Morgunblaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015
Ekki er víst að Guðmundur brosilíkt og Goðmundur „þegar
brotna hausar og blóðið litar storð“ í
Bjartri framtíð eins og á Glæsivöll-
um. Margt er þó sem
minnir á hið kunna
ljóð Gríms Thomsen
þegar fylgst er með
atburðarásinni í
Bjartri framtíð um
þessar mundir.
Á báðum stöðumer gleði sögð í
höll, þar glymja
hlátra sköll og trúð-
ar og leikarar leika
um völl.
Sömuleiðis eraldrei með ýtum fátt og allt er
kátt og dátt í Bjartri framtíð sem á
Glæsivöllum.
Fleira úr höllinni minnir á Björtuframtíðina: „En bróðernið er
flátt mjög og gamanið er grátt, í
góðsemi vegur þar hver annan.“
Sérkennilegt er að fylgjast meðþví þegar forsprakkar átakanna
í Bjartri framtíð reyna að láta líta út
fyrir að þar séu átökin eitthvað góð-
látlegri en gengur og gerist.
Og þar þykjast menn tregir til aðsækjast eftir forystu en láta svo
til leiðast nokkrum klukkustundum
síðar og hella sér í formannsslaginn.
Ef til vill hefur með bak-tjaldamakkinu í lýðræð-
isástarflokknum tekist að koma mál-
um þannig fyrir að frambjóðandi
Besta flokksins renni án erfiðleika í
formannssætið.
Hver veit nema aðrir segi svo líktog í ljóðinu góða: „Kalinn á
hjarta þaðan slapp ég.“
Guðmundur
Steingrímsson
Guðmundur á
Glæsivöllum
STAKSTEINAR
Óttarr Proppé
Veður víða um heim 28.8., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 5 alskýjað
Akureyri 7 alskýjað
Nuuk 7 skúrir
Þórshöfn 12 skýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Helsinki 17 léttskýjað
Lúxemborg 20 léttskýjað
Brussel 20 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 21 léttskýjað
París 21 skýjað
Amsterdam 18 léttskýjað
Hamborg 18 léttskýjað
Berlín 17 léttskýjað
Vín 31 léttskýjað
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 33 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 27 heiðskírt
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 22 heiðskírt
Montreal 21 léttskýjað
New York 25 heiðskírt
Chicago 22 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:01 20:57
ÍSAFJÖRÐUR 5:58 21:11
SIGLUFJÖRÐUR 5:40 20:54
DJÚPIVOGUR 5:29 20:29
Embætti byggingarfulltrúans í
Reykjavík hefur synjað umsókn um
leyfi til að reisa viðbyggingu norðan
megin við einbýlishúsið Sjafnargata
3. Framkvæmdir við húsið hafa vald-
ið deilum í sumar.
Sótt var um leyfi til að rífa bílskúr
og útbúa vinnustofu sem yrði tengd
kjallara hússins. Skúrinn er 18,2 fer-
metrar en viðbyggingin hefði orðið
54,5 fermetrar.
Í umsögn byggingarfulltrúa segir
að samtök íbúa við Sjafnargötu og
Freyjugötu, alls 29 aðilar, hafi gert
athugasemd við fyrirhugaða bygg-
ingu undir vinnustofu.
Unnið er að frágangi um 76 fer-
metra viðbyggingar við húsið sem er
byggt 1931 og teiknað af Guttormi
Andréssyni húsameistara. Hefði
vinnustofan falið í sér enn frekari
stækkun á húsinu. Í kjölfar þess að
Morgunblaðið sagði frá stækkun
hússins 28. júlí sl. höfðu íbúar á
Skólavörðuholtinu samband og sagði
blaðið svo frá stofnun samtaka gegn
enn frekari stækkun hússins.
Ósk um vinnustofu synjað
Umdeilt Núverandi viðbygging.
Mylla IS2008258306 frá Hólum
Kynbótadómur 2015:
Sköpulag: 8,29
Hæfileikar: 8,42
Aðaleinkunn: 8,37
Kynbótamat: 124
Óskað er eftir skriflegum tilboðum sem berist skólanum í síðasta
lagi 18. september og merkt með eftirfarandi hætti: Háskólinn
á Hólum, bt. Guðmundur B. Eyþórsson, fjármálstjóri. Skólinn
áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum.
Nánari upplýsingar veitir Víkingur Gunnarsson, vikingur@holar.is.
Háskólinn á Hólum auglýsir:
Hryssa til sölu
Íranskur hælis-
leitandi hellti yfir
sig eldfimum
vökva í afgreiðslu
Rauða krossins
við Efstaleiti um
hádegisbilið í
gær. Því næst fór
hann úr húsinu
og út á grasbala
þar sem hann var
yfirbugaður af
lögreglu skömmu seinna og fluttur
til aðhlynningar.
Maðurinn sótti um hæli hér á
landi í mars en umsókn hans hefur
tafist sökum bágs andlegs ástands
hans, að sögn Rauða krossins, sem
hefur sinnt hagsmunagæslu fyrir
hann.
Maðurinn hefur þegar fengið við-
urkennda stöðu flóttamanns og hæli
í öðru Evrópulandi, að sögn Útlend-
ingastofnunar. Stofnunin segir að í
tilvikum sem þessum sé kapp lagt á
að veita viðkomandi þá aðstoð og
ráðgjöf sem þarf í hverju tilviki.
Þá segir stofnunin að sjálfskað-
andi hegðun muni ekki hafa áhrif á
málsmeðferð mannsins. Reynt verði
að ljúka málsmeðferð sem fyrst, eins
og í öðrum málum á borði stofnunar-
innar.
Aðstoð verði skoðuð
Ólöf Nordal innanríkisráðherra
sagði málið mannlegan harmleik og
að í kjölfarið yrði skoðað hvernig
andlegum stuðningi við flóttamenn
væri háttað. Alltaf væri leitast við að
gera betur, en flóttamann frá stríðs-
hrjáðum löndum hefðu margir þurft
að þola miklar hörmungar. Stuðn-
ingskerfið yrði að taka mið af því.
Málið er ákaflega svipað atviki frá
2011 þegar annar íranskur hælisleit-
andi hellti yfir sig bensíni á skrif-
stofu Rauða krossins við Efstaleiti
og hótaði að kveikja í sér. Sá maður
fékk að lokum hæli og ríkisborgara-
rétt á landinu.
Hótaði að
kveikja
í sér
Útkall Fluttur til
aðhlynningar.
Hellti yfir sig
eldfimum vökva