Morgunblaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015
Helga María Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur á slysa- ogbráðamóttöku Landspítalans, er 30 ára í dag. Hún er Reyk-víkingur í húð og hár og hefur unnið á Landspítalanum sem
hjúkrunarfræðingur í sjö ár. Í vetur vinnur hún með skóla en þá held-
ur hún áfram meistaranámi í blaða- og fréttamennsku.
Helga á eina dóttur, en svo skemmtilega vill til að sú stutta á átta
ára afmæli á morgun. „Ég ætla að fagna deginum með fjölskyldu og
vinum í kvöld en síðan snýst morgundagurinn um Emmu,“ segir
Helga spurð hvernig stóra deginum verði varið.
Kærasti Helgu, Hörður, varð þrítugur í fyrra og afmælið í kvöld
verður sameiginlegt þrítugsafmæli, þó að kallinn sé töluvert eldri.
Helga tók Andra sér til fyrirmyndar í sumar og var mikið á flandri.
„Ég var mikið erlendis í sumar. Fyrst fórum við þrjú saman til Spánar
í slökunarferð en síðan erum við Höddi nýkomin úr ferð til Ítalíu og
Hollands. Róm er frábær borg og ég vonast til þess að heimsækja
hana aftur í náinni framtíð.“
Í frístundum sínum þykir Helgu skemmtilegt að teikna. Mottóið
heilbrigð sál í hraustum líkama er ofarlega í huga hennar, en hún
stundar bæði fimleika og crossfit af miklum krafti.
Helga óttast ekki aldurinn, þó að vissulega sé hún ekkert unglamb
lengur. „Mér finnst forréttindi að fá að eldast og það er markmið hjá
mér að komast í mitt besta form á fertugsaldrinum.“ johann@mbl.is
Mæðgurnar Helga á afmæli í dag og Emma, dóttir hennar, á morgun.
Mæðgurnar eiga
afmæli um helgina
Helga María Guðmundsdóttir er 30 ára í dag
M
argrét Sigmarsdóttir
fæddist 29. ágúst
1965 í Reykjavík en
ólst lengst af upp í
Vesturbænum í
Kópavogi. Hún bjó í Kaupmannahöfn
á námsárum sínum en býr núna í
Vesturbænum í Reykjavík.
Nám og starf
Margrét varð stúdent frá Kvenna-
skólanum 1984, lauk kennaraprófi frá
Kennaraháskólanum árið 1987,
stundaði BA-nám í sálfræði við Há-
skóla Íslands frá 1992-1994, lauk
embættisprófi í sálfræði árið 1996 frá
Uppeldisháskólanum í Kaupmanna-
höfn og hlaut sérfræðiviðurkenningu
árið 2007. Margrét lauk doktorsprófi
á sviði klínískrar sálfræði barna frá
Háskólanum í Kaupmannahöfn 2013.
Margrét er með víðtæka þjálfun í
Margrét Sigmarsdóttir, doktor í sálfræði – 50 ára
Fjölskyldan Á útskriftardegi yngsta barnsins, frá vinstri: Hera, Jóhannes, Embla, Hugi, Björn Einar og Margrét.
Meðhöndlar hegðunar-
raskanir hjá börnum
Hjónin Margrét og Jóhannes á göngu við Hverfisfljótið í júlí í sumar. „Við
elskum útivist og höfum gengið með sama hópnum undanfarin tvö sumur.“
Hinn 18. júlí síðastliðinn voru gefin saman í Lágafellskirkju þau Kristín G. Sigur-
steinsdóttir og Stefán Már Haraldsson.
Brúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is