Morgunblaðið - 29.08.2015, Side 16

Morgunblaðið - 29.08.2015, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2015 Þýska orkufyrirtækið EAB New Energy hefur skrifað undir vilja- yfirlýsingu við Fallorku á Akureyri um að kanna möguleika í Eyjafirði til uppbyggingar á vindmyllum til raforkuframleiðslu. Fyrirtækið hefur gert svipað samkomulag við Rangárþing ytra og fyrir bæjarráði Norðurþings liggja drög að vilja- yfirlýsingu sem ekki hefur verið skrifað undir. Andri Teitsson, framkvæmda- stjóri Fallorku, segir að um al- menna yfirlýsingu sé að ræða og ekki skuldbindandi af hálfu Fall- orku. Verið sé að skoða nokkra möguleika og engin ein staðsetning verið ákveðin umfram aðra. „Við höfum hitt forsvarsmenn nokkurra sveitarfélaga í Eyjafirði og kynnt þessar hugmyndir. Vind- myllurnar eru plássfrekar og sýni- legar og ekki hægt að hafa þær hvar sem er. Einnig þarf að huga að tækninni, hvar mikill vindur er og hvar best er að tengjast raf- orkukerfinu,“ segir Andri. Hann segir það koma til greina að Fall- orka annaðhvort gerist meðeigandi að vindorkuverkefninu eða kaupi raforkuna til að endurselja hana á svæðinu. Ekkert sé búið að ákveða í þessum efnum. Til skoðunar í Norðurþingi Kristján Þór Magnússon, bæjar- stjóri Norðurþings, segir að verið sé að yfirfara viljayfirlýsinguna við EAB New Energy. Lítill tími hafi gefist í sumar til að ganga frá mál- inu og uppbyggingaráform á Bakka verið í forgrunni. Býst Krist- ján Þór við að málið komi til um- fjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði á næstu vikum. bjb@mbl.is Kanna vindmyllu- kosti í Eyjafirði Vindmyllur Möguleiki er að þær rísi í Eyja- firði á næstu árum, sem og víðar um land. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hörður Arnarson, forstjóri Lands- virkjunar, segir ekki rétt að orku- verð fyrirtækisins í heildsölu hafi hækkað verulega að undanförnu. Þvert á móti hafi meðalverðið hækkað um innan við 4% frá ára- mótum. Tilefnið er um- fjöllun Morgun- blaðsins fyrr í sumar um gagn- rýni Samtaka iðn- aðarins og Andra Þórs Guðmunds- sonar, forstóra Ölgerðarinnar, á þróun raforkuverðs. Andri Þór sagði orkuverð til fyrir- tækisins hafa hækkað um 17% milli ára. Ölgerðin keypti raforkuna af Fallorku og hefði fyrirtækið fengið þær upplýsingar frá seljanda að heildsalinn, Landsvirkjun, hefði hækkað meðalverð í skammtíma- samningum um 40%. Hækkanirnar ekki útskýrðar Þá var haft eftir Bryndísi Skúla- dóttur, forstöðumanni umhverfis- mála hjá Samtökum iðnaðarins, að ekki hefðu komið fram haldbærar skýringar á mikilli hækkun á raf- orkuverði til einstakra fyrirtækja að undanförnu. Hörður segir raforkuverð Lands- virkjunar til heildsala hafa rétt fylgt verðlagi undanfarin ár. „Þannig að það hafa ekki verið miklar hækk- anir. Þvert á móti hafa verið mjög hóflegar hækkanir á þessum mark- aði, alveg tíu ár aftur í tímann,“ seg- ir Hörður. Hann bendir á að á árunum 2006 til 2010 hafi meðalverð á kílóvatt- stund af raforku verið 4,8, 4,9, 4,2, 4 og 4 krónur á þessum árum, í þess- ari röð. Árin 2011 til 2014 hafi verðið verið 4,1, 4,2, 4,2 og 4,4 krónur í þessari röð. Því hafi meðalverðið í fyrra, 4,4 krónur, verið í takt við verðið undanfarin ár. Sjö viðskiptavinir í heildsölu Heildsöluviðskiptavinir Lands- virkjunar eru Landsnet, Orkubú Vestfjarða, HS Orka, Orkusalan, Orka náttúrunnar, Rafveita Reyðar- fjarðar og Fallorka. Hörður segir að þegar verðþróun á heildsölumarkaði sé skoðuð sé rétt að líta til hækkunar á meðalraf- magnsverði í heildsölu frekar en til einstakra nýrra samninga. „Við höfum farið yfir þessi mál með Samtökum iðnaðarins. Það er rétt að benda á að Ölgerðin er ekki í viðskiptum við okkur. Fallorka og önnur heildsölufyrirtæki framleiða að hluta til sína eigin orku, þannig að það er erfitt fyrir okkur að tjá okkur um viðskipti Fallorku við sína við- skiptavini. Við vísum því á bug að verð hjá okkur hafi almennt hækkað um tugi prósenta. Það er einfaldlega ekki rétt. Aðilar eins og Ölgerðin fara reglulega í útboð.“ Mjög hagstæðir samningar Hörður segir Ölgerðina hafa náð að semja um gott verð á sínum tíma. „Það virðist sem Ölgerðin hafi fyrir nokkrum árum náð mjög hag- stæðum samningum í gegnum Fall- orku og er ekki annað hægt en að gleðjast yfir því fyrir hönd Ölgerðar- innar. Nú er Ölgerðin hins vegar að greiða svipað verð og aðrir aðilar hafa greitt undanfarin ár. Það er afar sérstæð túlkun að ef menn fá hagstætt verð í nokkur ár, af einhverjum ástæðum, og hag- stæðara en aðrir, fái þeir síðan hækkun ef þeir fá ekki sama tilboð áfram,“ segir Hörður. „Þetta er þvert á móti ákveðin leiðrétting á verðlagningunni,“ segir Hörður. Rekstrartekjur Landsvirkjunar á fyrstu sex mánuðum ársins námu sem svarar 28,7 milljörðum króna. sem er 6,2% hækkun frá fyrra ári. Segir orkuverð Landsvirkjunar lítið hafa hækkað síðustu ár  Forstjóri Landsvirkjunar svarar gagnrýni á meintar hækkanir á orkuverði Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Kárahnjúkavirkjun Forstjóri Landsvirkjunar segir meðalverð á raforku sem fyrirtækið selur til heildsölufyrirtækja lítið hafa hækkað undanfarið. Hörður Arnarson Fram kom í Morgunblaðinu 6. ágúst síðastliðinn að lítið vatn væri í mörg- um miðlunarlónum Landsvirkjunar. Var staðan í Hálslóni Kárahnjúkavirkj- unar sérstaklega slæm. Spurður um þróunina á síðustu vikum segir Hörður Arnarson að staðan hafi heldur batnað í Hálslóni á síðustu vikum. Innrennslið síðustu daga hafi verið gott enda rigningar fyrir austan. „Lónstaðan er þó enn lág,“ segir Hörður. Það muni koma í ljós um miðjan september hvort lónstaðan í Hálslóni muni hafa áhrif á orkuframleiðslu Kárahnjúkavirkjunar í vetur. Miðvikudaginn 5. ágúst var vatnsborð Hálslóns í 592,97 metra hæð yfir sjávarmáli, sem var það langlægsta frá árinu 2008, að því er fram kom í Morgunblaðinu. Það var komið í 604,48 metra í gær. Það hefur því hækk- að um á annan tug metra síðan 5. ágúst. Yfirfall lónsins er miðað við 625 metra yfir sjávarmáli. „Staðan í Þórisvatni á Suðurlandi er góð og yfir væntingum. Hún er viðunandi í Blöndulóni en það hefur verið að taka við sér,“ segir Hörður. Miðlunarlónin taka við sér YFIRBORÐ Í HÁLSLÓNI ER AÐ HÆKKA „Hátíðin er fjölsótt og þjappar fólki hér í hverfinu saman,“ segir Þórir Jóhannsson, formaður Íbúa- samtaka Grafarholts, sem standa að hátíðinni Í holtinu heima í dag, laugardag. Dagskráin hefst kl. 11 þegar skokk-, göngu- og hjólahópar leggja upp. Kl. 13 hefst svo dagskrá við leik- svæðið í Leirdal. Þangað getur fólk mætt á bílum sínum og selt varning beint úr farangursrými þeirra. Á svæðinu verða leiktæki og skemmt- un fyrir börn, flugmenn úr Fis- félagi Reykjavíkur fara yfir svæðið og dreifa sælgæti og skátar og fólk úr íþróttafélaginu Fram láta til sín taka. Dagskráin í Leirdal rúllar svo áfram allt síðdegið og kl. 15 mæta bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór sem syngja nokkur lög. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hjólað Á beinni braut og lagt af stað á Grafarholtshátíðinni síðasta ár. Halda hátíð í Grafarholtinu í dag Samfylkingin hefur ráðið Kristján Guy Burgess sem framkvæmda- stjóra. Hann mun hefja störf 1. nóvember. Kristján hefur að undanförnu starfað fyrir Atl- antshafs- bandalagið sem fulltrúi þess gagn- vart Sameinuðu þjóðunum í New York. Árin 2009-2013 var hann að- stoðarmaður utanríkisráðherra og frá 2005-2009 rak hann ráðgjafar- fyrirtæki í alþjóðamálum. Hann mun hefja störf 1. nóvember. Kristján er í sambúð með Rósu Björk Brynjólfsdóttur og þau eiga þrjú börn á aldrinum 2-11 ára. Nýr framkvæmda- stjóri Samfylkingar Kristján Guy Burgess Keilumót sjónvarpsþáttarins Kíkt í skúrinn verður í Keiluhöllinni Egils- höll í Reykjavík í kvöld klukkan 19. Jafnframt verður næsta þáttaröð, sem sýnd er á sjónvarpsstöðinni Hringbraut, kynnt. Fram kemur í tilkynningu að ekki sé farið fram á að meðlimir klúbb- anna komi á glæsibílum en glæsilegt væri að sjá þetta stóra bílaplan fullt af bílum og hjólum. Kíkt í skúrinn heldur keilumót í kvöld STUTT 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.