Bændablaðið - 09.07.2015, Side 33

Bændablaðið - 09.07.2015, Side 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júlí 2015 238 talsins og fjöldi mjólkurkúa tæplega 5.700. Af þeim voru skýrslufærðar um 70%. Meðalnyt árskúa var á þeim tíma tæplega 3.900 kíló. Á meðalbúi í Eyjafirði voru þá 18,4 árskýr. Nú er staðan með þeim hætti að búum hefur fækkað verulega, þau eru 93 í dag á svæðinu með rúmlega 6.000 mjólkurkýr, 96% búanna halda skýrslu og meðalstærð þeirra er 51,4 árskýr. Meðalnytin var tæplega 5.700 kíló á síðasta ári. „Það hafa orðið miklar framfarir á þessu sviði, fóðrun og aðbúnaður allur hefur stórbatnað og kynbótastarfið skilað verulegum árangri,“ segir Guðmundur. Í framhaldi af skráningu fjósa í héraðinu á árunum 1996–´97 og spurningum til kúabænda um líklega framvindu í búskap þeirra næstu fimm árin spáði Guðmundur því að kúabúin á svæðinu yrðu um 100 talsins að tíu árum liðnum, „og það stóðst nánast alveg, þau voru eitthvað rétt yfir 100 á þeim tíma, en þarna árið 1997 þótti þetta afskaplega svartsýn spá hjá mér.“ Fyrsta skrifstofan í fjósinu í Lundi Tæknin hefur líka tekið breytingum, fyrsta skrifstofa Guðmundar var í tilraunafjósi í Lundi sem þá var ofan Akureyrar. Þar var 48 kúa fjós þar sem fram fóru afkvæmarannsóknir á nautum, á Rangárvöllum var svo ungneytafjós þar sem gerðar voru uppeldistilraunir. Þegar byggðin færðist upp að landi jarðanna á áttunda og níunda tug síðustu aldar var þessi starfsemi lögð af. Um tíma rak SNE einnig svínabú, sem lagt var niður árið 1984. „Við sátum þarna fyrstu árin með lítið fullkomnar reiknivélar og allt var lagt saman í höndunum. Í það fór alveg gríðarlegur tími, svo það má sannarlega segja að mikil framför hafi orðið með tilkomu tölvutækninnar. Síðan má tala um byltingu á þessu sviði þegar allt skýrsluhald nautgriparæktarinnar fór inn í miðlægan gagnagrunn þar sem mikið magn upplýsinga liggur fyrir og niðurstöður nást nánast á augabragði. Á þeim byggist hið sameiginlega kynbótastarf og hver bóndi fær margs konar fróðleik um einstakar kýr og bú sitt í heild,“ segir Guðmundur. Skiptast á skin og skúrir í landbúnaði Uppgangur var í landbúnaði á fyrsta áratug Guðmundar í starfi, frá 1970 til 1980, bændur voru bjartsýnir og byggðu sín bú upp af myndarskap. Töluvert var um fjósbyggingar á þeim tíma í héraðinu. Vindar tóku að blása úr annarri átt upp úr 1980, dregið var saman í mjólkurframleiðslunni og settar á takmarkanir. Framkvæmdir drógust í kjölfarið saman og þannig var ástandið allt fram yfir árið 1995 þegar aftur fór að birta til. „Það skiptast á skin og skúrir í landbúnaði líkt og í öðrum atvinnugreinum. Það var afskaplega rólegt yfir um all langt skeið og fór ekki að lifna að nýju fyrir en um miðjan 10. áratuginn. Það var svo þokkalega bjart yfir allt fram að hruni, ef til vill má orða það svo að á árunum fyrir hrun hafi markaðurinn verið mjög líflegur, verð á bæði jörðum og kvóta rauk upp úr öllu valdi, var eiginlega út úr öllu korti, þetta gekk út í öfgar og einkenndist af ákveðinni ævintýramennsku,“ segir Guðmundur um góðærisárin svonefndu. Algjör stöðnun ríkti á árunum eftir hrun en hin síðari misseri hafa framkvæmdir tekið vel við sér. „Menn eru að endurheimta bjartsýnina, síðustu tvö ár hafa verið ágæt.“ Bændur hafa staðið sig vel Markaðurinn kallar á aukið magn, bæði í mjólk og kjöti sem bæði skýrist af auknum fjölda ferðamanna hér á landi og einnig viðhorfsbreytingu meðal landsmanna sjálfra þegar kemur að neyslu á mjólkurvörum. „Síðustu tvö ár hefur neyslan aukist verulega, það hefur ef svo má segja orðið sprenging. Fituneysla er ekki lengur litin hornauga, Íslendingar hafa tekið mjólkurvörum af öllu tagi vel og bændur hafa brugðist við kallinu og reyna hvað þeir mögulega geta að auka framleiðslu sína til að fullnægja innanlandsþörfinni. Að mínu mati hafa þeir staðið sig mjög vel, en vissulega tekur tíma að ná framleiðslunni upp,“ segir Guðmundur. Áfram mikil innanlandsneysla Hann telur að innanlandsneyslan aukist áfram á komandi árum. „Þetta var heilmikið stökk, þannig að vera má að eitthvað dragi úr aukningunni á næstu árum, en almennt er ég þó bjartsýnn með mjólkurneysluna. Helsta óvissan sem ég finn fyrir nú við starfslok varðar stjórnvöld og til hvaða aðgerða þau grípa, það verður erfitt fyrir okkur að keppa við framleiðslu frá öðrum löndum þar sem aðstæður til búskapar eru betri en hér. Þá rennur samningur milli ríkis og kúabænda út eftir eitt og hálft ár og það er mjög líklegt að á honum verði breytingar, en ég vona svo sannarlega að ekki komi til einhverjar kollsteypur,“ segir Guðmundur. Í hlutverki sálusorgara Guðmundur segir að ánægjulegt hafi verið að starfa sem ráðunautur í Eyjafirði. Oft hafi verið bjart yfir á þeirri nær hálfu öld sem hann hefur sinnt ráðgjöf til bænda og mikið um að vera þó svo að einnig hafi komið erfiðari tímar þar sem samdráttur var ríkjandi með tilheyrandi svartsýni. Þegar vindar hafi blásið hvað mest á móti hafi hann á stundum upplifað sig í hlutverki sálusorgara. „Það kom fyrir að maður þyrfti að hughreysta menn. Ekki er auðvelt að taka ákvörðun um stórar breytingar á búskaparháttum eða jafnvel að bregða búi eins og iðulega kom fyrir á mestu samdráttartímunum,“ segir hann. Gaman að grúska í gömlum skræðum Guðmundur kvíðir ekki aðgerðarleysi við starfslok. „Nú fer ég bara að gera það sem mér sýnist,“ segir hann. „Ég hef undanfarin ár verið dálítið að grúska mér til gamans og þá helst í ættfræði, við þá iðju er tíminn fljótur að líða.“ Guðmundur var tvívegis í ritnefnd vegna útgáfu bókanna Byggðir Eyjafjarðar, fyrst 1990 og síðan 2010, og segir það hafa verið skemmtilegt verkefni. „Þarna fékk ég nasaþefinn af því að gramsa í gömlum heimildum og get vel hugsað mér að halda því áfram.“ Guðmundur hefur starfað með Sögufélagi Eyfirðinga sem gefur út tímaritið Súlur og einnig Sögufélagi Hörgársveitar sem gefur úr árbókina Heimaslóð með ýmsum fróðleik úr sveitarfélaginu. /MÞÞ Ráðunautar í heimsókn hjá Pétri Ó. Helgasyni á Hranastöðum. F.v. Guðmundur H. Gunnarsson, Ólafur G. Vagnsson, Pétur, Þórarinn Lárusson og Guðmundur P. Steindórsson. Myndin er tekin um 1980. „Það hafa orðið gríðarlegar breytingar á þeim tíma sem ég hef starfað sem ráðunautur í nautgriparækt,“ segir Guðmundur. Mynd / MÞÞ Guðmundur var tvívegis í ritnefnd vegna útgáfu bókanna Byggðir Eyjafjarðar, fyrst 1990 og síðan 2010, en sú bók kom út fyrir tveimur árum. Í tilefni útgáfunnar var boðið upp á veglega tertu í Hlíðarbæ. Ritnefndin, Guðmundur lengst til vinstri, Jóhann Ólafur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson kunnu ágætlega að meta veitingarnar. Fuglafælurnar frá Scarecrow eru mannúðleg og vistvæn lausn sem halda fuglum varanlega frá. Nánari upplýsingar www.fuglavarnir.is sala@fuglavarnir.is Sími 896 1013 Þarftu að halda fuglum frá? Haltu starra, gæ sum og álftum frá

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.