Bændablaðið - 09.07.2015, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júlí 2015
238 talsins og fjöldi mjólkurkúa
tæplega 5.700. Af þeim voru
skýrslufærðar um 70%. Meðalnyt
árskúa var á þeim tíma tæplega
3.900 kíló. Á meðalbúi í Eyjafirði
voru þá 18,4 árskýr. Nú er staðan
með þeim hætti að búum hefur
fækkað verulega, þau eru 93 í dag
á svæðinu með rúmlega 6.000
mjólkurkýr, 96% búanna halda
skýrslu og meðalstærð þeirra er
51,4 árskýr. Meðalnytin var tæplega
5.700 kíló á síðasta ári.
„Það hafa orðið miklar
framfarir á þessu sviði, fóðrun og
aðbúnaður allur hefur stórbatnað
og kynbótastarfið skilað verulegum
árangri,“ segir Guðmundur.
Í framhaldi af skráningu fjósa
í héraðinu á árunum 1996–´97
og spurningum til kúabænda um
líklega framvindu í búskap þeirra
næstu fimm árin spáði Guðmundur
því að kúabúin á svæðinu yrðu um
100 talsins að tíu árum liðnum,
„og það stóðst nánast alveg, þau
voru eitthvað rétt yfir 100 á þeim
tíma, en þarna árið 1997 þótti þetta
afskaplega svartsýn spá hjá mér.“
Fyrsta skrifstofan í fjósinu í
Lundi
Tæknin hefur líka tekið breytingum,
fyrsta skrifstofa Guðmundar var í
tilraunafjósi í Lundi sem þá var ofan
Akureyrar. Þar var 48 kúa fjós þar
sem fram fóru afkvæmarannsóknir
á nautum, á Rangárvöllum var svo
ungneytafjós þar sem gerðar voru
uppeldistilraunir. Þegar byggðin
færðist upp að landi jarðanna á
áttunda og níunda tug síðustu aldar
var þessi starfsemi lögð af. Um tíma
rak SNE einnig svínabú, sem lagt
var niður árið 1984.
„Við sátum þarna fyrstu árin
með lítið fullkomnar reiknivélar
og allt var lagt saman í höndunum.
Í það fór alveg gríðarlegur tími, svo
það má sannarlega segja að mikil
framför hafi orðið með tilkomu
tölvutækninnar. Síðan má tala um
byltingu á þessu sviði þegar allt
skýrsluhald nautgriparæktarinnar
fór inn í miðlægan gagnagrunn þar
sem mikið magn upplýsinga liggur
fyrir og niðurstöður nást nánast á
augabragði. Á þeim byggist hið
sameiginlega kynbótastarf og hver
bóndi fær margs konar fróðleik um
einstakar kýr og bú sitt í heild,“
segir Guðmundur.
Skiptast á skin og skúrir í
landbúnaði
Uppgangur var í landbúnaði á
fyrsta áratug Guðmundar í starfi,
frá 1970 til 1980, bændur voru
bjartsýnir og byggðu sín bú upp
af myndarskap. Töluvert var
um fjósbyggingar á þeim tíma í
héraðinu. Vindar tóku að blása úr
annarri átt upp úr 1980, dregið var
saman í mjólkurframleiðslunni og
settar á takmarkanir. Framkvæmdir
drógust í kjölfarið saman og þannig
var ástandið allt fram yfir árið 1995
þegar aftur fór að birta til.
„Það skiptast á skin og skúrir
í landbúnaði líkt og í öðrum
atvinnugreinum. Það var afskaplega
rólegt yfir um all langt skeið og fór
ekki að lifna að nýju fyrir en um
miðjan 10. áratuginn. Það var svo
þokkalega bjart yfir allt fram að
hruni, ef til vill má orða það svo að á
árunum fyrir hrun hafi markaðurinn
verið mjög líflegur, verð á bæði
jörðum og kvóta rauk upp úr öllu
valdi, var eiginlega út úr öllu korti,
þetta gekk út í öfgar og einkenndist
af ákveðinni ævintýramennsku,“
segir Guðmundur um góðærisárin
svonefndu.
Algjör stöðnun ríkti á árunum
eftir hrun en hin síðari misseri
hafa framkvæmdir tekið vel við
sér. „Menn eru að endurheimta
bjartsýnina, síðustu tvö ár hafa
verið ágæt.“
Bændur hafa staðið sig vel
Markaðurinn kallar á aukið
magn, bæði í mjólk og kjöti
sem bæði skýrist af auknum
fjölda ferðamanna hér á landi og
einnig viðhorfsbreytingu meðal
landsmanna sjálfra þegar kemur
að neyslu á mjólkurvörum.
„Síðustu tvö ár hefur neyslan
aukist verulega, það hefur ef
svo má segja orðið sprenging.
Fituneysla er ekki lengur litin
hornauga, Íslendingar hafa tekið
mjólkurvörum af öllu tagi vel og
bændur hafa brugðist við kallinu
og reyna hvað þeir mögulega
geta að auka framleiðslu sína til
að fullnægja innanlandsþörfinni.
Að mínu mati hafa þeir staðið sig
mjög vel, en vissulega tekur tíma
að ná framleiðslunni upp,“ segir
Guðmundur.
Áfram mikil innanlandsneysla
Hann telur að innanlandsneyslan
aukist áfram á komandi árum.
„Þetta var heilmikið stökk, þannig
að vera má að eitthvað dragi úr
aukningunni á næstu árum, en
almennt er ég þó bjartsýnn með
mjólkurneysluna. Helsta óvissan
sem ég finn fyrir nú við starfslok
varðar stjórnvöld og til hvaða
aðgerða þau grípa, það verður
erfitt fyrir okkur að keppa við
framleiðslu frá öðrum löndum þar
sem aðstæður til búskapar eru betri
en hér. Þá rennur samningur milli
ríkis og kúabænda út eftir eitt og
hálft ár og það er mjög líklegt að
á honum verði breytingar, en ég
vona svo sannarlega að ekki komi
til einhverjar kollsteypur,“ segir
Guðmundur.
Í hlutverki sálusorgara
Guðmundur segir að ánægjulegt
hafi verið að starfa sem ráðunautur í
Eyjafirði. Oft hafi verið bjart yfir á
þeirri nær hálfu öld sem hann hefur
sinnt ráðgjöf til bænda og mikið um
að vera þó svo að einnig hafi komið
erfiðari tímar þar sem samdráttur
var ríkjandi með tilheyrandi
svartsýni.
Þegar vindar hafi blásið hvað
mest á móti hafi hann á stundum
upplifað sig í hlutverki sálusorgara.
„Það kom fyrir að maður
þyrfti að hughreysta menn. Ekki
er auðvelt að taka ákvörðun um
stórar breytingar á búskaparháttum
eða jafnvel að bregða búi eins
og iðulega kom fyrir á mestu
samdráttartímunum,“ segir hann.
Gaman að grúska í gömlum
skræðum
Guðmundur kvíðir ekki
aðgerðarleysi við starfslok. „Nú
fer ég bara að gera það sem mér
sýnist,“ segir hann.
„Ég hef undanfarin ár verið
dálítið að grúska mér til gamans
og þá helst í ættfræði, við þá iðju er
tíminn fljótur að líða.“ Guðmundur
var tvívegis í ritnefnd vegna útgáfu
bókanna Byggðir Eyjafjarðar, fyrst
1990 og síðan 2010, og segir það
hafa verið skemmtilegt verkefni.
„Þarna fékk ég nasaþefinn af því
að gramsa í gömlum heimildum
og get vel hugsað mér að halda því
áfram.“ Guðmundur hefur starfað
með Sögufélagi Eyfirðinga sem
gefur út tímaritið Súlur og einnig
Sögufélagi Hörgársveitar sem gefur
úr árbókina Heimaslóð með ýmsum
fróðleik úr sveitarfélaginu. /MÞÞ
Ráðunautar í heimsókn hjá Pétri Ó. Helgasyni á Hranastöðum. F.v. Guðmundur H. Gunnarsson, Ólafur G. Vagnsson, Pétur, Þórarinn Lárusson og Guðmundur
P. Steindórsson. Myndin er tekin um 1980.
„Það hafa orðið gríðarlegar breytingar á þeim tíma sem ég hef starfað sem ráðunautur í nautgriparækt,“ segir
Guðmundur. Mynd / MÞÞ
Guðmundur var tvívegis í ritnefnd vegna útgáfu bókanna Byggðir Eyjafjarðar,
fyrst 1990 og síðan 2010, en sú bók kom út fyrir tveimur árum. Í tilefni
útgáfunnar var boðið upp á veglega tertu í Hlíðarbæ. Ritnefndin, Guðmundur
lengst til vinstri, Jóhann Ólafur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson kunnu
ágætlega að meta veitingarnar.
Fuglafælurnar frá Scarecrow eru
mannúðleg og vistvæn lausn sem
halda fuglum varanlega frá.
Nánari upplýsingar
www.fuglavarnir.is
sala@fuglavarnir.is
Sími 896 1013
Þarftu að
halda fuglum frá?
Haltu
starra, gæ
sum
og álftum
frá