Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Blaðsíða 20

Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Blaðsíða 20
20 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009 stuðningi og var þá skiptum fyrir foreldra fjölgað úr fjórum í sex. Einnig tók ungl ingahópurinn nokkrum breytingum, handbókinni var breytt örlítið og matardagbókin minnkuð úr A4 í A5, en sú stærð hentaði ungling­ unum betur. Annar hópur fór af stað í mars á þessu ári og bárust tilvísanir í hann frá BUGL og Barnaspítala Hringsins. Rannsókn mun hefjast sem fyrst og er ráðgert að opna fyrir tilvísanir úr heilsugæslu eftir að rannsókn hefur verið gerð. Einnig verður möguleiki á að bjóða þetta úrræði áfram til fyrstu og annarrar línu þjónustuaðila, en það er stefna BUGL að þróa gagnreynd meðferðarúrræði til að geta boðið þau áfram til þessara þjónustuaðila. Uppbygging námskeiðs Tekin eru forviðtöl við barn/ungling/ fjölskyldu þar sem farið er yfir stöðu mála, markmið sett og matslistar lagðir fyrir. Matslistarnir eru síðan lagðir fyrir aftur í lok þjónustunnar. Þeir eru annars vegar notaðir til að meta hegðun og líðan unglingsins og hins vegar til að meta hvernig foreldrar takast á við vanda barns/unglings. Þetta er meðal annars gert svo hægt sé að meta árangur meðferðarinnar. Eftirfylgni er þremur og sex mánuðum eftir að námskeiði lýkur, og haft er samband við hverja fjölskyldu þar sem farið er yfir stöðuna. Einnig er þyngd unglinga mæld og blóðþrýstingur mældur. Unglingahópur Í fræðsluþætti hvers tíma er tekið mið af ákveðnu viðfangsefni. Unglingarnir fá veglegt verkefnahefti sem sérstaklega hefur verið samið með starf Heilsu­ hópsins í huga. Farið er yfir samspil unglingsins, iðju og umhverfis, farið yfir daglega virkni og venjur og skoðað hvort breytinga er þörf. Unnið er með matardagbók og nýja tegund skráningar í takmarkaðan tíma, í því skyni að kenna heilbrigða umgengni við mat og næringu. Unglingunum er kennt að setja sér markmið og fylgjast með árangri. Síðan er farið í grunnþætti hug­ rænnar atferlismeðferðar og ýmsar aðferðir innan þeirrar meðferðarnálgunar eru kynntar. Útgangspunkturinn er að kenna tengsl hugsana, tilfinninga og hegðunar og að hvaða leyti hugsanir og viðhorf eiga þátt í að móta sjálfsmynd, líðan og hegðun unglinganna. Eftir að fræðsluþætti námskeiðs lýkur tekur við upplifunarþáttur námskeiðs eða ævin­ týrameðferð. Þar gefst ungling unum kostur á að styrkja sjálfsmynd sína og auka sjálfsstyrk í öruggum aðstæðum þar sem tekist er á við hin ýmsu sam­ vinnu­ og samskiptaverkefni utan dyra. Áhersla er á hrós, jákvæð samskipti og ekki síst að hafa það skemmtilegt saman. Aðstandendahópur Foreldrum er veittur stuðningur í sínu hlutverki, boðið upp á umræður og veitt fræðsla um eðli og vítahring næringarvanda, ráðgjöf í samskiptum og að takast á við vandann. Unnið er með verkefni í tímum og lögð fyrir verkefni á milli tíma, til dæmis: virk hlustun, hvatningarsamtöl og að takast á við hindranir og hvernig vandinn hefur áhrif á daglegt líf. Skoðuð eru áhrif vanda á fjölskylduna og áhrif fjölskyldunnar á vandann. Foreldrum er hjálpað við að vera styðjandi við barn/ungling og kennt hvernig þeir geta verið hvatning fyrir barn/ungling í að gera breytingu á lífsstíl. Miðað er við að foreldrar hafi bjargráð og styrk til að takast á við vandann, en með stuðningi fagaðila, og að samvinna foreldra og barns/unglings komi til með að skila góðum árangri. Markmið að námskeiði loknu er að þátttakendur sjái sig í jákvæðu ljósi og beini eigin hugsunum að sínum sterku hliðum og efli þær. Gott sjálfstraust og trú á eigin getu eru nauðsynlegir kostir til að barn/unglingur eflist í samskiptum við jafnaldra sína og fari að njóta sín á eigin forsendum. Einnig er markmiðið að foreldrar fái innsýn í mikilvægi þess að koma reglu á máltíðir og alla næringarinntöku unglingsins ásamt því að huga að almennri virkni og hreyfingu. Rannsókn Áætlað er að hefja rannsókn sem fyrst til að meta árangur úrræðisins og fékkst til þess styrkur frá Vísindasjóði Land­ spítala – háskólasjúkrahúss á þessu ári. Hefur rannsóknin hlotið nafnið: Unglingar í yfirþyngd og fjölskyldur þeirra: Leið til betra lífs og bættrar heilsu. Meðal annars verður lagt mat á hvort líðan, virkni, félagsleg færni, mataræði og daglegar venjur unglingsins breytist og lífsgæði batni. Tilgangur úrræðisins er ekki að unglingarnir léttist, en rann­ sakendur álykta að með auknu jafnvægi í daglegu lífi, munu lang tímaáhrif verða þau að þyngd þeirra taki breytingum í átt að kjörþyngd. Er það von rann sak­ enda að rannsóknin sýni fram á árangur og bætt lífsgæði fyrir unglingana og fjölskyldur þeirra til lengri tíma litið. Heimildaskrá Anderson, C. M., Hogarty, G. og Reiss, D. J. (1980) . Fami l y t r e a tment o f adu l t schizophrenic patients; a psychoeducational approach. Schizophrenia Bulletin, 6, 490­ 505. Bacon, L., Stern, J. S., Van Loan, M. D. og Keim, N. L. (2005). Size acceptance and intuitive eating improves health for obese, female chronic dieters. Journal of the American Dietetic Association, 105, 929­936. Craighead, L. W. og Allen, H. N. (1995). Appetite awareness training: A cognitive behavioral intervention for binge eating. Cognitive and Behavioral Practice, 2 (2), 249­ 270. Craighead, L. W. og Allen, H. N. (1999). Appetite monitoring in the threatment of binge eating disorder. Behavior Therapy, 30 (2), 253­272. Craighead, L. W. (2006). The appetite awareness workbook: How to listen to your body & overcome bingeing, overeating & obsession with food. New Harbinger Publications: Oakland, CA. Crisp, A. H., Norton, K., Gowers, S., Halek, C., Bowyer, C., Yeldham, D., Levett, G. og Bhat, A. (1991). A controlled study of the effect of therapies aimed at adolescent and family psychopathology in anorexia nervosa. British Journal of Psychiatry, 159, 325­333 Dobson, R. (2003). Children growing up as inside people. The New Zealand Herald. 9. 2. http://www.guardian.co.uk/medicine/ story/0,11381,1011492,00.html Eddy, K. T., Tanofsky­Kraff, M., Thompson­ Brenner, H., Herzog, D. B., Brown, T. A. og Ludwig, D. S. (2007). Eating disorder pathology among overweight treatment­ seekin youth: Clinical correlates and cross­ sectional risk modeling. Behaviour Research and Therapy, 45, 2360­2371. Fox, K. R., Page, A., Peters, D. M., Armstrong, N. og Kirby, B. (1994). Dietary restraint and self perceptions in early adolescence. Personality and Individual Differences, 17, 87­ 96. Garner, D. M. og Garfinkel, P. E. (1997).

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.