Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Qupperneq 4
Nýlega fóru héðan iðjuþjálfar á norrænt málþing um starfsendur
hæfingu sem haldið var í Helsinki.
Talsvert var rætt um mikilvægi þess að
iðjuþjálfar leggi stund á rannsóknir,
samfara því að skrá niður íhlutun sína
og greina frá daglegum störfum sínum.
Við iðjuþjálfar þurfum að vera dug legir
að leggja áherslu á þá sértæku þekkingu
sem við höfum á iðju mannsins.
Þekkingin hefur hefur orðið til úr
reynslu okkar og gildum, upplýsingum
sem settar hafa verið í samhengi og því
innsæi sem byggir á sérþekkingu okkar.
Þekkingu er gjarnan skipt niður í ljósa
og leynda þekkingu. Ljós þekking er
formleg og kerfisbundin, það er auðvelt
að koma orðum að henni og miðla
henni til annarra. Leynd þekking er
hins vegar mjög persónuleg, það er
erfitt að formfesta hana og þess vegna
getur verið erfitt að miðla henni. Hún
býr með fólki og í því umhverfi sem
það lifir í og það er auðveldara að
miðla þekkingunni til annarra sem
þekkja einnig til þessa umhverfis.
Skilningur og sameiginlegur eða
sambærilegur reynsluheimur skiptir
miklu máli þegar miðla þarf því, sem
erfitt er að orða. Af þeim ástæðum er
faghópur kjörinn vettvangur til þekk
ingarmiðlunar og þekkingar sköpunar.
Með þátttöku í faghóp gefst tækifæri
til að velta upp mörgum spurningum
sem tengjast fagsviðinu, gera leynda
þekkingu að ljósri og efla þannig
faglega þekkingu enn frekar. Í kjölfarið
á málþinginu í Helsinki ætla þeir
iðjuþjálfar sem þar tóku þátt og vinna
innan starfsendurhæfingar að stofna
faghóp um starfsendurhæfingu innan
félagsins. Það er kærkomin viðbót við
þá góðu hópa sem eru þegar starfandi.
Tæpt ár er liðið frá því að þjóðfélag
okkar lagðist á hliðina. Á þeim tíma
hefur mikið vatn runnið til sjávar og
miklar breytingar orðið á hugum og
háttum landsmanna. Allir eru sammála
um að vandinn sem við stöndum
frammi fyrir er mikill en hins vegar eru
áhöld um hvernig beri að greiða úr
honum. Iðjuþjálfafélag Íslands (IÞÍ)
átti aðkomu að gerð stöðugleika
sáttmála, líkt og önnur félög innan
Bandalags Háskólamanna (BHM) og
því stöndum við nú frammi fyrir því
að ganga frá kjarasamningum eins og
um er getið í sáttmálanum. Hins vegar
er erfitt að ganga í það verk nú á meðan
úrræði stjórnvalda eru óljós um margt
hvað varðar stöðu heimilanna í land
inu. Jafnframt er fyrirséður mikill
niður skurður innan heilbrigðiskerfisins.
IÞÍ óskar eftir því að ráðamenn og
stjórn endur leiti til iðjuþjálfa sem og
annarra faghópa þegar kemur að því að
móta niðurskurðartillögurnar. IÞÍ er
ekki kunnugt um atvinnuleysi á meðal
iðjuþjálfa enn sem komið er og
vonandi verður engin breyting þar á.
Stöndum vörð um störf okkar og
gætum að því að ákvæði kjarasamninga
og lögbundin réttindi okkar séu virt.
Stöndum saman nú sem fyrr.
Pistill formanns
■ Júlíana Hansdóttir Aspelund
formaður IÞÍ
4 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009