið. Það getur reyndar
ekki verið þegar flett er gegnum hana og skoðuð efnistök og
ályktanir.