Morgunblaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Ég tók þá ákvörðun eftir að ég fékk heilahristinginn að hætta í fótboltanum. Það hafði ekki verið planið, þvert á móti, en þegar þú ert með hausverk dag eftir dag, framtaksleysið er algert og þér er stöðugt óglatt er í rauninni sjálf- hætt. Ingvar Þóroddsson læknir á Akureyri mælti líka eindregið með því að ég léti þetta gott heita ef ég vildi sleppa við langtíma afleið- ingar,“ segir Atli Sveinn Þór- arinsson, leikmaður KA og einn leikreyndasti miðvörðurinn í ís- lenska fótboltanum. Hann segist varla hafa hreyfst úr sófanum í 2-3 vikur eftir að hafa fengið tvö sak- leysisleg skot í höfuðið fyrir réttum tveimur mánuðum en núna sé hann allur að koma til. Atli starfar sem kennari í Naustaskóla á Akureyri og í stað bóklegra greina ætlar hann að kenna sund og aðrar íþróttir í vetur. Hann segist enn hafa ástríðu fyrir fótboltanum og eigi eflaust eftir að verða viðloðandi íþróttina áfram, hugsanlega sem þjálfari og svo í gegnum strákana sína, en hann á þrjá syni, 7, 10 og 13 ára, með eiginkonu sinni, Höllu Bjark- lind. Atli hefur leikið í meistaraflokki í 19 ár, frá því að hann lék fyrst með KA á móti Skallagrími í sept- ember 1996. Hann hefur á þessum árum fengið að kenna á ófáum oln- bogum og hausum andstæðinga, fyrir utan allar þær sendingar og skot sem hann hefur skallað í burtu. Sjálfur hefur hann ekkert gefið eftir. Hraðari leikur, ekki endilega harðari Blaðamaður rifjar upp sambæri- leg meiðsli leikmanna í fótbolta og handbolta karla og kvenna og spyr Atla hvort þessar boltagreinar séu orðnar harðari en áður. „Ég held ekki að aukinni hörku sé um kenna og í mínu tilviki hafði þetta ekkert með hörku að gera,“ segir Atli. „Hins vegar hefur fót- boltinn orðið hraðari með árunum og boltarnir fljúga hraðar. Það eitt og sér hefur fjölgað návígjum, þó svo að hvert og eitt þeirra sé ekki endilega harðara en áður. Ég held að áður hafi menn frekar harkað af sér og látið sig hafa það. Núna eru menn trúlega meðvitaðri en áður og leita frekar til læknis.“ Hann rifjar upp að á síðustu æf- ingu fyrir leik KA og HK í 1. deild- inni hafi hann skallað „þéttingsfast ristarskot“ frá marki, sem ekki hefði átt að vera neitt tiltökumál. Hann vankaðist þó við höggið, en hélt samt að hann væri klár í leik- inn daginn eftir. Þá vildi ekki betur til en svo að í upphitun fékk hann boltann aftur í hausinn. Samt sem áður byrjaði hann leikinn og komst stórslysalaust frá fyrri hálfleiknum. Það hólf var alveg tómt „Þá bara hreinlega gafst ég upp. Ég gat ekki meira og hef ekki spil- að fótbolta síðan. Ég var bara búinn á því og þeir sem hafa fengið heilahristing vita hvað ég er að tala um. Líkaminn var í góðu standi og ég var ekkert á þeim buxunum að hætta, en þegar hausinn getur ekki tekið við fleiri höggum er kominn tími til að fara að gera eitthvað annað. Þú skiptir víst ekki um haus. Nokkrum dögum eftir síðasta leikinn minn hitti ég enska stráka sem spila með KA og ég reyndi að útskýra fyrir þeim á ensku hvað hafði gerst. Það var sama hvað ég reyndi, ég fann ekki réttu orðin á ensku. Það hólf var alveg tómt. Það er erfitt að útskýra þessa líð- an, en maður er bara alveg frá.“ Atli segist hafa tekið því mjög rólega frá því að hann slasaðist. Hann hafi þó reynt að fara út að skokka rólega nokkrum sinnum síðan, en það hafi skilað sér í höfuðverk í nokkra daga á eftir. Á hverjum einasta degi finni hann fyrir votti af hausverk. Hann segir að nudd hjá Önnu Birnu Sæmundsdóttur hafi hjálp- að honum mikið við að losa um stífleika í hálsinum og minnkað hausverkinn. Kennsla í Naustaskóla og æfingar í eldhúsinu -En er líf eftir fótboltann? „Að sjálfsögðu. Ég hef mjög gaman af kennslunni og veturinn fer vel af stað hjá okkur í Nausta- skóla. Svo tek ég boltann í gegnum strákana mína, sem eru gallharðir KA-menn. Reyndar blundar í þeim Víkingshjarta eftir að við bjuggum í Fossvoginum á Valsárunum. Síð- ustu 20 ár hef ég varla komið heim í kvöldmat á réttum tíma, en núna er það breytt og ég reyni að taka þátt í matseldinni. Hef reyndar átt- að mig á því að ég kann ekkert fyrir mér í þeim fræðum, en það stendur vonandi til bóta. Það er mjög líklegt að ég snúi mér að þjálfun í framtíðinni og ég er að vinna í því að ná mér í auk- in réttindi. Ef maður hins vegar slær í gegn í eldhúsinu gæti ég þurft að endurskoða það, við sjáum til.“ „Þú skiptir víst ekki um haus“  Atli Sveinn Þórarinsson ákvað að leggja fótboltaskóna á hilluna eftir höfuðhögg og heilahristing  „Þegar hausinn getur ekki tekið við fleiri höggum er kominn tími til að fara að gera eitthvað annað“ Ljósmynd/Daníel Starrason KA-strákar Feðgarnir Egill Gauti, Ari Valur, Atli Sveinn og Ívar Hrafn munu eflaust fylgjast með leik KA gegn HK í 1. deildinni í dag, enda mikið í húfi í baráttunni í 1. deildinni. Atli Sveinn hefur ekki spilað fótbolta í tvo mánuði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ekkert gefið eftir Valsmennirnir Atli Sveinn og Matarr Jobe í baráttu við Tryggva Bjarnason, Stjörnunni. Atli Sveinn var um tíma fyrirliði Vals. Atli Sveinn er 35 ára og hefur leikið 426 leiki í mótum á veg- um KSÍ á 20 árum auk fjöl- margra leikja í meistaraflokki í öðrum mótum. Þá á hann níu A-landsleiki, fjóra leiki með landsliði undir 21 árs og sjö leiki með U19 landsliðinu. Á Ís- landi hefur Atli leikið með KA og Val og með síðarnefnda lið- inu varð hann bæði Íslands- og bikarmeistari. Hann hefur bor- ið fyrirliðabandið hjá báðum félögunum. Þá lék hann í fjögur ár með Örgryte í sænsku úrvalsdeild- inni og á með félaginu tæplega 50 leiki. Þjálfari Örgryte á þessum tíma var Eric Hamrén, sem nú er landsliðsþjálfari Svía. Með KA, Val og Örgryte 500 LEIKIR Á 20 ÁRUM Kristín Huld Sigurðardóttir, for- stöðumaður Minjastofnunar, segir að verið sé að kanna ýmis svæði, bæði í Reykjavík og annars staðar, sem möguleg svæði til að skilgreina sem verndarsvæði í byggð. Til að mynda komi svæði á Akureyri, Ísa- firði, Seyðisfirði, Djúpavogi og Siglu- firði til greina. Þá sé sérstaklega litið til Tjarnargötunnar í Reykjavík. Á lokadögum síðasta þings var stjórnarfrumvarp samþykkt sem gaf ríkinu meiri heimildir til að friðlýsa svæði. Er lögð sú kvöð á sveitar- stjórnir á fjögurra ára fresti að endurmeta verndarsvæði innan sveitarfélagsins og skoða hvort beri að stækka þau eða breyta mörkum að öðru leyti. Ráðherra tekur ákvörðun um vernd að fenginni tillögu frá sveitar- stjórn eða Minja- stofnun. Forsætisráð- herra lýsti í pistli á heimasíðu sinni yfir miklum áhyggjum yfir þróun Reykjavík- ur og lagði áherslu á að menningarverðmæti yrðu varðveitt. Þá sagði hann við Ríkisútvarpið að óhjákvæmilegt væri að grípa í taumana ef hætta væri á að sögulegar menningarminj- ar yrðu eyðilagðar. Kristín segir að lögin feli í sér að núna sé hægt að vernda stærri svæði en áður. Áður hafi yfirleitt verið að vernda eitt og eitt hús. Lögin feli í sér meiri möguleika fyrir íbúa á verndarsvæðum í byggð að fá stuðn- ing frá hinu opinbera til að laga húsin sín. „Verndarsvæðin þurfa ekki endi- lega að vera 100 ára gömul. Þau gætu þess vegna verið í Fossvoginum eða Grafarholtinu. Lögin ganga út á að tekið sé tillit til húsa í götum sem skilgreindar hafa verið sem vernd- arsvæði. Þetta á ekki bara við húsin heldur þarf líka að huga að því hvers konar girðingar og gluggar eru leyfi- leg. Þessu þarf að breyta á þann hátt að það passi við arkitektúrinn og sög- una,“ segir Kristín. isb@mbl.is Skoða verndun svæða inn- an byggðar um land allt  Forsætisráðherra hefur áhyggjur af þróun Reykjavíkur Kristín Huld Sigurðardóttir KYNNINGARFUNDIR 31. ÁGÚST OG 2. SEPT. Kristín Tryggvadóttir, vinsæli fararstjórinn okkar á Kanarí, verður í Hlíðasmára 19, mánudaginn 31. ágúst og miðvikudaginn 2. sept. frá kl. 14–16. Komdu við í kaffi og kleinur með Kristínu og bókaðu ferð til Kanarí í vetur. Þeir sem hafa nú þegar bókað ferð eru að sjálfsögðu velkomnir í kaffi. 20.000 kr. bókunarafsláttur til 5. sept. Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.