Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Síða 2
Kæru lesendurÞegar ritnefnd byrjaði að huga
að útgáfu þessa blaðs vöknuðu efa
semdir um hvort nægt efni myndi fást
í blaðið. Við komumst fljótt að raun
um að þær vangaveltur voru óþarfar.
Við brögð við tölvupósti sem ritnefnd
sendi út þar sem óskað var eftir efni í
blaðið létu ekki á sér standa og aðrir
brugðust jákvætt við því að skrifa í
blaðið þegar við höfðum sam band,
jafnvel með stuttum fyrirvara.
Að þessu sinni fór ritnefnd nýja leið
við val á forsíðumynd og efndi til
ljósmyndasamkeppni meðal iðjuþjálfa
og nema. Mynd Ericu do Carmo iðju
þjálfanema var valin sú besta og óskum
við henni til hamingju. Myndir hinna
þriggja þátttakendanna má sjá inni í
blaðinu og getur því hver og einn gert
upp við sig hvort hann sé sammála
ritnefnd í valinu á forsíðumynd. Svo er
aldrei að vita nema framhald verði á
þessari keppni og hvetjum við því
iðjuþjálfa og nema að vera duglega
með myndavélina og opna fyrir
forsíðu myndefni.
Ákveðið var að ganga ekki út frá
sérstöku þema í þessu blaði, heldur
gefa hverjum og einum frjálsar hendur
með viðfangsefni fyrir blaðið. Gaman
er að sjá eldmóðinn sem býr í iðju
þjálfum og í faginu okkar. Fullt af
áhugaverðu efni prýðir blaðið og ættu
allir að geta fundið lesefni við sitt hæfi.
Að þessu sinni er engin ritrýnd grein
en eins og gefur að skilja er og verður
misjafnt hvort slíkar greinar birtast í
blaðinu okkar, það fer allt eftir hvernig
árar í þeim efnum.
Nægur tími er fyrir þá sem vilja
skrifa grein eða birta annað efni í
næsta blaði, því ætlunin er að það komi
út að ári liðnu. Allar hugmyndir að
efni og öðru sem ykkur finnst eiga
heima í blaðinu eru vel þegnar og rétt
er að minna á netfang ritnefndar:
ritnefnd.ii@sigl.is.
Við endum þennan pistil á kærum
þökkum til allra sem komu að útgáfu
þessa blaðs með einum eða öðrum
hætti og vonum að lesendur séu
ánægðir með útkomuna.
Frá ritnefnd
Efnisyfirlit
Stjórn IÞÍ
Júlíana Hansdóttir Aspelund, formaður
Sigþrúður Loftsdóttir, varaformaður
Ingibjörg Ólafsdóttir, gjaldkeri
Eygló Daníelsdóttir, ritari
Ósk Sigurðardóttir, meðstjórnandi
Sigrún Ólafsdóttir, varamaður
Rósa Hauksdóttir, varamaður
Umsjón félagaskrár
Þjónustuskrifstofa SIGL
Ritnefnd (ritnefnd.ii@sigl.is)
Álfheiður Karlsdóttir
Guðrún Hallgrímsdóttir
Harpa Gunnlaugsdóttir
Hjördís Anna Benediktsdóttir
Petrea Guðný Sigurðardóttir
Ritstjóri
Petrea Guðný Sigurðardóttir
Prófarkalesari
Arnór Hauksson
Prentvinnsla
Litlaprent
Forsíðumynd
Erica do Carmo
Ritnefnd áskilur sér rétt til að stytta
texta og færa til betri vegar. Vitna má í
texta blaðsins ef heimildar er getið.
Iðjuþjálfinn
Fagblað iðjuþjálfa
Iðjuþjálfinn
Fagblað iðjuþjálfa
Pistill formanns ................................ 4
Höf. Júlíana Hansdóttir Aspelund
Siðanefnd 2009-2010 .......................5
Höf. Guðrún Áslaug Einarsdóttir
Fréttir frá fræðslu-
og kynningarnefnd ............................6
Höf. Helga Kristín Gestsdóttir
Kjaranefnd
Lest þú launaseðilinn þinn? ...............8
Höf. Berglind Indriðadóttir
VIRK
Starfsendurhæfingarsjóður ..............10
Höf. Sigurður Þór Sigursteinsson
Helsinkifarar
Norrænt málþing ............................12
Höf. Sif Þórsdóttir, Sigurður Þór
Sigursteinsson, Unnur St. Alfreðsdóttir
Hlutverkasetur .................................14
Höf. Guðrún Helga Ólafsdóttir, Kristín G.
Sigursteinsdóttir
Um idjuthjalfun.is .............................15
Höf. Sigurður Hólm Gunnarsson
Forsíðumyndasamkeppni ................16
Bókarhorn ........................................17
Höf. Ingibjörg Pétursdóttir
Heilsuhópur
undirbúningur og framkvæmd .........18
Höf. Ósk Sigurðardóttir
Heildarstefnumótun varðandi
umönnun heilabilaðra á
Hrafnistu ..........................................22
Höf. Hrönn Ljótsdóttir, Lovísa Agnes
Jónsdóttir, Sigurbjörg Hannesdóttir
Iðjuþjálfinn og efling félagsfærni
grunnskólanemenda ........................24
Höf. Sigríður Kristín Gísladóttir
Iðjuþjálfun á réttargeðdeildinni
Sogni ...............................................28
Höf. Fanney Björg Karlsdóttir
2 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009