Morgunblaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015 ✝ Margrét Ólafs-dóttir fæddist 30. júlí 1916 á Stóru-Ásgeirsá í Víðidal, Vestur- Húnavatnssýslu. Hún lést á Minni Grund, dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík, 12. ágúst 2015. Foreldrar henn- ar voru Ólafur Jóns- son, bóndi á Stóru-Ásgeirsá, f. 6. nóvember 1888, d. 14. desember 1976, og kona hans Margrét Jó- hannesdóttir, húsmóðir á Stóru- Ásgeirsá, f. 31. ágúst 1889, d. 15. júlí 1976. Systkini Margrétar voru Unnsteinn Ólafsson, skóla- stjóri Garðyrkjuskólans á Reykj- um í Ölfusi, f. 11. febrúar 1913, d. 22. nóvember 1966 og Ingibjörg Ólafsdóttir, húsmóðir á Auð- unarstöðum í Víðidal, f. 5. ágúst 1917, d. 27. mars 2010. Eiginmaður Margrétar var Björn Daníelsson, skólastjóri Barnaskólans á Sauðárkróki, f. 16. febrúar 1920, d. 22. júní 1974. Þau giftust 31. desember 1943. Synir þeirra eru: 1) Þórir Dan, f. 13. desember 1944, kvæntur Ernu Jakobsdóttur, f. 20. nóv- ember 1950. Sonur þeirra er Al- exander Daníel, f. 26. maí 1990. 2) Ólafur Víðir, f. 9. október 1946, kvæntur Halldóru Erlends- dóttur, f. 22. apríl 1947. Börn Halla María og Einar Örn. Margrét lauk prófi frá Hér- aðsskólanum á Laugarvatni 1936 og stundaði auk þess nám við Húsmæðraskólann Ósk á Ísa- firði. Hún vann því næst um tíma í Reykjavík á saumastofu Dýr- leifar Ármann. Eftir að Margrét og Björn hófu búskap sinn bjuggu þau fyrst á Dalvík frá 1943 til 1952 og því næst á Sauð- árkróki þar sem Björn var skóla- stjóri Barnaskólans og bóka- vörður við Héraðsbókasafn Skagfirðinga. Auk húsmóð- urstarfa vann Margrét sem bókavörður við Héraðsbóka- safnið frá 1970 til 1974. Eftir fráfall Björns bjó Margrét í Reykjavík yfir vetrarmánuðina og vann þar fram til ársins 1987 sem bókavörður við Borgar- bókasafn Reykjavíkur en var þessi ár sumarmánuðina á Sauð- árkróki og bjó þá jafnan á Hóla- vegi 8 sem var lengstum heimili hennar og Björns. Árið 1987 seldi Margrét Hólaveg 8 og keypti íbúð að Neshaga 7 í Reykjavík og bjó þar allt fram til haustmánuða 2013 að hún fékk hvíldarinnlögn á Minni Grund og því næst þar til dvalar frá vormánuðum 2014 til dán- ardags. Margrét tók virkan þátt í ýmsum félagsstörfum og má þar einkum nefna Kvenfélag Sauð- árkróks og Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar í Reykjavík. Útförin fór fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu 21. ágúst. Minningarathöfn var haldin í Sauðárkrókskirkju sama dag. Jarðsett var í Sauðárkróks- kirkjugarði. þeirra eru Erlendur Þór, f. 17. janúar 1970, kvæntur Brynhildi Jóns- dóttur. Dætur þeirra eru Gunn- hildur Katrín og El- ín Halldóra. Sonur Erlendar og Ástu Sóleyjar Sölvadótt- ur er Jóhann Víðir. Jóhanna Margrét, f. 30. september 1975, sambýlismaður hennar er Lars Emil Árnason. Dætur þeirra eru Una Birna og Vera. Birna Hall- dóra, f. 1. ágúst 1980, sambýlis- maður hennar er Grétar Þor- steinsson. Dætur þeirra eru Margrét Helga og Júlía Dóra. 3) Pétur Örn, f. 10. apríl 1955. Pét- ur kvæntist Sigurveigu Knúts- dóttur, f. 14. ágúst 1953. Þau skildu. Dætur þeirra eru Anna Þóra, f. 20. júní 1984 og Eva Mar- grét, f. 25. apríl 1988. Sambýlis- kona Péturs er Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 9. ágúst 1958. Dóttir Margrétar og Steingríms Benediktssonar er Steinunn Mar- grét, f. 2. febrúar 1942, gift Ein- ari Magnússyni, f. 16. ágúst 1941. Börn þeirra eru Margrét Lovísa, f. 25. febrúar 1963. Dóttir hennar er Helga Margrét. Rúna Svandís, f. 28. júní 1964, gift Björgvini Sveinssyni. Magnús Örn, f. 10. ágúst 1965, kvæntur Elínu Ósk Hölludóttur. Börn þeirra eru Enda þótt það hafi verið skýjað, rok og rigning þegar mamma dó, þá vil ég leyfa mér að trúa því að sólin muni alltaf skína á mömmu, enda urðum við ásátt um eftirfarandi fyrir tæpum tveimur árum þegar við höfðum einu sinni sem oftar rætt lengi saman um heima og geima: Mamma hefur sagt mér að sólin skíni alltaf og ég hef sagt við mömmu … eins og ég viti það ekki hún felur sig bara stundum … á bak við öll skýin og þá segir mamma næstum tíræð og blind á báðum … það var einmitt það sem ég var að segja þér … á bak við öll dimmu skýin sé ég alltaf sólina skína. Og enda þótt þú sért núna dáin elsku mamma og ég sakni þín mjög mikið, þá eru mér blessunarlega ljóslifandi allar þær fjölmörgu og góðu minn- ingar sem ég á um þig. Þær mun ég geyma í huga mínum allt þar til ég dey og ég veit að þær munu um ókomna tíð bægja öllum dimmum skýjum frá og veita mér birtu og yl í hvert sinn sem ég minnist þín. Takk elsku mamma fyrir sam- fylgdina í gegnum lífið, takk fyrir allt elsku mamma mín. Þinn sonur, Pétur Örn (Össi). Nokkur orð til minningar um Margréti Ólafsdóttur, móður, tengdamóður og ömmu okkar. Mamma lést aðfaranótt 12. ágúst 2015, skömmu eftir 99 ára afmælið. Hún var jarðsett þann 21. ágúst í kirkjugarð- inum á Sauðárkróki, við hliðina á leiði pabba, Björns Daníels- sonar, sem varð bráðkvaddur 54 ára gamall, í júní 1974. Þannig var það rúmt 41 ár á milli jarðarfara þeirra; jafn- mörg ár eru liðin frá því við fluttum vestur um haf til Bandaríkjanna. Hvað er hægt að segja um móður sína á slíkum tímamót- um? Það er auðvelt að segja að hún hafi fætt okkur, klætt okk- ur o.s.frv., en eins þýðingar- mikið og það allt var í uppeldi okkar systkinanna þá er það ekki það sem manni er nú efst í huga. Heldur er það hver mamma var og minningarnar sem við eigum um hana. Mamma var einstök kona, sjálfstæð kona, hún hugsaði meira um aðra en sjálfa sig, vildi aldrei neitt snurfus og vesen, eins og hún kallaði það, í sambandi við sig. Eftir að mamma hafði flutt frá Krókn- um til Reykjavíkur er okkur ávallt minnisstætt hvað það var henni mikilvægt að vera sjálf- stæð, að geta séð um sig sjálf og vera ekki upp á aðra komin. Hún hélt áfram að vinna og tók virkan þátt í ýmsum fé- lagsstörfum sem henni þótti mjög gaman að. Mamma var greind kona og það er með eindæmum hversu vel hún hélt sér andlega, fylgd- ist vel með fréttum og því sem var að gerast, minnið einstakt og fór fátt fram hjá henni. Það var helst sjónin sem hafði gefið sig en að öðru leyti var hún við góða heilsu og létt á fæti. Við kveðjum nú móður okkar í síðasta sinn og þótt við mun- um ekki sjá hana aftur þá eig- um við dýrmætar minningar sem munu fylgja okkur í fram- tíðinni. Þórir, Erna og Alex. Kom til mín, heim til míns hjarta, heilladís vordags og óðs. Gef þú mér gleðina bjarta, gullveig þíns logandi blóðs. Koss þinn er heitur og æska þín ör, yngir minn huga þín brosrjóða vör. Syngjandi sólborin þrá siglir í heiðloftin blá. Kom til mín, heim til míns heima, hittu mig – gef mér þinn eld. Veit mér að vaka og dreyma veisluglatt hásumarkveld. Rennur í norðrinu röðull í sjó, rökkrið er milt yfir vötnum og skóg. Meðan ég ást þína á ástin mín dvelur þér hjá. Ljóð þetta, „Serenata“, orti pabbi, Björn Daníelsson, til mömmu. Tónskáldið Eyþór Stefánsson samdi lag við ljóðið og það var flutt við útför pabba í kirkjunni heima á Sauðár- króki fyrir 41 ári síðan. Pabbi og mamma fæddust á sama stað, bókstaflega, í sama rúmi, á Stóru-Ásgeirsá í Víði- dal. Þau giftust 31. desember 1943 og hófu búskap á Dalvík. Haustið 1952 fluttu þau til Sauðárkróks þar sem pabbi varð skólastjóri Barnaskólans og því starfi gegndi hann til dauðadags. Mamma sinnti hefð- bundnum störfum húsmóður- innar eins og þá var almennt til siðs. Síðustu árin þeirra á Króknum vann hún utan heim- ilis, m.a. við bókasafnið sem pabbi veitti forstöðu í auka- starfi. Það var mikið áfall þegar pabbi dó; hann var ekki nema 54 ára gamall. Mamma sýndi aðdáunarverðan styrk. Auðvit- að bognaði hún um sinn en brotnaði ekki heldur rétti úr sér og tókst á við gjörbreyttar aðstæður. Hún var ekki sátt við það að fara af Neshaganum en gerði sér fullkomlega grein fyr- ir því að hún gat ekki verið þar lengur ein. Hún var þá orðin blind á hægra auga en hafði hliðarsjón á því vinstra. Auk þess var heyrnin farin að dofna. Að öðru leyti var hún af- ar vel á sig komin, bæði and- lega og líkamlega. Það var aðdáunarvert hve heil og skýr í hugsun hún var allt til hins síð- asta. Hún fylgdist vel með öllu sem gerðist í nærumhverfi hennar og raunar langt út fyrir það. Hún var alltaf með alla hluti á hreinu. Hafði sínar skoðanir á mönnum og málefnum og lét þær óhikað í ljós. Mamma sá um að heimilis- fólkið fengi nóg að borða og væri sæmilega til fara. Hún fór vel með allan mat og var afar nýtin. Mamma saumaði mikið á okkur systkinin og prjónaði. Í sem fæstum orðum sagt var henni mjög umhugað um vel- ferð okkar allra á heimilinu. Það var mjög gestkvæmt á Hólaveginum og við fengum að hlusta á spjall pabba og mömmu við gestina og stundum var beinlínis ætlast til þess að unga fólkið legði eitthvað af mörkum í spjallið sem oft varð að uppbyggilegum umræðum. Mamma lét sér mjög annt um foreldra sína á Stóru-Ásgeirsá og aðra þá sem nærri henni stóðu. Hún var mjög gjafmild og hafði ríka þörf fyrir að gleðja aðra og gera þeim til hæfis. Aftur á móti taldi hún ekki ástæðu til að henni væru færð- ar gjafir eða lofsyrði fyrir það sem hún gerði vel við aðra. Við Dóra þökkum þér, elsku Margrét Ólafsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri Ástkær sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og systir okkar, ÁSDÍS JÓNA LÚÐVÍKSDÓTTIR, Sléttuvegi 9, 103 Reykjavík, lést á heimili sínu þann 23. ágúst. Útförin fer fram í Bústaðakirkju 3. september kl. 15. . Helgi Leifsson, Anna L. Gunnarsdóttir, Grétar G. Halldórsson, Sandra B. Gunnarsdóttir, Brynja D. Gunnarsdóttir, Bjarni V. Ásgrímsson, Kristbjörg Gunnarsdóttir, Ingólfur Þorbergsson, barnabörn, barnabarnabarn og systkini. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, HÓLM KR. DÝRFJÖRÐ frá Siglufirði, lést á dvalarheimilinu Grund þann 19. ágúst. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þiðjudaginn 1. september kl. 13. . Birna Dýrfjörð, Anna Dýrfjörð, Skúli Sigurðsson, Erla Dýrfjörð, Guðmunda Dýrfjörð, Birgir Vilhelmsson, Kristján Dýrfjörð, Ragnheiður Sigurðardóttir, Finnur Jóhannsson, Sigmundur Dýrfjörð, Berglind Guðbrandsdóttir og afabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, VALUR WAAGE, Lindarseli 5, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum fimmtudaginn 20. ágúst 2015. Hann verður jarðsunginn frá Lindakirkju í Kópavogi mánudaginn 31. ágúst kl. 15. . Helena Ásdís Brynjólfsdóttir, Guðrún Lind Valsdóttir Waage, Smári Arnarsson, Stefanía Lind Stefánsdóttir Waage, Bjarki Stefánsson, Stefán Valur Stefánsson, Ásdís Halldóra Lind Stefánsdóttir Waage, Stefán Stefánsson. Ástkær faðir okkar, bróðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRSÆLL ÞORSTEINSSON matreiðslumeistari og fyrrum bryti, Skúlagötu 20, lést þriðjudaginn 18. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánudaginn 31. ágúst kl. 15. . Guðlaug Ársælsdóttir, Eyþór Vilhjálmsson, Þóra Ársælsdóttir, Páll Hjálmur Hilmarsson, Ragna Ársælsdóttir, Haraldur R. Gunnarsson, Björg Ársælsdóttir, Arnar Ólafsson, Guðný Þorsteinsdóttir, Þorleifur Hávarðarson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, ÁSGEIR HELGI HALLDÓRSSON, lést á heimili sínu 25. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Seljakirkju þriðjudaginn 8. september kl. 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið og minningarsjóð Karitas. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Karitas fyrir frábæra umönnun. . Erla Jónsdóttir, Halldór Marías Ásgeirsson, Alexandra Maria Stegeman, Kristján Elías Ásgeirsson, Heiða Björk Ólafsdóttir, Garðar Gunnar Ásgeirsson, Ásta Ingunn Sævarsdóttir, Ásgeir Jóhann Ásgeirsson, Hildur Eva Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.