Morgunblaðið - 29.08.2015, Side 7

Morgunblaðið - 29.08.2015, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta hefur gengið mjög vel það sem af er,“ segir Gunnar Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Læknavaktarinn- ar, en vaktin veitir ekki eingöngu heil- brigðisþjónustu á höfuðborgarsvæð- inu heldur einnig landsbyggðinni. Síðan í mars hefur Læknavaktin svarað í vaktsímanúmerið 1700 utan dagvinnutíma fyrir Heilbrigðisstofn- un Norðurlands á Húsavík. Hjúkrun- arfræðingar á sömu stofnun hafa síð- an svarað í númerið á dagvinnutíma. Um er að ræða tilraunaverkefni með Sjúkratryggingum Íslands og stendur til að bæta við fleiri stofnun- um í september, eins og á Sauðár- króki og Heilbrigðisstofnun Suður- lands. Í lok október er gert ráð fyrir að allar stofnanir verði orðnar hluti af sameiginlegri símaráðgjöf utan dag- vinnutíma; um kvöld og helgar, og hún komin í hendur Læknavaktarinn- ar við Smáratorg í Kópavogi. Um er að ræða sameiginlega síma- ráðgjöf sem hjúkrunarfræðingar veita, og taka þeir þá ákvörðun hvort ástæða sé til að vísa fólki til læknis eða leita annarra úrræða. Áfram verða öll alvarleg veikindi og slys til- kynnt í neyðarnúmerið 112. Gunnar segir mikið hagræði felast í þessu fyrirkomulagi. Hjúkrunarfræð- ingar hafi náð að afgreiða 50-60% er- indanna en öðrum verið vísað áfram. Með þessu sé komið í veg fyrir óþarfa útköll lækna á bakvakt á landsbyggð- inni. Gunnar segir Læknavaktina hafa gert ráðstafanir til að taka við auknum verkefnum. Misjafnt er hve margir hjúkrunarfræðingar eru á vakt við þetta verkefni hjá Læknavaktinni, fer það allt eftir álagi, en að jafnaði verða þeir 2-3 á kvöldin og einn yfir nóttina. Að sögn Gunnars munu fleiri staðir á Norður- landi bætast við 1. september, 15. sept- ember bætist við Suðurland og síðan koll af kolli, þar til öllum landsmönnum verði beint í þetta númer með fyrir- spurnir og ráðgjöf um kvöld og helgar.  Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni leggja senn niður símsvörun um kvöld og helgar  Númerið 1700 verður fyrir allt landið  Hjúkrunarfræðingar til svara hjá Læknavaktinni og afgreiða flest erindi Læknavaktin svarar landsbyggðinni Morgunblaðið/Golli Heilbrigðisþjónusta Hjúkrunar- fræðingar við störf. Mynd úr safni. Þegar þú teflir í klukkutíma notarðu jafn mikla orku og skákklukka þarf til að ganga í næstum 100 ár Það er kraftur í þér. Gagnvirk orkusýning Landsvirkjunar við Ljósafoss varpar ljósi á orkuna sem býr í öllum hlutum. Ljósafossstöð er í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Verið velkomin. Opið 10-17 alla daga. Leiðarlýsingar á landsvirkjun.is/heimsoknir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.