Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Blaðsíða 9
ins http://www.bhm.is/media/styrktar
sjodur/090701%20 Starfs reglur%20
STBHM.pdf
Styrktarsjóður sér nú um greiðslu
fæðingarstyrkja og hefur tekið við því
hlutverki af Fjölskyldu og styrktarsjóði
(FOS) – sjá nánar undir Varð andi
fæðingarorlof.
Starfsmenntunarsjóður BHM var
stofnaður með samkomulagi BHM og
ríkisins þann 5. september 1980. Flestir
háskólamenn sem starfa hjá hinu
opinbera eiga aðild að STRIB.
Þessi sjóður var fyrst og fremst hugs
aður fyrir ríkisstarfsmenn en nú geta
allir félagsmenn innan BHM sótt um
aðild að sjóðnum þó að þeir séu á
almenna vinnumarkaðnum. Í þeim
tilfellum þarf að sækja um það sér
staklega. Til að eiga rétt á styrk úr
sjóðnum þurfa greiðslur frá vinnu
veitanda með sjóðsaðild að hafa borist í
sjóðinn í að minnsta kosti eitt ár
samfellt og félagsmaður má ekki hafa
hlotið hámarksfyrirgreiðslu síðastliðin
tvö ár. Réttindi safnast ekki fyrir í
sjóðnum og það að hafa aldrei sótt um
kemur sjóðfélaga ekki til góða nema ef
sjóðurinn er rýr en þá njóta þeir for
gangs sem aldrei hafa fengið úthlutað
áður.
Varðandi fæðingarorlof
Fæðingarstyrkur er ein greiðsla upp á
170.000 kr og hægt er að sækja um
þennan styrk úr Styrktarsjóði BHM.
Miðað er við hvern félagsmann sem
sækir um, það er báðir foreldrar séu
félagsmenn í stéttarfélagi innan BHM
geta báðir sótt um fæðingarstyrk.
Athugið að skila þarf inn fæðingar
vottorði og afriti af síðasta launaseðli.
Við bendum einnig á mikilvægi þess að
merkja við á umsókn um fæðingarorlof
að félagsgjald í stéttarfélag sé greitt af
greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Ef
ekki eru greidd stéttarfélagsgjöld á
meðan á fæðingarorlofi stendur, falla
öll réttindi hjá stéttarfélagi viðkomandi
niður.
Kjaranefndin þakkar ykkur fyrir sam
starfið og hvetur ykkur enn og aftur til
að hafa samband ef spurningar vakna
varðandi kaup og kjör. Við horfum
björtum augum til framtíðar enda mörg
tækifæri í boði fyrir iðjuþjálfa á Íslandi í
dag. Þar má meðal annars nefna breyttar
áherslur hvað varðar starfsendurhæfingu
í samstarfi við starfsendurhæfingarsjóð
og með aðkomu sérstakra ráðgjafa á
vegum stéttarfélaganna. Hafið augun
opin!
Með kveðju fyrir hönd kjaranefndar,
Berglind Indriðadóttir
formaður
IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009 • 9