Morgunblaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Myndlistarsýningin Haust verður opnuð í dag kl. 15 í Listasafninu á Akureyri og er opnunin liður í dag- skrá bæjarhátíð- arinnar Akur- eyrarvöku. 30 norðlenskir lista- menn eiga verk á sýningunni, sýna verk sem ætlað er að gefa innsýn í líflega flóru myndlistar á Akureyri og Norðurlandi. Sýningin er fjöl- breytt hvað varðar aðferðir og miðla, á henni má sjá málverk, inn- setningar, videóverk, leirverk, skúlptúra, ljósmyndir, skjáverk, textílverk, teikningar og bókverk. Safnið auglýsti í mars á þessu ári eftir umsóknum frá listamönn- um um þátttöku í sýningunni og voru skilyrðin þau að þeir byggju eða störfuðu á Norðurlandi eða hefðu tengingu við svæðið. 90 sóttu um og dómnefnd valdi verk 30 á sýninguna. Hlynur Hallsson, safn- stjóri Listasafnsins á Akureyri, sat í dómnefnd auk þess að vera sýn- ingarstjóri og aðrir dómnefnd- armenn voru Aðalheiður S. Ey- steinsdóttir myndlistarkona, Alice Liu, myndlistarkona og rekstrar- aðili gestavinnustofanna Listhúss á Ólafsfirði, Arndís Bergsdóttir, hönnuður og doktorsnemi í safna- fræði og Ólöf Sigurðardóttir, safn- stjóri Listasafns Reykjavíkur. Mörg vídeóverk Spurður að því hvað dómnefndin hafi haft að leiðarljósi við valið á listamönnunum segir Hlynur að það hafi verið að sýna fjölbreytni í því sem væri að gera í norðlenskri myndlist og að velja bestu verkin. „Ég var náttúrlega bara með eitt atkvæði af fimm en mig langaði að sýna góð verk, í fyrsta lagi, og líka fjölbreytni í bæði efnistökum, hug- myndum og miðlum,“ segir Hlynur. „Þegar við erum búin að velja þessa 30 kemur í ljós að það eru dálítið mörg víd- eóverk þannig að maður lendir í pínu vandræðum með það því þau þurfa alltaf sitt pláss,“ segir Hlynur og hlær og bætir við að sýn- endur séu allt frá því að vera rúmlega tví- tugir yfir á áttræð- isaldur. „Það eru þekkt nöfn inn á milli en líka nöfn sem ég þekkti ekki áður.“ – Er myndlistarlífið blómlegt fyrir norðan? „Já, það er mjög blómlegt og það er mjög gaman að því að á sama tíma og þessi sýning verður opnuð opnar hinumegin við götuna sýning þeirra sem var hafnað,“ segir Hlynur kíminn. Sú sýning ber titilinn Salon des Refusés, þ.e. „Sýning þeirra sem var hafnað“ upp á frönsku og verður opnuð í Deiglunni. Titillinn vísar í sam- nefnda sýningu sem haldin var í París árið 1863 á þeim verkum sem hafnað var af dómnefnd fyrir sýn- ingu í Salon des Beaux Arts en Napóleon keisari III. frétti af óánægju þeirra sem var hafnað og skipaði svo fyrir að verk þeirra skyldu sýnd á annarri sýningu í Palais de Industrie, beint á móti sýningu dómnefndarinnar. Sú sýn- ing þykir ein sú mikilvægasta í listasögunni hvað varðar þróun málaralistar. Haustsýningar voru lengi fastur liður í sýningarhaldi á Íslandi og fylgir Haust þeirri hefð, að sýna hvað listamenn á svæðinu eru að fást við. Haustsýning safnsins verður tvíæringur héðan í frá, þ.e. sett upp á tveggja ára fresti. „Tvíæringar eru svo töff,“ segir Hlynur og hlær þegar blaðamaður spyr hann að því af hverju sýn- ingin verði ekki haldin árlega. – Einæringur hljómar heldur ekki nógu vel... „Nei, einæringur er ekki neitt. Frekar þá þríæringur. Okkur fannst það of mikið, kannski, að hafa haustsýningu á hverju ári. Það er einhver endurreisn tvíær- inga í heiminum en það eru mjög fáir tvíæringar á Íslandi,“ segir Hlynur. Myndlistarveisla í Gilinu Það verður mikil myndlistar- veisla í Listagilinu á Akureyri um helgina því auk þeirra tveggja sýn- inga sem nefndar hafa verið verða aðrar opnaðar í sýningarrýmum gilsins, m.a. í Sal Myndlistafélags- ins, í Kaktusi og Mjólkurbúðinni og í Flóru fremur Ólafur Sveins- son gjörninginn „Glímt við haförn og lax“. „Ég held það séu átta sýn- ingar að opna í Listagilinu,“ segir Hlynur. Haust stendur til 18. október og verður opin þriðjudaga til sunnu- daga kl. 12-17. Aðgangur að henni er ókeypis og boðið verður upp á leiðsagnir um sýningar safnsins á fimmtudögum kl. 12.15-12.45. Best? „This is it, the best drawing in the show“ nefnist þetta verk eftir Sam Rees, pennateikning frá árinu 2009. Turn Ljósmynd úr röð Þórgunnar Oddsdóttur, Þýskir varðturnar, frá 2014. Fjölbreytni í efnistökum og miðlum  30 listamenn sýna verk sín á Hausti, haustsýningu Listasafnsins á Akureyri  Fyrsta sýningin í tvíæringi  Listamenn sem dómnefnd hafnaði opna á sama tíma sýningu hinumegin við götuna Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru: Arna Vals- dóttir, Arnar Ómarsson, Bald- vin Ringsted, Bergþór Mort- hens, Björg Eiríksdóttir, Eiríkur Arnar Magnússon, Freyja Reyn- isdóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Guðrún Þóris- dóttir, Gunnhildur Helgadóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Heiðdís Hólm, Hekla Björt Helgadóttir, Joris Rademaker, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Ingi- björg Guðmundsdóttir, Klæng- ur Gunnarsson, Marina Rees, Ragnheiður Þórsdóttir, Rannveig Helgadóttir, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Rósa Júlíusdóttir, Sam Rees, Stefán Boulter, Unnur Óttarsdóttir, Victor Ocares, Þórarinn Blöndal, Þórgunnur Odds- dóttir, Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Þóra Sig- urðardóttir. 30 listamenn SÝNENDUR Á HAUSTI Jóna Hlíf Halldórsdóttir Hlynur Hallsson Kastljósinu verður beint sérstaklega að danskri kvikmyndagerð á Alþjóð- legri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst 24. september og stendur til 4. október. Átta nýjar kvikmyndir frá Danmörku verða sýndar og þ. á m. nýjustu myndir Susanne Bier og Bille August. Einn- ig verður staðið fyrir umræðum um þá miklu grósku sem verið hefur hin síðustu ár í danskri kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð. Nýjasta kvikmynd Susanne Bier nefnist En chance til og fjallar um syrgjandi lögreglumann sem laum- ast til að skipta út nýlátnu barni sínu fyrir ungbarn sem býr við van- rækslu í eiturlyfjagreni. Krigen, eft- ir leikstjórann Tobias Lindholm sem skrifaði handrit Jagten, Submarino og sjónvarpsþáttanna Borgen, fjallar um liðsforingja í Afganistan sem tekur afdrifaríka ákvörðun þeg- ar árás er gerð á hann og hersveit hans. Guldkysten eftir leikstjórann Daniel Dencik gerist árið 1836 og segir frá Joseph Wulff, sem flytur frá unnustu sinni í Danmörku til Dönsku Gíneu þar sem hann hyggst rækta kaffi. Þar kynnist hann heimi grimmilegs þrælahalds og hörku og neyðist Wulff til að taka siðferð- islega afstöðu. I dine hænder eftir leikstjórann Samanou Acheche Sahlstrøm segir af hjúkrunarfræðingnum Maríu sem kemur í veg fyrir sjálfsvíg langveiks manns og heldur með honum í ör- lagaríka ferð til Sviss, þar sem líkn- ardráp er löglegt. Myndin var valin besta norræna kvikmyndin á alþjóð- legu kvikmyndahátíðinni í Gauta- borg á þessu ári. Lang historie kort eftir May el- Toukhy fjallar um vinahóp sem kem- ur saman í átta veislum á þremur ár- um. Vinirnir eru í kringum fertugt og þurfa að endurskoða glanshug- myndir sínar um ástina og rómantík, eins og segir í tilkynningu. Fjölskylduátök Mænd og Høns eftir leikstjórann Anders Thomas Jensen segir af út- brunnum háskólaprófessor og bróð- ur hans sem hefur, ólíkt honum, að- eins áhuga á konum og tilgangs- lausum fróðleik. Þegar faðir þeirra deyr komast þeir að því að hann er ekki líffræðilegur faðir þeirra og leita þeir þá uppi blóðfjölskyldu sína. Myndin er sögð kolsvört gaman- mynd. Rosita eftir Frederikke Aspöck fjallar um miðaldra ekkil í leit að eig- inkonu. Hann finnur hana á Filipps- eyjum og fær hana til að flytja til Danmerkur en babb kemur í bátinn þegar hún verður hrifin af syni hans. Stille hjerte, eftir Bille August, segir af þremur ættliðum sem koma saman yfir helgi til að kveðja ætt- móðurina Esther, sem þjáist af ólæknandi sjúkdómi og ætlar að svipta sig lífi að lokinni helgi með að- stoð eiginmanns síns. Þegar kveðju- stundin nálgast koma hins vegar óuppgerð mál upp úr kafinu. Myndin hlaut fern verðlaun á dönsku kvik- myndaverðlaununum, Bodil, í ár. Dönsk kvikmyndagerð í brennidepli á RIFF Ljósmynd/Rolf Konow Tækifæri Stilla úr nýjustu kvikmynd Susanne Bier, En chance til.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.