Morgunblaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015 Morgunblaðið/Styrmir Kári Listakona Þóra við verk sín á sýningunni sem hún kallar Nærmynd. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég fékk þessa hugmyndfyrir fimmtán árum þegar ég var að ferðastum Ísland og sá mörg eyðibýli. Mig langaði að mála af þeim myndir og halda sýningu ein- vörðungu með slíkum myndum,“ segir Þóra Einarsdóttir en sýning hennar Nærmynd, stendur nú yfir í sal félagsins Íslensk grafík í Lista- safni Reykjavíkur við Tryggvagötu 17, hafnarmegin. „Þessi hugmynd lúrði alltaf þarna á bakvið en ekkert varð úr framkvæmdinni fyrr en í fyrrasum- ar, þá keyrði ég gagngert um Vest- firði til að skoða eyðibýli, rissa í blokk og taka myndir. Ég tók með mér bók um eyðibýlin til að geta lesið mér til um þau og til að finna þau, því þau eru ekki öll í alfaraleið og það var ekki alltaf auðvelt að komast að þeim, stundum var vegurinn mjög illa farinn.“ Hvers vegna fór fólkið? Þóra segist hafa fundið fyrir sterkum tilfinningum í nálægð yfir- gefnu húsanna og þess vegna er hún með hugleiðingu í texta við hverja mynd á sýningunni. „Maður finnur fyrir trega- tilfinningu vegna þess sem var, lífs- ins sem eitt sinn var lifað í þessum húsum. Og ótal spurningar vakna um fólkið sem bjó þarna. Hvernig leið því? Hvers vegna fór það? Þessi hús eru minnisvarðar um löngu liðið hversdaglíf. Stundum er eins og fólk hafi gengið út og skilið allt eftir, eða dáið og enginn hirt um að fjarlægja innanstokksmuni. Til dæmis var kjóll hangandi á hurð í einu eyðibýlinu, rétt eins og eigandinn hefði skroppið frá. Og í öðru var sykurkar á eldhúsborðinu og bollastell í skápunum, og þannig hefur það verið óhreyft í fimmtíu ár frá því býlið fór í eyði. Annars staðar var allt tómt, til dæmis í húsinu í Tjaldanesi var ekkert nema ein tunna stóð í einu her- bergi. Í Hrauni í Dýrafirði stendur eyðibýli sem að flatarmáli er ekki nema 26 fermetrar, en bóndinn þar tók sjálfur á móti öllum börnunum sínum sex í stofunni. Fjölskyldan bjó öll í þessu pínulitla húsi í mikilli einangrun, en umvafin gríðarlegri náttúrufegurð, fjallaborgir allt um kring.“ Þóra segir að hún hafi fundið fyrir ólíkum tilfinningum á ólíkum stöðum. „Stundum fann ég fyrir afar notalegri tilfinningu en stundum fylltist ég sorg, eins og til dæmis við að koma inn í húsið hans Gísla á Uppsölum. Þó svo að nýtt þak og nýir gluggar séu á húsinu, sem Ómar Ragnarsson stóð fyrir að yrði gert eftir dauða Gísla, þá er allt í rúst inni, afar hrörlegt. Það er undarleg tilfinning að koma þar inn og hugsa um Gísla búa þarna í af- dal við þessar frumstæðu aðstæð- ur, hann hefur eflaust verið mjög einmana.“ Ævintýri í Róm og París Þóra segist vinna mest í olíu en líka í vatnslitum og hún leikur sér einnig með dúkristur og grafík. „Ég hef verið að mála alla tíð meðfram vinnu en ég hætti að vinna árið 2006 og sneri mér þá al- farið að myndlistinni,“ segir Þóra sem hefur meðal annars verið for- maður félags myndlistarmanna í Garðabæ. „Ég var í Myndlistarskólanum í Reykjavík í nokkur ár en þar fyrir utan hef ég farið á hin ýmsu mynd- listarnámskeið.“ Þóra hefur tekið þátt í mörgum sýningum hér heima en einnig í útlandinu. „Ég hef sýnt í Róm, á Sikiley og í París, en það kom þannig til að ítalskt fólk rakst inn í gallerý Stíg sem ég rek ásamt fleiri listamönn- um á Skólavörðustíg, og þar sáu þau myndir eftir mig og buðu mér að vera með í sýningu í Róm á veg- um borgarinnar. Það skemmtilega var að ég var búin að kaupa mér far til Rómar þegar þetta kom upp, þannig að ég skellti mér auðvitað og þetta var mikið ævintýri, við vorum tvö með verk á þessari sýn- ingu, ég og ítalskur ljósmyndari sem hafði komið til Íslands og tekið myndir hér. Þetta var árið 2008 og ári síðar sýndi ég á Sikiley og það var líka í tengslum við þetta fólk frá Róm. Þá var tíu listamönnum frá hinum ýmsu löndum boðið að koma til Sikileyjar og vinna saman í tíu daga og sýna svo afraksturinn. Þarna eignaðist ég góða vini sem ég er enn í sambandi við. Síðan sýndi ég í sal í Louvre-safninu í París árið 2010 í gegnum ítölsk myndlistarsamtök. Franskur gall- erýeigandi sem kom á þá sýningu bauð mér að sýna í gallerýi hjá sér og ég gerði það að sjálfsögðu.“ Yfir eyðibýlum svíf- ur andi liðins tíma Yfirgefin hús vekja sérstakar tilfinningar, þau eru vitnisburður um líf sem eitt sinn var lifað. Þau vekja ótal spurningar um fólkið sem þar bjó, hvernig leið því í afdalnum? Hvers vegna skildi það eftir kjóla og bollastell? Þóra Einarsdóttir myndlistarkona er heilluð af eyðibýlum á Íslandi og hún hefur fangað stemningu nokkurra þeirra í verkum sínum sem hún sýnir nú. Spurn Hver ætli hafi eitt sinn sofið undir þessari súð og kíkt út um glugga? Autt Regn og vindar eiga greiða leið inn í þetta hús sem eitt sinn veitti skjól. Yfirgefið Það er tregi og tómleiki yfir húsum sem hafa verið yfirgefin. Á sunnudögum er dásamlegt að gera eitthvað skemmtilegt með litla fólk- inu. Heimilislegir sunnudagar snúa aftur eftir tveggja mánaða sumar- dvala á Kex Hostel og kveðja sumarið með stæl á morgun, sunnudag. Þá mun Leikhópurinn Lotta mæta með söngvasyrpu úr leikritinu um litlu gulu hænuna. Skemmtunin hefst kl. 14, en í vetur verður fjölskyldu- dagskráin alla sunnudaga klukkan 13. Allir velkomnir og ókeypis inn. Heimilislegir sunnudagar hefjast að nýju á Kex Hosteli Morgunblaðið/Styrmir Kári Skemmtilegt Litla gula hænan. Söngur, gleði og gaman Hinn árlegi útimarkaður Íbúasamtaka Laugardals verður í dag kl. 11-16 á skjólsælu bílastæði í Laugardalnum við Laugardalshöllina. Á markaðnum verður til sölu allt milli himins og jarðar; föt, fínerí, geisladiskar, grænmeti, leik- föng, listmunir, húsgögn, handverk, heimagerðar sultur, bækur, ber og fleira. Ávallt er mikið fjör á markaðnum enda eru skemmtilegar uppákomur stór hluti af aðdrátt- arafli hans. Meðal tónlistaratriða þetta árið eru Mentos Brass, Muscycle, Harmonikkubandið, Svavar Knútur, Helí- um, Blue Ice Project, Baby it’s only you (Frank Raven, Logi Marr og Lelló) og Lily of the Valley. Huggulegt kaffihús á staðnum og í anda vistvænnar stefnu útimarkaðarins eru allir markaðsgestir hvattir til að sækja markaðinn gang- andi, hjólandi eða í strætó. Útimarkaður Íbúasamtaka Laugardals Allt mögulegt í boði Stemning Ævinlega ríkir gleði og létt lund á markaðinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.