Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Blaðsíða 5

Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Blaðsíða 5
Í siðanefnd 2009­2010 sitja Hrefna K. Óskarsdóttir, Hulda Þórey Gísla­ dóttir og Sigríður Bjarnadóttir. Varamenn eru Katla Kristvinsdóttir, Þórhildur Sveinsdóttir og Soffía Haralds dóttir. Á heimasíðu Iðjuþjálfa­ félags Íslands (IÞÍ) er að finna upp­ lýsingar um hvernig nálgast má nefndar menn. Nefndinni hefur borist eitt erindi til umfjöllunar á árinu og er það í vinnslu, einnig hafa komið nokkrar óform legar fyrirspurnir. Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér siðareglur félagsins sem finna má á heimasíðu IÞÍ. Umfjöllun um siðareglur IÞÍ Í síðustu tölublöðum Iðjuþjálfans hefur verið umfjöllun um siðareglur IÞÍ og hefur hún verið í formi stuttra hugleiðinga, þar sem tekin er fyrir ein siðaregla hverju sinni. Ég hef verið beðin um að halda þessari umfjöllun áfram þrátt fyrir að ég sitji ekki lengur í siðanefnd. Þetta geri ég með glöðu geði, enda tel ég mikilvægt að við höldum siðferðilegri umræðu á lofti innan félags okkar. Það finnst mér vera eðlilegur þáttur í að þróa okkur áfram sem fagfólk og fagfélag. Mér finnst við hæfi nú þegar þjóðfélagið stendur á miklum tímamótum að gera grein 4.3 að umræðuefni. 4.3. Iðjuþjálfi hefur frumkvæði að og er virkur þátttakandi í stefnumótun heilsu eflingar, hæfingar­ og endurhæf­ ingar þjónustu innan heilbrigðis­, félags­ og menntakerfis. Þátttaka á vettvangi ákvarðanatöku, stefnumótunar og stjórnunar fellur okkur misvel, en í ofangreindri siða­ reglu erum við hvött til þátttöku þrátt fyrir það. Uppbygging þjónust unnar skiptir jú miklu máli um hvernig til tekst. Auðvitað geta ekki allir verið í forsvari, en allir geta lagt sitt af mörkum með því að koma skoðunum á framfæri til þeirra sem með valdið fara, hvetja til umræðu á vinnustað, innan félagsins eða í opinberri umræðu. Það sem skiptir máli er að vera vakandi fyrir því sem er skjólstæðingum okkar í hag og að tala þeirra máli. Ennfremur er mikilvægt að vekja athygli á því sem betur má fara og fylgja því eftir af bestu getu og móta með sér hvetjandi viðhorf. Tökum við vel í hugmyndir og þegar frumkvæði er sýnt? Styðjum við nægjan lega vel við þá iðjuþjálfa sem komist hafa til áhrifa innan kerfisins? Siðareglurnar eiga að vera okkur veg­ vísir í starfi og hvetja okkur til að staldra við og skoða málin. Samfélagið er á tímamótum og mikil gerjun á sér stað á ýmsum stöðum. Verum opin fyrir þeim áhrifum sem við getum haft til hagsbóta fyrir skjólstæðinga okkar. Með kveðju fyrir hönd siðanefndar, Guðrún Áslaug Einarsdóttir iðjuþjálfi og guðfræðingur Siðanefnd 2009-2010 IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009 • 5 ! ! Rafeyri annast viðgerðir á hjálpartækjum fyrir fatlaða ! Rafeyri stefnir fram á veginn Rafeyri ehf. — Nor!urtanga 5 — 600 Akureyri — 461 1221 rafeyri@rafeyri.is — www.rafeyri.is !

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.