Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Side 13

Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Side 13
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009 • 13 Internat iona l Clas s i f i ca t ion of Functioning, Disability and Health (ICF) og Return to Work (RTW). Hún velti meðal annars upp spurn­ ingum eins og hvort ICF væri inni í menntun iðjuþjálfa og hvort RTW þekkingargrunnur væri hluti af menntun iðjuþjálfa og hvort þörf væri á því, einnig hvort þörf væri á sérstakri útgáfu af ICF í atvinnuendurhæfingu. Toini Harra, iðjuþjálfi og kennari við Helsinki Metropolia University of Applied Sciences, hélt fyrirlestur um siðferðilegar hliðar á starfshæfnismati (Ethical aspects of vocational assess­ ment). Hún velti upp spurningum eins og hvort starfshæfnismat hjálpi ein­ staklingi að fá atvinnu við hæfi, og hvaða skammvinnu eða langvinnu áhrif starfshæfnismat gæti haft á líf einstak­ lingsins. Hún ræddi einnig um hvort niðurstaða starfshæfnismats verði að liði við ákvörðunartöku í endur hæf­ ingunni. Einnig voru haldnir fyrirlestrar af öðrum en iðjuþjálfum og má þar nefna fulltrúa frá Tryggingastofnun Finnlands (The Social Insurance Institution of Finland) sem talaði um áhrif atvinnu­ endurhæfingar á þjóðfélagið og nauðsyn þess að meta stöðu og möguleika einstaklings sem er um það bil að detta út af vinnumarkaði og hlutverk iðju­ þjálfa í því ferli. Báða dagana voru pallborðsumræður og vinnuhópar störfuðu. Umræðuefni vinnuhópanna voru: 1. Hverjir eru skjólstæðingar atvinnuendurhæfingar. 2. Ný störf á ört breytilegum vinnu­ markaði. 3. Hver ber ábyrgð á starfs­ hæfnismatinu. Umræðurnar voru fjörugar, fræðandi og fumlausar. Það var greinilegt að okkur öllum þótti kærkomið að hitta starfsfélaga frá hinum Norður lönd­ unum, ræða málin og skiptast á skoðunum. Fundarmenn voru sammála um að nauðsynlegt væri fyrir iðjuþjálfa að vinna að því að markaðssetja og styrkja stöðu iðjuþjálfa innan atvinnu­ endurhæfingar. Verkefnið sem verður unnið með áfram er að skilgreina betur hlutverk iðjuþjálfa í atvinnuendur­ hæfingu og var myndað tengslanet til að fylgja því eftir. Formenn félaganna okkar ræddu allir um það hvernig niðurstaða málþingsins yrði þróuð áfram í viðkomandi félagi. Ekki hafði unnist mikill tími á málþinginu til að ræða hvernig atvinnuendurhæfing er í boði í hverju landi og hvað við sem vorum þarna störfum nákvæmlega við. Rætt var um það að á næsta málþingi þessa hóps yrði rætt um þennan þátt atvinnuendurhæfingar. Eftir þessa tvo daga má segja að við höfum verið eins og undnar tuskur, búin að einbeita okkur af öllum mætti og tala íslensku, dönsku, sænsku og ensku á víxl. Eftir að hafa hvílst vel héldum við heim á leið sammála um að þetta hefði verið bæði ánægjulegt og fróðlegt málþing og góð ákvörðun á formannafundi árið áður að halda slík málþing. Við þrjú vorum sammála um að gaman hafi verið að hitta þarna á sama stað alla formenn norrænu iðjuþjálfafélaganna og sjá andlitin á bak við nöfnin. Það sem tekur við hjá okkur núna er að stofna faghóp iðju­ þjálfa innan atvinnuendurhæfingar, efla okkur og styrkja og vinna meðal annars úr þeim hugmyndum sem við fengum í Helsinki. Stofnfundurinn verður aug lýstur á heimasíðu IÞÍ og póstur sendur á félagsmenn. ■ Slakað á í hléi ■ Hópurinn

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.