Morgunblaðið - 29.08.2015, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur ekki efni á öllu sem þig
langar í. Mæltu þér mót við einhvern í kaffi
eða mat sem þú hefur ekki hitt lengi. Ekki
gefa höggstað á þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Spenna í samskiptum við ástvin
vegna sameiginlegra eigna gætu valdið
óþolinmæði. Hvers konar vinur ertu? Mynd-
ir þú vilja vera vinur þinn? Veltu því fyrir
þér núna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þegar þér finnst einhver ýtinn er
það bara fólk að ögra þér til að gera þitt
besta. Vertu á verði og gríptu réttu tæki-
færin þegar þau bjóðast.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ættir að endurskoða líferni þitt
og taka meira mið af því sem er hollt og
heilsusamlegt. Maður er manns gaman,
bjóddu til veislu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Búðu þig undir tafir, ruglingsleg tjá-
skipti og að ávísanir týnist í pósti á næst-
unni. Þér finnst athyglin ekki leiðinleg.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einhvern misskilning þarf að leið-
rétta strax svo ekki hljótist af skaði. Enginn
kann skil á öllum hlutum svo þú skalt ekki
byrgja öll þín mál með sjálfum þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér virðist ganga allt í haginn og aðrir
vilja njóta velgengni þinnar með þér. Þér
hættir til að gera úlfalda úr mýflugu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert að byggja upp samband.
Líttu ávallt á björtu hliðarnar. Reiði gegnir
engu öðru hlutverki en að gera fólki lífið
leitt, þótt þú haldir annað.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Reyndu að finna einhvern skiln-
ingsríkan til að deila hugsunum þínum með.
Gerðu áætlanir fram í tímann, þér veitir
ekki af smá skipulagi í líf þitt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú ætti fjárhagurinn að leyfa
fjárfestingu fyrir framtíðina. Leyfðu þeim
sem eru í kringum þig að greiða úr flækj-
unum sjálfir. Komdu fram við alla af virð-
ingu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhver gæti reynt að telja þig
ofan af einhverju og það sem þú vilt gera
öllum til hæfis í dag er hætt við að þú
hundsir þína innri rödd.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vilji þinn stendur til þess að upplýsa
aðra um þínar skoðanir. Láttu það nú eftir
þér að fylgja hjartanu svona einu sinni. Ekki
láta undan sykurlönguninni, þú hefur staðið
þig svo vel hingað til.
Sem endranær var síðastalaugardagsgáta eftir Guðmund
Arnfinnsson:
Hreyfing þetta örsnögg er.
Einnig brella kallast má.
Stund, sem fljótt er flogin hjá.
Fé það mark á eyra ber.
Árni Blöndal svarar:
Örsnöggt bragð og bráðin lá.
Bragðið kallast brella má.
Á augabragði allt er frá.
Á eyrum lamba Bragð má sjá.
Þessi er lausn Hörpu á Hjarð-
arfelli:
Sá hendi brá að bragði
lék bragðið töfra hér.
Á einu augabragði
á eyra bragðið fer.
Helgi R. Einarsson leysir gátuna
þannig:
Úrlausnirnar þrjóskir þrá,
þú veist hvað ég meina.
Bragð er lausn sem líst mér á.
Látum á það reyna.
Hér kemur loks skýring Guð-
mundar:
Glímubragði beitt er fljótt.
Bragð má kalla, að hrekkur sé.
Augabragð á burt er skjótt.
Bragð er eyrnamark á fé.
Og í framhaldi limra:
Hann Glímu-Gestur lagði
Guttorm á augabragði
og varðist falli
fyrir Halli,
en féll loks á sjálfs sín bragði.
Síðan bætir Guðmundur við
„gáta kviknar af gátu“:
Sínu ríki ræður hann.
Ræktar sá akurlendi.
Í tafli nýtan teljum þann.
Trúnað sór eiginkvendi
Svör verða að berast eigi síðar en
á miðvikudagskvöld.
Gunnar Pálsson Hjarðarfelli orti:
Ístrumagar er mér sagt
illa þori að sigla,
hræddir um að meiri magt
muni sig við þeim yggla.
Séð hef ég þennan stóra stein
– stendur þar hinn kyrri,
gatan liggur að honum ein –
einhvern tíma fyrri.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Bragð er þó gott bragð sé
Í klípu
„ÞÆR ERU ÞÚ. ÉG VAR AÐ VONA AÐ VIÐ
GÆTUM GERT BETUR EN ÞAÐ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG VAR AÐ HUGSA UM AÐ BÚA TIL
GRÆNMETISGARÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skipta uppeldinu
með sér.
ÉG ELSKA
GÖNGUR.
HELGA MUN VILJA FÁ
AÐ VITA AF HVERJU
ÉG KEM HEIM
SVONA SEINT...
...EN EF
ÉG LÝG AÐ
HENNI...
... ÞÁ MUNU
HORNIN
DETTA AF!
ÞIÐ ÞEKKIÐ
MIG ALLT OF
VEL!!
ÚTSALA
Þrettán mánuðum eftir að húnfæddi son sinn tók hin breska
Jessica Ennis-Hill við gull-
verðlaunum í sjöþraut kvenna á
heimsmeistaramótinu í frjálsum
íþróttum í Peking í Kína um síðustu
helgi. Afrekið er einstakt sérstaklega
í ljósi þess hversu stutt var liðið frá
barnsburði.
x x x
Fjölmiðlar hafa mikið rætt um þettaeinstaka afrek hennar og skal
engan undra. Í nokkrum blaðagrein-
um er meðal annars vitnað í þjálfara
hennar sem segist sjálfur ekki hafa
búist við þessum árangri hennar.
Hann tekur það þó fram að hún hafi
alltaf haft alla burði til þess að ná
svona langt.
x x x
Ástæðan fyrir því að árangurinnkemur þjálfara hennar á óvart er
líklega sú að engin kona hefur áður
náð sambærilegum árangri í sjöþraut
svo stuttu eftir að hafa átt barn.
Það fylgir hins vegar ekki frétt-
unum hversu margar eða hvort aðrar
konur hafi reynt að keppa í sjöþraut
á álíka stóru móti eftir barnsburð.
x x x
Það skal þó tekið fram, áður enlengra er haldið, að hún Jessica
er 29 ára gömul og er bæði ólympíu-
meistari í sjöþraut og fyrrverandi
Evrópumeistari í sömu grein. Konan
er vægast sagt í hörkuformi.
x x x
Víkverji þykist vita að íþróttamað-ur á þessu kalíberi hafi ekki lagst
flatur upp í sófa, opnað snakkpoka og
heimtað þjónustu í hæsta gæðaflokki
um leið og hún hefur pissað á prikið,
heldur haldið áfram að hreyfa sig.
Það er að segja ef hún hefur haldið
áfram að vera hraust og frísk.
x x x
Þetta afrek sýnir að það er allthægt ef viljinn er fyrir hendi.
Líkaminn hefur ótrúlega aðlögunar-
hæfni þar sem skynsemin þarf að
vera í aðalhlutverki. Að þessu sögðu
heldur Víkverji að konur verði ekki
verri íþróttamenn eftir að hafa átt
eins og eitt stykki barn.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Biðjið, og yður mun gefast, leitið og
þér munuð finna, knýið á og fyrir yður
mun upp lokið verða. (Matt. 7:7)
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/