Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Blaðsíða 17
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009 • 17
Bókarhorn
– Að endurvekja lífsneistann hjá fólki með heilabilun
Bókin er skrifuð af Jane Verity, dönskum iðjuþjálfa sem hefur starfað og búið í Ástralíu í fjölda mörg
ár. Hún hefur starfað innan heila bilunargeirans en
hún hefur einnig persónulega reynslu af heilabilun
þar sem móðir hennar var með sjúkdóminn. Jane á
því auðvelt með að setja sig í spor aðstandenda.
Undanfarin ár hefur hún fyrst og fremst stundað
fyrirlestrahald og fræðslu en hún er mjög vinsæl og
eftirsótt á því sviði. Hún hefur meðal annars haldið
námskeið hér á landi.
Jane er sannfærð um að hægt sé að endurvekja
lífsneistann hjá þeim sem þjást af heilabilun. Hún
hefur því sett sér það takmark að breyta afstöðu
samfélagsins til heilabilunar. Jane vill hjálpa fólki með
heilabilun, aðstand endum þeirra og starfsfólki að
halda í vonina og bjartsýnina, svo lífið verði
skemmtilegra og innihaldsríkara. Í bókinni eru
tillögur að daglegum athöfnum sem fólk með
heilabilun getur haft gagn og gleði af. Þar má einnig
finna ýmsar upplýsingar, fróð leiksmola og mörg
hagnýt ráð, sem henta bæði þeim sem eru með sjúk
dóminn á byrjunarstigi og þeim sem eru með lengra
genginn sjúkdóm.
Haft er eftir höfundinum:
„Margoft hef ég orðið fyrir því þegar ég hef haldið
fyrirlestra mína, að ættingjar fólks með heilabilun sem
hafa hlustað á mig koma til mín og segja: „Bara að ég
hefði kynnst þessum boðskap fyrr, þá hefði ég gert
svo margt öðruvísi og við hefðum verið miklu
sáttari.““
Boðskapurinn í þessari bók snýst um að styrkja þá
sem hafa samneyti við fólk með heilabilun til að
treysta eigin tilfinningum og að sýna fram á hvernig
hægt er að standa með sjálfum sér, tilfinningum
sínum og því sem maður trúir á.
Þýðandi: Ingibjörg Pétursdóttir, iðjuþjálfi.
Útgefandi: Félag áhugafólks og aðstandenda
Alzheimers sjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma
(FAAS).
Hægt er að nálgast bókina á heimasíðu FAAS:
www.alzheimer.is. Þar er einnig að finna upplýsingar
um annað útgefið efni.
Með kveðju,
Ingibjörg Pétursdóttir
iðjuþjálfi